Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 48

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn. 8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu. Einnig mikið úrval aukabúnaða. Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is maxipodium 500 Hestakerrur frá Fautras ym maxipodium 500 b Um þriggja ára skeið hefur kvóti í krókaafla- markinu verið nær ein- göngu seldur á 15 metra 30 tonna báta. Útgerðir báta af þess- ari stærð eru með yfir- burðastöðu miðað við minni báta þegar kem- ur að lántöku til kaupa á aflaheimildum. Marg- ir þeirra eru í eigu út- gerða á aflamarkinu eða fiskverkun sem vinnur aflann í eigin vinnslu. Þetta eru fjársterk fyr- irtæki sem lánastofnanir lána auð- veldlega til kaupa á aflaheimildum. Einyrkjar sitja ekki við sama borð nema til komi aflaheimildir til veð- setninga láninu. Með framsali afla- heimilda smábáta án byggðateng- ingar hefur orðið mikil röskun á útgerðarstöðu í mörgum bæjum. Kvótinn seldur burt þrátt fyrir gjöful fiskimið á grunnslóð viðkomandi bæja. Atvinna tengd útgerð og vinnsluafla dregst saman. Margir þessara staða hafa fjárfest með miklum kostnaði í hafnarmann- virkjum sem eru glæsilegar flot- bryggjur umluktar sterkum grjót- görðum en fáir bátar til að nýta sér herlegheitin. Upp í hugann kemur lýsing úr bibl- íusögunum þegar Davíð felldi risann Golíat með því að slöngva steini í höf- uðið á honum. Davíð hafði ráð sem dugði til að fella risann. Eins geta samtök sveitarfélaga snúið þessari óheillaþróun við með því að byggða- tengja þennan útgerðarflokk þegar hann tekur lán til kvótakaupa úr þar til ætluðum sjóði sem væri til mótvægis við aðrar lánastofnanir sem vilja ekki lána smærri útgerðum til kaupa á aflaheimildum. Ég veit ekki hvað veldur fálæti sveitar- stjórnarmanna því við- snúningur til betri veg- ar getur ekki átt sér stað án aðkomu sveitar- félaga. Tækifærið er núna, það sjá allir hvert stefnir. Tökum upp samræðu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í hátíðar- ræðum tala stjórnmálamenn gjarnan um frelsi einstaklingsins til orðs og æðis en binda svo hendur manna þeg- ar sömu menn setja lög á Alþingi. Það er sterk vitund í þjóðarsálinni að vera sjálfs síns herra og geta með hörku og útsjónarsemi framfleytt sér og sínum og vera ekki upp á aðra kominn. Samtök sveitarfélaga eru kröftugt stjórnsýslustig í lýðræðisríki. Þau gera kröfur til ríkisvalds á hverjum tíma að skapa þegnum sínum mann- sæmandi búsetuskilyrði, beita til þess réttmætum rökum og hafa almenna hagsmuni ofar sérhagsmunum. Þess vegna er byggðatenging í krókaafla- markið nauðsynleg til að halda uppi stöðugleika í þeim bæjum sem treysta á vinnu tengda sjósókn og verkun afla. Við byggðatengingu aflaheimilda væri komið í veg fyrir það sem nú tíðkast með hverri sölu aflaheim- ilda, þar sem enginn getur vitað fyrirfram hvar heimildirnar lenda. Samtök sveitarfélaga og þar með kjörnir sveitarstjórnarmenn á land- inu öllu ættu fyrir löngu að vera búin að taka á þessu með afgerandi hætti og knýja á breytingar. Rétt ykkar fólks á að virða ótvírætt til að nýta grunnslóð á smábáti um alla framtíð eins og verið hefur frá öndverðu. Það er ljótur leikur stjórnvalda að setja þannig lög og reglur sem virða ekki þennan rétt manna. Það er og verður alltaf til fólk sem óskar einskis heitar en að vinna með náttúrunni sér og sínum til framdráttar. Hér kemur eitt dæmi sem mætti útfæra til að ná árangri þegar byggðatenging er viðhöfð. 1. Að styrkja útgerð smábáta með því að koma á laggirnar lánafyrir- greiðslu á góðum kjörum til lengri tíma til kaupa á aflaheimildunum. 2. Leita skal til lánastofnana eða sjóða eftir samstarfi um lán og dag- legan rekstur á útlánum þessum. Hugsanlegt val á samstarfsaðila gæti orðið eftir ákveðnu útboði. 