Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 68

Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Eitthvað að frétta? spurði ég. „Nei ekkert að frétta“, kannski eitt- hvað sem ekki má segja frá? „Nei, ekk- ert þannig.“ Svona hófust símtöl okkar Gests stundum – allt á létt- um nótum. Sem betur fer voru sjaldan áhöld okkar á milli um menn eða málefni. Skoðanir okk- ar voru samt oft á sinn veginn hvorar, án alvarlegra afleiðinga. Gesti fannst það bara betra að menn væru ekki alveg sammála um alla hluti. Ég var á ferð með þáverandi byggingarfulltrúa í Þingeyjar- sýslum, Einari Friðrik Jóhannes- syni, er ég hitti Gest Helgason í fyrsta skipti á Fosshóli. Þá stóð þar yfir undirbúningur að breyt- ingum á húsakosti vegna væntan- legrar ferðaþjónustu. Við Einar þáðum kaffi og veitingar hjá þeim Hólmfríði og fann ég strax að þarna hafði ég hitt áhugavert fólk. Gestur var fremur hlédrægur í hópi, hann tranaði sér ekki fram en þetta háði honum samt ekki. Hann var draumamaður, næstum því draumóramaður á köflum, en hann var líka staðfastur þegar að framkvæmdum kom og gekk óhikað til verka. Efni og gæði voru afstæðir hlutir í hans huga, sem menn áttu að ákveða sjálfir hver voru. Hann var ríkur maður að eigin sögn. Vinnustaður hans, eins og ég þekkti hann á seinni árum, var eldhúsborðið á Landamótum og síðar Fosshóli. Þarna var tölvan og annar fylgibúnaður ásamt ýmsum öðrum tækjum og ekki má gleyma kaffinu. Ég kallaði þetta kontórinn og hann var sátt- ur við þá nafngift. Gestur var svo- lítið sérvitur þegar matur var annars vegar, snæddi einfaldan Gestur Helgason ✝ Gestur Helga-son fæddist 14. maí 1960. Hann lést 29. mars 2018. Útför Gests fór fram 11. apríl 2018. mat án íburðar, snerti aldrei lauk. Kunnátta hans á tölvu kom sér einkar vel fyrir mig og oft naut ég leiðsagnar hjá Gesti ef eitthvað bar út af í þeim tækniflækjum. Fróðleik af ýmsu tagi sótti hann í lest- ur, ekki síst á ver- aldarvefnum. Hann kunni skil á mörgum hlutum sem þar og víðar var að finna. Hann var laghentur og vel skipulagður til verka, en fór sér að engu óðslega. Í tvígang kom hann að verkefnum fyrir mig og síðast núna skömmu fyrir jól, við standsetningu íbúðar. Það er víða fagurt í Þingeyj- arsýslum. Í næsta nágrenni Foss- hóls er Goðafoss og gilið sem eru meðal höfuðdjásna í náttúru Ís- lands. Hann hóf að byggja húsið á lóð- inni Hálfkúlu, sunnan við Foss- hól, á þeim stað sem honum þótti einna vænst um. Útsýnið frábært og niðurinn frá Skjálfandafljóti er greinilegur. Þar gat hann ákveðið form og fyrirkomulag húss og umhverfis að mestu sjálfur. Húsið var að sjálfsögðu ekki hefðbundið en það átti að verða gott hús. Grunnurinn er þegar kominn og nú er von á byggingarefni frá Am- eríku. Kúluhúsið varð ekki hans hús í efnislegri mynd, en í huga hans var það fullbyggt og það mun rísa. Þegar menn deyja svona ungir eru margs konar verkefni og hug- myndir sem ekki verða að veru- leika og hægt væri að telja upp ótalmargt sem Gest langaði til að gera en átti ógert. Hluti draumanna hverfur með honum. Ég á ljósmynd af tjörninni næst Hálfkúlu, þar sem álftir eru hefja sig til flugs. Þannig minnist ég Gests. Hann flaug bara of snemma. Ég votta aðstandendum og vin- um samúð á þessum krossgötum. Benedikt Björnsson Bjarman. Í afa okkar áttum við vin sem í hreinni einlægni hafði áhuga á því sem við vorum að gera. Með honum upplifðum við spennu- þrungnar stundir á farsældarár- um Manchester United og Alex Ferguson. Við fengum að týnast í áhuga hans á veiði og af íþrótta- afrekum hans