Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 70

Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 70
70 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Enn er höggvið skarð í barnahóp Þórhalls og Mörtu frá Laufási í Bakka- dal í Arnarfirði, nú þegar Kristbjörg, næstyngst systkinanna, er látin. Þetta var sérlega vel gerður níu barna hóp- ur sem ólst upp þarna undir „Hamrastáli“ gneypra fjalla Arn- arfjarðar. Eftir lifa nú Sigurður, Stefán og Guðmunda. Kristbjörg, jafnt og þau öll, naut dýrmætrar heimanfylgju úr ljóða- og sagnaarfi þjóðar okkar sem ræktaður var með miklum ágætum á æskuheimili þeirra. Sú þjóðlega ræktarsemi kom sér vel í því starfi sem hún stundaði lengst, við leiðsögn ferðamanna um byggðir og hálendi Íslands og við kennslu leiðsögumanna. Kristbjörg var sérlega skemmtileg og viðræðuhæf. Ætíð var gaman að hitta hana við hin ýmsu tækifæri sem gáfust, þó að hin síðustu misseri væri mjög dregið af heilsu hennar. Krist- björg átti hin síðari ár í baráttu við illvægan sjúkdóm sem reyndi mjög á þrek hennar. Þá komu vel fram hinir góðu eðliskostir henn- ar í því mikla og óeigingjarna starfi sem hún vann á vegum krabbameinssjúkra. Blessuð sé minning Krist- bjargar Þórhallsdóttur. Snær Karlsson. Árið 1997 útskrifuðust Birn- ungar úr Leiðsöguskólanum í Kristbjörg Þórhallsdóttir ✝ Kristbjörg Þór-hallsdóttir fæddist 22. október 1938. Hún lést 28. mars 2018. Útför hennar fór fram 11. apríl 2018. Kópavogi. Yfir- kennari okkar, stoð og stytta í því námi, var mann- og nem- endavinurinn Krist- björg. Hún hlaut fljót- lega titilinn „heið- urs-Birna númer 1“, enda kynntumst við vel mannkostum hennar, yfirvegun, fróðleik um landið og fundum gleði viðtakenda okk- ar hvar sem við komum í skóla- ferðalaginu um vorið. Kristbjörg var ekki föst í kreddum, vana eða venjum, hún var lifandi leiðsegjandi og leið- togi okkar í hópnum. Okkur er minnisstætt úr skólaferðalaginu þegar fyrir lá að við ættum að taka upp hljóðnemann í rútunni og tala um viðfangsefni sem við áttum að draga úr hatti og til að gera illt verra, flytja fróðleik okkar til samnemenda í rútunni á því tungumáli sem við hygðumst nota í okkar leiðsagnarferðum í framtíðinni. Þarna voru nemendur sem ætluðu að nota ítölsku, frönsku, hollensku, þýsku og fleiri tungu- mál sem aðeins örfáir í hópnum skildu og því myndi fróðleikurinn ekki ná til okkar alla. Eins vorum við ekki hress með að draga umræðuefni úr potti, hver vill lenda í efni eins og „smáþörungavinnsla á Íslandi“ eða „efnahagslegur ábati af ál- framleiðslu?“ Þetta leit ekki vel út og við sendum fulltrúa okkar fram í rút- una til Kristbjargar með nýjar uppástungur um þessi mál. Eggin farin að kenna hæn- unni. En Kristbjörg skellti aldeilis ekki skollaeyrum. Hún hlustaði á rök okkar og að lokum var öllu umbylt. Hver og einn gat talað þegar hann fann löngunina brjót- ast fram hjá sér. Viðfangsefnin viðráðanleg og frásagnir af kunn- ugleika og allt á íslensku, okkur hinum til fróðleiks. Það var ekki mikið mál fyrir Kristbjörgu að skilja þessi rök og hún af skörungsskap sínum og yfirsýn kom því til leiðar að úr ferðinni rættist heldur betur og líklegast besta ferð margra okk- ar um landið. Þetta kenndi okkur líka að hlutverk fararstjóra er að bregð- ast við og leysa úr málum og með þessu lagði Kristbjörg línuna fyr- ir okkur til framtíðar. Hún var alltaf hinn trausti bakhjarl þegar leita þurfti ráða með hópa í ferðum og aldrei var komið að tómum kofunum hjá fyrsta heiðursfélaga Birnunga, en það er félagsskapur sem sat í ferðamálanámi hjá skólastjóran- um okkar Birnu Bjarnleifsdóttur 1996-7. Fh. Birnunga, Ólafur Magnús Schram. Einstök kona er fallin frá. Kona sem bar með sér reisn og tign Arnarfjarðar, þar sem hún leit fyrst dagsins ljós á Laufási í Bakkadal – einum af Ketildölun- um. Skáldið Stefán G. Stefánsson taldi að við bærum með okkur svipmót æskustöðvanna. Við Bogga kynntumst ungar að árum úti í Darmstadt þar sem menn okkar stunduðu háskóla- nám, en þau Óskar og Bogga voru í þann mund að kveðja Þýskaland í upphafi sjöunda ára- tugarins. Þau eignuðust synina Marías og Ragnar úti í Darm- stadt. Það var ekki hægt á þeim tíma að hringja mikið heim og spyrja ráða eða segja fréttir, bréf urðu að sjá um tengslin. Hin unga eiginkona og móðir varð því að standa sig í framandi um- hverfi á erlendri grund, og það gerði hún. En … samheldni Ís- lendinga í Darmstadt var mikil og ákveðin samhjálp myndaðist og einnig varð til traust vinátta sem enst hefur alla tíð síðan. Kristbjörg átti mikinn þátt í því með sinni léttu lund og gestrisni. Kristbjörg gerist leiðsögu- maður fyrir þýska ferðamenn nokkrum árum eftir heimkom- una frá Darmstadt. Þar naut sín meðfæddur hæfileiki hennar til að miðla og áhugi á að kynna land og þjóð. Persónuleg útgeislun heillaði einnig ferðalanga og veit ég að margir komu aftur og aftur til að fara í ferðir með leiðsögu- manninum fallega og lífsglaða. Hún var leiðsögumaður í meira en þrjátíu ár og kenndi í Leið- sögumannaskólanum í aldar- fjórðung. Sumir segja hana móð- ur leiðsögumanna á Íslandi, enda var hún gerð að heiðursfélaga þeirra. Hún var vel að því komin. Hinir sterku vestfirsku eigin- leikar Boggu sönnuðu sig þó hvað best þegar hún aðeins fer- tug greindist með krabbamein og annað brjóstið var fjarlægt. Þeg- ar hún lá á spítalanum var tekið við hana viðtal, sem vakti mikla athygli fyrir einlægni og hrein- skilni varðandi umfjöllun um sjúkdóminn, en ekki síst að einn- ig þar gat hún látið hláturinn sinn líflega hljóma. Á þeim árum var helst hvíslað orðinu krabba- mein. Kristbjörg gekk fljótlega til liðs við nýstofnuð samtök kvenna með krabbamein, sem hét Samhjálp kvenna. Þær ruddu braut og voru mjög öflugar í að fræða konur og styrkja. Þær fóru í viðtöl í mismunandi fjölmiðlum, á fundi, í heimahús – ávallt til- búnar að ræða málin og uppræta fordóma. Kristbjörg var í for- svari fyrir félagið í ein þrettán ár en mun lengur í stjórn. Það er erfitt að meta slíka vinnu sem þessar konur lögðu á sig. Það var og er ómetanlegt starf sem Kristbjörg og fleiri hafa lagt af mörkum í félaginu Samhjálp kvenna. Strax ung að árum varð hún stoð og stytta í litlu samfélagi Ís- lendinga á erlendri grund. Við samferðafólk hennar eigum henni mikið að þakka fyrir óeig- ingjarnt starf á mörgum sviðum. Hún hefði ekki getað þetta nema að eiga traustan og góðan eig- inmann, Óskar Maríusson, sem studdi hana og hún hann. Fyrrverandi Darmstadt-búar senda sonum þeirra og afkom- endum öllum innilegar samúðar- kveðjur. Minning Kristbjargar Þórhallsdóttur mun lifa. Sigrún Magnúsdóttir. Kristbjörgu kynntist ég í kjöl- far brjóstnáms vegna krabba- meins árið 1989. Mér var boðinn stuðningur frá Samhjálp kvenna, en sjálfboðaliðar heimsóttu kon- ur sem þess óskuðu í kjölfar að- gerðar. Þessar heimsóknir voru bæði í praktískum tilgangi og ekki síður til andlegs stuðnings. Auk heimsókna til kvenna sem höfðu farið í aðgerð vegna brjóstakrabbameins voru kvöld- fundir, opið hús mánaðarlega yfir veturinn. Kristbjörg stýrði þess- um fundum af röggsemi. Hún valdi sjálfboðaliða í heimsóknar- þjónustuna, stóð fyrir námskeið- um fyrir þá og fékk með sér önd- vegisfólk, lækna, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Kristbjörg hafði kynnst sjálfboðastarfinu á Norð- urlöndunum og í Bandaríkjun- um, en ungir krabbameinslækn- ar, þá nýkomnir til landsins, þeir Þórarinn Sveinsson og Sigurður Björnsson, voru mjög hlynntir þessu sjálfboðastarfi og studdu Samhjálp kvenna af alhug, enda höfðu þeir sjálfir kynnst þessu starfi sem felst í því að glæða von hjá konum sem höfðu fengið brjóstakrabbamein. Á fundum sem Kristbjörg stjórnaði og fékk til sín góða fyr- irlesara var ávallt hægt að fá andlega hressingu auk frábærra góðgerða. Ég hreifst af styrk og sterkri útgeislun sem stafaði frá henni. Einnig var hressandi að hitta konur í sömu stöðu og mað- ur var í sjálfur. Þarna var bland- að saman gamni og alvöru, konur deildu reynslu sinni og veittu ráð. Frumkvæði sjálfboðahópsins var mikið, m.a. voru haldnar ógleym- anlegar tískusýningar sem konur innan hópsins héldu á fatnaði sem hentaði konum sem misst höfðu brjóst. Síðar tók ég þátt í sjálfboða- starfinu og kynntist öðrum góð- um eiginleikum Kristbjargar, ekki síst hve vel henni tókst að halda nafni Íslands á lofti í nor- rænu samstarfi. Hún stjórnaði ráðstefnum norrænna stuðnings- hópa hér á landi, fékk fyrirlesara og geislaði sjálf þegar hún hélt ræður á sinni skandinavísku sem allir norrænir þátttakendur skildu. Það var unun að vinna með henni. Menntun Kristbjarg- ar, reynsla og persónuleg tengsl sem leiðsögumaður nýttust afar vel þegar kom að því að útvega hótelgistingu, rútur og annað sem þurfti fyrir erlenda ráð- stefnugesti. Alltaf gat hún fengið betri fyrirgreiðslu en aðrir. Allir vildu allt fyrir hana gera. Samstarf okkar Kristbjargar varði á annan áratug, en vinátta okkar entist alla tíð. Ég á henni mikið að þakka, að vera góð vin- kona og veita mér innsýn í fjöl- skyldulíf sitt. Óskar, hennar góði maki, átti stóran þátt í því hve miklum tíma Kristbjörg gat varið í sjálfboðastarfið. Það starf sner- ist ekki eingöngu um að styrkja konur, heldur einnig að taka þátt í opinberri umfjöllun um brjósta- krabbamein því umræðan um þetta efni var takmörkuð, m.a. vegna þess ótta sem því fylgdi. Kristbjörgu og öðrum frum- kvöðlum í hópnum tókst að létta konum lífið með samningum við TR með því að fá ókeypis gervi- brjóst og niðurgreiðslu á hjálp- arbúnaði tengdum brjóstnámi. Viðmót hennar og hlýja var ekki síður mikilvæg og verður starf hennar á þessum vettvangi seint fullþakkað. Sonum Kristbjargar og fjöl- skyldum þeirra votta ég innilega samúð. Guðrún Sigurjónsdóttir. Elsku afi. Þó svo að við höfum ekki alltaf talað saman á hverjum degi veit ég að hugur þinn og hjarta hef- ur fylgt mér. Í Stangarholtinu þar sem þið bjugguð brostir þú þínu blí- ðasta er ég kom inn um dyrnar, lítil stúlka með ljóst hár og tíkó, lyftir mér upp og gafst mér nebbaknús. Ég var svo hátt uppi að ég gat næstum snert loftið og sá yfir ljósa- krónuna í borðstofunni. Ég man hve oft ég sat í fanginu á þér og hvernig við Sveinn Freyr bróðir máttum alltaf fá kexköku úr eldhús- skúffunni hjá ömmu. Bókasafnið þitt var töfra- staður. Þekkingin, sögurnar, myndirnar og öll þessi fallegu orð sem búa í hverri bók fyrir sig. Mér varð því snemma ljóst mikilvægi þess að mennta mig, að fá tækifæri til að prufa, skoða og fræðast um allt hið mögulega sem og hið ómögu- lega. Að fá tækifæri til að lesa þyngri og þyngri bækur, skilja og læra. Ykkar stuðningur gerði mér það kleift að fá tækifæri til að komast í háskólanám og minn- Óskar Hallgrímsson ✝ Óskar Hall-grímsson fæddist 25. októ- ber 1922. Hann lést 30. mars 2018. Útför Óskars fór fram 11. apríl 2018. ist ég þess hve mikilvægt þér þótti að ég myndi snúa heim frá Englandi með þekkinguna sem ég hafði öðlast úti í hinum stóra heimi. Þú hafðir trú á mikilvægi mennt- unar og þekkingar fyrir þjóðina, jafnt fyrir konur og karla. Á milli okkar þurfti sjaldnast orð og ég veit að þú munt fylgja hjarta mínu áfram á þeirri vegferð þinni sem nú er framundan. Elsku afi. Ég veit að þú ert farinn sátt- ur. Þú hefur alltaf verið tenging mín til að skilja hver ég væri og hvaðan ég kom. Því sumt er mjög líkt á milli okkar. Ég passa upp á þekkinguna, tungumálið og held áfram að vera ákveðin, sterk kona. P.S. Ég lofa að lita ekki rauðleita hárið. Þín Anna Lind. Óhætt er að fullyrða að með Óskari Hallgrímssyni sé geng- inn einn áhrifamesti maður í innleiðingu þess skipulags inn- an verkalýðshreyfingarinnar sem við þekkjum í dag. Óskar nam rafvirkjun á styrjaldarárunum og varð for- maður félags nema í rafiðnum og fyrsti formaður Iðnnema- sambandsins. Það skapaðist mikil samstaða meðal iðnnema þegar Thor Thors keyrði í gegnum Alþingi lög þar sem iðnnemum var bannað að vera í verkalýðsfélagi. Ætlun Thors með þessu var að tryggja fyr- irtækjum starfsmenn sem nýtt- ust til þess að brjóta á bak aft- ur verkfallshótanir iðnaðarmanna. Iðnnemar bentu á að þeir væru fremur launa- menn en námsmenn og kröfð- ust stjórnarskrárvarinna lýð- réttinda. Að loknu sveinsprófi varð hann félagsmaður Félags ís- lenskra rafvirkja og er kjörinn formaður félagsins 1949. Félag- ið varð undir stjórn hans í far- arbroddi í mörgum málum. Óskar kynnti sér vel skipulag norrænu stéttarfélaganna og varð ljóst að við stæðum langt að baki þeim í samfélagslegum réttindum. Honum tókst að koma á laggirnar milliþinga- nefnd um skipulagsmál ASÍ sem stóð að innleiðingu nýs skipulags í verkalýðshreyfing- unni og lét ekki þar staðar numið og hóf undirbúning að stofnum Rafiðnaðarsambands Íslands. Árin eftir seinni heimsstyrj- öldina fram til 1970 eru miklir umbrotatímar í íslensku sam- félagi og fullyrða má að þáver- andi forysta verkalýðshreyfing- arinnar hafi lagt grundvöll að því velferðarkerfi sem við þekkjum. Þetta kostaði átök með miklum fórnum af hálfu verkafólks. Verðbólga og vísi- tölutengingar urðu til þess að samningum var endurtekið sagt upp, en samt ávannst á þessum tíma mikið í réttindabaráttu launamanna. Lagður var grundvöllur að betri veikinda- rétti með sjúkrasjóðum. Það náðust fram lög um atvinnu- leysistryggingar eftir áratuga blóðuga baráttu. Í framhaldi af því eru lífeyrissjóðirnir stofn- aðir. Allt þetta næst fram í bar- áttu verkalýðshreyfingarinnar í kjarasamningum og var bein af- leiðing þess að stjórnmálamenn höfðu ávallt vikið sér undan því að setja hér á landi samskonar almannatryggingakerfi og var annars staðar á Norðurlöndun- um. Í tíð Óskars vann FÍR braut- ryðjandastarf við uppbyggingu símenntunar félagsmanna og félagafjöldi fimmfaldast á hans tíma. Óskar var starfsmaður FÍR en tók 1958 við stöðu framkvæmdastjóra ASÍ og varð síðar framkvæmdastjóri Iðn- fræðsluráðs. Óskar var kjörinn fyrsti formaður RSÍ á stofn- þingi sambandsins 1970. Rúmu ári síðar varð hann annar bankastjóra Alþýðubankans, en hann sneri sér síðar að öðrum störfum innan verkalýðshreyf- ingarinnar og er ráðinn til fé- lagsmálaráðuneytisins árið 1977 og sinnti þar málefnum sem sneru