Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 79
tóm. Það þýðir tómarými. Það er
þekkt ryksugumerki. Það er loft-
tæming og tengist þeirri hugmynd
að sköpunin spretti úr engu. Ég held
að þetta sé tilvistar-póetískt verk
um það hvernig við gefum heiminum
merkingu,“ segir Auður. Setjum orð
og ást og allt sem grær í vakúm, eins
og segir í einum textanum. Mel-
korka bendir á að mikið sé unnið
með efni í sýningunni. „Við erum
með einangrunarálteppi frá Rauða
krossinum, svokölluð neyðarteppi.
Þessi teppi hafa ekkert form til að
byrja með og við skoðum hvað má
búa til úr þeim. Fyrir mér snýst
verkið því að stórum hluta um upp-
götvunina. Við erum að uppgötva
nýjan heim, tilfinningar og efni sem
má mögulega gera eitthvað úr, upp-
götva sambönd og sambandsleysi,“
segir Melkorka. „Og eigingirni. Við
skoðum einstaklinginn andspænis
hópnum,“ segir Auður.
„Ég held að fólki utan dansfagsins
finnist svona vinnuferli vera skrýtið
og jafnvel mjög stressvaldandi, en
fyrir mér er þetta alveg eðlilegt. Við
danshöfundar byrjum sjaldnast með
handrit heldur bara hugmynd. Í
raun var þetta verk komið lengra en
hefðbundið dansverk þegar ég byrj-
aði að vinna með performerum úti á
gólfi, því þá lágu fyrir bæði textar og
tónlist,“ segir Melkorka. „Dansarar
eru hins vegar vanir ferli þar sem
byrjað er með ekkert í höndunum,“
segir Auður.
Innt eftir því hvort hún skapi allar
danshreyfingar í spunasamvinnu
eða hafi fyrirfram mótaðar hug-
myndir að hreyfiferlum svarar Mel-
korka: „Ég lýsi því svo að ég planti
fræjum að hugmyndum sem við
vinnum síðan úr. En svo tek ég fræ-
in eða hugmyndirnar til baka og sé
um að flokka og henda. Þó að verkið
sé nú þegar búið að taka á sig form
stunda ég þessa endur- og úrvinnslu
alveg fram að frumsýningu og leyfi
mér að breyta og bæta við fram á
síðustu stundu. Á frumsýningardag
stíg ég til hliðar sem höfundur og
einbeiti mér að því að sýna,“ segir
Melkorka og viðurkennir fúslega að
það felist ákveðin áskorun í því að
performera í eigin verki. „Ég er að
vinna í fyrsta skipti með þessum
hópi dansara og söngvara en ég
valdi að vinna með sama listræna
teymi og ég vann sýninguna Milky-
whale með. Við kunnum mjög vel á
hvert annað og þess vegna taldi ég
mig hafa efni á að vera í eigin verki
og leikstýra sviðslistafólki sem ég
hef ekki unnið með áður. Dóri DNA
er dramatúrg sýningarinnar og
gegnir mjög mikilvægu hlutverki
síðustu dagana þar sem hann þarf
að vera augun mín,“ segir Melkorka.
Ég mata ekki áhorfendur
„Þetta er samt mjög Melkorku-
legt verkt. Húmorinn og fegurðin
hefur verið skýrt höfundareinkenni í
öllum þínum verkum frá útskriftar-
verkefninu í Brussel. Í verkum þín-
um birtist líka smá skrýtin sýn á það
að vera manneskja. En nú er ég að
tala eins og rithöfundur og þetta er
ekki bók og ekki heldur leikrit.
Dansinn býr yfir allt öðrum vídd-
um,“ segir Auður. „Dansinn er mun
meira abstrakt og ljóðrænn. Það er
enginn línulegur söguþráður eins og
við þekkjum í bókum og leikritum.
