Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 20

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Getty Images/iStockphoto Geðsjúkdómar „Mér finnst ekki sanngjarnt að heilbrigði geðsjúkra velti á því hversu sterkt bakland þeirra er.“ sinni. „Ég vakti yfir henni dag og nótt, hún svaf í fanginu á mér og þetta var nánast eins og að vera með ungbarn. Við reyndum með- ferðir án lyfja; t.d. líkamsrækt, jóga, dáleiðslu og fleira, en það bar lítinn árangur. Ég reyndi ítrekað að fá hana til að fara til geðlæknis, en hún leit á það sem uppgjöf. Henni fannst það líka vera viss viðurkenning á að hún væri með geðrænan vanda og átti erfitt með að horfast í augu við það,“ segir móðirin. Að lokum féllst stúlkan á að fara til geðlæknis sem greindi hana fljótlega með felmtursröskun, sem einnig kallast ofsakvíði (á ensku: Panic disorder) og þráhyggju- röskun. „Þetta er mjög alvarlegur kvíðasjúkdómur og þegar hún greindist var henni sagt að bata- horfurnar væru mjög litlar. Það hefur því miður ræst,“ segir móðir- in. Beðin um að lýsa einkennum sjúkdómsins segir hún að nærtæk- ast sé að segja að sá veiki „missi hugann frá sér“ og hafi ekki stjórn á huganum lengur og að rökhugs- unin hverfi. „Það er eins og við- komandi sé alltaf viðbúinn því að takast á við verstu hugsanlegu að- stæður. Þegar kvíðaköstin koma er eins og eldfjall gjósi, viðkomandi missir andann, allir vöðvar herpast saman og þetta veldur gríðarlegri vanlíðan og verkjum. Þessi stöðugi ótti veldur mikilli vöðvaspennu í líkamanum sem getur m.a. valdið verkjum og það þarf að þjálfa hug- ann algerlega upp á nýtt.“ Á þessum tíma var oft lagt til að dóttirin færi á geðdeild Landspít- alans, en hún þvertók fyrir það. „Hún var hrædd við geðdeildina, taldi hana vera stað fyrir þá sem væru endanlega búnir að missa vit- ið og hræddist það fólk. Hún var auðvitað í afneitun um að hún væri með geðsjúkdóm, en í eitt skiptið urðum við þó að leita þangað, en þá fékk hún mjög slæmt kvíða- kast.“ Miklar aukaverkanir af lyfjum Á þeim tíma sem liðinn er síðan hún veiktist hefur unga konan, sem nú er um þrítugt, verið á geðlyfj- um auk þess að vera í reglulegri meðferð hjá sálfræðingum og geð- læknum. Einnig hefur hún þurft á talsverðri endurhæfingu að halda, m.a. vegna aukaverkana geð- lyfjanna. „Þetta eru sterk lyf og aukaverkanirnar eru margvíslegar, m.a. gríðarleg þreyta, dofi, svimi og uppköst. Þetta hefur gert henni erfitt fyrir við að stíga aftur út í lífið, því hún er svo orkulaus. Bara það að fara fram úr rúminu og ákveða að takast á við daginn er heilmikið átak,“ segir móðirin. Ungu konunni tókst að ljúka stúdentsprófi og síðar háskólaprófi með miklum stuðningi og að sögn móðurinnar hefur hún alltaf verið einbeitt í að gefast ekki upp fyrir sjúkdómnum. „Það er ekkert að henni“ Spurð um fordóma, sem gjarnan mæta geðsjúkum, segir móðirin að vinir dóttur hennar hafi reynst henni afar vel og veitt henni stuðn- ing í gegnum árin. „Hún er mjög lánsöm með að eiga svona góða vini, en það eru mjög miklir for- dómar gagnvart geðsjúkdómum. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef heyrt fullyrt: „Það er ekk- ert að henni. Hún er bara svona góð við sjálfa sig.“ Eða: „Þú þarft að sleppa tökunum á dóttur þinni.