3. Samtök sveitarfélaga ásamt LS kæmu að þessu án nokkurra skuld- bindinga annarra en þeirra að við- komandi útgerðaraðili velji sér byggðatengingu um leið og lán er veitt. Því það er enginn annar en lán- takandi sem gerist ábyrgur að láni sínu með þinglýstu veði í kvóta eða bát. 4. Að þessum skilyrðum fengnum mætti hugsanlega skipta landinu í út- hlutunarsvæði til lántökunnar og auglýsa eftir umsóknum. 5. Ef þurfa þykir þá mætti skipta landinu upp í fjögur eða fimm um- dæmi til byggðatengingar. Byggðakvóti Byggðakvóta er úthlutað til sveit- arfélaga sem misst hafa aflaheimildir úr byggðarlaginu. Þær hafa nýst vel kvótalitlum útgerðum sem veiða byggðakvótann áður en þeir hefja veiðar á strandveiðum og tengja þar með úthaldi báta sinna. Þegar byggðakvóta er úthlutað til bátsins þá er það skilyrt að viðkomandi út- gerð leggi til kvóta á móti, tonn á móti tonni. Einnig er kveðið á um að við- komandi bátur fari í bein viðskipti til verkunar aflans sem er verkaður á sama stað og úthlutað er til. Með því skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta að bátur fari í bein við- skipti með afla er gengið framhjá mörkuðum sem gegna lykilhlutverki í þjónustu við smábáta án fiskvinnslu. Þetta ákvæði þurfa stjórnvöld að endurskoða til að markaðir geti starf- að eðlilega í framtíðinni. Því smábáta- útgerðir eru einnig hluti af atvinnu- tækifærum í sömu byggðum. Í úthlutun á byggðakvóta til byggða sem misst hafa heimildir frá byggðinni felst ákveðin viðurkenning stjórnvalda á þessum vanda sem fylgir sölu kvóta án byggðatenginga. Krókaaflamarkið og aflamarkið Kvótakerfin eiga það sameiginlegt að hafa fengið sitt aflamark tengt bát- um í þessum kerfum á afmörkuðum 3 ára reynslutíma, 1 ár af 3 valið og 70% afli þess árs settur í hlutdeild bátsins. Bæði kerfin virka til aukningar afla þegar skilyrði eru góð í hafinu, að sama skapi minnkunar á afla þegar skilyrði eru slæm. Þetta er grundvöll- urinn í stjórn fiskveiða í kvótastýrðu veiðikerfi. Krókakerfið er fullmótað veiðikerfi smábáta. Það kemur ekkert annað kerfi í staðinn sem hentar betur ein- yrkjaútgerð (fjölskyldufyrirtæki). Það felur í sér bakland með kvótanum þegar kvótinn tengist bátnum. Krókakerfi eru línu- og hand- færaveiðar sem eru umhverfisvænar með litlum kostnaði við veiðarnar. Fiskurinn lifandi blóðgaður, kældur í ískrapa og afhentur að kvöldi hvers veiðidags. Í krókaaflamarkinu var úthlutað 1. september 2017 þorskígildum (sjá meðfylgjandi töflu). Þessar tölur eru botnfiskur fyrir utan byggðakvótann, línuívilnun, grá- sleppu og makrílveiðar. Þetta eru um- talsverðar aflaheimildir sem skapa mörg þúsund störf á öllu landinu sem tengjast sjósókn smábáta og vinnslu afla í landi fyrir utan allskyns þjón- ustu sem fylgir þessari starfsemi. Þetta er ígildi stóriðju væri rétt á málum haldið. Stærðarmörk smábáta Í Brimfaxa, málgagni LS, rekur Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, á fræðandi hátt sögu smábátaútgerða frá stofnun LS fyrir 30 árum. Þetta er fróðleg lesning sem segir allt sem segja þarf um afstöðu löggjafans til þessa útgerðarforms. Landssamband smábátaeigenda eru vel skipulögð samtök smábátaeig- enda sem hafa komið mörgum þýð- ingarmiklum málum þeirra í höfn. Á aðalfundum félagsins koma oft um- deild mál til afgreiðslu. Eitt af þeim er krafa um stækkun bátanna, gerð af mönnum sem hafa yfir að ráða meiri aflaheimildum en 12 m 15 t. bátum hentar. Farið var fram á að bátar gætu verið 15 m – 30 t. Sú tillaga var flutt á aðalfundi LS og hún felld. Formaður Samtaka smærri út- gerða SSU vann það afrek sem er vonandi einsdæmi að fá þingmenn til liðveislu til stækkunar báta í króka- kerfinu án þess að sú barátta færi hátt eins og hann segir sjálfur frá í Morgunblaðinu 26.10. 