Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 24
Bauð flokkurinn einnig upp á sýn-
ingu í danshúsi sem verið var að
vígja og hlaut lof blaða fyrir
skemmtanina.
Í Frakklandi í 35 stiga hita
Í aldarsögu ÍR frá 2007, Heil öld
til heilla, segir að í skrúðgöngu um
Calais-borg á síðasta degi þriggja
daga hátíðarinnar, hinn 28. maí,
hafi ÍR-flokkurinn gengið leik-
fimiklæddur um aðalgötur borgar-
innar undir íslenska fánanum.
Fyrst fór einn frakkneskur flokkur,
þá Íslendingar, en í broddi fylk-
ingar 60 manna hermannahljóm-
sveit.
Á eftir íslenska flokknum fóru
Belgar, þá ótal frakkneskir flokkar.
Allar götur borgarinnar voru þétt-
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Skyldi nokkur íþróttaflokkur nú til
dags afþakka boð um að keppa á
Ólympíuleikum og taka hátíðar-
samkomu í viðkomandi grein fram
yfir? Ólíklega, en svo djarfa
ákvörðun tók fimleikaflokkur
kvenna hjá Íþróttafélagi Reykja-
víkur fyrir 90 árum. Tók mikla fim-
leikahátíð í Calais í Frakklandi vor-
ið 1928 fram yfir Antwerpen-
leikana í Belgíu sama ár. Lagði
hópurinn upp til Frakklands hinn
15. maí 1928 og er óhætt að segja
að það hafi verið frægðarför og það
jafnvel meiri en árið áður er karl-
og kvenflokkar ÍR lögðu Noreg og
Svíþjóð að fótum sér, ef marka má
hástemmdar frá sagnir dagblaða og
lofsamleg dóma um sýningar
þeirra.
Þessar ferðir voru þær fyrstu
sem íslenskir íþróttaflokkar fóru til
útlanda og má segja, að þátttak-
endur hafi verið frumkvöðlar útrás-
ar íslenskra íþrótta. Í Calais-
flokknum voru allar þær sömu og í
Norðurlandaferðinni 1927 nema
tvær. Til Frakklands fóru Guðbjört
Ólafsdóttir, Lovísa Jónsdóttir,
Halldóra Guðmundsdóttir, Hólm-
fríður Jónsdóttir, Vilborg Jóns-
dóttir, Anna Guðmundsdóttir,
Hanna V. Gísladóttir. Vilborg
Ámundadóttir, Laufey Einars-
dóttir, Gyða Sigurðardóttir, Jónína
Jafetsdóttir og Sigríður Þorsteins-
dóttir. Þjálfari þeirra, Björn Jak-
obsson íþróttakennari, fylgdi
flokknum og fararstjóri var
Tryggvi Magnússon.
Eftir förina 1927 langaði Björn
mikið til þess að fara með hópinn á
Ólympíuleikana í Amsterdam 1928.
Það þótti stjórn ÍR fullmikið fyrir-
tæki og auk þess æfði flokkurinn
ekki með keppni fyrir augum. Því
var ákveðið að senda hann fremur
á hið mikla alþjóðlega fimleikamót
sem haldið var í Calais. Þar tóku
þátt 400 félög víðsvegar úr Frakk-
landi og 30 frá öðrum löndum. Efnt
var til mótsins til að fagna því að
hálf öld var liðin frá því Frakkar
hófu að iðka fimleika. Þar sem
þarna voru eingöngu fimleikasýn-
ingar taldi ÍR meira að læra fyrir
flokka sína þar og til meiri frægðar
að vinna í Calais en á Ólympíu-
leikunum. Vegna mótsins „fjölgaði“
bæjarbúum í einni svipan um
50.000.
Sýnt á ströndinni
Íþróttasamband Íslands lagði
reyndar mikið kapp á að senda
þátttakendur á Antwerpen-leikana
og batt vonir sínar við fimleika-
flokka ÍR eftir að Alþjóðaólymp-
íunefndin (IOC) hafnaði beiðni um
að fá að senda þangað glímumenn.
Fallið var hins vegar frá því
vegna dræmra undirtekta Alþingis
við sambandið. Samþykkti þingið
reyndar sérstaka tillögu í apríl
1928 um 3.000 króna styrk til að
senda fimleikaflokk ÍR á leikana.
Sú hjálp þótti sambandinu koma of
seint enda hafði ÍSÍ áður tilkynnt
IOC að ekkert yrði af þátttöku Ís-
lands vegna fjárskorts.