“ Hvernig framkoma væri það við fárveikan einstakling?“ Sömuleiðis hef ég verið spurð hvort hún hafi veikst vegna fíkni- efnaneyslu og því miður hefur hún fengið að heyra þetta allt saman líka, jafnvel frá ættingjum sem vita af veikindum hennar. Myndi fólk tala svona ef hún væri t.d. með krabbamein eða annan líkamlegan sjúkdóm?“ spyr móðirin. Baklandið skiptir miklu máli Unga konan hefur fengið ör- orkubætur og endurhæfingarlífeyri hluta þessa tímabils. Það dugar engan veginn til framfærslu og því hefur hún að mestu leyti verið á framfæri móður sinnar sem hefur haft tök á að tryggja henni fasta búsetu og bíl til umráða. Í fyrra hafði móðirin samband við sveitar- félagið þar sem þær mæðgur eru búsettar og óskaði eftir greiðslu- þátttöku í sálfræðimeðferð dóttur sinnar, sem er 60 þúsund krónur á mánuði. Henni var bent á að hafa samband við heilsugæsluna í bæn- um sem hún gerði. „Svarið sem ég fékk var að þar væri vissulega sál- fræðingur að störfum. En hann tæki bara börn, ekki fullorðið fólk. Ég fór þá aftur á bæjarskrifstof- urnar, hitti félagsráðgjafa og linnti ekki látum fyrr en hún fékk styrk fyrir tíu viðtölum, upp á 140 þús- und, gegn því að sýna reikninga fyrir útlögðum kostnaði. Síðan kemur í ljós að styrkurinn er skattskyldur, en reyndar er hægt að setja sálfræðikostnaðinn á skattframtalið ef hann fer yfir 180 þúsund og skattayfirvöld ákveða svo í framhaldinu hvernig farið er með það.“ Spurð hvort 140 þúsund krónur á ári dugi til að greiða fyrir sál- fræðiaðstoð dóttur sinnar segir móðirin svo ekki vera. Hún leiti til sálfræðings ýmist í hverri viku eða aðra hvora viku og hver tími kosti um 15 þúsund krónur. Á síðasta ári greiddi hún úr eigin vasa hátt í hálfa milljón króna fyrir sál- fræðiþjónustu dóttur sinnar. „Það er fyrir utan alla aðra læknisþjón- ustu sem hún hefur þurft á að halda, þ.m.t. hjá sérfræðilæknum sem hafa þurft að staðfesta við hana að hún sé heilbrigð, en hluti af hennar sjúkdómi er heilsukvíði sem gerir það að verkum að hún telur sig vera með banvænan sjúk- dóm ef hún fær minnsta verk. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef þurft að fara með dóttur mína á bráðamóttökuna vegna þessa. Stundum er það eftir að hún fær verki sem hugsanlega eru afleiðing vöðvaspennu, stundum þegar sár sem hún hefur fengið eru lengi að gróa.“ Auk lækniskostnaðar er tals- verður kostnaður við lyfjakaup og segist móðirin telja að ýmiss heil- brigðiskostnaður hafi samtals slag- að hátt í milljón í fyrra. „Ég get greitt fyrir læknishjálp til að henni geti liðið betur. En ég hef oft hugsað um þá sem veikjast af geð- sjúkdómum, hafa lítið sem ekkert bakland og verða meira eða minna háðir stofnunum og sjúkrahúsum. Þegar ég vann í geðheilbrigðis- kerfinu skildi ég ekki hvers vegna fólk var að leggjast inn á geðdeild aftur og aftur, oft einum eða tveimur mánuðum eftir að það hafi verið útskrifað í góðu standi. Hvers vegna tókst því ekki að vera áfram úti í samfélaginu? Það var ekki fyrr en síðar að ég áttaði mig á því að ein ástæðan fyrir því er hversu veikt bakland fólks með geðsjúkdóma er oft og hversu mik- il áhrif það getur haft á heilsufar- ið.“ Kostnaður upp á tugi milljóna Móðirin segir að ef hún tæki saman kostnað við alla þá heil- brigðisþjónustu við dótturina sem hún hefur greitt úr eigin vasa á þessum 11 árum, og það vinnutap sem hún hefur orðið fyrir myndi upphæðin líklega hlaupa á tugum milljóna. „Hvað þá ef allar þær nætur sem ég hef vakað yfir henni í stað þess að hún væri á geðdeild eða sjúkrahúsi væru teknar inn í. Fæstir, sem eru veikir af geð- sjúkdómum, búa við sömu að- stæður og dóttir mín hvað varðar fjárhagslegan og félagslegan stuðning. Eru geðsjúkdómar sjúk- dómar hinna ríku? Mér finnst ekki sanngjarnt í samfélagi sem kennir sig við velferð að vellíðan og heil- brigði geðsjúkra skuli velta á því hversu sterkt bakland þeirra er. En allt eru þetta pólitískar ákvarð- anir. Það er pólitísk ákvörðun að semja ekki við sálfræðinga. Að vilja ekki byggja upp öflugt geð- heilbrigðisnet er líka pólitísk ákvörðun.“ Spurð hvort hún hefði getað lát- ið skrá sig sem umönnunaraðila dóttur sinnar í heimahjúkrun og fengið greitt fyrir það segir móð- irin að sér hefði ekki fundist það koma til greina vegna tengsla þeirra. En hefði verið hægt að fá annan geðhjúkrunarfræðing? „Það er enginn hjúkrunarfræð- ingur að sinna þjónustu sem þess- ari. Þannig að það kom aldrei til greina.“ Þarf meiri sveigjanleika Hvar væri dóttir þín án þess stuðnings sem hún hefur fengið frá þér og öðrum nákomnum? „Það er erfitt að segja. Hugsan- lega á langtímageðdeild. Kannski myndi hún leggjast inn á geðdeild 2-4 sinnum á ári. Jafnvel byggi hún á sambýli með nokkrum öðr- um geðfötluðum. Eða kannski væri hún í hópi þeirra 50 Íslendinga sem á ári hverju ákveða að taka eigið líf. Hún glímir við kvíða og mikla vanlíðan og þegar ein- staklingur í slíkri stöðu, sem hefur lítinn stuðning, sér ekki til sólar er miklu auðveldara að kveðja lífið en að halda áfram að berjast við það.“ Hvernig væri að þínu mati ákjósanlegt að heilbrigðiskerfið kæmi til móts við dóttur þína? „Það þyrfti að auka val og sveigj- anleika í geðheilbrigðisþjónustu Sumum hentar að leita á geðdeild en öðrum myndi henta að fá þjón- ustu geðteymis heim til sín eða hitta sálfræðing og geðlækni á stofum. Það er öllu blandað saman á geðdeildunum, það þekki ég frá mínum störfum. Þar er fólk sem er út úr heiminum, fólk sem er að fást við eftirköst fíknivanda, fólk með heilabilun, fólk sem sýnir ógn- andi hegðun og það er þetta um- hverfi sem dóttir mín hefur alla tíð hræðst. Höfum í huga hversu stór hópur Íslendinga á við geðraskanir að stríða. Það er gríðarlegur sparnaður að vinna með fólki úti í samfélaginu í staðinn fyrir inni á stofnunum.“ Eftir að hafa lokið háskólanámi taldi unga konan sig hafa náð tökum á kvíðaröskuninni, henni bauðst áhugavert starf sem hún þáði en þar var mikið áreiti utan vinnutíma í gegnum síma og tölvupósta. „Hún ætlaði sér um of, en vildi sanna sig sem góður starfs- maður. Eftir tvö ár í starfinu missti hún tökin og var komin á byrjunarreit,“ segir móðirin. „Þá þurfti hún í rauninni að byrja upp á nýtt. Hún bjó vissulega að fyrri meðferð og endurhæfingu, en ég þurfti aftur að vakta hana allan sólarhringinn, hún var með svo miklar sjálfsvígshugsanir og eins og fyrr neitaði hún að leggjast inn á geðdeild. Ég setti upp áætlun og fyrstu skrefin voru að fá hana fram úr rúminu, ég útbjó fyrir hana mat og fór með hana út að ganga á hverjum einasta degi. Fyrstu vikurnar get hún ekki gengið meira en 100-200 metra, hún var algerlega orkulaus. Smám saman lengdum við ferðirnar okkar og eftir nokkra mánuði vorum við komnar upp í sjö og hálfan kílómetra á dag. Hún fór líka að ganga reglulega til sálfræðings og hefur verið í meðferð hjá Kvíðameðferðarstöðinni sem hefur í raun bjarg- að lífi hennar.