Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 12

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er gjarnan spurð aðþví hvernig slysasögurtengjast þjóðfræði, ogsvara því til að ég lít svo á að áföll tengist menningu okkar og sömuleiðis taka þau þátt í sköp- un menningarinnar. Þau eru hluti af okkar daglega lífi. Það eru t.d. margar áfallasögur í þjóðsögunum okkar, það sjáum við í þjóðsagna- safni Jóns Árnasonar, Djákninn á Myrká og Móðir mín í kví kví eru dæmi um það. En þrátt fyrir að slysasögur hafi breyst í gegnum tíðina er kjarni þeirra áþekkur. Þær þjóna því hlutverki að rekja slysasöguna, deila sorg, missi og sársauka,“ segir Vilborg Bjarka- dóttir sem opnar n.k laugardag sýningu sína Þjáning/tjáning: gildi sagnamennsku í bataferli eftir slys. Sýningin verður á Heilsu- stofnun Náttúrulækningafélags Ís- lands (heilsuhælinu í Hveragerði) og er sýningin meistaraverkefni Vilborgar í hagnýtri þjóðfræði. Sýningin byggist á viðtölum við fólk sem hefur lent í alvarlegum slysum og hlutum sem fólkið teng- ir við minninguna um slysið. Að ná tökum á eigin sögu „Ég var mjög innblásin af þjóðsagnasöfnun nítjándu aldar, mér fannst hrífandi þessi aðferð að fara á vettvang, tala við fólk og safna þannig sögum. Þegar ég átt- aði mig á að slysa- og áfallasögur eru allt í kringum okkur, þá fór ég að velta fyrir mér af hverju fólk væri að segja svona sögur og hvaða gildi þær hafa í samfélaginu. Ég vildi líka skoða hvort sögurnar þjónuðu mögulega tilgangi í bata- ferli fólks, og ég tel að svo sé. Til dæmis vegna þess að við lítum svo á að það sé í frásögur færandi þeg- ar einhver lendir í slysi. Sjúkra- skýrslur eru skrifaðar, sem eru frásögn hins opinbera. Og aðstand- endur eru með sitt sjónarhorn á söguna. Hjá mér er áherslan á að leyfa einstaklingnum sem lenti í slysinu að segja sína sögu og inn í það fléttast iðulega sagan af bata- ferlinu sem hefst eftir slysið. Það kemur fram í gögnum mínum að úrvinnsla í bataferli felur í sér að ná tökum á eigin sögu, þannig að fólki fari að finnast það verða aftur höfundar að eigin lífi. Að koma reiðu á óreiðuna og láta heiminn verða heilan aftur.“ Líf fólks umturnast Vilborg segir að stundum séu slys orðin að sögum áður en fólk sem í þeim lendir vill deila reynslu sinni, því fjölmiðlar koma oft strax á vettvang og þeir sem verða vitni segja líka frá því sem þeir sáu. „Manneskjan sem lendir í slysinu man jafnvel ekki sjálf eftir atburðinum, og er þá í raun að fá lánað minni annarra og kemur þannig sögunni sinni saman. Ég held að fólk noti sögur meira al- mennt en það gerir sér grein fyrir, til dæmis fer fólk á AA fundi og deilir þar með öðrum sínum sög- um, fólk fer til sálfræðinga í sam- talsmeðferðir, les sögur og horfir á kvikmyndir. Allt eru þetta ein- hverskonar sögur og oft eru þær hluti af bataferli.“ Vilborg segir að henni hafi komið á óvart hversu vel slípaðar sögur viðmælenda hennar voru. „Sumir eru greinilega búnir að miðla sinni sögu oft og búnir að hugsa söguna mikið og lengi. Fólk er að tala um sína dýpstu reynslu og þetta eru sögur sem hafa með sjálfsmynd viðkomandi að gera, því eftir slys eru margir þvingaðir til að breytast, hvort sem þeim lík- ar betur eða ver. Sumir geta ekki lengur gert hluti sem þeir voru vanir að gera og þurfa fyrir vikið að kúvenda sinni lífssögu. Líf þeirra umturnast og fólk þarf að finna sér nýjan tilgang og skapa sér nýja sjálfsmynd. Það er stórt verkefni að vinna úr öllum þeim tilfinningum sem fylgja því þegar fótunum er kippt undan fólki. Að deila reynslunni getur dregið úr tilfinningalegum sársauka.