Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 80
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Bjartur og vorlegur söngur fram-
andi fugla og frábærlega útfærður
og heillandi flautuleikur einkenndu
tónleika Bjarkar og hljóðfæraleik-
ara hennar í Háskólabíói á mánu-
dagskvöldið var, frá upphafi til
enda. Meðan gestir gengu í salinn
barst lágvær kliður fuglsradda um
loftið, smáhækkandi þar til tónleik-
arnir hófust. Og þeim lauk rúmri
klukkustundu síðar með flautuleik-
urunum sjö og Björk einum á svið-
inu þar sem þær fluttu eftir hjart-
anlegt uppklapp gesta, sem fylltu
salinn, gullfallega útgáfu „The
Anchor Song / Akkeris“, elsta lags-
ins sem hljómaði á tónleikunum, af
Debut frá 1993. Björk söng það
með íslenska textanum – „hér vill
ég vera / hér á ég heima“ – og
þakkaði að því loknu fallega fyrir
sig. Og var á móti þakkað á heima-
velli fyrir góða kvöldstund með
flautum og fuglasöng, góða og gef-
andi upplifun.
Bræðingur listforma
Með hverri plötu og tónleika-
ferð sem Björk setur saman, með
þeim fjölda listrænu samstarfs-
manna sem hún kallar til liðs við
sig, fetar hún sífellt persónulegri
leið. Og leið sem er hennar einnar.
Tónleikunum tvennum sem hún
hélt í Háskólabíói í vikunni lýsti
hún sem einskonar generalprufu
fyrir mikla tónleikaferð um heims-
byggðina næstu misseri eða árin,
með hléum, til að fylgja nýju plöt-
unni Utopia eftir. Og á þeirri plötu,
sem er miklu bjartari en sú á und-
an, skilnaðarplatan Vulnicura, eru
engar málamiðlanir, frekar en í
síðustu verkum listakonunnar. Og
tónleikagestir upplifðu heldur eng-
ar málamiðlanir (þótt Björk sagði
afsakandi undir lokin þegar hún
ávarpaði gesti að það væri verið að
fínstilla sýninguna), og heldur alls
ekki neitt sem kalla mætti hefð-
bundna tónleika. Þess á móti eru
tónleikar Bjarkar sannkallaðir Ge-
samtkunstwerk, bræðingur list-
forma, mótaður á afar persónu-
legan hátt af Björk og hennar fólki
– vandlega mótuð upplifun tónlist-
ar og sjónlista; sviðshreyfinga,
búninga, sviðsmyndar og mynd-
banda þar sem að þessu sinni var
markvisst og á tilfinningaríkan
hátt vísað til náttúru og frjómagns.
Grímur og flautudans
Hin lífræna sviðsmynd tón-
leikaferðarinnar er hönnuð af
Heimi Sverrissyni. Fyrir miðju er
upphækkað hringsvið og eftir að
Björk hafði birst rauðklædd í upp-
hafi fyrsta lagsins, „Arisen“, með
hálfgerða fiðrildavængi og eina af
einkennisgrímum James Merry,
sem hafa prýtt hana á undan-
förnum árum, og tiplað á þykk-
botna skóm um tröppur leikmynd-
arinnar þar sem hún söng, tók
sviðið að snúast og flautuleikar-
arnir sjö birtust. Þær voru einnig
með grímur, rétt eins og Katie
Buckley hörpuleikari sem sat
fremst til hægri en karlarnir tveir
sem skipa hljómsveit Bjarkar,
Manu Delago ásláttarleikari og
Bergur Þórisson, sem stýrir raftón-
listarþættinum og blæs auk þess í
básúnu, voru hvor í sínu horni leik-
myndarinnar efst, grímulausir.
Þær kalla sig viiba, flautu-
septettinn, skipaður sjö af fremstu
flautuleikurum þjóðarinnar. Og
hér takast þær heldur betur á við
nýstárlegt verkefni og leystu það
listavel, eins og gestir í Háskólabíói
sáu og heyrðu; búnar að læra út-
setningar utanbókar og hreyfðu
sig um í takt, með sveigjum, snún-
ingum og tilfærslum í sviðsmynd-
inni, eftir hreyfingum sem hinn
fjölhæfi danshöfundur Margrét
Bjarnadóttir hefur samið fyrir
þær.
Muggur og Björk mætast
Utopia er viðfangsefni tón-
leikanna og hljómuðu tíu af lög-
unum fjórtán á plötunni. Björk er
því lítið að hleypa gömlum „slög-
urum“ út í salinn; fyrir utan „Akk-
eri“ söng hún frábærlega „Notget“
af Vulnicura og líka „Thunderbolt“
af Biophilia og „Pleasure is All
Mine“ af Medúlla. Gestir voru
minntir á það að Háskólabíó er
ekki hannað sem tónlistarhús og
því miður varð ásláttur hins slynga
Delago, sem hefur blómstrað í
verkum Bjarkar á undanförnum
árum, stundum sem óræðar drunur
en í rólegri lögunum var hljómur-
inn hreinni og þá nutu harpan og
flauturnar sín afskaplega vel.
Í samtali við Björk á dögunum
sagði hún að vídeóverk ættu eftir
að bætast seinna við upplifun gesta
á tónleikaferðinni en engu að síður
var varpað upp fallegum og áhuga-
verðum skjáverkum í langflestum
laganna – til að mynda úr þeim
tónlistarmyndböndum sem gerð
hafa verið við lögin – og skiptu
miklu máli fyrir heildarútkomuna.
Þá gladdi óneitanlega að sjá hina
meistaralegu klippimynd ljúflings-
ins Muggs „Sjöundi dagur í Para-
dís“, frá 1920, lifa á skjánum við
lagið „Tabula Rasa“ – það var fal-
legt. Og þar fetar Guð sig inn í lit-
ríka paradís til dýranna sem hann
hefur skapað, öruggum skrefum,
og fylgja honum englar; rétt eins
og flautuleikararnir fylgdu skapar-
anum Björk niðri á litríku og
skrautlegu sviðinu, hægt, örugg-
lega – og einstaklega fallega í eft-
irminnilegri sýningu.
Flautur og fuglasöngur í paradís
Ljósmynd/Santiago Felipe
Litadýrð Flautuseptettinn viiba lék listavel með Björk í öllum lögunum. Hreyfingarnar um sviðið voru vel útfærðar og mikilvægur þáttur upplifunarinnar.
Ljósmynd/Santiago Felipe
Grímuklædd Björk flutti flest lögin af Utopia og nokkur af eldri plötum.
»…þar fetar Guð siginn í litríka paradís
til dýranna sem hann
hefur skapað, öruggum
skrefum, og fylgja hon-
um englar; rétt eins og
flautuleikararnir fylgdu
skaparanum Björk niðri
á litríku og skrautlegu
sviðinu.
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma