Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 39
unn og skellir upp úr. „Hann tók aldrei bílpróf og gat ekki keyrt vegna heilsunnar. Svo ég keyrði. Hann fékk flogaveikisköst eftir aðgerðina. Oft- ast komu þau í svefni. Eftir að hann fór að vinna keyrði ég hann niður á bjórstofu. Hann þurfti alltaf að fá sér fimm, sex bjóra. Svo hringdi hann þegar hann var hættur að drekka. Þá náði ég í hann og hann gat komið heim að borða. Hann var 55 ára þegar hann hætti að vinna.“ Sársaukinn var stundum mikill Paul Sukley leið stundum miklar kvalir eftir sárin sem hann hlaut í inn- rásinni í Normandí. Stundum fá her- menn líka ör á sálina. „Stundum var sársaukinn svo mikill. Mágkona mín kom með lopa- vettling, sem einhver gerði fyrir hana alveg upp að öxl. Þegar þetta var hvað verst, sagði hann: „Ó, hvar er vettlingurinn minn?“ og ég þurfti að láta vettlinginn á og setja handlegg- inn aftur í fatla. Hann tók aldrei verkjapillu. Sumir sögðu: „Af hverju lætur hann ekki taka handlegginn af?“ Hann hafði talað við aðra stráka, sem handleggurinn hafði var tekinn alveg af, og þeir sögðu: „Veistu, stundum klæjar þig svo í handlegginn og handleggurinn er ekki þarna.“ Ég skildi hvernig honum leið. Ég var saumakona og sá alltaf til þess að hann væri vel klæddur. Hann var allt- af með bindi og jakka. Hann var hár og huggulegur. Ég var saumakona og gat lagað buxnavasann svo hann gæti sett handleginn í vasann.“ – Þú hefur búið lungann af ævinni í Bandaríkjunum. Hvort ertu Banda- ríkjamaður eða Íslendingur? „Ég er Íslendingur,“ segir Stein- unn og brosir fallega. segir hún, „Hann er hár og grannur og í svo skærblárri skyrtu.“ En hann var jarðaður í skyrtu, skærblárri skyrtu. Þá grét ég eins og barn. Það var í fyrsta skipti sem ég gat grátið af því að ég skammaðist mín svo fyrir að vera ekki heima þegar hann dó. Var þetta ekki einkennilegt? Það var eng- inn frá Íslandi í jarðarförinni.“ – Ertu trúuð eftir þessa reynslu? „Ekki beint. En veistu að maður man eftir svona löguðu.“ Drukknuðu í stríðinu Steinunn er sú eina á lífi í sinni fjöl- skyldu. Hún hefur ekki náð að fylgja þeim öllum til grafar. „Ég fór þó heim þegar minn yngsti bróðir, Ólafur Ingimundarson, dó og þegar mamma dó. Eldri bróðir minn var sjómaður. Hann var eitt sinn á skipi sem hann átti ekki að vera á. Fór aukaferð. Presturinn hringdi í mágkonu mína til að vita hvaða skipi þessi strákur var á. Hún sagði: „Nei, hann er ekki á þessu skipi“ og hann sagði, „Já, en getur verið að hann hafi farið aukaferð.“ Og þau fundu út að hann hafði farið aukaferð. Þeir voru ekki komnir langt frá landi þegar ein- hver var að reykja sígarettu og henti stubbnum nærri þar sem þeir sváfu. Þar var eldsmatur. Eitrið frá reykn- um barst þangað sem strákarnir sváfu. Bróðir minn og annar strákur köfnuðu úr reykeitrun. Mágkona mín sagði mér að hann hefði alltaf verið svo góður við krakkana og verið svo góður vinur þeirra.“ Alinn upp á bjór Eftir stutta þögn berst talið aftur að Paul heitnum Sukley. „Ég átti mann sem ég held að hafi verið alinn upp á bjór,“ segir Stein- enginn átti neitt. Þetta var reglulega gott hverfi. Það var í raun engin gata. Hér voru gamlir bóndabæir.“ – Og þú saumaðir? „Ég saumaði fyrir fólk hér í kring. Hér voru allir fátækir. Ef ég saumaði kjól tók ég 10 dollara fyrir tveggja daga vinnu sem var ekkert verð.“ Hefur ekki yfir neinu að kvarta – Hvernig hefur lífið verið? „Þegar maður giftir sig finnst manni maður alltaf gefa meira en maður tekur. Mundu það þegar þú giftir þig. Ég hef alltaf verið hraust. Það er ekkert betra en að hafa heils- una. Það er númer eitt í lífinu. Það hefur verið ágætt lífið hérna. Það er ekki yfir neinu að kvarta. Hef aldrei verið með gigt eða svoleiðis. Þó á ég orðið erfitt með að lesa. Ég hætti að keyra um jólin. En Fjóla vinkona mín hætti að keyra fyrir fimm árum.