Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Íbúar í Fjallabyggð greiða atkvæði um nýja fræðslustefnu sveitar- félagsins nk. laugardag, 14. apríl. Kosningin, sem er aðeins ráðgefandi, var knúin fram í fyrrasumar með áskorun sem um 600 manns, 40% íbúa, skrifuðu undir. Þeir voru eink- um óánægðir með breytt fyrirkomu- lag á kennslu sem tók gildi í haust og felur í sér að öll börn í 1.-5. bekk fá kennslu á Siglufirði en kennsla í 6.- 10. bekk fer fram á Ólafsfirði. Áður fengu öll börn í 1. til 4. bekk kennslu í sínu byggðarlagi, en 5. til 7. bekk var kennt á Ólafsfirði og 8. til 10. bekk á Siglufirði. Nemendur í grunnskólun- um á hvorum stað eru um 100 og er um 50 ekið í skólarútu á milli byggð- arlaganna á hverjum degi. Breyting- in fól í sér að skólaaksturinn jókst úr þremur árum í fimm. Nýja fræðslustefnan, sem sam- þykkt var í bæjarstjórn Fjallabyggð- ar 18. maí í fyrra, tekur til allra þátta í uppeldis- og skólastarfi sveitar- félagsins. Hún felur í sér fleiri breyt- ingar en aksturinn milli byggðarlag- anna, en það er hins vegar hann sem einkum er umdeildur. „Aksturinn hefur gengið vel,“ seg- ir Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri grunnskólans. Hún segist ekki gera sér grein fyrir því hvort íbúar hafi skipt um skoðun eftir reynsluna í vetur. Engar kannanir liggi fyrir um það. Hún segir að eitt af því sem valdið hafi óánægjunni hafi verið áhyggjur foreldra af skólaakstri í misjöfnu veðri. Í vetur hafi aðeins þurft að fella akstur niður fimm sinn- um, en skólayfirvöld fylgist grannt með veðri og færð. Eftir að Héðinsfjarðargöngin komu til sögunnar er leiðin á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar aðeins um 17 km, þar af 11 km innan gang- anna, og tekur aksturinn yfirleitt innan við 20 mínútur. Breytingin verði felld Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir er í hópi þeirra foreldra sem undirituðu áskorunina í fyrrasumar. Hún hefur ekki skipt um skoðun á skólaakstr- inum og ætlar að greiða atkvæði gegn nýju fræðslustefnunni. Hún segir að viðhorfin hafi ekkert breyst nema síður sé frá því í haust þegar áskorunin um atkvæðagreiðsluna var send til bæjarstjórnar. Sigríður segir börnin óánægð með daglegu ferðirnar milli byggðarlag- anna, en þetta komi líka niður á vinnu foreldranna. Fólk sem eigi að byrja að vinna klukkan átta sé farið að mæta of seint í vinnu til að koma börnunum í rútuna sem fer af stað klukkan hálfníu. „Það er enn mikil óánægja með þetta fyrirkomulag og ég er sann- færð um að nýja fræðslustefnan verður felld í íbúakosningunni,“ seg- ir Sigríður. Fólk sé þó alls ekki á móti öllum þáttum fræðslustefnunn- ar, margt sé gott í henni, en eins og bæjarstjórnin hafi lagt málin upp sé þetta eina leiðin til að fá breytingar fram. Hefur faglegt gildi Vinnuhópur bæjaryfirvalda í Fjallabyggð um hið breytta fyrir- komulag kennslu á milli byggða- kjarnanna taldi það m.a. hafa já- kvætt gildi að nemendur myndu kynnast verðandi bekkjarfélögum þegar í 1. bekk og félagsleg tengsl og tækifæri verða til frá upphafi skólagöngu. Gamla fyrirkomulagið fæli í sér uppstokkun í félagslegum tengslum í 5. bekk þegar nemendur úr báðum byggðarkjörnum samein- uðust í einn bekk, oft með erfiðum félagslegum afleiðingum fyrir nem- endur. Fagleg þekking og sérþekk- ing kennara myndi nýtast betur þar sem yngsta