Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
varaði í gær Rússa við því að banda-
rískum flugskeytum yrði skotið á
Sýrland vegna meintrar efnavopnaá-
rásar stjórnarhers landsins á bæinn
Douma um síðustu helgi. „Rússar
heita því að skjóta niður öll flugskeyti
sem skotið er að Sýrlandi. Undirbúið
ykkur Rússar, því þau eru á leiðinni,
góð og ný og „snjöll!“ Þið ættuð ekki
að styðja skepnu sem drepur eigið
fólk með gasi og nýtur þess!“ skrifaði
Trump á Twitter.
Áður höfðu embættismenn í Rúss-
landi varað við því að ef Bandaríkja-
menn beittu flugskeytum gegn sýr-
lenska hernum yrðu þau skotin niður
og árásir gerðar á staði þar sem
skeytum yrði skotið. Rússar neita
ásökunum vestrænna ríkja og
hjálparsamtaka um að her einræðis-
stjórnar Bashars al-Assad hafi gert
eiturefnaárás á Douma og lýsa þeim
sem upploginni átyllu til hernaðar-
íhlutunar af hálfu Bandaríkjamanna.
Björgunarmenn segja að minnst 40
manns, þeirra á meðal börn, hafi látið
lífið í árásinni og embættismenn
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar kröfðust þess í gær að hjálpar-
starfsmenn fengju að fara til Douma
til að hjálpa fólki sem þjáist af völdum
árásarinnar.
Flugvélar varaðar við
Evrópska flugstjórnarstofnunin
Eurocontrol varaði í gær flugvélar í
grennd við lofthelgi Sýrlands við því
að flugskeytaárás yrði e.t.v. gerð á
landið innan þriggja daga. Trump af-
lýsti fyrirhugaðri ferð sinni til Suður-
Ameríku og Jim Mattis, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hætti við
ferð til vesturstrandar landsins vegna
hugsanlegrar hernaðaríhlutunar.
Dagblaðið The Wall Street Journal
sagði að bandarískir embættismenn
hefðu leitað eftir stuðningi vestrænna
ríkja við hernað í Sýrlandi. Banda-
rísk, frönsk og bresk herskip væru í
Miðjarðarhafi og gætu skotið stýri-
flaugum á skotmörk í Sýrlandi.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, ræddi málið við Trump í
fyrradag en svaraði ekki spurningum
fréttamanna um hvort hún styddi
hernað gegn sjórninni í Sýrlandi.
Fréttaveitan AFP hafði eftir Emm-
anuel Macron, forseta Frakklands, að
hann myndi taka ákvörðun um mögu-
lega árás „á næstu dögum“. Hann
bætti við að árásin myndi beinast að
efnavopnastöðvum Sýrlandshers.
Bandaríkjaher skaut 59 Toma-
hawk-stýriflaugum á herflugvöll ná-
lægt þorpinu Shayrat í Sýrlandi í apr-
íl sl. vegna efnavopnaárásar sem
kostaði tugi manna lífið. Bandarísk
stjórnvöld sögðu að tuttugu herflug-
vélar hefðu verið eyðilagðar í árás-
inni. Hún beindist aðeins að flugvél-
um og flugskýlum, ekki að
efnavopnageymslum Sýrlandshers.
Sýrlandsher tók flugvöllinn í notkun
fljótlega en beitti ekki efnavopnum í
nokkra mánuði eftir árásina.
Árásir á efnavopnageymslur
eða flugvélar?
The Wall Street Journal segir að
bandarísk stjórnvöld íhugi nú þann
möguleika að gera árásir á herstöðvar
með það að markmiði að koma í veg
fyrir að Sýrlandsher geti beitt efna-
vopnum aftur. Fréttaskýrandi breska
dagblaðsins The Guardian taldi að
Trump íhugaði einnig þann mögu-
leika að granda öllum herflugvélum
sýrlensku einræðisstjórnarinnar.
Hann hafði eftir ísraelska hermála-
sérfræðingnum Reuven Ben-Shalom
að Bandaríkjamenn og Ísraelar gætu
hæglega gereytt flugher Sýrlands en
því gæti fylgt mikil áhætta vegna þess
að Rússar hafa sent þúsundir her-
manna þangað til að styðja einræðis-
stjórnina. Árásin gæti hugsanlega
leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar,
að því er blaðið hefur eftir Ben-
Shalom. AFP hafði hins vegar eftir
sérfræðingum í öryggismálum að
ekki væri mikil hætta á að til átaka
kæmi milli herja Bandaríkjanna og
Rússlands.