“ Kom að honum látnum Paul Sukley lést árið 1999. „Það var eitt sinn þegar ég kom heim að hann sat í stólnum og var dá- inn. Ég gat ekki grátið. Þetta var í júlí. Svo fór ég heim í september og sat hjá henni mágkonu minni. Við konurnar vorum að tala saman og þá kom dóttir mágkonu minnar inn, sem ég þekkti vel, og sagði: „Svo maður- inn þinn kom loksins með þér til Ís- lands?“ Ég sagði „Maðurinn minn dó í júlí.“ Hún sagði, „Já, ég veit það, en hann er hérna hjá þér.“ Svo lýsti hún alveg manninum mínum. Hún sagði: „Hann stendur bara hjá þér og hann er með svo blá augu. Hann er með höndina á öxlinni á þér. Finnurðu það ekki?“ Ég sagðist ekki finna fyrir neinu. Ég hugsaði með mér af hverju er hún að reyna að segja þetta. Þá hermönnum Hjón Steinunn og Sukley kynntust í Steelton. Fjölskyldan Afkomendur Steinunnar á góðri stundu. Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til lau- gardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Fjóla Salerno fæddist 1926. For- eldrar hennar eru Guðjón Magnús- son og Guðný Einarsdóttir í Hafnar- firði. „Pabbi var skósmiður á Strandgötu en mamma var heima. Ég átti mörg systkini. Þau eru öll farin nema ég. Ég átti tvo bræður sem dóu ungir og fjórar systur.“ – Hvað kom til að þú fluttist til Pennsylvaníu? „Ég kom hingað 1946. Ég kynnt- ist manninum mínum á dansgólfinu heima á Íslandi. Hann hét Augustin Salerno. Það var dansað á hverjum laugardegi. Og við þurftum ekkert að borga. Gus var af ítölskum ætt- um en hann og systkinin fæddust hér,“ segir Fjóla. – Barðist Gus í stríðinu? „Hann var hermaður á Íslandi. Hann fór aldrei beint í stríðið. Við giftum okkur á Íslandi. Hann var sendur heim þegar hann var í hern- um. Svo ég kom hingað ein. Hann sótti mig til New York.“ – Hvernig var að sjá Manhattan? „Það voru margar stelpur að koma. Við vorum sjö samtals. Þetta var allt svo öðruvísi en heima.“ – Hvað tók maðurinn þinn sér „Ég vann hjá Iceland Seafood eftir að þeir fluttu hingað til Steel- ton. Við pökkuðum alls konar fiski í kassa og seldum í búðirnar. Þetta var stór verksmiðja sem var rekin af Íslendingum,“ segir Fjóla. Steinunn telur Fjólu of hógværa og bætir við: „Fjóla var yfirmaður. Fyrst hún var Íslendingur treystu þeir henni til að vera yfirmaður. Fjóla hætti að vinna 70 ára. Það var enginn eins hraustur og Fjóla.“ Fjóla segir þá: „Ég verð 93 ára í febrúar. Get hlaupið eins og ung- barn. Ég hef sterkar lappir. Ég fékk staf um helgina og er enn að læra að nota hann,“ segir Fjóla og hlær. Þau Gus eignuðust eina dóttur, Rosanne Carr, sem er kennari í menntaskólanum í Harrisburg. Barnabörnin eru tvö; Augustin tölvufræðingur og Marietta, bóka- safnsvörður í Ohio. Fjóla skráði sig í kaþólsku kirkjuna eftir að þau Gus hófu búskap. Hún vann fyrir kirkj- una í sjálfboðastarfi. Nokkuð er um liðið síðan hún heimsótti Ísland. „Enginn átti bíl þegar við vorum heima. Og það var enginn feitur,“ segir Fjóla Salerno. fyrir hendur eftir hermennskuna? „Hann vann í stálsmiðjunni. Það var mikið að gera. Eftir stríðið var allt búið til úr stáli.“ – Hvenær fór hann á eftirlaun? „Hann er dáinn fyrir löngu. Hann fékk einhvers konar pest,“ segir Fjóla og Steinunn bætir við: „Hann vann á mjög hættulegum stað í stálsmiðjunni. Fékk krabbamein. Ég hugsa að hann hafi verið veikur í ár. Það var búið að reyna allt.“ Fjóla tekur svo aftur orðið: „Hann var að reyna að lifa. Hann var ungur. Hann vildi lifa.“ – Við hvað vannstu, Fjóla? Kynntist Gus á dansgólfinu FJÓLA SALERNO FÆDDIST Í HAFNARFIRÐI OG KYNNTIST ÁSTINNI Í STRÍÐINU Fögur er hlíðin Málverk af Ölfusi prýðir stofuna hjá Fjólu Salerno. Fjóla var ekki með mynd af Gus. Barnabörnin fengu myndirnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.