stig væri á sömu starfs- stöð og faglegt samstarf yrði auð- veldara og skilvirkara. Þá fengist rekstrarlegt hagræði með lengdri viðveru eða skólavistun á einum stað. Íbúar kjósa um akstur skólabarna  Íbúar á Ólafsfirði og Siglufirði knúðu fram atkvæðagreiðslu vegna óánægju með daglegan flutning nemenda á milli byggðarlaganna  Gengið vel í vetur, segir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Siglufjörður Hér fer fram kennsla nemenda 1. til 5. bekk í Fjallabyggð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ólafsfjörður Kennsla nemenda í 6. til 10. bekk í Fjallabyggð er í bænum. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stærsta skemmtiferðaskips heims- ins, Symphony of the Seas, lagði af stað í jómfrúrferð sína á laugar- daginn. Lagt var upp frá Barce- lona á Spáni. Þetta er sannkallað risaskip, 228.081 brúttótonn. Það er fimm sinnum stærra en Titanic, svo einhver samanburður sé fund- inn. Symphony of the Seas mun sigla um Miðjarðarhafið í sumar en fær- ir sig yfir í Karíbahafið í haust. En er mögulegt að þetta stóra skip geti lagst að bryggju í Reykjavík? „Það er alveg á mörkunum að hægt sé að taka skipið að bryggju hjá okkur vegna lengdar en er þó mögulegt,“ segir Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum. Symphony of the Seas er 362 metrar að lengd og getur því lagst að Skarfabakka í Sundahöfn, sem er 650 metra langur. Hins vegar er snúnings- svæði utan við bryggjuna á Skarfabakka ekki nema 450 metr- ar og það takmarkar möguleika skipsins til að athafna sig. Annar möguleiki er að snúa skipinu utan við Skarfagarðinn og bakka því inn. Mörg af stærstu skemmti- ferðaskipunum sem hingað koma hafa þann háttinn á. Lengsta skipið, sem komið hefur að Skarfabakka er Royal Princess sem er 342 metrar. Að sögn Gísla Jóhanns hefur Queen Mary 2 bók- að komu sína næsta sumar en hún er 345 metra löng. Það hefur nokkrum sinnum gerst, þegar stór skemmtiferða- skip hafa færst sig milli Miðjarð- arhafsins og Karíbahafsins, að þau hafa haft viðkomu hér á landi. Að sögn Gísla Jóhanns hefur það ekki komið til tals að Symphony of the Seas komi til Reykjavíkur þegar skipið færir sig vestur um haf í haust. Symphony of the Seas er í eigu skipafélagsins Royal Caribbean Cruises. Það var smíðað í Frakk- landi og hófst smíði þess árið 2015. Kostnaður við smíðina var gríðar- legur eða jafnvirði 130 milljarða íslenskra króna. Skipið getur tekið allt að 6.700 farþega og í áhöfn eru 2.200 manns. 40 veitingstaðir og barir Íburður er mikill eins og nærri má geta og möguleikar til afþrey- ingar nánast ótæmandi. Boðið er upp á 40 veitingastaði og bari, sundlaugar eru 23 og um borð eru tvö stór leikhús, svo eitthvað sé nefnt. Royal Caribbean hefur lagt inn pöntun fyrir jafnstóru skipi hjá sömu skipasmíðastöð í Frakklandi. Stefnt er að því að það verði af- hent skipafélaginu vorið 2021. Stærsta skipið gæti lagst að bryggju í Sundahöfn  Symphony of the Seas er farið í jómfrúarsiglinguna AFP Risaskip Symphony of the Seas er farið í jómfrúarferðina. Skipið er gríðarstórt, rúmlega 228 þúsund brúttótonn. LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Dönsk hönnun SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Hita- kútar 30-450 lítrar Umboðsmenn um land allt Amerísk gæðaframleiðsla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.