“ Höfnunin var verulegt áfall Í kjölfar þessa sótti unga konan um að komast í starfsendurhæfingu á vegum VIRK starfsendurhæf- ingarsjóðs í þeim tilgangi að komast sem fyrst aftur út á vinnumarkaðinn. Að sögn móðurinnar batt hún verulegar vonir við að þar fengi hún þá endurhæf- ingu sem hún þyrfti til að geta tekið fullan þátt í samfélaginu. Í svari VIRK segir: „Starfsendurhæf- ing er metin óraunhæf vegna alvarlegra geðrænna einkenna sem þarf að greina betur og meðhöndla innan geðheilbrigðiskerfisins.“ Móðirin segir að þessi viðbrögð hafi verið dóttur sinni verulegt áfall og að hún hafi upplifað eins og sér væru öll sund lok- uð. „Ég hélt að VIRK væri einmitt ætlað fyrir veikt fólk sem vildi taka meiri þátt í lífinu. En þarna er hún einfaldlega metin of veik til að nýta sér þetta úr- ræði. Við vissum hreinlega ekki að það væri til eitt- hvert slíkt viðmið,“ segir móðirin. Hún bendir á að þrátt fyrir að hafa gengið vel í endurhæfingu áður og þannig komist út á vinnumarkað, hafi þessi unga kona nánast verið „dæmd til örorku“ eftir einungis tveggja klukkustunda viðtal hjá lækni og sálfræðingi hjá VIRK. „Hún fékk ekki tækifæri og það er um- hugsunarvert því svo margt ungt fólk er að fara á varanlega örorku,“ segir móðirin. Úrræðið hentar ekki öllum Linda Bára Lýðsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK, seg- ist ekki geta tjáð sig um einstök mál, starfsmenn VIRK séu bundnir trúnaðarskyldu. Stór hluti þeirra sem leiti eftir þjónustunni stríði við geðheilbrigðis- og stoðkerfisvanda og ferlið sé á þann hátt að fyrst sendi læknir beiðni um að einstaklingur fái starfs- endurhæfingu hjá VIRK. „Stundum þurfum við að láta lækni meta hvort einstaklingur sé í raun tilbú- inn til að fara út á vinnumarkaðinn og niðurstaðan getur orðið sú að ekki sé raunhæft að fólk komi inn í þjónustu okkar. Helsta ástæðan fyrir því er að við- komandi þarf á meiri heilbrigðisþjónustu að halda, langoftast er þá um geðheilbrigðisvanda að ræða. Einnig er niðurstaðan stundum sú að starfsendur- hæfing sé fullreynd.“ Linda segir að það væri óá- byrgt af VIRK að pressa á að fólk, sem ekki hefur til þess heilsu, stefni á vinnumarkaðinn. „Við viljum ekki setja fólk í þá stöðu.“ Linda segir að tilvikum sem þessum hafi fjölgað að undanförnu og segir að það sé til marks um það að huga þurfi betur að geðheilbrigðismálum. „Þetta er dæmi um að það vantar fleiri úrræði. Hingað leitar fólk sem þyrfti á annars konar þjónustu að halda og þó að við metum beiðni um starfsendurhæfingu sem óraunhæfa þá þýðir það ekki að fólk geti ekki leitað til okkar síðar þegar það hefur lokið sinni læknis- meðferð. Þegar við erum augljóslega með of veika einstaklinga bendum við þeim á að leita á réttan stað. Við viljum sinna öllum, en það þarf að vera raunhæft.“ Var metin of veik fyrir starfsendurhæfingu Hún fór aftur á byrjunarreit eftir að hafa lagt of hart að sér í starfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.