fylltumst við móði. Í afa eigum við fyrirmynd sem mun ljóma um ókomna tíð. Elsku afi minn, það er erfitt að kveðja þig. Ég sakna þín og verð ævinlega þakklátur fyrir stundirnar sem þú eyddir með okkur. Ég vona að einn daginn verði ég jafn góður afi og þú varst mér. Arnar Björn. Elsku afi okkar, við munum sakna þín sárt en erum ævinlega þakklátir fyrir allar góðu minn- ingarnar. Seint munu gleymast árlegu veiðiferðirnar með fjölskyldunni í skíðaskálann á Skagaströnd. Veiðin var misgóð en félagsskap- urinn var alltaf frábær. Þú hafðir alltaf gífurlegan áhuga á veiði og gekkst ávallt manna mest í kringum vötnin til að finna bestu staðina, jafnvel þótt búið væri að skipta um hnéliði. Þú varst alltaf fyrstur að vatninu og yfirleitt búinn að kasta út í áður en við hinir vorum komnir á staðinn. Mér (Alfreð) er sérstaklega minnisstætt þegar ég var gutti og við tveir sátum á góðum stað við Geitakarlsvatn og veiddum 100 fiska á innan við klukku- stund (voru alla vega 100 í minn- ingunni). Þú kastaðir út og á Helgi Ólafur Björnsson ✝ Helgi ÓlafurBjörnsson fæddist 10. nóv- ember 1935. Hann lést 2. apríl 2018. Útför Helga fór fram 11. apríl 2018. nokkrum sekúndum beit fiskur á, sem ég fékk að draga inn. Við virðumst hafa hitt á góða torfu þar. Ferðirnar í gullhellinn voru einnig minnisstæð- ar, þar sem vasar voru fylltir af glópa- gulli áður en flæða tók að inn í hellinn. Bústaðaferðirnar á Laugarvatn og Húsafell voru ekki síðri. Þar var spilað, grillað, farið í sund og síðast en ekki síst spilaður fótbolti þar sem flest- allir í fjölskyldunni tóku þátt. Þú stóðst í markinu ár eftir ár fram á áttræðisaldur, ekki margir sem leika það eftir. Þú varst dugnaðarforkur, hjartahlýr, fyndinn, mikill íþróttamaður og íþróttaáhuga- maður og munt ávallt vera fyr- irmynd okkar bræðra. Takk fyrir allt, elsku afi Helgi, við sjáumst síðar. Þínir, Alfreð Már og Elvar Þór. Nú er afi minn fallinn frá, Helgi Ólafur Björnsson. Afi minn var mikill íþróttamaður og það virðist hafa erfst til okkur barnabarnanna, þar sem við virðumst öll vera frekar mikið íþróttafólk, það eru örugglega einhver gen þarna sem hafa erfst til okkar. Afi var mjög mikið í kringum okkur og man maður alltaf vel eftir því að hafa farið ófáar helgar með Helga afa að gefa öndunum brauð eða í sund í Laugardalslauginni. Farið var í árlega ferð á Laugarvatn þar sem öll barnabörnin komu sam- an í bústað og spilaður var hinn árlegi fótboltaleikur. Svo var einnig farið í þessa frægu veiði- ferð á hverju sumri á heimaslóð- ir Helga á Skagaströnd. Þær ferðir voru alltaf hápunktur sumarsins. Það má segja að afi hafi alltaf verið límið sem þjapp- aði hópnum saman. Blessuð sé minning hans. Kristófer Gunnarsson. Elsku afi Helgi, það sem ég var heppinn að eiga afa eins og þig. Þú sem hafðir alltaf tíma fyrir mig og hafðir svo gaman af því að gleðja okkur barnabörnin. Á jólunum var mikil spenna að opna pakkann frá afa Helga, en mamma og pabbi þurftu oft að leiðrétta okkur að pakkinn væri líka frá ömmu. Aðalpakkinn var yfirleitt veglegur, en afi gat líka verið hrekkjóttur. Hann átti það til að setja litla gjöf í stóran kassa eða að pakka inn ómerki- legri aukagjöf. Ein jólin opnaði ég lítið og ómerkilegt kúluspil. Ég átti erfitt með að leyna van- þakklæti mínu og var gráti næst þegar Arnar bróðir minn fékk Manchester United-treyju. Mamma var fljót að finna aðal- pakkann sem hafði að sjálfsögðu að geyma sams konar treyju. Þá var hlegið dátt og hefur það orð- ið ein eftirminnilegasta stundin frá jólunum. Hann gaf okkur