Nicholas A. Heras, bandarískur
sérfræðingur í málefnum Miðaustur-
landa, telur að Sýrlandsher hafi
ákveðið að beita klórgasi í árásinni á
Douma til að komast hjá því að þurfa
að senda þangað hermenn og hætta á
mikið mannfall á meðal þeirra í bar-
dögum við liðsmenn samtaka íslam-
ista, Jaish al-Islam. Markmiðið hafi
einnig verið að valda skelfingu meðal
íbúa bæjarins sem styðja Jaish al-
Islam. „Þessi aðferð bar tilætlaðan
árangur og Assad verður bráðlega við
völd í Douma,“ hefur AFP eftir Her-
as.
Trump
hótar árás
á Sýrland
Rússnesk stjórnvöld segja að banda-
rísk flugskeyti yrðu skotin niður
Greining mannréttindasamtakanna Human Rights Watch á árásum frá 21. ágúst 2013 til 25. febrúar sl.
Sýrlensk stjórnvöld
Efnavopnaárásir í Sýrlandi
Heimild: HRW/OPCW/Sameinuðu þjóðirnar/Amnesty International/Bellingcat
Damaskus
Damaskus
Idlib
Idlib
Aleppó
Aleppó
Hama
Hama
11 5
16 14
15 6 4
8 6
Ertir m.a. augu og hörund
og getur valdið
köfnun
Veldur m.a. tímabundinni
blindu, lungnabjúg,
bruna og blæðingu
Ræðst á taugakerfið og
vöðva. Getur valdið
hjartastöðvun og dauða
Þeir sem taldir eru
bera ábyrgð á árásunum:
Svæði
Samtökin Ríki íslamsÓstaðfest
Alls voru 85 meintar efnavopnaárásir rannsakaðar
42 eru taldar hafa verið
gerðar með klórgasi
2 með eiturefninu sarín 3 með sinnepsgasi
(Ríki íslams)
AFP
Hótar árás Trump á fundi með hátt
settum herforingjum í Hvíta húsinu.
Sakaður um tugi
eiturefnaárása
» Mannréttinda- og hjálpar-
samtök hafa sakað her ein-
ræðisstjórnarinnar í Sýrlandi
um að hafa gert tugi efna-
vopnaárása á svæði sem eru á
valdi andstæðinga hennar, nú
síðast á bæinn Douma, nálægt
höfuðborginni Damaskus.
» Ráðamennirnir í Sýrlandi og
Rússar, bandamenn þeirra,
neita því að eiturefnaárás hafi
verið gerð á Douma sem er á
valdi uppreisnarmanna.
» Þeir saka vestræn ríki um að
hafa þjálfað andstæðinga ein-
ræðisstjórnarinnar í því að
setja eiturefnaárásir á svið og
gera sér upp einkenni eitrunar.
257 manns fórust í gær þegar her-
flugvél hrapaði í grennd við Algeirs-
borg, höfuðborg Alsírs. Flestir þeirra
sem létu lífið voru hermenn og fjöl-
skyldur þeirra. Þetta er mannskæð-
asta flugslysið í sögu Alsírs og það
fjórða mannskæðasta í heiminum síð-
ustu tvo áratugi, að sögn fréttaveit-
unnar AFP.
Lýst var yfir þriggja daga þjóðar-
sorg í Alsír vegna slyssins.
Yfirvöld í Algeirsborg sögðu að 247
farþegar og tíu manna áhöfn hefðu
farist. Hermt er að auk hermanna og
fjölskyldna þeirra hafi 26 félagar í
Polisario, sjálfstæðishreyfingu
Vestur-Saharamanna, látið lífið í
slysinu, að sögn fréttavefjar breska
ríkisútvarpsins.
Orsök slyssins ókunn
Ekki er vitað hvað olli slysinu og
varnarmálaráðuneyti Alsírs fyrir-
skipaði rannsókn á því. Flugvélin var
af gerðinni Iljúshín IL-76, sem er
fjögurra hreyfla, fyrst smíðuð í Sov-
étríkjunum og síðan Rússlandi.
Vélin hrapaði á akur nálægt her-
flugvelli í grennd við höfuðborgina
skömmu eftir flugtak og eldur kvikn-
aði í henni. Hundruð sjúkrabíla og
tugir slökkvibíla komu á staðinn.
Flugvélin var á leiðinni til Tindouf í
suðvesturhluta Alsírs, nálægt landa-
mærunum að Marokkó og Vestur-
Sahara, sem Marokkómenn hernámu
á áttunda áratug aldarinnar sem leið.
Í Tindouf og nágrenni búa margir
flóttamenn frá Vestur-Sahara og þar
eru skrifstofur útlagastjórnar sjálf-
stæðishreyfingarinnar.
Flugslysið í gær er það mannskæð-
asta í heiminum frá júlí 2014 þegar
298 manns fórust í flugvél Malaysia
Airlines sem var skotin niður yfir
svæði uppreisnarmanna í Austur-
Úkraínu.
Kostaði 257
manns lífið
Mannskæðasta flugslys í sögu Alsírs
AFP
Flugslys Björgunarmenn að störf-
um við flak vélarinnar sem hrapaði.
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af