“ Magnaður kraftur fólks Vilborg segist hafa mikinn áhuga á hverskonar sögum, og hún sá að slysasögur hafa sömu byggingu og skáldsögur; upphaf, ris og niðurlag: Lífið fyrir slys, kúvending við slys, og svo hvernig öllu er púslað saman aftur. „Slysafrásagnir koma fyrir í mjög mörgum skáldsögum, þær eru stærri hluti af menningunni en við gerum okkur grein fyrir. Ég er ekki að skoða dauðaslys, en gríðarlega alvarleg slys þar sem fólk þarf virkilega að spyrna sér upp frá botninum. Mér fannst magnað að heyra af krafti fólks, hvernig það nær sér upp, og fyrir vikið er þetta alls ekki niðurdrep- andi, heldur á margan hátt sögur af sigri.“ Vilborg hefur skrifað ljóða- bókina Líkham, þar sem líkaminn í öllum sínum myndum er við- fangsefnið. Hún viðurkennir að vera mjög áhugasöm um manns- líkamann. „Mér finnst líka áhugavert hvernig við aðgreinum sál og lík- ama, til dæmis þá átti fólk áður fyrr erfitt með að trúa að fólk væri í áfalli ef það sá ekkert á líkamanum. Í kjölfar lestarslysa var fyrst farið að gefa andlegum áföllum gaum, og sem betur fer hefur aukist skilningur á því að áföll geta fylgt fólki ævilangt. Lík- ami og sál eru augljóslega ein heild.“ Áföll tengjast menningu okkar Vilborg Bjarkadóttir skoðaði hvaða gildi slysa- sögur hafa í samfélaginu og hvaða tilgangi þær þjóna í bataferli fólks sem lendir í alvarlegum slys- um og áföllum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vilborg Hún hefur mikinn áhuga á hverskonar sögum og söfnun sagna. Sýningin byggist á 17 viðtölum við einstaklinga sem hafa lifað af alvarleg slys. Fólkið er á breiðu aldurs- bili, bæði konur og karlar. Einnig eru til sýnis munir sem viðmælendur mínir hafa lánað á sýninguna. Þessir gripir tengjast allir slysinu og bataferlinu með beinum hætti og eru líkt og leikmunir eða sönn- unargögn um það sem gerðist. Nöfn viðmælenda koma hvergi fram, efnið er viðkvæmt og alls ekki aðalatriðið að sýningargestir viti hvað sagnamenn- irnir heita, það eru skilaboð sögunnar sem skipta máli. Í gegnum viðtalsbrotin má sjá mismunandi leiðir sem viðmælendur hafa fetað í bataferlinu. Meðal annars má sjá hvernig sumir sökkva sér í andleg málefni, aðrir nota svartan húmor til að vinna með sársaukann og enn aðrir líta á slysið sem þáttaskil og jafnvel upphaf að nýju lífi. Þegar kjarni viðtalanna er kannaður má sjá endurtekin stef. Þar eru efst á blaði breytt líkamsímynd, einangrun, kvíði, yfirnátt- úruleg reynsla, brostnir draumar og nýtt upphaf. Sýningin stendur frá 14. apríl - 26. maí 2018 á Heilsuhælinu í Hveragerði. Sumir nota svartan húmor í bataferlinu SÝNINGIN ÞJÁNING/TJÁNING: GILDI SAGNAMENNSKU Í BATAFERLI EFTIR SLYS Þetta var náttúrlega mjög mikið. Ég gat aldrei dansað á táskóm aftur af því að þá ertu alltaf að dansa á rist- inni. Það var búið að negla hana sam- an og þó að naglarnir væru teknir út eftir ellefu vikur og skrúfurnar eftir átján vikur þá er það aldrei eins. Ég á ekki þessa gömlu. Ég var búin að henda þeim því maður skiptir út mjög reglulega. Ég var nýbúin að kaupa mér nýja. Það sér að- eins á þeim. Ég á þá ennþá, en ég er ekkert að taka þá upp og syrgja þá. Þetta var bara einhvern veginn partur af þessu. Ég hef ekki viljað henda þeim. Ég hef ekki vilj- að henda þeim Tvö brot úr slysasögum Ég man bara að ég hugsaði strax: Ókei sjitt, ég er í há- hæluðum skóm. Þetta var í desember og náttúr- lega mjög kalt úti og ég var í miklum föt- um, með þykkan trefil og í þykkum jakka og á háum hælum. Ég man að ég hugsaði að ég þyrfti að reyna að komast úr skónum því ég ætlaði að reyna að sökkva ekki á botninn. Reyndi að sökkva ekki á botninn Smart föt, fyrir smart konur. Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.