líka annað mun dýrmætara, hann var dug- legur að gera eitthvað með okk- ur. Fór með okkur í fjöruferðir, kenndi okkur að veiða, fór með okkur í sund og spilaði með okk- ur fótbolta. Takk fyrir að skipuleggja ár- legar veiðiferðir á Skagaheiði. Í þessum ferðum mynduðust ómetanleg tengsl á milli okkar frændsystkinanna og á milli kyn- slóða. Margar af mínum skemmtilegustu minningum koma úr þessum ferðum. Eins og þegar við mokveiddum, fórum í dýnuslag uppi á svefnlofti og renndum okkur á dýnunum nið- ur brattan stigann. Hörður Ingi. Elskulegur afi minn er látinn eftir erfið veikindi. Ég hef átt góðar stundir með afa í gegnum tíðina. Þegar ég var lítill fór ég oft til ömmu og afa. Við byrjuð- um alltaf á því að fara að gefa öndunum brauð eða fara í fjör- una og fórum svo út í bakarí, eft- ir það fór hann alltaf með mig á bókasafnið og við leigðum mynd saman, fórum svo í Nóatún og keyptum kjúkling. Á sumrin fór ég oft með afa í veiðiferðir á Laugarvatn eða Þingvallavatn en vinsælustu veiðiferðirnar voru á Skaga- strönd, þá fór öll fjölskyldan með. Við tíndum stundum orma saman fyrir veiðina. Þegar ég varð eldri byrjaði ég í frjálsum íþróttum og var afi ánægður með það og hefði draumur hans verið uppfylltur ef ég hefði náð að feta í fótspor hans en því miður hætti ég í frjálsum þrátt fyrir allan þann kraft sem ég hafði til þess að geta náð langt. Afi var lífsglaður og góður maður sem gott var að vera í ná- vistum við, ég á eftir að sakna hans mikið. Daníel R. Gunnarsson. Elsku afi, mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að þinn tími sé nú kominn. Þú varst ótrúlega mikill afi og tókst hlutverk þitt alvarlega. Það voru ófáar stundirnar sem þú eyddir með okkur barnabörn- unum, hvort sem það voru ísbílt- úrar, sundferðir eða veiðiferð- irnar ógleymanlegu. Þú gafst þér tíma með okkur af einlægri gleði og ánægju og það var mjög gott að vera í kringum þig, elsku afi. Ég man sérstaklega eftir því þegar þú komst að horfa á mig feta mín fyrstu spor á frjáls- íþróttavellinum, þar sem ástríða þín fyrir íþróttinni kviknaði. Hvað þú varst stoltur að barna- barnið reyndi að feta í fótspor þín. Ég hef alltaf litið mikið upp til þín og sagt oft frá afrekum þínum af miklu stolti. Elsku afi, ég vona að þú sért kominn á betri stað þar sem þú færð aftur að njóta þín af krafti og hitta þína elskulega eiginkonu aftur. Þín verður sárt saknað. Elsku afi, guð mun þig geyma. Yfir okkur muntu sveima. En eitt vil ég þó að þú vitir nú, minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Ásta Kristín Gunnarsdóttir. Pálmi Ragnars- son er látinn eftir sex ára baráttu við illvígan sjúkdóm. Efst í minningunni er æðruleysi hans, léttleiki og glaðlyndi, sem hjálp- uðu honum að takast á við lífið við þær erfiðu aðstæður sem veikindin sköpuðu honum. Skipst hafa á skin og skúrir og í síðasta élinu var hann allur. Pálmi stóð ekki einn í þessari baráttu. Við hlið hans stóð eins og klettur Ása, kona hans, og fjölskylda. Góð kynni fjölskyldnanna á Ingveldarstöðum og í Garðakoti ná aftur um sjötíu ár til þess þeg- ar Ragnar og Oddný, foreldrar Pálma, settust að í Garðakoti ár- ið 1948 með tvo syni, Egil Ingva og Björn. Við bættust dóttirin Pála og synirnir Árni og Pálmi. Hluti af endurminningum okkar, Ingveldarstaðafólksins, eru verk Ragnars á Ingveldarstöðum. Oft sló hann túnið fyrir pabba með sláttuvél og einnig vann hann við fjárhús og hlöðu sem reist voru árið 1956. Hann kom þá alltaf ríðandi í hlað á morgnana. Sam- band fjölskyldnanna hélt áfram með nýrri kynslóð, því tveir bræður Pálma bjuggu á Ingveld- arstöðum, fyrst Björn og síðar Árni. Eftir það tók Garðakots- fólkið að sér að hafa lyklaumsjón Pálmi Ragnarsson ✝ Pálmi Ragn-arsson fæddist 24. maí 1957. Hann lést 22. mars 2018. Útför Pálma fór fram 7. apríl 2018. með Ingveldarstöð- um. Ef gleymdist lykill við norðurferð einhvers úr fjöl- skyldunni, eða þeg- ar starfsmenn stofnana eða verk- taka þurftu að fá að- gang að húsinu, var leitað í Garðakot. Og þegar við stóð- um í framkvæmdum á Ingveldarstöðum gátum við alltaf leitað til Pálma um verkfæri og búnað sem okkur vanhagaði um. Fyrir þetta skal nú þakkað. Miklar breytingar hafa orðið á síðustu áratugum hverjir hafa setið jarðirnar í Hjaltadal. Garðakot er eina jörð- in í utanverðum Hjaltadal að vestan þar sem enn býr sama fjölskylda og á búskaparárum okkar á Ingveldarstöðum. Fólk úr fjölskyldu minni hefur átt þess kost að fara í göngur í Elliðanum í Kolbeinsdal með Pálma á hverju ári frá því eftir síðustu aldamót og eigum við þaðan ógleymanlegar endur- minningar. Gangnastjórinn Pálmi stjórnaði mönnum sínum með talstöð úr bifreið sinni niðri á grundum og benti þeim á kind- ur sem hann kom auga á með góða kíkinum sínum lengst uppi í klettum. Hann sendi gangna- mennina, sem ekki gátu séð kind- urnar, stundum Arnald son minn, sem var efstur, og Jakob Smára son sinn, sem var næst- efstur, eða þá aðra vaska gangnamenn, í veg fyrir kindurn- ar. Pálmi hafði þá reglu í heiðri að stofna ekki gangnamönnum sínum í hættu. Hann bannaði þeim stundum að ná í kindur sem höfðu komið sér í sjálfheldu, því að þar gat verið hætta á að bæði menn og kind færu sér að voða. Kindin kemur sér sjálf úr vand- ræðunum þegar hún róast, sagði gangnastjórinn. Pálmi gaf ekkert eftir og hlífði sér ekki þegar hann var að hlaupa í veg fyrir kindur. Hann sagði eitt sinn við mig – það var eftir að hann veiktist – að hann ætti orðið erfiðara með að hlaupa eftir kindum en áður fyrr. Ég hafði alls ekki tekið eftir því, mér fannst hann ekki standa full- frískum yngri mönnum að baki. Pálmi er farinn frá okkur en minningar um góðan dreng og skemmtilegan mann verða áfram í hugskoti okkar. Við Ingveldar- staðafólkið sendum öllum að- standendum Pálma okkar hlýj- ustu samúðarkveðjur. Gylfi Ísaksson. Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænagjörð. Vorsins söngvaseiður sálmalögin hans. Blómgar akurbreiður blessun skaparans. (Bjarni Ásgeirsson) Þegar sólargeislarnir baða hvítkollótta Hnúkana rauðum bjarma og hábrún Hólabyrðunn- ar er sem í ljósum logum breytist Hjaltadalurinn í töfraveröld. Stundum er kyrrðin slík að glögglega heyrist kvakið í snemmkomna álftaparinu sem jafnan flýgur lágt fram eftir ánni og stöku tófa heyrist gagga ein- hvers staðar í fjallshlíð. Þá er veturinn að lina tökin og varmi kominn í stóra steininn sunnan við Garðakotsbæinn. Verm- isteinn. Í þessari náttúru lifði og bjó Pálmi Ragnarsson allt sitt líf og var samofinn henni. Á einu slíku síðdegi skömmu fyrir páskana mátti Pálmi Ragnarsson sleppa takinu á lífinu. Kannski voru þessi hljóð vorboðanna kveðjukall til samferðamanns? Og sannlega megum við ná- grannar hans og samsveitungar þakka fyrir að hafa haft hann sem samferðamann. Hann lét sig umhverfið varða í víðum skilningi og leitaðist við að greiða götu þeirra sem til hans leituðu. Við mig og mína var hann einstak- lega hjálpsamur og greiðvikinn með afbrigðum og verður seint fullþakkað. Það var jafnan frísk- andi að vera í félagsskap Pálma. Hann var iðulega glettinn og glaðvær og hláturinn tröllslegur. Snarpur