Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Amma Helga. Amma í Borgó. Elsku amma. Ég hef kviðið því að kveðja þig síðan ég var barn. Takk fyrir verndina. Fyrir vinskapinn. Fyrir öll orðin. Vandlega valin. Alltaf blíð. Allt- af virðuleg. Alltaf góð. Og úr- ræðagóð. Til staðar. Fyrir lít- inn hræddan strák. Lítinn viðkvæman strák. Sem þurfti bara knús og ísblóm. Takk fyrir öll knúsin. Og aldrei styggð- arorð. Aldrei vandamál. Bara lausnir. Öll ísblómin. Takk fyrir öll ísblómin. Fyrir appelsínurn- ar með sykurmolanum inní. Takk fyrir lesturinn. Fyrir Dísu ljósálf og Dverginn Rauð- grana. Fyrir Kristnihaldið. Fyrir sögurnar. Takk. Á Berugötunni. Við strönd- ina svörtu. Með afa Jonna. Griðastaðurinn minn. Minn eini. Passandi upp á mig. Og hin við- kvæmu blómin. Takk fyrir ströndina. Takk fyrir afa. Takk fyrir að gefa þér tíma. Takk. Takk fyrir töfrana. Takk fyr- ir jólin. Fyrir að töfra þau fram. Heilögustu og ótrúleg- ustu jólin. Takk fyrir að gefa mér þau. Full af undrun og eft- irvæntingu. Af helgileika. Með alla sveinana. Alla pakkana. Ástríður Helga Jónasdóttir ✝ Ástríður HelgaJónasdóttir fæddist 14. nóv- ember 1930. Hún lést 8. mars 2018. Útför hennar fór fram 7. apríl 2018. Rétta matinn. Gamla tréð. Réttu lögin. Spiladósin og plöturnar. Rétta lýsingin. Gamla skrautið. Kirkjan og kortin. Og allir aðrir í fyrsta sæti. Börnin fremst. Allt fyrir börnin. Alltaf allt fyrir okkur krakkana. Takk. Ráð undir rifj- um. Fyrir viðkvæm börn. Óhaggandi amman með hlýj- asta faðminn. Ilmandi af bláu Nivea-kremi. Teppið á Berugöt- unni. Kjallarinn spennandi. Geymslan full af fjársjóði. Fjara full af ævintýrum. Allt mátti. Og ef ekki var það allt í góðu. Elliðaey. Allt sem þar gerðist. Alltaf vakandi. Alltaf gefandi. Hugsandi um okkur börnin. Samt tókum við varla eftir þér. Samt varstu best af öllum. Hlustandi. Hrósandi. Hvetjandi. Takk. Í nokkur ár af minni æsku var ekki mikill friður í kringum mig. Og þú vissir það. Og þú gafst mér frið. Stað þar sem ég fékk að vera barn. Get aldrei þakkað þér nóg fyrir það. Það er ekki hægt. En ég skal reyna að gefa öðrum börnum það sem þú gafst mér. Ég lofa. Þannig að takk. Takk fyrir friðinn. Takk fyrir eyjuna. Takk fyrir ströndina. Takk fyr- ir Berugötuna. Takk fyrir strákana þína. Alla. Takk fyrir æskuna. Og allt sem á eftir kom. Takk fyrir hlýjuna og friðinn. Takk. Takk. Takk. Allt- af takk. Ég á ekki nógu mikið þakklæti en ég reyni með því að segja bara takk. Takk, amma. Takk. Bragi Páll Sigurðarson. Það var yndislegur sólskins- dagur – við Dónald mætt til að hitta verðandi tengdaforeldra Unnar Mjallar okkar á Greni- melnum. Það vildi svo til að við komum öll að húsinu á sama tíma – þarna stóðu þau – Helga og Jón, foreldrar Einars Helga – glæsihjón – há og tignarleg – klæddu hvort annað einstaklega vel. Stundin var elskuleg og glaðvær og þannig voru okkar samskipti upp frá því. Við nöfn- urnar urðum vinkonur – það var alltaf gott að hitta Helgu – hún með sína léttu lund og fal- lega bros veitti birtu á um- hverfið. Hún sagði mér sögur af því hvernig það var að fæðast í eyju á Breiðafirði og alast upp við gjörólíkar aðstæður Reykja- víkurbarns. Hún elskaði eyjuna sína, Elliðaey, og eftir að hún fluttist í Brákarhlíð var eyjan henni ofarlega í huga – hún sýndi mér myndir og sagði frá. Ekkert var Helgu þó eins kært og maðurinn hennar, sem kvaddi allt of fljótt og hún saknaði – þau voru sálufélagar og samstíga í lífi og leik. Fjórir synir – ríkidæmið þeirra – um- vöfðu foreldrana og eftir að Helga varð ein fékk hún alla þeirra ást – mikið um faðmlög, mikil samvera barna og barna- barna. Ég naut þess að vera í kringum þau og sjá þessa nánd. Samband Helgu