að vinnumarkaðinum. Ég starfaði með beinum og óbeinum hætti með Óskari allt frá stofnun RSÍ og naut ráð- legginga hans. Hann hafði gott lag á að koma skoðunum sínum á framfæri, ekki síst hafði hann ávallt mjög gott stöðumat og yfirsýn. Rafiðnaðarmenn þakka mikil og óeigingjörn störf Óskars og senda fjölskyldu hans hugheilar samúðaróskir. Guðmundur Gunnarsson, fyrrv. formaður Rafiðn- aðarsambands Íslands. Ég kynntist Óskari Hall- grímssyni fyrst vorið 1975 þeg- ar ég var ráðinn framkvæmda- stjóri Sambands almennra lífeyrissjóða, SAL, en Óskar sat í framkvæmdastjórn sam- bandsins allt frá stofnun þess 1973 til haustmánaðar 1987. Fulltrúar launafólks í fram- kvæmdastjórninni voru, auk Óskars, verkalýðsleiðtogarnir Eðvarð Sigurðsson og Bene- dikt Davíðsson. Ég var strax var við að vinátta og traust ríkti meðal þessara forystu- manna, þrátt fyrir þau hörðu átök sem voru í stjórnmálunum á þessum árum. Á næsta ári eru liðin hálf öld frá því að fulltrúar launafólks og atvinnurekenda undirrituðu samkomulag um stofnun lífeyr- issjóða fyrir almennt verkafólk. Á þetta er minnst til að vekja athygli á þeirri sögulegu stað- reynd því að Óskar Hallgríms- son var í fararbroddi félaga sinna við gerð kjarasamnings- ins um stofnun lífeyrissjóð- anna. Það var ánægjulegt að starfa með Óskari. Hann var ekki þannig gerðar maður að hafa sig mikið í frammi á fundum að nauðsynjalausu , en þegar hann tók til máls var eftir því tekið. Auk þess að vera borgar- fulltrúi um átta ára skeið fyrir Alþýðuflokkinn hlóðust á Óskar mörg trúnaðarstörf, bæði á sviði stjórnmála en ekki síður meðal samherja hans í verka- lýðshreyfingunni. Um tíma var varla sú nefnd eða stjórn sett á laggirnar inn- an verkalýðsfélaganna að Ósk- ar væri ekki beðinn um að taka að sér verkefnið. Mér er auð- vitað nærtækast að minnast Óskars Hallgrímssonar sem forystumanns að stofnun al- mennu lífeyrissjóðanna. Daginn eftir kjarasamn- ingana í maí 1969, var eftirfar- andi haft orðrétt eftir Óskari: „Með þessum samningum náð- ust fram atriði sem ég tel að muni hafa stórkostleg áhrif í ís- lensku þjóðfélagi, og á ég þar við lífeyrissjóðinn. Nú í dag er það að sjálfsögðu kaupgjaldið sem skiptir mestu fyrir hinn al- menna launþega, en þegar frá líður býst ég við að ákvæðinu um lífeyrissjóðina verði ekki minna virði en þegar Atvinnu- leysistryggingasjóðurinn náðist fram á sínum tíma“. Ég sendi aðstandendum hug- heilar samúðarkveðjur um leið og ég þakka Óskari Hallgríms- syni fyrir hans mikilvægu for- ystustörf fyrir almennu lífeyr- issjóðina í landinu. Hrafn Magnússon. Nú er fallinn frá mikill verkalýðsleiðtogi og áhrifamað- ur innan Rafiðnaðarsambands- ins og verkalýðshreyfingarinn- ar. Óskar var leiðandi í verkalýðsmálum á árum áður og hugmyndasmiður í tengslum við stofnun RSÍ á sínum tíma. Ég var svo heppinn að fá að hitta Óskar eftir að ég tók við sem formaður á sínum tíma þó nokkuð hafi verið frá því að hann hafði verið í beinum tengslum við rekstur sam- bandsins. Mjög eftirminnileg er heimsókn Óskars inn á skrif- stofu RSÍ þegar hann varð ní- ræður en af því tilefni buðum við honum í heimsókn. Það var ánægjuleg samverustund og skipti okkur miklu. Það er með miklu þakklæti í huga sem við minnumst Óskars og sendum fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur og þakk- ir fyrir hans óeigingjarna starf í gegnum tíðina fyrir samtök rafiðnaðarmanna. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðar- sambands Íslands.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.