Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 34

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli haft eftir Jóhannesi Páli páfa II., en krossinn var settur upp í tengslum við heimsókn hans til Íslands snemmsumars 1989. Frá sjónarhóli líffræðinnar hefur Þingvallavatn mikla sérstöðu. Stærstur hluti botns þess er orpinn hrauni og því hripar vatn þar auð- veldlega í gegn. Um 90% af vatninu koma þar inn eftir neðanjarðar- sprungum og aðeins um tíund er yfirborðsvatn. Hve ungt hraunið er ræður því svo að upptaka steinefna er mikil í grunnvatninu sem er ein af undirstöðum fjölbreytts lífríkis í Þingvallavatni, þar sem eru um 150 tegundir jurta og fimmtíu tegundir smádýra. Í þessu felst mikil sér- staða og hún er aftur frumlag þeirra aðhaldsmiklu reglna sem gilda um vernd Þingvallavatns. Öfugsnáði situr í minni Þegar komið er upp fyrir Úlfljóts- vatn og Sogið tekur við sléttlendi sem nær inn til landsins. Í Miðfells- landi er stór byggð sumarhúsa, sem eru þó öllu íburðarminni en þau sem eru á Nesjasvæðinu sem fyrr grein- ir frá. Nokkru norðar er Arnarfell, og skammt þar frá eru ystu mörk Þingvallaþjóðgarðs. Neðan Arnar- fells er norðurbakki Þingvallavatns- ins og er leiðin þar einu nafni kölluð Vatnsvík. Þó er hægt að fara mun nákvæmar í sakirnar með nöfn á einstaka stöðum á þessum slóðum þar sem vinsælt er að renna fyrr fisk. Staðarheitið Öfugsnáði er þó nokkuð sem situr eftir í minni þeirra sem hér eiga leið um, svo sem veiði- manna. Þingvallastað er að mestu sleppt í þessari staðarlýsingu, af svo mörgu er þar að taka, hvort heldur litið er til náttúru eða sögu. Af svonefndum Leirum á Þing- völlum, þar sem eru þjónustu- miðstöð og tjaldsvæði, er ekið upp á hraunið – þar sem er frábært útsýni yfir allt vatnið sem er sögusvið þess- arar greinar og raunar margra ann- arra greina. Má þar nefna skáldsög- urnar Vatnið eftir Guðmund Daníelsson frá 1987 og Hestvík eftir Gerði Kristnýju sem kom út fyrir tveimur árum. Einnig má nefna bíó- myndina Veiðiferðina frá 1980, eitt af bíóstykkjum íslenska kvikmynda- vorsins. Ónefnd er þá myndlistin – en hér eru hvarvetna svipmikið og sterkir litir enda má sjá Þingvalla- vatn og nærliggjandi svæði í verk- um fjölmargra íslenskra listmálara. Sigling Jóhannes Sveinbjörnsson, bóndi á Heiðarbæ, á murtumiðunum síð- asta haust. Það var svolítið pus á vatninu en vanur maður kunni lagið. Úlfljótsvatn Æskulýðskrossinn sem settur var upp 1989 í tilefni af Íslandsheimsókn páfa. Stífla Með þessu mannvirki við Dráttarhlíð í suðausturhorni Þing- vallavatns er stýrt vatnsrennsli í Sogsstöðvarnar sem eru þrjár. Vormorgunn við vatnið  Þingvallavatn er stærst  Fjölbreytt lífríki  Birtist víða í listaverkum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útsýni Horft frá suðurhúsabyggðinni við Nesjar norður með vestanverðu Þingvallavatni. Ármannsfell að baki. Þingvallavatn Grunnkort: openstreetmap.org Sandey Kárastaðir Heiðarbær Þingvallavatn Nesjavellir Nesjar Úlfljótsvatn Dráttarhlíð Miðfellsland Arnarfell Vatnsvík SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í stillu vormorgunsins speglast eyj- ar á djúpbláum fleti Þingvallavatns. Fannir eru enn áberandi í fjöllunum sem umlykja vatnið sem er í eins konar einskismannslandi milli Am- eríku og Evrópu sem hér mætast á flekaskilum. Hátt til lofts liðast gufubólstrarnir frá Nesjavallavirkj- un, sem sér höfuðborgarsvæðinu fyrir birtu og yl. Sumarhúsin eru vöktuð Alls er Þingvallavatn 84 ferkíló- metrar að flatarmáli. Það er stærsta náttúrlega stöðuvatn landsins þó að Þórisvatn sé á stundum stærra enda að hluta til uppistöðulón fyrir virkj- anir. Það er Þingvallavatn raunar líka, en úr því rennur Sogið og nýt- ist fall þess til þess að knýja þrjár virkjanir þess. Umhverfis Þingvallavatn eru alls 65 kílómetrar og hefst leiðarlýsing þessi þegar ekið er til suðurs með vestanverðu vatninu. Er þá beygt til hægri inn á afleggjara merktan Nesjavöllum fljótlega eftir að komið er niður af Mosfellsheiðinni. Ekið er fram hjá Heiðarbæ, þar sem er tví- býli, en fljótlega er komið að kjarri grónum hlíðum sem vegurinn liggur um. Þar er fjöldi sumarhúsa og sum afar vegleg, svo eftirtekt vekur. Á það ekki síst við um glæsihúsin við Hestvík og Nesjar, sem eru er á af- girtum svæðum og vöktuð mynda- vélum. Kross frá páfanum Landslag hér við sunnanvert vatnið er stórbrotið, þar sem Heng- illinn gnæfir yfir. Minna má á sum- arfæra leið sem liggur frá Nesjavöll- um upp til fjalla og þar svo samsíða hitaveitupípunum alla leið til Reykjavíkur. Við höldum hins vegar áfram, ökum fyrir skógi vaxna Hagavík og erum komin í Grafninginn. Hér eru bæirnir Villingavatn og Krókur og lítið eitt sunnan við Þingvallavatn er svo Úlfljótsvatn, þar sem er útilífs- miðstöð og mótsstaður skátahreyf- ingarinnar sem margir eiga góða minningar frá. Í fjallshlíð ofan við Úlfljótsvatn vekur svo eftirtekt Æskulýðskross- inn. „Lifið í trúnni, þess óska ég ís- lenskrar æsku,“ segir á merkingu „Aðstæður við Þingvallavatnið eru þannig að áhugi minn á landinu og náttúrunni kom nánast af sjálfu sér. Þarna átti ég frábær æskuár og sæki enn mikið í sveit- ina mína,“ segir Trausti Jóhannsson, skógarvörður á Suðurlandi, sem er frá bænum Mjóa- nesi í Þingvallasveit. Bændur þar hafa alltaf sótt mikið á vatnið og haft nytjar af silungnum; urriða og murt- unni á haustin sem er reyndar minna nýtt í seinni tíð en áður. Er veiðin þó í öllu falli undirstaða afkomu fólks í Mjóanesi. Í dag er búið á um tíu bæjum við Þingvallavatn. Mektarbú eru rekin á Heiðarbæ en annars staðar er breyttur bragur. Ræður þar meðal annars að landið er grýtt og ekki endilega vel fallið undir hefðbundinn búskap. „En þarna væri hægt að rækta skóg og raunar eru mögu- leikarnir til slíks óvíða betri, bæði við vatnið og inn til landsins,“ mælir Trausti af þekkingu. Rafveitan kom seint Byggðin við Þingvallavatn var lengi nokkuð af- skekkt og hafði að því leyti sérstöðu. „Það eru bara fá ár eru síðan nýi vegurinn yfir Lyngdalsheiði að Laug- arvatni komst í gagnið. Ég man líka þá tíma um 1990 að á snjóavetrum voru vegir ekki ruddir dögum saman svo við krakkarnir fórum ekki í skólann. Það var um 1980 sem bæirnir voru tengdir rafmagnsveitu, enda þótt Sogsvirkjanir séu í túnfætinum. Og sjálfvirkur sími í Þingvallasveit kom seint. En nú er þetta allt breytt og ræður þar helst mikil fjölgun ferðamanna á allra síðustu árum,“ segir Trausti frá Mjóanesi. Ég sæki mikið í sveitina mína Morgunblaðið/Sigurður Bogi Miðfellsland Sumarhúsin eru lágreist og byggð af hag- sýni en útsýnið er af dýrari sortinni. Sandey í baksýn. Trausti Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.