og yngsta son- arins Einars Helga, fyrrverandi tengdasonar okkar, var alveg sérstakt kærleikssamband. Ein- ar hringdi í móður sína nánast daglega hvar sem hann bjó – heimsótti hana reglulega, með Unni Mjöll, síðan einn eða með börnin þrjú. Arnar Björn bjó frá tveggja ára aldri í Dan- mörku en Hekla Sóley og Berg- dís hafa búið þar alla tíð. Öll voru þau dásamlega hænd að ömmu Helgu og hún stór hluti af lífi þeirra eins og föðurfólkið allt. Við Dónald stoppuðum oft í fallega Borgarnesi til að heilsa upp á Helgu á leið okkar norð- ur. Nú á kveðjustund þakka ég af alhug alla hennar hlýju og vináttu. Veri okkar kæra vin- kona Helga Jónasdóttir góðum Guði falin. Helga Mattína Björnsdóttir, Dalvík. Enn er komið að kveðjustund og enn er ég niðurlútur, sé eftir að hafa ekki ræktað betur vin- áttuna við þá einstöku heiður- skonu Helgu Jónasdóttur, sem í dag er til moldar borin. Kynni okkar hófust snemma á níunda áratugi síðustu aldar, þá eru að festa sitt ráð og stofna heimili Jónas Hólm sonur Helgu og Stefanía frá Ísafirði, á öðru leit- inu, en Vilborg úr Dýrafirði og undirritaður, á hinu, þau fyrst- nefndu samstúdentar frá Menntaskóla Akureyrar vorið 1970. Fljótlega kom að heim- boðum og veisluhöldum hjá þeim rausnarhjónum Stefaníu og Jónasi enda velbúandi innan um broddborgarana í vesturbæ Reykjavíkur, þar voru ætíð í öndvegi sæmdarhjónin úr Borgarnesi frú Ástríður Helga og Jón Eyjólfur fulltrúi, for- eldrar Jónasar, samhent og ást- ríkt par með einstaklega góða nærveru. Rík er mér í minni ferð á heimaslóðir frú Helgu í Elliðaey á Breiðafirði, farkost- urinn súðbyrðingurinn Kári, aflaskip Jónasar í Elliðaey föð- ur Helgu, þar var tekið til hendi við lundaveiði, eggjatöku og slátt, með orfi og ljá, göngu- ferðir um eyjuna þar sem þær systur lýstu uppvaxtarárunum, gleði og sorgum eyjafólksins, því sjórinn bæði gaf og tók, varðeldur kveiktur um kvöldið í Kýrhólsvík, skálað og sungið fram á nótt – geta má hér þess fágæta eiginleika Jóns Eyjólfs að finna lag við ólíkustu ljóð, ef einhver bangaði saman bögu var Jonni óðara búinn að fella hana að þekktu lagi, svo var spilað og sungið. Árin liðu, sviplegt fráfall Jóns Eyjólfs markaði spor, lofsvert hvernig Helga sigraðist á því mótlæti. Vil ég að leiðarlokum þakka fyrir viðkynni og vináttu þess- arar fallegu og góðu eyjakonu. Blessuð veri minning Ástríðar Helgu Jónasdóttur úr Elliðey. Gísli Óskarsson. Ég var aðeins 15 ára, hún 48 ára þegar við kynntumst. Ég var eina tengdadóttirin á þeim tíma og naut þess í botn. Hún naut þess að stjana við mig, ég var prinsessan á heimilinu ásamt þremur sonum hennar sem enn bjuggu heima og eig- inmanni. Þannig voru fyrstu kynni mín af elskulegri vænt- anlegri tengdamóður minni, Helgu, árið 1978. Hún var engri lík, hún hafði einstaka nærveru, var aldrei að flýta sér og gaf sér alltaf tíma til að ræða við fólk, hún var kletturinn. Við náðum strax saman eins og við værum mæðgur og okkar samband var mjög sérstakt alla tíð þó svo að við sonur hennar hefðum skilið. Við gátum talað saman heilu dagana, hún sagði mér frá lífinu í Elliðaey þar sem hún ólst upp og mundi hvert smáatriði mjög nákvæmlega. Mínar rætur lágu á Hellisand og hún kannaðist við mitt fólk sem var ekki verra. Hennar minningar voru fallegar og góðar. Reyndar var eitt sem hún hafði heitið sér sem ungri stúlku, en það var að giftast aldrei sjómanni. Pabbi hennar réri á litlum báti á Breiðafirði og hún beið oft milli vonar og ótta eftir því að hann kæmi að landi og þá ákvað hún þetta. Hún fór ung stúlka á Hús- mæðraskólann að Varmalandi og kynntist honum Jonna sín- um sem var uppalinn eins langt frá sjó og hægt var nánast, eða innst í Lundarreykjadalnum. Jonni var glæsimenni og afar skemmtilegur og settust þau að í Borgarnesi og örlög Helgu voru ráðin og bjuggu þau þar alla tíð og áttu mjög farsælt hjónaband. Eftir að ég eign- aðist Braga Pál þá tók hún við að dekra hann, en betri ömmu var ekki hægt að hugsa sér, með eindæmum barngóð, enda vann hún alla tíð á leikskól- anum í Borgarnesi. Bragi Páll naut góðs af því að hafa ömmu á leikskólanum og ósjaldan fékk hann að fara með henni þangað. Alltaf átti hann skjól hjá ömmu og afa í Borgarnesi, fór ósjald- an með rútunni í Nesið og fékk að njóta þess að vera bæði á Berugötunni og á Jaðri þar sem þau áttu sinn sælureit upp með Gufánni. Eftir að Jonni dó, brast eitthvað í Helgu sem var bara eðlilegt, þau voru eitt, „Helga og Jonni“. Nú eru þau sameinuð á ný, fá sér sína skemmtilegu bíltúra, stundum yfir brúna, stundum uppí sveit, borða kótelettur í raspi og ísblóm og hann leggur kapal á skemlinum, hann les fyrir hana, hún stússar í eld- húsinu, allt eins og það var. Jóna Dís Bragadóttir. Elsku amma okk- ar. Við vitum ekki al- veg hvernig við eig- um að byrja enda aldrei þurft að skrifa minnigargrein áður. Við viljum bara þakka þér fyrir allt. Þakka þér fyrir að prjóna lopa- peysurnar á okkur sem við not- uðum svo mikið að allavega ein varð götótt, og takk fyrir að laga hana. Takk fyrir að handmála jólakönnur og grautadisk handa okkur en þetta munum við alltaf eiga. Takk fyrir að gefa okkur stellið sem þú málaðir þegar pabbi var ungur og við notum á jólunum, þú verður alltaf með okkur þegar það er notað. Takk fyrir að gefa okkur alltaf glass- úrtertu þegar við komum í heim- sókn því núna hugsum við alltaf til þín þegar við fáum okkur glassúrtertu. Takk fyrir að mála allar myndirnar sem eru um allt hús því þá hugsum við til þín þeg- ar við horfum á þær. Takk fyrir allan kvöldlesturinn þegar við vorum yngri og að gefa okkur all- ar Mola bækurnar, sem þú last fyrir pabba líka þegar hann var lítill. Við munum sakna þín og það verður skrýtið að geta ekki heimsótt þig. Takk fyrir allt. Ágúst Bjarni, Óliver Már og Heiðdís Björk. Listagyðjan var Iðunni Ágústsdóttur í blóð borin og ligg- ur eftir hana fjöldi málverka sem og postulín sem hún málaði á. Ég var tæpra 19 ára þegar ég kynnt- ist Iðunni. Heimilislífið var öðru- Iðunn Ágústsdóttir ✝ Iðunn Ágústs-dóttir fæddist 6. desember 1939. Hún lést 27. mars 2018. Útför Iðunnar fór fram 11. apríl 2018. vísi en ég átti að venjast, Iðunn las dönsk blöð, talaði við fólk sem aðeins hún sá, málara- trönur í stofunni og rósir ræktaðar í garðinum við litla húsið hennar á eyr- inni. Og þó, alin upp af listmálara og áhugamanni um blómarækt var munurinn ef til vill ekki svo mik- ill, þegar litið er til baka. Í huga mér er þetta litla hús sá staður þar sem hún undi sér best. Eftir að ég og barnsfaðir minn slitum samvistum sá ég minna af Ið- unni. Afmælisboð og stöku hitt- ingur á förnum vegi. Alltaf þótti mér vænt um Iðunni og ekki varð sú væntumþykja minni er hún tók son minn undir sinn vernd- arvæng. Það hefur ekki verið auðvelt að fá 17 ára ungling inn á heimilið en þau létu það ganga. Eins og hún sagði, hann hefur sitt og ég mitt, ég fæ núna tæki- færi til að umgangast hann og kynnast. Í þrjú ár bjuggu þau saman. Veittu hvort öðru stuðn- ing, þó svo að veikindin tækju smám saman yfir hjá Iðunni, þá var stuðningurinn til staðar, þó svo að drengnum hafi stundum þótt nóg um þau verkefni sem hann þurfti að takast á við. Far í friði, Iðunn mín, nú taka englarnir þínir á móti þér, litla húsið þitt, rósirnar og olíulitirn- ir. Líkt og höndin stráir blómum, getur hver og einn stráð kærleikshugsunum og bænum um frið, vítt um kring. (IÁ) Ég þakka þér samfylgdina og umhyggja þín fyrir drengnum mínum er mér ómetanleg. Far í friði og guðsblessun. Sonja Dröfn Helgadóttir. ✝ Guðný MaríaGunnarsdóttir fæddist 23. júlí 1940. Hún lést á Víf- ilsstöðum 1. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðveig Hinriksdóttir frá Neðri-Miðvík í Að- alvík, f. 13. maí 1909, d. 11.4. 2002, og Gunnar Vil- hjálmsson frá Meiri-Tungu í Holtahreppi, f. 13. júlí 1909, d. 19. maí 1988. Systkini hennar eru: Gunn- laugur, f. 1936, látinn, Erna, f. 1938, látin, og Vigdís Unnur, f. 1943. Guðný bjó fyrstu árin á Njáls- götu, síðan á Hjallaveginum í Reykjavík en árið 1949 flutti fjöl- skyldan að Bólstað í Austur-Landeyjum. Guðný var tví- gift, gekk ung í hjónaband með Valdimar Jóhanns- syni, eignuðust þau fjögur börn. Hrönn, f. 21. apríl 1960, d. 23. apríl sama ár. Gunnar, f. 29. maí 1961, d. 3. jan. 2014. Jóhann, f. 29. júlí 1962. Soffía, f. 14. júlí 1965. Þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík en slitu samvistum. Seinni maður Guðnýjar var Sverrir Júlíusson, en hann lifir konu sína. Bjuggu þau allan sinn búskap í Hafnarfirði í húsinu sínu Hagakoti. Útför Guðnýjar fór fram 9. mars 2018. Elsku Guðný mín. Þá ert þú komin í sumarlandið góða, vona svo innilega að allt fari að róast hjá þér. Líf þitt var ekki alltaf dans á rósum. Þú varst hörkutól allt líf- ið. Bæði dugleg og heiðarleg kona. Þú sagðir þína meiningu hreint út og tókst ávallt afleiðing- unum. Guðný beið ekki til morguns með það sem hún gat klárað í dag. Við systurnar vorum ekki alltaf sammála en leystum slík mál. Við vorum góðar vinkonur. Guðný var mjög ráðagóð og víð- lesin. Guðný var nokkuð skaprík kona en sanngjörn að sama skapi. Elsku systir, megi Guð vaka yfir þér. Kveðja, Vigdís Unnur Gunnarsdóttir. Guðný María Gunnarsdóttir Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Í dag er til moldar borinn minn kæri stjúpfaðir, Sigurjón Hall- grímsson. Hann var alger öðling- ur, alltaf jákvæður og vildi allt fyrir alla gera. Þegar ég kom vestur í heimsókn vildi hann allt- af keyra mann hvert sem maður þurfti að fara. Hann tók það ekki í mál að ég myndi labba. Þegar ég bjó á Ísafirði í eitt ár fékk ég vinnu í rækjuverksmiðj- unni við að pilla rækjur. Ég kunni auðvitað ekkert til verka. Þá fór Sigurjón Ebeneser Hallgrímsson ✝ SigurjónEbeneser Hall- grímsson fæddist 8. nóvember 1926. Hann lést 22. mars 2018. Útför Sigurjóns fór fram 6. apríl 2018. Nonni bara niður í verksmiðju og kom heim með rækju, hitaði í potti og kenndi mér hand- tökin. Þegar hann varð áttræður buðu hann og mamma okkur systkinunum öllum og mökum til Barce- lona í vikuferð. Það var mjög skemmti- leg og ógleymanleg ferð. Oft voru skoðaðar myndir og rifjaðar upp minningar úr þessari ferð. Hann Nonni var sjómaður af lífi og sál. Stoltur sigldi hann á Dynjandanum sínum á veiðar í mörg ár. Það var gæfuspor hennar mömmu að hitta hann Nonna. Ég er óendanlega þakklát fyrir það hvað hann hugsaði vel um hana í veikindum hennar undir það síð- asta og núna í dag verður hann lagður til hinstu hvílu við hliðina á henni. Ég kveð Nonna með þakklæti fyrir allt og allt. Blessuð sé minn- ing hans. Guðbjörg. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Varmalandi, Öldustíg 1, Sauðárkróki, lést fimmtudaginn 5. apríl á Heilbrigðis- stofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 14. Ásgrímur Þorsteinsson Anne Melén Ólöf Þorsteinsdóttir Ágúst Kvaran Steinar Mar Ásgrímsson Þorsteinn Ásgrímsson Ástkær frænka okkar, ALDÍS BJÖRNSDÓTTIR, Vötnum, Ölfusi, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 26. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Systkinabörn og fjölskyldur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.