Úrvalskvennaflokkur ÍR lagði af
stað í förina með Gullfossi 15. maí
1928. Skipið kom við á Eskifirði,
Norðfirði og Seyðisfirði. Sló flokk-
urinn upp sýningu á öllum við-
komustöðunum áður en lagt var yf-
ir hafið til Aberdeen í Skotlandi.
skipaðar fólki sem hyllti stúlkurnar
með húrrahrópum. Við ráðhúsið
fögnuðu 20.000 manns er þær heils-
uðu með fánanum æðstu embættis-
mönnum Calais-borgar.
Í frásögn af setningarhátíðinni í
Morgunblaðinu, segir að engum
flokki var jafn vel tekið og íslenska
kvennaflokknum, „sem fékk óslitið
lófaklapp alla leiðina“.
„Þennan dag var 35 stiga hiti í
forsælunni og við í þykkum sokk-
um! En það var óneitanlega hátíð-
legt að ganga þarna um göturnar
undir íslenska fánanum,“ segir í
upprifjun um Calais-förina í páska-
blaði Morgunblaðsins 1969. Dag-
skráin riðlaðist og gátu ÍR-kon-
urnar ekki sýnt á þeim tíma sem
þeim var ætlaður. „Við þurftum að
bíða nokkrar klukkustundir og hit-
inn ætlaði alveg að gera út af við
okkur. En fyrir bragðið fengum við
miklu betri sýningartíma en okkur
hafði verið ætlaður og sýndum á
besta stað. Ef við hefðum sýnt á
réttum tíma hefðum við alveg horf-
ið inn í fjöldann. Sýningin tók um
klukkustund með áhaldaæfingum
og stökkum, og var það venjuleg
sýningarlengd hjá okkur,“ segir í
upprifjuninni.
Óskeikul nákvæmni
Fararstjóri bresku flokkanna,
sem þátt tóku í mótinu í Calais,
sýndi ÍR-konunum mikla athygli og
bauð þeim að koma og sýna í
London á heimleiðinni. Að við-
stöddum fulltrúum m.a. breska
kennslumálaráðuneytisins, borg-
arráðs Lundúna, íþróttakennara-
samtakanna sýndi flokkurinn í
stórum og þéttsetnum sal við Tott-
enham Court Road 30. maí. Sýn-
ingunni var svo vel tekið að talið
var að flokkurinn hefði getað fyllt
stærsta sýningarsal í London hefði
hann getað dvalið lengur í borginni.
Var þetta í fyrsta sinn í sögu Eng-
lands að flokkur leikfimiskvenna
sýnir listir sínar undir íslenskum
fána.
Í tímaritinu „Physical Educa-
tion“ sagði meðal annars svo um
þessa samkomu: „Sýningin hófst á
nokkrum mjög yndislegum, óþving-
uðum æfingum, afbragðsvel sam-
stilltum og leiknum af óskeikulli
nákvæmni, án hljóðfærasláttar eða
fyrirskipana. Jafnvægisæfingar
voru frábærlega vel af hendi leyst-
ar. Sýningunni lauk með nokkrum
frjálsmannlegum æfingum sem
einnig voru prýðilega samstilltar og
fóru fram með óskeikulli nákvæmni
Fimleikaflokkar frá ÍR gerðu garðinn frægan í 28 daga sýningarferð til Norðurlanda 1927 og 23
daga för til Frakklands árið eftir Kvennaflokkurinn fékk hlýjar móttökur í Calais fyrir 90 árum
Æfing ÍR-flokkurinn fer í gegnum æfingar sínar fyrir blaðamenn, ljós-
myndara og kvikmyndagerðaramenn í London á heimleið frá Calais 1928.
Tóku fimleikahátíð fram
yfir Ólympíuleika
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK14.700
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK27.400
Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur.
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bæklingurinn
okkar fyrir 2018 er
kominn út. Í honum
finnur þú fullt af
tilboðum og
verðdæmum. Hægt
er að nálgast hann á
www.smyrilline.is
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
Tallinn, Vilnius og Riga
Við skoðum glæsilegustu miðalda borgir Evrópu frá 11. og
12. öld og kynnumst miðaldastemningu sem er engri lík.
Borgir sem eru á minjaskrá Unesco, miðstöð menningar
og lista við Eistrasaltið. Á vegi okkar verða m.a. dóm-
kirkjur, þröngar steini lagðar götur, hallir, kastalar, fallegar
sveitir og sveitaþorp með brosandi heimamönnum.
Við förum aftur í tíma og rúmi.
15.-25. ágúst
Eystrasaltið
í sinni fegurstu mynd
Verð 219.900 kr.
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið: Flug, skattar, allar ferðir,
aðgangur þar sem við á, hótel með
morgunmat , íslensk fararstjórn
Sími 588 8900
transatlantic.is