Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Sérfræðingar í
trúlofunar- og
giftingarhringum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Reikna má með að margir lykilmenn
í íslenskum sjávarútvegi verði
staddir í Belgíu eftir tæpar tvær vik-
ur. Stærsta sjáv-
arútvegssýning í
heimi fer þá fram
í Brussel, 24.-26.
apríl, og verður
hátt á fjórða tug
íslenskra fyrir-
tækja með bása á
sýningunni. Ís-
land hefur tekið
þátt í þessari sýn-
ingu frá upphafi
og skipuleggur
Íslandsstofa þátttöku fyrirtækja á
tveimur þjóðarbásum undir stjórn
Berglindar Steindórsdóttur.
Sýningin er tvískipt, annars vegar
fyrir sjávarafurðir og hins vegar
tæknisýning með áherslu á vélar og
tæki. Berglind segir að á þjóðarbás-
unum verði 26 fyrirtæki með að-
stöðu og séu þetta að miklu leyti
sömu fyrirtækin ár frá ári. Ekki sé
um miklar sveiflur að ræða, tvö ný
fyrirtæki bætist við í ár og eitt sé
ekki með að þessu sinni. Marel, HB
Grandi, Iceland Seafood, Sæplast og
Samherji eru síðan með eigin bása á
sýningunni.
Nýjast í tækjum og búnaði
Berglind áætlar að gestir frá Ís-
landi verði nokkuð á þriðja hundr-
aðið og um 300 manns komi að störf-
um á íslensku básunum. Auk þess að
skoða það sem nýjast er í tækjum og
búnaði gefst gestum kostur á að
hitta viðskiptavini og hafa margir
skipulagt fundi á sýningunni og í
tengslum við hana.
Aðspurð segir Berglind að bás á
þjóðabásnum kosti frá um 1,5 millj-
ónum og verðið hækki síðan með
auknu gólfpláss. Þá er eftir að útbúa
kynningarefni og fleira, auk þess
sem ferðir og uppihald kosti sitt.
Hún áætlar að grunnkostnaður við
báða þjóðarbásana sé alls 70 millj-
ónir króna, en þeir eru um 350 fer-
metrar að stærð hvor um sig.
Í kjölfar hryðjuverka á alþjóða-
flugvellinum Zaventem og Maal-
beek-jarðlestarstöðinni í Brussel
fyrir rúmum tveimur árum hættu
þrjú íslensk fyrirtæki við að taka
þátt í sjávarútvegssýningunni það
ár. Berglind segir að sýningin þá
hafði eigi að síður tekist vel og þeir
hafi lagt leið sína þangað sem þang-
að þurftu að koma. Öryggisgæsla
var mjög mikil á þeirri sýningu og
segir Berglind að lítið hafi verið
slakað á í þeim efnum, enda leggi
bandaríska fyrirtækið sem standi
fyrir sýningunni mikið upp úr ör-
yggisþættinum.
Ljósmynd/Íslandsstofa
Þjóðarbás Gestir ræða málin og skoða það sem í boði var á sýningunni í Brussel í fyrravor.
Lykilmenn í sjávarút-
vegi á leið til Brussel
Stærsta sjávarútvegssýningin Tveir stórir þjóðarbásar
Berglind
Steindórsdóttir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Okkar vinna miðast við að fólk geri
fyrirbyggjandi ráðstafanir gegn eldi
í gróðri hvort sem um er að ræða
bændur, skógareigendur eða við
sumarhús,“ segir
Björn B. Jónsson,
verkefnastjóri
hjá Skógrækt-
inni. Á næstunni
kemur út bækl-
ingur um bruna-
varnir með leið-
beiningum til
skógareigenda og
sumarhúsaeig-
enda. Einnig
verða prentuð
veggspjöld í sama tilgangi. Þá verð-
ur vefur opnaður á slóðinni
www.grodureldar.is, með efni bækl-
ingsins auk ítarefnis sem nýtist þeim
sem vilja gera brunavarnaáætlun.
