Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 32
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýlega bárust Reykjavíkurborg til-
lögur úr hugmyndaleit Hlemmsvæð-
isins sem stofnað var til í lok síðasta
árs. Þremur stofum var boðið að
taka þátt en það voru DLD land de-
sign, Landslag og Mandaworks.
Þær fengu það hlutverk að ímynda
sér Hlemm framtíðarinnar. Mats-
nefnd hefur hafið störf við að yfir-
fara tillögurnar og mun ákvörðun
liggja fyrir síðar í þessum mánuði,
samkvæmt upplýsingum Jóns Hall-
dórs Jónassonar, upplýsingafulltrúa
hjá Reykjavíkurborg.
„Í hugmyndaleitinni áskilur borg-
in sér rétt til að nýta hugmyndir að
hluta eða í heild og mun þá aðili eða
aðilar verða valdir til að halda áfram
með verkefnið,“ segir Jón Halldór.
Athygli vekur að í öllum þremur til-
lögunum er ekki gert ráð fyrir akstri
bíla niður Laugaveg við Hlemm,
eins og nú er. Aðspurður segir Jón
Halldór að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um það í borgarkerfinu að
breyta samgönguskipulagi við
Hlemm og nágrenni. Endurskoðun á
því sé í vinnslu. „Niðurstöður
hugmyndaleitar um nágrenni
Hlemms ásamt greiningum á
breyttu samgönguskipulagi verða
grundvöllur að endurskoðun á deili-
skipulagi svæðisins,“ segir Jón Hall-
dór.
Megináherslur við hönnunina
voru að skapa heildstætt og líflegt
borgarrými umhverfis Hlemm.
„Tillögurnar ná allar að fanga
anda Hlemmtorgs þar sem fjöl-
breyttar samgönguleiðir og líflegt
mannlíf blómstrar,“ segir í frétt á
heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Lögð verði áhersla á sögulegar
skírskotanir þar sem Rauðáin,
klyfjahestar og aðrar sögulegar
minjar sem tengjast staðnum verði
dregnar fram. Torgið verði kjarni
Austurbæjarins og enn á ný inn-
gangurinn í miðbæinn.
Í tillögu Mandaworks, Líflegi
Hlemmur, segir m.a. að leitað sé
leiða til að byggja upp torgið og
renna stoðum undir þá styrkleika
sem það búi nú þegar yfir. Mathöllin
slái tóninn og veiti innblástur. Hún
er í sama húsi og áður hýsti miðstöð
Strætó. „Við leggjum til yfirbyggð
athafnasvæði í bland við hönnuð
svæði undir berum himni, svo úrval
samkomustaða verði í boði innan
dyra sem utan.“
Mandawork slær því föstu að fyr-
irhugaðar gatnaframkvæmdir muni
innan tíðar stækka Hlemmtorg. „Við
byrjum á að stækka Mathöllina um
helming og nýta með því móti rýmið
sem verður til við gatnaframkvæmd-
irnar,“ segir í tillögunni.
DLD land design tekur í sama
streng í tillögu sinni Hlemmur: Án-
ing fyrr og nú. „Forsenda þess að
endurhanna torgið er að endurskoða
núverandi gatnakerfi og umferðar-
skipulag.“ Fjölbreytt matarmenning
verði burðarás í starfsemi bygging-
anna við Hlemm, en hugmyndin sé
að innihald þeirra bæti við og styðji
þá nálgun sem Mathöllin byggist á,
en hún verði eftir sem áður aðalseg-
ull torgsins. „Tillagan leikur sér að
margs konar skynjunum og upplif-
unum, ásamt sögulegum skírskot-
unum. Torgið býður gestum til sætis
í gróðursælu umhverfi, sem heldur
utan um margskonar félagslegar at-
hafnir, má þar nefna árstíðabundna
markaðsmöguleika og skemmtana-
hald af ýmsum toga.“
Landslag vill að borgarlínunni sé
gefið þriggja akreina svigrúm í
gegnum Hlemmsvæðið til þess að
auðvelda framúrakstur hópferðabíla
og borgarlínuvagna þegar vagnar
stöðva á biðstöðvum. Meginhug-
mynd tillögu Landslags, Hlemmur,
byggist á því að „sögu- og menning-
arlínan“ mæti borgarlínunni á
Hlemmi þannig að Laugavegur verði
göngugata og teygi sig sem slík yfir
Snorrabraut þar til hún sker borgar-
línu á þeim stað þar sem Hverfisgata
og Laugavegur austan Hlemms
mætast. Í miðju göngugötunnar á
kaflanum milli Snorrabrautar og
Rauðarárstígs verði svæði fyrir sölu-
tjöld eða skýli í tengslum við árs-
tíðabundna viðburði, t.d. í tengslum
við hátíðardaga á vegum borgar-
innar, auk hvers kyns markaða sum-
ar sem vetur eftir því sem starfsem-
inni út frá Mathöllinni á Hlemmi vex
fiskur um hrygg. Lagt er til að Mat-
höllin á Hlemmi geti stækkað til
vesturs fyrir stoðrými og til austurs
fyrir stækkað veitingarými.
Landslag: Með tillögu þessari er borin upp framtíðarsýn fyrir Hlemm og nágrenni sem verð-
andi eitt líflegasta og mikilvægasta borgarrými Reykjavíkur. Miklir möguleikar þjónustu.
Hlemmur breytir um svip
Innan skamms verður tekin ákvörðun um Hlemm framtíðarinnar Þrjár hugmyndir hafa verið
kynntar Matarmenning og iðandi mannlíf Verður akstri bíla um efri hluta Laugavegar hætt?
DLD land design: Nú er komið að því að uppfæra Hlemm aftur til nútímaþarfa, þar sem almenn-
ingssamgöngur og mjúkur ferðamáti fær forgang og mannlíf blómstrar í takt við nýja tíma.
Mandaworks: Líflegi Hlemmur býður Reykvíkingum að koma saman til að
njóta samveru og til að njóta lífsins til hins ýtrasta á þessum merka stað.
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
æli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
K
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.
Allar líkur eru á að miðlunarlón
Landsvirkjunar fyllist síðla sumars
og raforkuafhending til viðskipta-
vina sé trygg út árið og vinnslu-
geta í aflstöðvum fyrirtækisins því
sem næst fullnýtt. Þetta kemur
fram í frétt á heimasíðu fyrirtækis-
ins.
Síðastliðið haust var hagstætt
fyrir vatnsbúskap Landsvirkjunar.
Veturinn hefur hins vegar verið
kaldur og þurr ef frá eru taldir
tveir hlýindakaflar, sem bættu
stöðuna í miðlunum talsvert. Snjóa-
lög á hálendinu eru nú í meðallagi.
Staðan í miðlunarlónum fyrir-
tækisins er nokkuð góð, þótt hún
sé lakari en í fyrra, segir í frétt-
inni. Búið er að nýta um 55% vatns-
forðans í miðlunarlónum og gert er
ráð fyrir að nýta um 10% til við-
bótar áður en miðlunartímabilinu
líkur. Á sama tíma í fyrra var búið
að nýta 40% vatnsforðans.
sisi@mbl.is
Orkuafhending
tryggð út árið