Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 10
fyrir árin 1981-1991 ekki fyllilega
sambærilegar við tölur vinnumark-
aðskönnunar Hagstofunnar enda
þótt þær gefi ágæta vísbendingu um
þróunina á þeim árum.
Spáir 14 þúsund nýjum störfum
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
áætlar út frá hagspám að tæplega 14
þúsund störf verði til í hagkerfinu á
árunum 2018-2022.
„Miðað við hag-
vaxtarspár, sem
liggja til grund-
vallar fjármála-
áætlun ríkis-
stjórnarinnar, má
ætla að 2.600 til
3.000 ný störf geti
orðið til á ári
tímabilið 2018-
2022. Þetta bygg-
ist á sögulegu
samhengi hagvaxtar og fjölgunar
starfa,“ segir Yngvi.
Til samanburðar áætlar Hagstof-
an að um 26.200 störf hafi orðið til í
hagkerfinu 2012 til 2017. Gangi spá
Analytica eftir munu tæplega 40.000
störf verða til á árunum 2012 til 2022.
Yngvi segir aðspurður að það sé
að líkindum met í hagsögu landsins.
Hann segist reikna út frá hagvaxt-
arspá fjármálaáætlunar. Á þessu
tímabili geti orðið hagsveiflur í báðar
áttir. Heildarfjölgun starfa sé þó
raunhæf.
Ekki sömu takmarkanir
Ásgeir Jónsson, forseti hagfræði-
deildar Háskóla Íslands, bendir á að
fyrri hagsveiflur hafi gjarnan endað
með miklum vinnuaflsskorti, launa-
þenslu, yfirborgunum og gengisfell-
ingu og niðursveiflu í kjölfarið.
Ávallt hafi vinnumarkaðurinn of-
hitnað. Innflutningur vinnuafls
sporni nú gegn launaþenslu sam-
hliða því að auka framleiðslugetuna í
hagkerfinu. Áður hafi takmarkað
framboð af vinnuafli takmarkað
vöxtinn. Mun minni líkur séu á að
hagkerfið muni rekast á launa- eða
framleiðsluþak á næstu árum.
„Fyrir vikið getum við fengið meiri
hagvöxt og í lengri tíma án þess að
hagkerfið ofhitni,“ segir Ásgeir.
Hann telur aðspurður að vöxtur
þjónustugeirans muni fjölga störfum
á næstu árum. Vöxtur útflutnings-
greina, einkum ferðaþjónustu, muni
kalla á ný störf við ýmsa þjónustu.
Þá séu fjölmennir árgangar fólks að
fara á eftirlaun sem sé mun efnaðra
en eldri kynslóðir.
„Með fjölgun eftirlaunaþega mun
þjónustuhagkerfið taka við sér. Nú
er eftirstríðskynslóðin að hefja eftir-
launatöku en hún er fyrsta kynslóðin
sem hefur náð að nýta sér núverandi
lífeyriskerfi sem og jákvæða raun-
vexti til þess spara fyrir góðum líf-
eyri. Þetta fólk er líka heilbrigðara
og virkara en áður þekktist.“
Ásgeir segir aðspurður horfur á
heldur minni fjárfestingu í atvinnu-
vegum. Á móti komi aukin umsvif í
byggingariðnaði og aukin fjárfesting
hins opinbera, til dæmis í innviðum.
Þá sé útlit fyrir slakara taumhald á
ríkisfjármálum, sem auki eftirspurn
og örvi einkaneyslu. Þessir þættir
skapi störf.
Fjölgun starfa á Íslandi án fordæma
Fjölgun/fækkun starfa 1981-2022*
Áætlun
8
6
4
2
0
-2
-4
-6
-8
-10
þúsund störf
Útreikningar: Analytica
Heimild: VMST (1981-1991) og Hagstofan (1992-2017)
*Áætlun fyrir 2018-2022 á grunni hagvaxtarspár (fjárlagaáætlun 2018) 2009: -11.100
2006: 8.200
1998: 5.900
2016: 6.900
2022:
2.673*
2017: 3.000
1981: 5.402
1988: -3.309
2002: -2.300
1981 1984 1987 1990 1993 1996 1999 2002 2005 2008 2011 2014 2017 2018-2022
Yngvi
Harðarson
Ásgeir
Jónsson
Mögulega lengsta skeið starfafjölgunar Hagfræðingur spáir 14 þúsund nýjum störfum til 2022
Karl
Sigurðsson
Morgunblaðið/Ómar
Byggt í miðborginni Umsvif byggingargeirans eru að aukast.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að núverandi
hagsveifla muni leiða til lengsta sam-
fellda tímabils starfafjölgunar á Ís-
landi frá byrjun níunda áratugarins.
Þetta segir Karl Sigurðsson, sér-
fræðingur hjá Vinnumálastofnun.
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar, sem hefur verið gerð
samfellt frá 1991, fjölgaði störfum
frá 1994 til 2001 að árunum 1996 og
1997 undanskildum, þegar störfum
fjölgaði lítið sem ekkert. Þá fjölgaði
störfum í fjögur ár samfellt á árun-
um 2005 til 2008, en fækkaði mikið á
árunum 2009 og 2010. Störfum hefur
síðan fjölgað ár hvert frá og með
árinu 2012 og verður þetta að
óbreyttu sjöunda árið í röð sem þeim
fjölgar. Hagspár benda til hagvaxtar
á næstu árum og því er útlit fyrir
frekari fjölgun starfa næstu ár.
Samræmdar mælingar frá 1980
Karl rifjar upp að atvinnuleysi
hafi verið reiknað út hjá Vinnumála-
stofnun og áður vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins með sam-
ræmdum hætti frá 1980. Að baki
þeim útreikningum liggi áætlun um
vinnuafl frá og með árinu 1980. Sam-
kvæmt þeirri áætlun hafi störfum
fjölgað samfleytt árin 1981-1987, eða
í a.m.k. sjö ár samfellt. „Síðan tók við
niðursveifla og tók störfum ekki að
fjölga að ráði fyrr en árið 1994.“
Karl segir ekki liggja fyrir sam-
bærilegar upplýsingar um fjölgun
starfa fyrir 1980. Þá séu tölurnar
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Megi raforkan verameð þér.
3.950.000 kr.
Vistvænt tilboðsverð frá
e-Golf á betra verði. Góð ástæða
til að skipta um orkugjafa.
Volkswagen e-Golf dregur allt að 300 km* og er fyrsti rafmagnsbíllinn með hreyfistýrðu
upplýsinga- og afþreyingarkerfi. Þú þarft aldrei aftur að fara inn í kaldan bíl eða leita að honum
á bílastæðinu. Komdu og finndu kraftinn í þessum magnaða bíl sem gengur 100% fyrir rafmagni.
Stuttur afgreiðslutími!
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
*Skv. NEDC staðlinum. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd