Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 92

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 92
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 102. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Milljarðamæringur horfinn … 2. Laug til um krabbamein 3. Hélt að þetta væri grín 4. Dagur ósáttur við fréttina og … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Háskólakórinn heldur vortónleika sína í Neskirkju í kvöld kl. 20. Kórinn mun frumflytja hér á landi kórverkin Haustnótt eftir Oliver Kentish og verk eftir norska tónskáldið Jake Runestad, Nyon Nyoun, þar sem sungið er á spánnýju og gamansömu tungumáli. Þá syngur kórinn einnig íslensk þjóðlög, verk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson, Claudio Monteverdi og Ungverjann Lajos Bárdos. Stjórnandi kórsins er Gunnsteinn Ólafsson. Háskólakórinn syngur inn vorið Morgunblaðið/Ófeigur  Systkinin Ið- unn, Ingólfur, Kristín og Stefán, börn Öddu og Steins í Tungu á Seyðisfirði, bjóða til kvöldvöku í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Systkinin hafa sýslað margt um dagana og hafa m.a. fengist við ritstjórn, þýðingar og bókaskrif fyrir alla aldurshópa. Kvöldvaka með börn- um Öddu og Steins  Söngvarinn Jógvan Hansen mun flytja helstu smelli Deans Martins og Franks Sinatra á tónleikum annað kvöld kl. 20 í Salnum í Kópavogi ásamt hljómsveit. Sveitina skipa Sigurður Flosason, Agn- ar Már Magnússon, Jó- hann Hjörleifsson og Gunnar Hrafnsson. Sérstakur gestur verður Friðrik Ómar Hjörleifsson. Jógvan syngur smelli Martins og Sinatra Á föstudag Vaxandi austlæg átt, 8-15 m/s síðdegis, hvassast með suðvesturströndinni. Hiti 4 til 13 stig yfir daginn. Á laugardag Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast með ströndinni sunnan- og austantil. Talsverð rigning suðaustanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 5-10 víða um land. Áfram lítilsháttar rigning vestantil fram á kvöld, annars úrkomulítið. Hiti 4 til 12 stig. VEÐUR Karlalið ÍBV í handbolta freist- ar þess að skrá sig með stóru letri á spjöld sögunnar áður en sumarfrí tekur við í grein- inni. Eyjamenn hafa þegar landað deildar- og bikar- meistaratitli en geta enn bætt tveimur titlum við safnið. Úrslitakeppni Olís-deildarinnar hefst á morgun og Morgunblaðið fjallar ítarlega um einvígin fjögur sem eru fram und- an á næstu dögum. »4 Bæta Eyjamenn við sig titlum? Handknattleiksmaðurinn öflugi Björgvin Þór Hólmgeirsson, sem hef- ur verið frá keppni vegna bakmeiðsla síðan í september, er kominn aftur af stað með ÍR-ingum og útlit er fyrir að hann spili með þeim gegn ÍBV í fyrsta leikn- um í úrslita- keppninni um Íslands- meist- aratitilinn annað kvöld. »1 Björgvin er kominn af stað með ÍR-ingum Fram leikur til úrslita um Íslands- meistaratitil kvenna í handknatt- leik eftir að hafa sigrað ÍBV í þriðja sinn í fjórum leikjum liðanna í Vestmannaeyjum í gærkvöld, 27:24. Fram mætir því annaðhvort Haukum eða Val í úrslitaeinvíginu. Með þessum úrslitum hefur Fram slegið Eyjakonur út úr öllum mót- um vetrarins. »3 Fram leikur til úrslita um meistaratitilinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Það hefur aldrei verið jafn góður árangur á Austurlandi, þetta var harður riðill. Það er alltaf ótrúlega mikill keppnishugur, krakkarnir eru búin að æfa stíft, föndra hatta, merkingar, fána og skilti og undir- búa vikum saman. Stuðningsliðin mæta og stemningin verður alveg frábær,“ segir Andrés Guðmunds- son, sem heldur Skólahreysti með konu sinni, Láru Berglindi Helga- dóttur, og segir alltaf jafn gaman að koma á mótin, sjá krakkana streyma inn og íþróttahúsin fyllast í hvert sinn. Undanúrslitum í Skólahreysti, keppni 9. og 10. bekkinga í þrauta- brautum, lauk í gær á Austurlandi með landshlutakeppni í íþróttahús- inu á Egilsstöðum. Í lokaúrslit komast Holtaskóli, Grunnskóli Húnaþings vestra, Súða- víkurskóli, Laugalækjarskóli, Varm- árskóli, Ölduselsskóli, Grunnskólinn á Hellu, Varmahlíðarskóli, Brekku- skóli og Grunnskóli Hornafjarðar sem sigraði í gær. Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Lindaskóli í Kópa- vogi komast áfram sem uppbótar- skólar. Fram undan er nú úrslita- keppnin, 2. maí nk. í Laugardals- höll. Byrjaði sem fullorðinsþraut „Skólahreysti hefur verið haldin síðan árið 2005 og styrkist með hverju ári. Þetta byrjaði með að við vorum með þrautabraut með Bylgjulestinni hérna á árum áður, útibraut sem var hugsuð fyrir full- orðna, en hún fylltist alltaf af krökk- um sem eiginlega yfirtóku hana hvert sem við fórum. Þá kviknaði hugmyndin að prófa að halda svona keppni fyrir krakka. Síðan hefur þetta þróast og stækkað með áhuga krakkanna og haldist þannig.“ Keppnin er hugsuð fyrir krakka í 9. og 10. bekk grunnskóla, en litlir skólar mega sækja krakka niður í 8. bekk með undanþágu. „Við viljum hafa 9. og 10. bekk því það er mest krefjandi unglingaald- urinn, þar sem margir krakkar eru kannski að hætta í íþróttum.“ Andrés segir það mikla ákvörðun fyrir krakkana að vera með, það sé einnig áskorun fyrir ungar sálir að keppa fyrir framan skólann sinn og sjónvarpið. „Enginn hefur þó hætt keppni í öll þau 14 ár sem við höfum haldið Skólahreysti,“ segir Andrés og bæt- ir við: „Við erum afar stolt af því að krakkarnir hafa öll klárað keppni, jafnvel þeir sem hafa ekki náð að gera nema eina armbeygju, því allir eru að gera sitt besta og ætla að hafa gaman af því í leiðinni.“ „Ótrúlega mikill keppnishugur“  Undanúrslitakeppni Skólahreysti á Austurlandi fór fram í íþróttahúsinu á Eg- ilsstöðum  Tólf skólar munu heyja úrslitakeppni í Laugardalshöll í byrjun maí Ljósmynd/Brjánn Baldursson Skólahreysti Lára Berglind Helgadóttir og Andrés Guðmundsson fagna með keppendum í gær og stuðningsliðin létu ekki sitt eftir liggja. Ljósmynd/Brjánn Baldursson Hvatning Sippað af krafti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.