Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.isSTOFNAÐ 1956 DÍMON Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Íslensk hönnun & handverk Sigurður Ægisson sae@sae.is Á páskadag var sá hluti Ytrahúss- ins á Siglufirði sem enn stendur, Söluturninn, sem jafnframt er sjötta elsta hús bæjarins, tekinn í notkun eftir gagngerar endur- bætur. Hefur honum verið breytt í sýningarrými og verður þar hér eftir rekið gallerí með fjölbreyti- legum sýningum. Fyrsta sýningin er á verkum Guðmundar Kristjánssonar, Guð- mundar góða, sem margir Siglfirð- ingar muna vel eftir. Söluturninn var byggður árið 1905 sem viðbygging við Ytrahúsið sem reist var 1861. Þáverandi eig- andi hússins, Guðmundur S. Th. Guðmundsson (1865-1911), bjó í Ytrahúsi og rak verslun í nýbygg- ingunni og þar var fyrsta póst- og símstöð Siglufjarðar. Þá eru og heimildir fyrir því að þar hafi Sparisjóður Siglufjarðar verið til húsa um skeið. Elsti hluti Ytrahúss var rifinn árið 1978 og viðbygging til austurs en norðurhlutinn skilinn eftir. Frá því fyrir 1950 og fram til 1999 var rekinn þar blaðsöluturn og sjoppa. Meðfram Söluturnsnafninu var verslunin jafnan kennd við eig- endur eða verslunarstjóra hverju sinni: Höllusjoppa, Lillusjoppa, Svennasjoppa, Gunnusjoppa, og síðast Þorrakjör sem lokað var 1999. Viðgerð hófst árið 2016 Örlygur Kristfinnsson er núver- andi eigandi hússins og hóf viðgerð innanhúss árið 2016 og hafa inn- réttingar verið endurunnar í upp- runalegum stíl. Um Guðmund Kristjánsson (1902-1994), sem er viðfang þess- arar fyrstu sýningar í Söluturn- inum, segir þar, að hann hafi alist upp við bág kjör vestur á Snæfells- nesi, hafi stundað sjómennsku á unga aldri, numið síðar járnsmíði og rekið vélsmiðju á Siglufirði um hálfrar aldar skeið. Guðmundur hafi verið mjög listhneigður og árið 1930 haldið málverkasýningu á Akureyri. Eftir að hafa heyrt nei- kvæða gagnrýni sýningargesta eyðilagði hann flest verkin. Þrjú þeirra sem varðveist hafa frá þess- um tíma eru á umræddri sýningu. Orðrétt segir svo: „Guðmundur var alla tíð einsetumaður. Vann hann langan starfsaldur að iðn sinni og notaði drjúgan hluta tekna sinna til að styrkja góð málefni. Um 1980 tók hann fram pensla sína og liti á nýjan leik. Neikvæð við- brögð og gagnrýni skiptu ekki lengur máli, því myndsköpun hans þjónaði æðri tilgangi: að styðja bágstadda. Verk sín seldi hann í þágu hjálparstarfs móður Theresu og skóla holdsveikra barna á Ind- landi. Til hliðar við málverkin vann hann margskonar nytja- og skraut- gripi sem hann seldi á báða bóga. Gamli málm rennibekkurinn sneri mjúkum birkistofnum sem um- breyttust í bikara og blómavasa. Einnig samdi hann stutta ljóðræna texta um fegurð lífsins, sem hann seldi í litlum heftum til yndis- lestrar. Og kollóttir fjörusteinar urðu að hamingjutáknum í höndum Guðmundar.“ Árni Páll og Arnar taka við Sýningin mun standa fram undir júnílok. Að henni lokinni verður Árni Páll Jóhannsson með sumar- sýningu á skúlptúrum sínum og eftir það, í haust, verður sýning á verkum Arnars Herbertssonar. Sýning Guðmundar og Arnars verða síðan árlegar, í nokkrar vik- ur í senn. Sjötta elsta húsið orðið að galleríi  Söluturninn á Siglufirði byggður árið 1905 sem viðbygging við hús frá 1861  Fyrsta póst- og sím- stöð Siglufjarðar  Frá 1950-1999 voru þar blaðsöluturn og sjoppa  Húsið mikið endurnýjað í dag Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Eftir Söluturninn við Aðalgötuna á Siglufirði. Hann setur mikinn svip á miðbæinn, nú sem fyrr. Um er að ræða sjötta elsta hús bæjarins. Ljósmynd/Úr safni Fyrir Elsti hluti Ytrahúss á Siglufirði og viðbygging til austurs voru rifin ár- ið 1978 en norðurhlutinn skilinn eftir. Síðan þá hefur ásýndin mikið breyst. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sýning Frá sýningunni um Guðmund Kristjánsson sem nú stendur yfir. Völundur Guðmundur Kristjánsson á Siglufirði við rennibekkinn góða. Nemendur í 10. bekk spreyta sig þessa daga á PISA-könnuninni en hún var lögð fyrir í tveimur hlutum í ár, dagana 12. til 23. mars og 3. til 13. apríl, vegna páskanna. Könnunartíminn er fjórar vikur vegna fjölda grunnskóla í landinu og fjölda starfsmanna sem ráðinn er inn til að annast fyrirlagnir. „Við erum með 15 manns sem annast þær vítt og breitt um landið og til að ná til allra skóla þá dreifum við fyrirlögnum á þetta marga daga. Við skipuleggjum síðan í samráði við skólastjóra hvaða dagar henta hverjum og einum skóla,“ segir í upplýsingum frá Menntamálastofn- un. Þátttakan er valfrjáls PISA metur hæfni 15 ára nem- enda í lesskilningi, náttúrufræði og stærðfræði en í ár er aðaláherslan á lesskilning. 3.800 nemendur eru í 10. bekk og eru þeir allir beðnir um að taka þátt. Þátttaka er valfrjáls að því leyti að foreldrar geta sent inn tilkynningu um að barn þeirra taki ekki þátt. Fyrirlagning PISA könnunarinnar hefur gengið mjög vel og ekkert stórvægilegt komið uppá, samkvæmt upplýsingum Menntamálastofnunar. Þegar öll gögn eru komin úr fyrirlögnunum er unnið úr svörum nemenda við opnum spurningum. Gert er ráð fyrir að gagnagrunn- urinn fari til OECD eftir fyrstu vik- una í júní og niðurstöður könnunar- innar verða birtar í skýrslu OECD sem kemur út í byrjun desember 2019. ingveldur@mbl.is PISA könnunin gengur vel  3.800 nemendur 10. bekkjar taka PISA könnunarprófið þessa daga Morgunblaðið/Eyþór PISA Gert er ráð fyrir að niðurstöð- urnar birtist í desember 2019.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.