Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 25
og fegurstu reglu. Síðan gekk
flokkurinn hring á leiksviðinu og
kvaddi með fánakveðju og voru það
virðuleg leikslok á þessari glæsi-
legu sýningu.
Þögn sú, sem ríkti í salnum með-
an á sýningunni stóð, bar vott um
þá miklu athygli, sem áhorfendur
sýndu íþróttum þessa þaulæfða
flokks, en lófatakið, sem kom á eft-
ir bar vott um aðdáun þeirra, sem
á horfðu.“
Sátu um hótel ÍR-stúlkna
Sýningin varð íslensku þjóðinni
og Birni Jakobssyni til sóma. 120
atvinnuleikfimimenn og fleiri hæst-
ráðandi menn innan vébanda leik-
fimissambands Englands voru við-
staddir. Samhuga lýstu þeir aðdáun
sinni á hinni fullkomnu leikfimi
hinna íslensku yngismeyja úr ÍR.
Þær höfðu opinberað þá hugsjón
stjórnanda síns að íslenskt leikfim-
iskerfi öðlaðist viðurkenningu er-
lendra sérfræðinga.
Dvölin í London var ævintýri
fyrir feimnar Reykjavíkurstúlkur.
Eftir sýninguna komust þær varla
út af hótelinu fyrir blaðamönnum.
Af þeim voru birtar myndir í stór-
blöðunum. Breskir blaðamenn og
ljósmyndarar sátu um hótel stúlkn-
anna og tóku hverja myndina af
annarri af þeim. Losnuðu þær ekki
úr klóm þeirra fyrr en maður frá
kvikmyndafélaginu First National
Pathé Fréres Cinema Ltd., fór með
þær út á Queens Athletic Ground.
Þar var talinn besti íþróttavöllur
Lundúna og tók maðurinn þar
kvikmyndir af staðæfingum flokks-
ins. Flestöll blöð Lundúna birtu
myndir af flokknum. Eins og hann
hafði verið auglýstur hefði verið
leikur einn að halda aðra sýningu
og fylla stærsta sal heimsborg-
arinnar. Tími vannst þó ekki til
þess því snemma næsta morgun
lögðu ÍR-konurnar af stað til Edin-
borgar.
Í skoska höfuðstaðnum Edinborg
sýndi flokkurinn 31. maí, rétt áður
en gengið var á skipsfjöl til heim-
ferðar. Og sem fyrr var salurinn
þéttskipaður áhorfendum sem létu
í ljós aðdáun sína á leikni flokksins.
Daginn eftir birtist langur dómur
um sýningu þessa. Var hann á
sömu lund og skrif um aðrar sýn-
ingar ÍR-flokksins í þessari frægð-
arför. Til Íslands höfðu fregnir bor-
ist af frægðarför ÍR-kvennanna og
því var mikill mannfjöldi saman
kominn á hafnarbakkanum til að
fagna þeim við heimkomuna.
Mannfjöldi á hafnarbakkanum
Hið besta veður var í Reykjavík
að kvöldi 8. júní 1928. Á hafnar-
bakkanum var mikill mannfjöldi
saman kominn og beið þess að
Gullfoss legðist að. Það átti að
fagna vel íslensku fimleikastúlk-
unum, sem voru að koma heim úr
mikilli sigurför til Frakklands og
Englands. Daginn eftir bar stærsta
fréttin í Morgunblaðinu fyrirsögn-
ina: „Frægðarför fimleikaflokksins
til Calais – íslenska kerfi Björns
Jakobssonar vekur aðdáun og at-
hygli í Frakklandi og meðal enskra
leikfimiskennara“.
Óforsvaranleg meðferð á fé
Í aðdraganda ferðarinnar var
það erfiðleikum bundið að fjár-
magna hana. Áætlaður farareyrir
var 10 þúsund krónur og eftir 3.000
króna styrk Alþingis og 1.500 krón-
ur frá Reykjavíkurbæ vantaði
ennþá 2.500 krónur og var þá leitað
til bæjarbúa um að brúa bilið.
Þunglega gekk að fá aðstoð frá
Reykjavíkurbæ. Fjárhagsnefnd
bæjarins var meðmælt aðstoðinni,
en Knud Zimsen borgarstjóri mót-
fallinn. Gegn mótmælum hans var
styrkveitingin samþykkt. Borgar-
stjóri var einn á móti þessu.
Fannst honum það óforsvaranleg
meðferð á fé bæjarins, „því að
þetta mót væri ekki merkilegra en
ýmis svokölluð „alþjóðamót“, sem
haldin eru víðsvegar árlega“. Þetta
var fyrir daga prófkjöranna.
Hætt við leikana í Berlín
Í fyrrnefndir aldarsögu ÍR frá
2007 segir, að miðað við yfirlit yfir
æfingar sem keppt skyldi í á Ól-
ympíuleikunum í Berlín 1936 þótti
sýnt að kvennaflokkur ÍR gæti með
sæmilegum árangri tekið þátt í
leikunum. Hafnar voru æfingar
með þátttöku í huga en þeim var
svo hætt í janúar 1936. Þótti ásig-
komulag flokksins þess eðlis að litl-
ar líkur væru til þess að hægt væri
á þeim stutta tíma sem til stefnu
var að gera hann hæfan til þátt-
töku. Meðal annars þar sem áhöld
vantaði og tekið hefði langan tíma
að fá þau til landsins. Þá var það
ófrávíkjanlegt skilyrði mótshaldara
í Berlín að kona stjórnaði flokkn-
um.
Það eitt þótti Ólympíunefnd Ís-
lands að myndi hafa verið nægjan-
legt, eins og á stóð, til að hverfa
frá hugmyndinni um að senda fim-
leikakonurnar til leikanna.
London 1928 Íslensku fimleikastúlkurnar kvikmyndaðar á gangi á götu í London. Þær eru klæddar ljósbláu sýn-
ingarbúningunum og með rauðu flauelishúfurnar sem þær báru jafnan. Sannarlega flottir fulltrúar þjóðarinnar.
Ljósmyndir/British Pathé
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Y L F A
ANGÓRA