En það er samt skýr þráður,“ segir
Melkorka. „Þetta er eins og kóngu-
lóarvefur. Það er erfitt að útskýra
þetta með orðum. Við getum
kannski teiknað það,“ leggur Auður
til.
Að lokum eru þær mæðgur spurð-
ar hvernig þær telji að sýningin
muni orka á áhorfendur. „Það er
hæglega hægt að upplifa verkið sem
kraftmikla popptónleika eða sem
dansverk,“ segir Auður. „Ég held að
hver og einn þurfi að ákveða fyrir
sig hvernig beri að upplifa og skilja
verkið. Ég mata ekki áhorfendur
með ákveðinni tilfinningu og skynj-
um. Fegurð dansverka felst einmitt í
því að þau eru meira abstrakt en
aðrar listgreinar,“ segir Melkorka
að lokum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
MENNING 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
brjóta niður veggi. Kasta sér út í
alheiminn, sjá hvort hann grípur,
kastar þér til baka eða fer með þig
í rússíbanareið,“ segir í kynning-
artexta um verkið.
Kómísk móment Sigríðar
Boðið verður upp á þrjá viðburði
á laugardag. Þetta eru danssýning-
arnar Vera og vatnið kl. 15, Cres-
cendo kl. 20 og PPBB (Post per-
formance blues band) kl. 22. Vera
og vatnið eftir Tinnu Grétarsdóttur
í flutningi Snædísar Lilju Ingadótt-
ur við tónlist Sólrúnar Sumarliða-
dóttur hlaut Grímuna sem barna-
sýning ársins 2016. Sýningin, sem
ætluð er börnum á aldrinum eins til
fimm ára og fjölskyldum þeirra,
segir frá Veru og tilraunum henn-
ar og upplifunum í veðri og vind-
um.
Crescendo eftir Katrínu Gunn-
arsdóttur var frumsýnt í Tjarnar-
bíói í seinasta mánuði. Í verkinu
sækir höfundurinn „í sögu líkam-
legrar vinnu kvenna og sér-
staklega til endurtekinna hreyf-
inga og söngva, með það að
markmiði að skapa aðstæður fyrir
nána kvenlæga samveru, samhug
og samruna.“ Dansarar eru Heba
Eir Kjeld, Snædís Lilja Ingadóttir
og Védís Kjartansdóttir.
Í kynningartexta segir að PPBB
sé hljómsveit sem muni hugsanlega
breyta lífi áheyrenda, en sveitin
sérhæfir sig í umbreytingunni.
Boðið er upp á tvo viðburði á
sunnudag, annars vegar Hlustunar-
party kl. 17 þar sem 30 unglingar
spila uppáhaldstónlistina sína og
hins vegar sólóverkið Fubar kl.
20.30 eftir Sigríði Soffíu Níels-
dóttur í flutningi höfundar. „Yrkis-
efnið er ég sjálf. Í verkinu segi ég
skemmtisögur af kómískum mó-
mentum sem ég hef upplifað sem
dansari, atvikum sem ég hef lent í
og hafa áhrif á líf mitt. Og sumar
sögurnar eru frekar persónu-
legar,“ sagði Sigríður í samtali við
Morgunblaðið árið 2016 þegar
verkið var frumsýnt. Allar nánari
upplýsingar um viðburði Vorblóts-
ins og miðasala er á vefnum
tjarnarbio.is.
Ljósmynd/Owen Fiene
Samruni Úr Crescendo eftir Katrínu Gunnarsdóttur.
Morgunblaðið/Eggert
Sólóverk Sigríður Soffía Níelsdóttir í verki sínu Fubar.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s
Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s
Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:30 Frums. Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas.
Lau 14/4 kl. 20:30 2. s Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s
Sun 15/4 kl. 20:30 3. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s
Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Sun 6/5 kl. 20:30 14. s
Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s
Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas.
Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn
Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn
Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 33.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 34.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið)
Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og
úlfurinn
Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og
Siggi
Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og
Siggi
Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get
Barnamenningarhátíð 2018
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?