Varnir og viðbrögð
Stýrihópur hefur unnið að þessu
verkefni síðustu ár og segir Björn að
vissulega hafi erfiðir sinueldar á
Mýrum vorið 2006 ýtt við mönnum
og einnig gróðureldar í Laugardal
við Ísafjarðardjúp í ágúst 2012. Síð-
an hafi skógur og annar gróður auk-
ist og þar með eldsmatur. Sumar-
húsum hefur fjölgað og orðið þétt-
býlla í kjarri vöxnum hlíðum víða um
land. Björn segir að framundan sé
fræðsluherferð um eldvarnir.
Verkefnið verður kynnt undir
heitinu „Varnir og viðbrögð gegn
gróðurbrunum á Íslandi“ á Fagráð-
stefnu í Skógrækt sem nú stendur
yfir á Akureyri. Í síðustu viku var
það kynnt á fundi slökkviliðsstjóra í
Mývatnssveit og á næstunni verður
það kynnt meðal sumarhúsaeigenda,
sem fá sendan bækling og vegg-
spjald. Björn segir að upphafið að
þessari fræðslu megi þó rekja til árs-
ins 2009 er Brunamálastofnun gaf út
handbók um brunavarnir fyrir
slökkvilið, skógareigendur og aðra.
Engin endastöð
„Fyrsta ráðið er að fólk geri sér
grein fyrir aðstæðum í eigin landi,“
segir Björn. „Hversu mikil hætta sé
á gróðureldum, aðstæðum, aðgengi,
vatnsbólum, vatnsöflun, búnaði og
fleiri þáttum. Í framhaldi af því geri
landeigendur viðeigandi ráðstafanir
og við leggjum í raun fram tillögur
um hvernig fólk geti komið upp
brunavörnum hjá sjálfu sér.“
Stýrihópurinn hefur látið íslenska
alþjóðleg tákn um brunavarnir í
gróðri og heimfært þau upp á ís-
lenskar aðstæður. Þar má m.a. sjá
tákn sem sýna vatnstöku fyrir
brunabíla eða jafnvel þyrlur. Björn
segir að hópurinn hafi unnið með
mjög mörgum, bæði einkaaðilum og
opinberum stofnunum, en nefnir sér-
staklega í því sambandi slökkvilið
um allt land. Átakið sem nú sé í
gangi sé engin endastöð því þessi
mál þurfi stöðugt að þróa.
Fólk geri ráð-
stafanir gegn
eldi í gróðri
Fræðsluherferð um eldvarnir
Morgunblaðið/RAX
Mýrar Barist var við sinueldana í
þrjá sólarhringa vorið 2006.
Björn B.
Jónsson
Guðmundur Ragnarsson, formaður
Félags vélstjóra og málmtækni-
manna, VM, átti í gær fund í
Stjórnarráðinu með Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra til
þess að ræða stöðuna á vinnumark-
aði.
Í frétt frá VM segir að samtalið
hafi verið gagnlegt og opinskátt
fyrir báða aðila.
Guðmundur hafi lýst þeirri skoð-
un sinni að þó að samningar, sem
eru að losna um næstu áramót, séu
vissulega á milli launafólks og at-
vinnurekanda sé mikilvægt að rík-
ið komi að borðinu með lausnir
fyrir ákveðna hópa, t.d. barna-
fjölskyldur, aldraða og þá sem eigi
í erfiðleikum með að fóta sig á hús-
næðismarkaði svo allir geti lifað
mannsæmandi lífi í samfélaginu.
Ríkið komi einnig að borðinu
Fundur Katrín Jakobsdóttir og Guð-
mundur Ragnarsson frá VM.
Opinn íbúafundur um fiskeldi fer
fram í félagsheimilinu í Bolungar-
vík þriðjudaginn 17. apríl kl. 19:30.
Á fundinum munu Sigurður Guð-
jónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, og Ragnar Jóhannsson,
sviðsstjóri fiskeldis og fiskiræktar-
sviðs Hafrannsóknastofnunar, fara
yfir vinnu varðandi meðal annars
áhættumat erfðablöndunar, hvern-
ig stofnunin hyggst haga þeirri
vinnu og í kjölfarið taka við spurn-
ingum.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
mun ávarpa fundinn.
Íbúafundur á Bolungarvík um fiskeldi
Bolungarvík Útgerðin er öflug.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi