Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 78
varð hennar fyrsti yfirlesari og hafi í
raun verið eina manneskan sem
hvatti hana til skrifa.
„Sem danshöfundur hefur Mel-
korka líka haft áhrif á skrif mín fyrir
leikhús. Mér finnst danslistin og það
sem ungir danshöfundar eru að
gera, bæði á Íslandi og erlendis, og
dansinn hafa komið með mikilvægt
framlag inn í sviðslistasenuna á síð-
asta áratug. Danshöfundar eru að
mörgu leyti frjálsari frá bæði hand-
riti og hefð. Þau eru ekki með klass-
íkina á bakinu ef svo má segja. Þau
skauta óhrædd á milli listgreina og
innlima þær í sína listsköpun, eins
og Melkorka hefur verið að gera í
sínum verkum. Mér finnst ég sjá
skýran þráð frá útskriftarverkefn-
inu þínu í P.A.R.T.S. í Brussel 2010 í
gegnum síðari sviðslistaverkin þín
þar sem þú ert ávallt á mörkum
danslistar og tónlistar – og jafnvel
með tvisti af persónusköpun,“ segir
Auður.
Endursemja á ólíkum stigum
„Dansari í dag er ekki bara dans-
ari. Dansarar mæta ekki bara í
danstíma í námi sínu, heldur líka í
söngtíma, leiklistartíma, rytmatíma
auk þess að læra ýsmar greinar sem
tengjast samfélaginu svo sem
stjórnmálafræði, heimspeki og
mannfræði. Það er verið að búa til
performer í víðum skilningi úr við-
komandi, án þess að reynt sé að skil-
greina það sem danslist eða leiklist.
Danslistin á sér hins vegar engan
samastað á Íslandi, því við eigum
ekkert danshús eins og er á hinum
löndunum á Norðurlöndum, þannig
að við höfum þurft að fá inni í leik-
húsum og hjá öðrum listgreinum.
Þannig erum við orðin nokkurs kon-
ar enfant terrible listsenunnar. Við
erum sambland af mörgu,“ segir
Melkorka.
„Í Vakúm eru söngvararnir, Auð-
unn [Lúthersson] í Auður, og Gunn-
ar [Ragnarsson] í Grísalappalísu
orðnir að dönsurum og dansarar á
borð við Ásgeir Helga [Magnússon]
og Elísu Lind [Finnbogadóttur] orð-
in að söngvurum. Þú ert þannig búin
að vinna með mörk þessara list-
greina innan hópsins,“ segir Auður.
Aðspurð segist Melkorka hafa
gengið með hugmyndina að Vakúm í
maganum í nokkurn tíma, en tvö ár
eru síðan hún sótti fyrst um styrk
vegna verksins. „Eftir starfið í
hljómsveitinni Milkywhale þar sem
ég hef unnið með samband tónlistar
og danslistar langaði mig að skapa
hópsöngverk – mig langaði í raun að
gera kóreógraferaða poppóperu og
ræddi þá hugmynd við mömmu og
úr varð Vakúm,“ segir Melkorka.
„Ég hugsa oft hvað ég er ofboðs-
lega lánsöm að vera bara rithöf-
undur og þurfa einungis blýant og
blað í minni listsköpun. Það er svo
langur aðdragandi að sviðsverkum,
þau eru dýr í uppsetningu og þurfa
húsnæði bæði til æfinga og sýninga.
Það þarf því að sækja um styrki,“
segir Auður.
„Mér finnst leikstjórar og dans-
höfundar vera miðlar. Við erum
samskiptatæki milli allra listrænu
stjórnendanna og performeranna.
Ég byrja á því að vinna með texta-
höfundi og miðla því síðan til Árna
Rúnars [Hlöðverssonar] sem semur
tónlistina og við búum til höfundar-
verk saman og svo miðla ég því til
performeranna ásamt mínum eigin
hugmyndum og út úr því vinnum við
hugmyndir sem síðan er miðlað til
ljósamanna, hljóðhönnuða og svo
framvegis,“ segir Melkorka. „Þann-
ig að þú ert í raun að endursemja
verkið á ólíkum stigum,“ segir Auð-
ur.
Húmor og fegurð leiðarstef
Spurð um titilinn Vakúm segir
Melkorka hann vísa í nokkrar áttir.
„Í upphafi var ekkert. Það finnst
mér vera einstaklega áhugaverður
upphafspunktur. Og hvert förum við
svo?“ spyr Melkorka. „Vakúm er
bæði tilvistarlegt tóm og efnislegt
„Við erum
að uppgötva
nýjan heim“
Danspoppóperan Vakúm verður
frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.30
Listafólk Mæðgurnar Auður Ava og
Melkorka Sigríður. Í bakgrunni eru Ásgeir
Helgi Magnússon, Auðunn Lúthersson, Elísa
Lind Finnbogadóttir og Gunnar Ragnarsson.
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er búin að vera með í nokkrum
af hennar sviðsverkum og því var
kominn tími til að snúa þessu við og
að mamma kæmi inn í mín verk,“
segir Melkorka Sigríður Magnús-
dóttir danshöfundur um samstarf
þeirra Auðar Övu Ólafsdóttur rit-
höfundar, en afrakstur vinnu þeirra
verður frumsýndur í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20.30 og nefnist Vakúm.
„Þetta er fimmta sviðslistaverkið
sem við vinnum saman, en í fyrsta
sinn sem við förum saman í viðtal,“
segir Auður þar sem við sitjum sam-
an í anddyri Tjarnarbíóis örfáum
dögum fyrir frumsýningu. Melkorka
samdi sviðshreyfingar fyrir þau þrjú
leikrit Auðar sem ratað hafa á svið,
Svartur hundur prestsins sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu 2011, Svanir
skilja ekki sem sýnt var í Þjóðleik-
húsinu 2014 og Ekki hætta að anda,
sem leikhópurinn Háaloftið sýndi í
Borgarleikhúsinu 2015. Auður
samdi textann fyrir Milkywhale sem
Melkorka frumsýndi á Reykjavík
Dance Festival 2015 og núna
Vakúm.
„Mér finnst við ekki vera mæðgur
þegar við erum að vinna í listinni –
þá erum við vinnufélagar. Það er
ekki ósvipað og þegar Frakkar
skrifa bréf, þeir eiga það til að þéra í
fyrri hluta bréfsins ef það er vinnu-
tengt og þúa í seinni hluta ef það er
persónulegt. Við Melkorka erum
þannig, þérumst í vinnunni,“ segir
Auður og rifjar upp að Melkorka
hafi aðeins verið tíu ára þegar hún
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Straumflugur
í vorveiðina frá Atlantic Flies
Mörkinni 6 - Sími 568 7090 - veidivon@veidivon.is - veidivon.is
Vorblót er yfirskrift danshátíðar
sem hefst í Tjarnarbíói í kvöld með
frumsýningunni á Vakúm og stend-
ur til sunnudags. „Hátíðin Vorblót
einkennist af fjölbreytni þar sem
mörkin milli dans, leiklistar og tón-
listar eru rofin. Það er sjaldan sem
okkur gefst tækifæri til að upplifa
margt af því áhugaverðasta úr ís-
lenskri danssenu á einu bretti, en
nú er lag,“ segir á vef Tjarnarbíós.
Tvær sýningar verða sýndar á
morgun, föstudag, annars vegar
Wikihow to start a punkband kl. 18
og Ég býð mig fram kl. 21. Wiki-
how to start a punkband var upp-
haflega frumsýnt í ágúst í fyrra.
Um er að ræða verk þar sem dans-
arinn og danshöfundurinn Gígja
Jónsdóttir stofnar pönkhljómsveit í
samvinnu við áhorfendur út frá
leiðbeiningum af vefsíðunni wiki-
how.com. Sú vefsíða er „staðurinn
þar sem draumar verða að veru-
leika – þar á hver sem er að geta
lært hvað sem er. Á einu kvöldi
munum við meika það,“ segir í
kynningartexta um verkið. Þar
kemur fram að verkið sé á sama
tíma „fögnuður sem og gagnrýni á
hinni svokölluðu DIY (e. do it your-
self) menningu“ netsins. Gígja út-
skrifaðist af samtímadansbraut
Listaháskóla Íslands árið 2013.
Hún stundar nú mastersnám í
myndlist við San Francisco Art
Institute.
Rússíbanareið Unnar
Ég býð mig fram var frumsýnt í
október á síðasta ári. Í verkinu
flytur Unnur Elísabet Gunnars-
dóttir 13 þriggja mínútna verk eft-
ir 13 listamenn úr ólíkum áttum
sem allir eiga það sameiginlegt að
hafa veitt Unni innblástur í gegn-
um tíðina með listsköpun sinni.
Unnur sendi listamönnunum bréf
og falaðist eftir því að þeir semdu
fyrir hana örverk og tóku allir vel í
bón hennar. Höfundarnir eru í staf-
rófsröð: Aðalheiður Halldórsdóttir,
Arnór Dan Arnarson, Barði
Jóhannsson, Bergur Ebbi Bene-
diktsson, Daði Freyr Pétursson,
Hannes Þór Egilsson, Kristín
Gunnlaugsdóttir, Kristín Þóra
Haraldsdóttir, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Margrét Bjarna-
dóttir, Ólöf Nordal, Saga Sigurðar-
dóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir.
„Ég býð mig fram snýst um að
Mörk listgreina
rofin á danshátíð
Vorblót hefst í Tjarnarbíói í dag