Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 77

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 77
DÆGRADVÖL 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 TILBOÐS- DAGAR Vertu velkomin í sjónmælingu Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að taka meira tillit til ann- arra og þarft að varast að vaða yfir fólk, þótt boðskapur þinn sé góður. Sýndu um- burðarlyndi en haltu þínu striki. 20. apríl - 20. maí  Naut Gættu þess að skapa ekki stærri vandamál með framkomu þinni heldur en þau sem þú ætlar að leysa. Rannsakaðu málin vel áður en þú hefst handa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er hætt við að viðræður við foreldra þína og aðra fjölskyldumeðlimi fari í hringi. Allt slugs kemur í bakið á þér og þá verður ekki létt að bjarga málunum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vogun vinnur og vogun tapar en það má minnka tapið með því að taka aldrei of mikla áhættu. Nú virðist lag til þess að hrinda í framkvæmd hugmyndum þínum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur svo margt á þinni könnu að hætta er á því að hlutirnir fari úr bönd- unum. Vertu raunsær og varastu að láta óskhyggjuna taka öll völd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er eitthvert agaleysi að hrjá þig svo það er nauðsynlegt að þú spýtir í lófana og takir þér tak. Láttu engan hafa af þér það sem þú hefur unnið þér inn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú væri ekki úr vegi að slökkva fróð- leiksþorstann með því að skrá sig á nám- skeið eða fara á bókasafnið. Hamingja er að elska það sem þú gerir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Stór hópur stuðningsmanna er besta leiðin til þess að tryggja að þú missir ekki móðinn. Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð frábært tækifæri til þess að ýta undir starfsframa þinn og gott mannorð í dag. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hver er sinnar gæfu smiður segir máltækið og það á við þig sem aðra. Ef ein- hverjar breytingar þarf að gera, þurfa þær að vera í allra þágu. Láttu verkin tala. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu þín að láta engan misnota tilfinningar þínar hvort heldur um er að ræða vini og vandamenn eða aðra aðila. Láttu engan þrýsta þér til fljótfærni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú skaltu setjast niður og semja áætlanir um framkvæmd þeirra hluta, sem þú hefur hingað til aðeins látið þig dreyma um. Láttu klukkuna hvetja þig áfram. Mér hefur borist skemmtilegtbréf, sem tvímælalaust á er- indi í Vísnahorn: „Þeir voru á Kan- arí Guðni Ágústsson, fyrrv. land- búnaðarráðherra, og Björn Sigurðsson, bóndi í Úthlíð. Á mjög fjölmennum „framsóknarfundi,“ þar fóru þeir mikinn ásamt Erni Guðjónssyni sem kallar sig Stalín vegna þess hversu mikill komm- únisti hann er. Á fundinum álykt- uðu þeir um landbúnaðarmál og í ljós kom að allir fundarmenn vildu að íslenskir bændur framleiddu all- ar kjötvörur, allar mjólkurvörur og allt grænmeti heima. Af þessu kom mikil frétt í Mogganum og viðtal við Guðna og skáldin ortu um at- ganginn. Björn bóndi kvað þegar hann sá að Mogginn setti þá Guðna á forsíðuna uppi í hægrahorninu: Á forsíðu Moggans í fyrsta sinn fréttin öll með sanni Guðni tyllti þar tánni um sinn með trúuðum íhaldsmanni. Pétur Pétursson læknir las frétt- ina og sá atganginn í þessu ljósi: Áður kaus sér hátt að hreykja, hyggst nú refilstigu kanna, því Guðni upp sig er að sleikja við íhaldshornstaur Tungnamanna. En séra Hjálmar sá atburðinn í ljósi pákanna og upprisunnar: Sárt er að sjá til frænda í sífellu arðinum rænda. En Guðni og Björn eru byrjaðir í vörn og upprisu íslenskra bænda. Magnús Halldórsson bregst á Boðnarmiði við pólitískum tíð- indum, en „samkvæmt könnun er borgarstjórnarmeirihlutinn fall- inn“: Þess víða menn finna jú vottinn hve vondslega birtist oft Drottinn. Ef reynist nú rétt þessi ritaða frétt að Dagur af stólnum sé dottinn. Þröstur orti við heimkomu Klettafjallaskáldsins sumarið 1917 „fáeinar stökur hálfkveðnar“ og er þetta sú síðasta: Það hafa ekki allir náð út í sól og daginn. – En lengi hefur þjóðin þráð þig og vestanblæinn. Benedikt Gröndal orti: Heyrt hef ég í Helvíti sé hroðaglaumur, þar sem fullir Gísli og Grímur gaula saman Andrarímur. Hér er gömul bæn: Margt er það sem beygir brjóst, brattan geng ég raunastig. Kristur, sem á krossi dóst, kenn þú nú í brjósti um mig. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur á Kanarí og Guðni „EIN SPURNING. HVERS KONAR MANNESKJA VEX ÚR GRASI MEÐ ÞANN ÆSKUDRAUM AÐ VERÐA SÉRFRÆÐINGUR Í UNDIRSKRIFTUM?“ „EKKI GLEYMA, MANNI. EF ÞAÐ VÆRI EKKI FYRIR OKKUR KALLA HÉRNA, VÆRIR ÞÚ AÐ BORGA UMTALSVERT MEIRI TEKJUSKATT.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hún sendir þér alla ást sína. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TÍMI TIL ÞESS AÐ STARA Í TÓMIÐ ODDI! ÞAÐ ER SVINDL EF ÞÚ ERT AÐ HORFA Á EITTHVAÐ ÉG VAR AÐ STOFNA SPARIREIKNING FYRIR FRAMTÍÐ SONAR OKKAR! HÁSKÓLA- SJÓÐ? NEI, FRAMKVÆMDASJÓÐ FYRIR KJALLARAÍBÚÐ! Ólafur Þórðarson, fyrrverandi fyr-irliði Skagamanna, mun víst hafa sett allt á hliðina í fyrradag með ummælum sínum um að ekki mætti lengur segja neitt, og að í raun væri verið að „kellingavæða allt sam- félagið“. Viðbrögðin við ummælum Óla Þórðar voru kannski af fyrir- sjáanlegri kantinum, þar sem „net- heimar loguðu“ enn og aftur og sönnuðu þar með óbeint þá staðhæf- ingu Óla að ekki mætti segja neitt lengur. Fullyrðir Víkverji að ef venjuleg lögmál eðlisfræðinnar giltu um netheima væru þeir líklega orðn- ir að ösku fyrir löngu, þvílík er vand- lætingin. x x x Víkverji viðurkennir að honum varekki neitt sérstaklega vel við Óla á þeim tíma sem hann var knatt- spyrnumaður, enda Skagamenn á þeim tíma með langbesta knatt- spyrnulið landsins, og urðu oftar en ekki ofan á í viðureignum þeirra við lið Víkverja. Engu að síður er erfitt að bera ekki virðingu fyrir afrekum Óla sem knattspyrnumanns. Markið hans gegn Feyenoord á sínum tíma getur enn glatt augun á YouTube, og harðfylgni hans á vellinum átti ef- laust einn stærsta þáttinn í því að Skagamenn urðu Íslandsmeistarar fimm ár í röð. x x x Ein uppáhaldsminning Víkverja afÓla tengist þó leik KR og ÍA árið 1995, þar sem KR-ingar náðu loks- ins að sigra verðandi Íslandsmeist- ara í heilmiklum baráttuleik, 3-2. Í þeim leik ákvað Óli nefnilega að grípa einn KR-inginn haustaki í bar- áttu um boltann. Fyrir þá sem ekki kunna knattspyrnulögin, þá er slíkt athæfi vitaskuld bannað. Þegar dómarinn flautaði hins vegar jós Óli skömmunum yfir hann fyrir að vera að dæma á eitthvert svona lítilræði. x x x Óla mun víst fátt um finnast þó aðeinhverjir besserwisserar á net- inu séu honum ósammála. Alveg óháð því hvaða afstöðu fólk hefur til ummæla hans telur Víkverji það nokkuð aðdáunarverðan eiginleika. Sjálfur væri Víkverji líklega kominn með hauspoka. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn er góður, athvarf á degi neyð- arinnar, hann annast þá sem leita hælis hjá honum (Nahúm 1.7)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.