Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Lögregluyfirvöld komu á miðviku-
dag upp um eina umfangsmestu
kannabisrækt á Íslandi til þessa. Að
sögn Karls Steinars Valssonar yfir-
lögregluþjóns lagði lögregla hald á
fullkominn búnað til ræktunar og
standa líkur til þess að ræktuninni
hafi verið ætlað að standa lengi.
Fjórir voru handteknir, einn Ís-
lendingur og þrír Pólverjar. Þeir
hafa ekki komið við sögu íslenskra
lögregluyfirvalda áður. Einn hinna
handteknu var handtekinn á vett-
vangi, en hinir þrír á Suðurlandi og
á höfuðborgarsvæðinu. Einn hinna
þriggja var handtekinn við húsleit í
skrifstofurými í Hafnarfirði, en þar
fundust 1,5 kílógrömm af kannabis-
efnum, e-töflur og kókaín.
Mönnunum hefur öllum verið
sleppt, en ekki þótti ástæða til að
þeir yrðu hnepptir í gæsluvarðhald
enda stóðu rannsóknarhagsmunir
ekki til þess. Ekki fengust upplýs-
ingar um hvort mennirnir hefðu
sakaferil í Póllandi.
Samkvæmt samtölum við íbúa í
Þykkvabæ fór lítið fyrir brotamönn-
unum og komu aðgerðir lögreglu
íbúum því mjög á óvart.
Sjö milljónir ætlaðar tekjur
Aðgerðin var samstarfsverkefni
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og Suðurlandi, embættis ríkislög-
reglustjóra, tollyfirvalda, pólsku
lögreglunnar, m.a. Asset Recovery
Office í Varsjá, og Europol. Alls var
lagt hald á 322 kannabisplöntur og
fullunnið kannabis í litlu magni.
Einnig lagði lögregla hald á 16 kíló
af frosnum kannabislaufum.
„Þetta er með umfangsmeiri mál-
um sem við höfum rannsakað. Bæði
er það fjöldi plantna og umfangið að
öðru leyti. Þarna var sérhæfður
búnaður til að rækta og það var
mikið í þetta lagt greinilega. Þetta
var mjög vandað og greinilega
ræktun sem hefur átt að standa svo-
lítið lengi,“ segir Karl Steinar og
bætir við að það hafi hún gert í þó
nokkurn tíma. Ekki liggur fyrir ná-
kvæmlega hve lengi. „Svo lögðum
við hald á sjö milljónir í reiðufé sem
við teljum vera afrakstur af fram-
leiðslunni,“ segir hann.
Aðgerðin var hluti af rannsókn á
skipulagðri brotastarfsemi og hefur
staðið yfir í nokkra mánuði. Að sögn
Karls Steinars eru teikn á lofti um
breytingar í kannabisræktun hér á
landi og hafa brotamenn náð mjög
góðum tökum á ræktunaraðferðum.
Flutt til Færeyja og Grænlands
„Það eru ákveðnar vísbendingar
um að hér á landi séu brotahópar að
skipuleggja útflutning. Nú þegar
þekkjum við útflutning til Færeyja
og Grænlands, en við höfum ekki
séð útflutning til annarra landa. Það
hefur verið orðrómur um slíkt,“ seg-
ir Karl Steinar en líklegast er að
efnin eigi að fara til meginlands
Evrópu.
Lögregla telur að mennirnir hafi
komið hingað til lands beinlínis í
þeim tilgangi að rækta kannabis til
útflutnings. Einhverjir þeirra hafa
verið búsettir hér á landi í nokkurn
tíma, en aðrir eru tiltölulega ný-
komnir til Íslands.
Komu upp um
umfangsmikla
kannabisrækt
322 plöntur og 7 milljónir í reiðufé
Ætlað til sölu á meginlandi Evrópu
Plöntur Hald lagt á hundruð kanna-
bisplantna og fullunnið kannabis.
Peningar Reiðuféð sem fannst, sjö
milljónir króna, er ætlaðar tekjur.
Magnús Heimir Jónasson
Arnar Þór Ingólfsson
Fulltrúar á þingi Kennarasambands
Íslands (KÍ) vísuðu í gær frá tillögu
um að nýkjörinn formaður KÍ,
Ragnar Þór Pétursson, tæki ekki við
embætti og að formannskosningar
yrðu haldnar að nýju. Þingfulltrúar
klofnuðu í kosningunni og vildu 78
fulltrúar að tillagan yrði tekin fyrir
og 96 að henni yrði vísað frá, sex
fulltrúar tóku ekki afstöðu.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, for-
kona jafnréttisnefndar KÍ, sem lagði
fram tillöguna um nýjar kosningar á
þinginu í fyrradag, segist ekki vita til
þess að niðurstaðan í gær muni
mynda sátt innan KÍ.
„Ég veit það ekki. Ég verð jafn
ósátt með þessa niðurstöðu eftir sem
áður. Við sem stóðum að þessu og
hefðum kosið með þessari ályktun,
og hefðum ekki kosið hann aftur í
annarri umferð kosninga, verðum
auðvitað jafn ósátt og áður, það
breytist ekkert,“ segir Hanna.
Tók við formannsembættinu
Ragnar Þór Pétursson tók form-
lega við formennsku þegar sjöunda
þingi sambandsins lauk í gær.
„Ég mun gera mitt ýtrasta til að
sýna þeirri afstöðu virðingu sem síð-
asta atkvæðagreiðslan snerist um.
Ég heyrði þetta alveg, ég skil ykkur
alveg, þið hafið alveg lög að mæla og
ég mun leggja mig allan fram um að
taka þann bardaga með ykkur sem
þið viljið heyja og birtist í þessum,
hvað skal segja, átökum,“ sagði
Ragnar Þór við þingfulltrúa að kosn-
ingu lokinni.
