Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 83

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 83
MENNING 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Fíkn er oft sýnd með afar villandi hætti í skáldskap,“ svarar Duncan Macmillan, höfundur Fólks, staða og hluta, þegar hann er spurður að því hvers vegna hann hafi ákveðið að skrifa leikrit um þetta efni, áfengis- og lyfjafíkn. „Það er að hluta til vegna þess að frásagn- arformið krefst ákveðins endis og því deyja fíklar oft í skáldskap eða ná á endanum óraunsæjum, til- finningalegum málalyktum. Það er áskorun á degi hverjum að lifa í bata. Ein af áskorununum sem ég tókst á við, þegar ég var að skrifa þetta leikrit, var að búa til heil- steypt verk hvað uppbyggingu varðar og fullnægjandi án þess að vera ónákvæmur eða ónærgætinn í garð þeirra sem glíma við svo al- gengt og alvarlegt vandamál,“ seg- ir Macmillan. Á hverri sýningu megi búast við gestum sem þekki umfjöllunarefnið af eigin raun og fyrir vikið sé það vandmeðfarið og hann hafi þurft að gæta þess að vera ekki of tilfinningasamur eða fara með ósannindi. Fíkn er ekki brandari „Glímunni við fíkn og að ná bata á að sýna virðingu og hana á ekki að smætta niður í harmræna klisju eða brandara, eins og oft vill verða,“ segir Macmillan og að eftir því sem leið á skrifin hafi hann þokast frá málefnum tengdum fíkn og yfir í tilvistarlegri spurningar á borð við hvernig fólk fari að því að þrauka þegar lífið reynist óskap- lega erfitt. „Hvaða aðferðum beit- um við til að gera lífið bærilegra og gera þær aðferðir okkur gott? Hvort sem fólk hefur beina reynslu af fíkn eða ekki vona ég að allir sjái sjálfa sig í þeirri til- vistarlegu kreppu sem aðal- persónan lifir og hrærist í,“ segir Macmillan og á þar við leikkonuna Emmu. Málefni sem vekja ugg – Í Andaðu, leikriti sem þú skrifaðir og sýnt hefur verið á Ís- landi, kannar þú foreldra- hlutverkið og í öðru, einleiknum Every Brilliant Thing, tekur þú fyrir sjálfsvígshugsanir. Þú virðist glíma við samfélagsleg vandamál í verkum þínum og hinar stóru spurningar? „Ég býst við því! Margar spurn- ingar brenna á mér en ég hef eng- in raunveruleg svör. Að skrifa leikrit er mín leið til að varpa ljósi á þær eins vel og mér er mögu- legt, að glíma við málefni sem vefjast fyrir mér og valda mér hugarangri – hugarangri sem ég held að margir finni fyrir á okkar tímum. Með því að draga það fram í dagsljósið og spyrja þessara spurninga vonast ég til þess að sefa ótta og einmanaleika annarra og vona að þeim takist jafnvel að finna einhver svör,“ svarar Mac- millan. Vildi að leikritið stæðist Bechdel-prófið – Hin síðustu ár hefur verið all- nokkur umræða um skort á bita- stæðum hlutverkum fyrir leik- konur yfir fertugu, bæði á leiksviði og á hvíta tjaldinu. Varstu með það í huga þegar þú ákvaðst að aðalpersóna verksins ætti að vera leikkona komin yfir fertugt? „Já, ég tók þá meðvituðu ákvörðun að hafa aðalpersónu verksins konu en líka að aðal- markmið hennar og hindrun væri ekki kynbundin. Fíkn fer ekki í manngreinarálit, hún hrjáir fólk á öllum aldri, af öllum kynþáttum og er óháð þjóðfélagsstöðu eða efna- hag, kynhneigð og kyni. Ég vildi líka að leikritið stæðist Bechdel-prófið og að lokaupp- gjörið yrði milli móður og dóttur,“ svarar Macmillan og bætir við að ástæðan hafi líka að hluta til verið sú að hann þekki margar frábærar leikkonur sem fái ekki nógu áhugaverð hlutverk. „Og ég er líka orðinn svo leiður á því að hvítir miðstéttarmenn séu helstu hold- gervingar menningar okkar og þetta segi ég þrátt fyrir að vera sjálfur hvítur miðstéttarkarl- maður.“ Varð heillaður af leikritun Macmillan er að lokum spurður að því af hverju hann hafi valið sér leikritun sem listform. Hann svar- ar því til að þegar hann hafi verið í námi hafi lesið leikrit eftir Caryl Churchill, Wallace Shawn, Robert Holman, Sam Shepard og fleiri leikskáld og heillast af þeim. „Ég leit til þessara höfunda og verka þeirra og hugsaði með mér að þetta væri það sem mig langaði mest til að gera,“ segir Macmillan að lokum. „Fíkn fer ekki í manngreinarálit“  „Glímunni við fíkn og að ná bata á að sýna virðingu og hana á ekki að smætta niður í harmræna klisju eða brandara,“ segir Duncan Macmillan og að margar spurningar brenni á honum Ljósmynd/Jonathan Keenan Leikhúsmaður Macmillan hefur vakið mikla athygli í Bretlandi fyrir leikrit sín og hlaut Fólk, staðir og hlutir tvenn Olivier-verðlaun árið 2016. Hann hefur líka leikstýrt leikritum í London og New York starfað hjá BBC. VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Hjólastandar á bíla og í bílskúrinn. Hver standur er fyrir 2-3 hjól. Vönduð evrópsk framleiðsla. Dráttabeisli á allar gerðir bíla ásamt ásetningu. Fastar kúlur, smellukúlur og prófílbeisli. Ásetning á staðnum. nnanmál YFIR 30 ÁRA REYNSLA Í AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPAVINI - MIKIL ÞEKKINGOGVÖNDUÐVINNUBRÖGÐ - farangursbox á allar gerðir bíla.Stærðir 360 - 500 lítra Vönduð evrópsk framleiðsla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.