Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 60
Eurovisionfarinn Ari Ólafsson er nú á mikilli kynningarferð um Evrópu þar sem hann kemur víðs- vegar fram á tónleikum, ásamt öðrum keppendum, til þess að kynna framlag okkar til keppn- innar í ár. Í pistli á Facebooksíðu fararstjóra íslenska hópsins, Felix Bergssonar, kemur fram að yfir- leitt sé um boðsferðir tónleika- haldara að ræða. Þar kemur einn- ig fram að Ísland hafi ekki alltaf tekið þátt í slíkum kynningar- ferðum en ferðin í ár er mun yfir- gripsmeiri en áður hefur tíðkast. Síðast liðna helgi söng Ari á tón- leikum í London og á þriðjudags- kvöld söng hann fyrir þúsundir áhorfenda í ísraelsku borginni Tel Aviv. Ari á svo eftir að syngja á stórtónleikum í Amsterdam og Madrid áður en heim er komið. Aðstandendur lagsins virðast ánægðir með viðbrögðin það sem af er og finnur Ari fyrir miklum meðbyr á samfélagsmiðlum. Höf- undur lagsins, Þórun Erna Clau- sen, fylgir Ara eftir en Siggi Gunnars verður með þau á línunni í þætti sínum í dag, frá 09 12, á K100 og fær að heyra um ævintýr- in úr ferðinni. Ljósmynd/RÚV Sprellað Ari og flytjandi danska lagsins, Jonas Rasmussen, bregða á leik. Söng fyrir þúsundir í Ísrael Faðmlög Ari og Þórunn Erna. Bríet Ísis Elfar er 19 ára söngkona og nemandi í Menntaskólanum við Hamra- hlíð sem steig sín fyrstu skref í útgáfu tónlistar á árinu, en hún hefur strax vakið athygli fyrir hæfileika og metnaðarfullt popp. Þóttist senda skilaboð óvart og opnaði dyrnar inn í tónlistarbransann Myndband Bríet sendi frá sér metnaðarfullt myndband við fyrstu smáskífuna. Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is „Þetta byrjaði á menningarnótt í fyrra, ég var stödd í partýi og þar kom stelpa upp að mér og sagði, „oh my god veistu hver Pálmi er?“ Hann er bestur í heimi og er að gera geggjaða tón- list og hefur áhuga á þér,“ segir Bríet spurð út í upp- haf þess að hún hóf samstarf við upptökustjórann Pálma Ragnar Ásgeirsson sem m.a. er þekktur fyrir störf sín með StopWait- Go. „Ég fór þá að reyna að fiffa þetta til. Ég ákvað að þykjast senda honum óvart skilaboð á Facebook og spurði hvort hann vissi klukkan hvað flugeldasýn- ingin væri og sendi svo „ó, afsak- aðu, vitlaus Pálmi“ í kjölfarið,“ segir Bríet og þessi óvenjulega áætlun hennar virtist svínvirka því hún náði athygli Pálma. „Ég sá hann svo stuttu síðar út í sal á tónleikum sem ég var að syngja á og hann kom talaði við mig eftir tónleikana,“ segir Bríet sem hef- ur undanfarin tvö ár haldið tón- leika á Íslenska barnum á hverju einasta miðvikudagskvöldi þar sem hún syngur aðallega jazz. Hafa þau nú starfað saman í um hálft ár og bar samvinnan ávöxt í lok mars þegar EP platan „22.03.99“ kom út með fimm nýj- um lögum. Bríet er nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð en hún viðurkennir að fátt annað en tónlistin komist að þessa dag- ana og hafi námið því setið á hak- anum. Kærastinn innblástur Bríet sendi frá sér fyrstu smá- skífuna sína í janúar, lagið In Too Deep, ásamt metnaðarfullu myndbandi sem hún vann sjálf ásamt ljósmyndaranum Önnu Maggý. Næsta smáskífa heitir Twin og varð kærasti Bríetar innblástur hennar við gerð lags- ins. „Fyrir nokkru síðan var ég Prikinu og það stígur strákur á skóinn minn, mjög myndarlegur strákur sem er kærastinn minn í dag. Nema þegar ég lít upp sé ég að það er annar strákur eiginlega alveg eins við hliðina á honum og ég uppgötva að hann er tvíburi. Þá var ég nýbúin að semja þetta lag og ég ákvað að láta það heita Twin,“ segir Bríet og það virðist ekkert skorta á skondnar sögur í kringum hana, hvort sem þær eru um lævís skilaboð til þeirra sem hana langar til að vinna með eða af því hvernig ástin kviknar í miðborginni. Hægt er að hlusta á tónlist Bríetar á Spotify með því að fletta upp BRÍET og undir því nafni er einnig síða á Facebook. Bríet MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur fyrir heimilið Stærð 93 x 50 cm verð 47.000 kr. Stærð 93 x 58 cm verð 67.000 kr. Stærð 93 x 72 cm verð 77.000 kr. Barhnettir á hjólum Ítalskt handverk Stærð hnattar: 40 cm ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? Matur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.