Morgunblaðið - 14.04.2018, Page 1

Morgunblaðið - 14.04.2018, Page 1
yg ghefur gefið út bókum núvitund ognotkun jóga ídaglegu lífi 24 E ló E ilsdóttir Leið að lukku-legra lífi Köttu i Ástin tjáðá saxófón 15.APRÍL 2018SUNNUDAGUR Semþrítugur á ný Bubbi flyturtvær vinsælustuplötur sínar íheild í Hörpu 36 Brimbretta-kappinn HeiðarLogi er farinn aðlæra á saxófónog spilar Care-less Whisperfyrir kærust-una sína 2 L A U G A R D A G U R 1 4. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  87. tölublað  106. árgangur  MAGNAÐ SKÝJA- FAR OG BIRTA Í FLJÓTSHLÍÐINNI LISTAPÚKINN FAGNAR STÓRAFMÆLI ÞÓRIR GUNNARSSON 12SÝNING HRAFNHILDAR 46 Varðskipið Týr sigldi á eftir Þór inn Reykjavíkurhöfn í gær og þyrla frá Landhelgisgæslunni sveimaði yfir á meðan Sig- urður Steinar Ketilsson, skipherra á Þór, sigldi til hafnar í sínu síðasta verkefni fyrir Gæsluna. Þar á hann að baki 50 ára farsælan og samfelldan starfsferil en Sigurður Steinar hættir vegna aldurs, varð sjötugur í byrjun mars sl. Á undan Þór inn höfnina sigldi hafnsögubáturinn Magni og sprautaði yfir varðskipið af þessu tilefni. Landhelgisgæslan tók á móti Sigurði með viðhöfn; heiðurs- verði og viðhafnarskotum skipherranum til heiðurs. Georg Lárusson, forstjóri Gæslunnar, afhenti Sigurði gjöf og þakk- aði honum óeigingjarnt starf í þágu stofnunarinnar. » 4 Heiðurssigling í síðustu ferð Sigurðar Steinars skipherra Morgunblaðið/Árni Sæberg Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fasteignafélagið Rauðsvík hefur leigt óbyggðan 16 hæða hótelturn á Skúlagötu til félags í hótelrekstri. Trúnaður ríkir um leigutakann. Sturla Geirsson, framkvæmda- stjóri Rauðsvíkur, segir að byggður verði 13 þúsund fermetra turn. Þar af verða um 10 þús. fermetrar ofan- jarðar og hótelherbergin alls 195. Verklok séu áformuð vorið 2020. Við hlið turnsins verður gistirým- um fjölgað á KEX hosteli. Fram- kvæmdaaðilar munu kaupa sig frá kvöð um bílastæði á reitnum. Fjöldi verkefna í pípunum Með þessari uppbyggingu hefur verið tekin ákvörðun um ekki færri en tíu hótel í miðborginni. Á annað þúsund herbergi verða á þessum hótelum og munu þau rúma á þriðja þúsund gesti. Samantektin er ekki tæmandi. Þá er hér aðeins horft til miðborgarinn- ar. Utan hennar er m.a. í undir- búningi að byggja tvö hótel og stækka það þriðja við Suðurlands- braut. Á Héðinsreit og í Vatnsmýri hefur verið rætt um hundruð, ef ekki þúsundir nýrra gistirýma. Loks mætti nefna áform um hótelturn á Kirkjusandsreitnum. 40-50 milljónir á herbergi Sérfræðingur í hótelrekstri sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar segir það nú kosta 40-50 milljónir að byggja herbergi fyrir fjögurra stjörnu hótel í miðborginni. Miðað við þann gæðaflokk gæti kostað 8-10 milljarða að byggja hótelturn á Skúlagötu og 40-50 millj- arða að byggja 1.100 fjögurra stjörnu herbergi í miðborginni. »16 Milljarðar í nýjan turn  Fjárfestar með hótelturn á Skúlagötu Aukning á Norðurlandi » Samkvæmt nýjum tölum Samtaka iðnaðarins voru 87% fleiri íbúðir í smíðum á Akur- eyri í mars en í febrúar í fyrra. » Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir vöxt í ferðaþjónustu eiga þátt í sókn byggingargeirans fyrir norðan.  Jan Erik Messman, fulltrúi á þjóðþingi Danmerkur og í Norðurlandaráði, segir farir sínar ekki sléttar af sam- skiptum við starfsmann Keflavíkurflugvallar í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Segir hann „óþægilega afskipta- saman“ eftirlitsmann við öryggisleit hafa reiðst við sig og framkvæmt óþægilega leit eftir að öryggishlið nam gervihné Jans Eriks, sem er úr málmi. „Þar sem leitin var óþægileg sagði ég aftur að það væri hnéð sem væri vandamálið. Ég hef aldrei upplifað jafn óþægilega manneskju. Hann fór um buxnastrenginn og leitaði í buxunum innanverðum. Allt var skoðað,“ segir í grein Jans Eriks, sem kveðst miður sín. »28 Þingmaður miður sín eftir líkamsleit Jan Erik Messman  Bú Karls Wernerssonar fjárfestis verður tekið til gjaldþrotaskipta á mánudag. Það er vegna tveggja krafna á hendur honum, önnur er frá þrotabúi Milestone og hin frá Tollstjóra. „Þetta mál hefur hangið yfir mér síðastliðin 10 ár en um er að ræða viðskipti sem áttu sér stað fyrir 10 til 13 árum og ágreiningur er aðallega um tæknileg forms- atriði,“ segir hann m.a. við Morgun- blaðið. »22 Karl Wernersson verður gjaldþrota Mistök í innkaupum á netinu geta verið dýrkeypt en þau geta líka verið bráðfyndin. Íslendingar hafa ekki síður en aðrar þjóðir lent í ýmsu skrautlegu í sínum við- skiptum við netverslanir, enda ekki endilega gefið að myndir á netinu segi alla söguna um þá vöru sem berst heim að dyrum. Linda Ólafsdóttir myndskreytir hugðist kaupa kuldaskó handa tveggja ára dóttur sinni. „Þegar kassinn kom sá ég mér til skelf- ingar að skórnir sem ég pantaði í stærð 8 fyrir börn, voru í stærð 8 fyrir fullorðna. Þannig að ég fékk risastóra bleika leikskólakuldaskó sem pössuðu mér!“ Linda er ekki sú eina sem keypt hefur köttinn í sekknum í netvið- skiptum því margir eiga sögur af misheppnuðum innkaupum milli heimsálfa sem þeir deila með les- endum. Ofvaxið barn í bleikum kuldaskóm Litríkir Skórnir voru ætlaðir tveggja ára en komu í fullorðinsstærð. MSunnudagur »14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.