atorkumaður, þéttur undir hönd, mikill að burðum og vílaði ekkert fyrir sér. Afbragðs- bóndi sem byggði upp afurðabú ásamt fjölskyldu sinni af útsjón- arsemi og dugnaði. Fjölskyldu- maður, góður pabbi og afi, nær- gætinn en þó ekki skaplaus, stríðinn og einstaklega skemmtinn á mannamótum. Eft- irminnilegir eru kappsfullir leikir í Hólaskógi á 17. júní. Þá var stundum betra að vera ekki fyrir. Vinmargur og gestrisinn enda var jafnan mannmargt við eld- húsborðið í Garðakoti, fólk kom og fór og kom svo aftur. Baráttan fyrir lífinu var erfið síðustu misserin og hægt fjaraði undan. Þá einkenndu þolgæði og æðruleysi þetta ljúfa hraust- menni. Sannlega á það einnig við um Ásu og fjölskylduna alla sem stóð samhent á erfiðri þrauta- göngu. Nú kvakar engin lóa lengur, nú liggur allt í værum blund. Hinn bjarti sveinn frá bænum gengur; hann beið þín, sæla friðarstund. Hann lætur blæinn baða vanga og beinir öruggt sporið sitt; hann þarf ei hræddum hug að ganga, þú heiða nótt, um ríki þitt. (Þorsteinn Erlingsson) Ég kveð minn góða samferða- mann og vin með söknuði um leið og ég votta fjölskyldu og ættingj- um samúð. Ólafur I. Sigurgeirsson. Í dag kveð ég félaga minn og vin, Pálma bónda á Garðakoti í Hjaltadal. Pálma kynntist ég fyr- ir allmörgum árum. Ég var í sveit í Skagafirðinum og heyrði margt um Pálma í Garðakoti í þá daga. Leiðir okkar lágu svo sam- an um og upp úr 1998. Hann var þá búin að vera sölumaður á al- mennum rekstrarvörum til bænda í nokkur ár ásamt að sinna búi sínu. Ég var með rekst- ur á samskonar vörum þegar leiðir okkar lágu saman og hófum við nánara samstarf. Við fórum nokkrar söluferðir saman um Skagafjörð og Eyjafjörð. Það var eitt að vera í söluferð og annað að koma við á bæjum, það þótti Pálma ekki leiðinlegt, heyra sög- ur og ekki síður að segja sögur sem hann var kannski aðeins bú- inn að krydda með glensi og sprelli. Eina ferð fórum við saman til útlanda á landbúnaðarsýningu og var sú ferð oft rifjuð upp, því taskan hans Pálma skilaði sér ekki og varð að kaupa allt nýtt til að hafa í ferðina. Sú innkaupa- ferð er ógleymanleg, oft rifuð upp og mikið hlegið. Að heimili Pálma og eftirlifandi eiginkonu hans, Ásu í Garðakoti, dvaldist ég oft á ferðum mínum um fjörð- inn, hvort sem var í vinnu eða í fríi. Heimili þeirra stóð mér alltaf opið og þar var gott að koma. Á haustin er það fastur liður hjá mér að koma til þeirra hjóna í drottningu stóðréttanna, Lauf- skálarétt. Það voru forréttindi að koma í Garðakot, fá hest að láni og að taka þátt með heimamönn- um yfir réttardaginn og svo í kjötsúpunni um kvöldið í Garða- koti, þar var oft hressilega tekið á söng og sagðar sögur frameftir kvöldi. Pálmi átti kannski fáa hesta á skagfirska vísu en góðir og flottir voru þeir. Pálmi og Ása ráku stórt og myndarlegt kúabú sem sonur þeirra, Jakob, og tengdadóttir, Rina, hafa nú tekið við og ég er ávallt velkominn í Garðakot. Pálmi hafði barist við krabba- mein í nokkur ár og var alveg með það á hreinu að hann ætlaði að hafa betur, var léttlyndur og jákvæður og lét ekkert á sig fá. Eitt var á hreinu, að hann ætlaði berjast til sigurs. En þessi fjandi hafði betur. Pálmi var vinmarg- ur, skemmtilegur, hlýr, traustur og góður vinur. Elsku Ása mín, ég votta þér og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Það eru þung spor sem ég stíg í dag við að kveðja Pálma. Þín verður sárt saknað, elsku vinur, en minning um okkar vináttu og samverustundir lifa. Þinn vinur, Stefán Ingi Óskarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.