2017. Alþingi samþykkti stækkun bátanna úr 12 m 15 t. í 15 m 30 t. Þessi óheillaþróun gengur þvert á stefnu frumkvöðlanna sem stofnuðu LS fyrir 33 árum. Markmið þeirra var að smábátaútgerð væri ein- yrkjaútgerð sem fengi rétt sinn við- urkenndan til veiðanna. Það væri til lítils barist fyrir þess- um rétti ef honum er ætlað að hverfa frá einyrkjaútgerð yfir í þessa öflugu báta á örfáum árum. Það voru frum- kvöðlarnir sem öfluðu þessa veiði- réttar á reynslutíma með dugnaði sínum. Formaðurinn og félagar klufu sig frá LS sem haldið hefur um þennan útgerðarflokk smábáta frá byrjun. Þeir stofnuðu SSU og rufu um leið samstöðu smábátaeigenda. Í áður- nefndri grein talar hann niður til smábátaeigenda og kallar þá hobbí- karla, heimildarlausa eða kvótalitlar útgerðir sem ættu ekki að hafa at- kvæðisrétt sem næmi einu atkvæði á bát þegar fjallað er um tillögur sem bornar eru upp á aðalfundi LS. Það er athyglisvert að félagar inn- an SSU skuli berjast fyrir netaveið- um í krókakerfi smábáta. Fyrir það fyrsta er netaveiddur fiskur dauð- blóðgaður og hefur blóðlitað holdið og þar með verðminni en lifandi blóðg- aður fiskur. Stjórnmálamenn þurfa að gera sér grein fyrir því að það getur verið mjög afdrifaríkt að aðhafast ekkert þegar atvinnulíf fer úr böndunum og láta sem þeim komi það ekkert við. Því er nauðsynlegt að átta sig á því að það verður aldrei hægt að bæta skað- ann nema með aðgengi að fjármunum til að kaupa aflamark sem í boði verð- ur í framtíðinni. Veiðigjald Veiðigjald á að taka mið af afkomu báts í því veiðikerfi sem starfað er í. Flestir smábátar í krókaaflamarki eru ekki með verkun samhliða út- gerð, þess vegna þarf að taka tillit til stöðu þeirra áður en gjaldtaka er ákveðin. Fyrir síðustu alþingiskosningar var ekki minnst á byggðatengingu í krókaaflamarki af hálfu frambjóð- enda til Alþingis. Hafa verður í huga þær hamfarir sem bæir verða fyrir af völdum manna þegar kvóti er seldur burt úr bænum og eignir manna sem þar búa gerðar verðlausar, sér- staklega á afskekktum stöðum þar sem fáir búa. Eftir Sæmund Einarsson »Kvótinn seldur burt þrátt fyrir gjöful fiskimið á grunnslóð við- komandi bæja. Atvinna tengd útgerð og vinnslu- afla dregst saman. Sæmundur Einarsson Höfundur er trillusjómaður. Byggðatengjum krókaaflamarkið Fyrirhuguð er virkjun Svartár í Bárðardal. Þetta má sannarlega kalla um- hverfishryðjuverk ef af verður. Fyrirtækið sem hyggst virkja er í einkaeigu, SSB Orka. Þarna er á ferðinni skýrt dæmi um hvernig einkafyr- irtæki getur komist upp með framkvæmd þar sem skammtíma- hagsmunir víkja til hliðar lang- tímahagsmunum. Hverjir eru þá langtímahagsmunirnir? Þeir felast í óspilltri náttúru því verðmæti hennar vex með ári hverju. Önnur virkjun sem er á teikniborðinu og nálgast óðfluga er virkjun í Ófeigsfirði á Ströndum í boði HS Orku. Annað umhverfishryðjuverk í bígerð. Og Tungufljót. Og Eld- vörp. Þessi verkefni sem áður eru nefnd geta ekki kallast ann- að er umhverfis- hryðjuverk. Það verð- ur með öllum ráðum að stöðva þá feigðar- för sem nú er hafin af hálfu einkafyrirtækja í orkugeiranum eins og SSB Orku og HS orku, gegn náttúru Íslands. Náttúruauðlindir, hverjar sem þær eru, eiga að vera í eigu þjóðarinnar og arðurinn af þeim renna í ríkissjóð til uppbyggingar á innviðum landsins. Raforkufram- leiðsla er náttúruauðlind. Hér skal því haldið fram að alla raforku- framleiðslu stærri en tvö mega- wött eigi að flokka sem náttúru- auðlind. Ef orkufyrirtæki vill virkja á Íslandi á að gera að skil- yrði að eignaraðild slíks fyrirtækis sé 100% hjá ríki og/eða sveitar- félögum. Opinberir aðilar eiga að styðja landeigendur til að setja upp smá- virkjanir sem geta orðið allt að tvö megawött. Víða er hægt að setja upp vatnsaflsvirkjanir sem geta þjónað vel nærumhverfi sínu og haft lítil umhverfisáhrif í för með sér. Þá er einnig nauðsynlegt að huga vel að eignarhaldi á landi á Íslandi og banna með lögum að vatnsréttindi séu aðskilin frá eign- arhaldi á landi sbr. reglur um veiðirétt. Um virkjanir og náttúruauðlindir Eftir Ingólf Bruun »Náttúruauðlindir, hverjar sem þær eru, eiga að vera í eigu þjóðarinnar. Ingólfur Bruun Höfundur er leiðsögumaður. i@05.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.