Spennuþrungin stund á þingi
Það var þungt yfir þingfulltrúum
þegar Mjöll Matthíasdóttir þingfor-
seti las upp áskorunina á verðandi
formann á þinginu. Í fyrstu átti ekki
að opna fyrir umræður um tillöguna
en þingfulltrúinn Jón Ingi Gíslason
tók þá til máls og sagði að það væri á
skjön við reglur um fundarsköp.
Hann benti á að efnislegar tillögur
sem þessar ættu að vera teknar til
umræðu og óskaði eftir því að kosið
yrði með nafnakalli. „Það eru 10 þús-
und fulltrúar hérna úti sem verða að
fá upplýsingar um það hvernig
fulltrúar þeirra greiða atkvæði, því
tillagan er beinlínis árás á okkar fé-
lagsmenn um allt land,“ sagði Jón og
hlaut lófaklapp úr sal fyrir.
Í kjölfarið var ákveðið að opna fyr-
ir umræður og tjáði fjöldi þingfull-
trúa sig um tillöguna. Fundarhald-
inu var streymt í beinni útsendingu á
netinu og fylgdust rúmlega 200
manns með umræðunum þegar mest
lét. „Ég held ég hafi aldrei orðið vitni
að annarri eins aðför að einum
manni. Það er eins og það sé búið að
ákveða hver niðurstaðan verður.
Þetta þing er ekki þverskurður KÍ,“
sagði Ásta Lóa Þórsdóttir.
„Þetta á að vera baráttumál allra
kennara, ekki síst karlmanna í
kennslu, því það er slæmt ef við setj-
um það fordæmi að það sé hægt að
bera okkur sökum, og þótt ítarleg og
viðamikil leit sé gerð þar sem ekki
finnst fótur fyrir ásökunum, að það
geti hrakið okkur úr starfi samt sem
áður,“ sagði Hjördís Albertsdóttir.
Þingfulltrúar merktir á þinginu
Þorgerður L. Diðriksdóttir, for-
maður Félags grunnskólakennara,
sagði það ljóst að þetta mál hefði
klofið þingfulltrúa í tvo hópa. „Bara
það að koma inn á þessa þingsam-
komu og að sitja við tiltekið borð,
það merkir mann. Það merkir mann
því ef þið horfið hér yfir, þegar búið
að greiða atkvæði, þá er það ótrúlega
merkilegt hvað atkvæðin ganga á
borðum, auðvitað einn og einn sem
greiðir atkvæði í algjöru ósamræmi
við borðið,“ sagði Þorgerður.
Þegar leit út fyrir að umræðum
væri lokið og ekki voru fleiri þing-
fulltrúar á mælendaskrá gekk Silja
Kristjánsdóttir að sviðinu og hélt
síðustu ræðuna, þar sem hún sagði
tillöguna um nýjar kosningar vera
verðlausa. „Tillagan er verðlaus, hún
hefur ekkert gildi nema gildishlaðin
hugsanleg skilaboð til hópsins. Hún
er til þess eins fallin að sundra þess-
um hópi sem hér situr og fé-
lagsmönnum heima. Ég legg til að
þessu máli verði vísað frá,“ sagði
Silja. Þingfulltrúar kusu og sem fyrr
segir var málinu vísað frá. Skipting
meðal borða sýndi sig þegar um
helmingur þingfulltrúa fagnaði með
lófaklappi að kosningum loknum.
Morgunblaðið/Valli
KÍ Ragnar Þór Pétursson og Anna María Gunnarsdóttir tóku við embættum fomanns og varaformanns KÍ í gær.
Klofið kennaraþing
vísaði tillögunni frá
Kennarar kusu um hvort kjósa ætti formann að nýju
25 grunnnemar í upplýsinga- og fjöl-
miðlagreinum við Upplýsingatækni-
skóla Tækniskólans heimsóttu í gær
Landsprent, prentsmiðju Morgun-
blaðsins, og kynntu sér starfsemina.
Sófus Guðjónsson, prentari og
kennari við skólann (t.v. á mynd-
inni), leiddi hópinn og Gylfi Geir
Guðjónsson, starfsmaður Lands-
prents, lýsti ferlinu. Prentvélin er af
gerðinni Commander og er frá
þýska fyrirtækinu Koenig & Bauer.
Nemarnir voru sérstaklega hrifnir
af því hve nákvæm prentvélin er
þrátt fyrir stærð sína. Í grunnnám-
inu kynnast nemarnir fjórum grein-
um; prentun, bókbandi, grafískri
miðlun og ljósmyndun. Eftir tvö ár
sérhæfa þeir sig svo í einhverju fag-
anna fjögurra.
Smáatriðin
heilluðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mannbjörg varð undan ströndum
bæjarins Mehamn í norðurhluta
Noregs í gærkvöldi. Engu mátti
muna að Íslendingur á báti drukkn-
aði en hann flaut í björgunarhring í
gallabuxum þegar honum var
bjargað úr sjónum.
Sigurður Hjaltested var við veið-
ar á bátnum Nero og hringdi í fé-
laga sinn, Kjartan Jóhannsson, þeg-
ar hann tók eftir því að báturinn
var farinn að taka inn á sig vatn.
Kjartan hringdi beint eftir aðstoð
björgunarskips á svæðinu en það
var komið á vettvang 20 mínútum
síðar.
„Báturinn sökk fimm mínútum
eftir að Sigurður hringdi í mig en
það var annar fiskibátur á svæðinu
sem veiddi hann upp úr sjónum,“
sagði Kjartan m.a. við mbl.is í gær-
kvöldi. johann@mbl.is
Íslendingi bjargað
úr sjávarháska