Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Óli Björn Kárasonalþingismaður vakti athygli á því í umræðum á þingi í gær að munurinn á ráðstöfunartekjum launþega, þ.e. því sem launþegi heldur eftir af launum sín- um, og kostnaði at- vinnurekenda við þann launþega, hefur verið að aukast.    Benti hann sérstaklega á veru-lega hækkun mótframlags at- vinnurekenda í lífeyrissjóð í þessu sambandi, en háir skattar á tekjur og tryggingagjald hafa sambærileg áhrif.    Óli Björn sagði miklu skipta aðþingmenn stigju „skref í þá átt að minnka þennan mun. Það er með- al annars gert með því að lækka álögur á launafólk, með því að lækka tekjuskatt, með því að hækka persónuafsláttinn og hafa hann stig- lækkandi.“ Auk þess „með því að lækka tryggingagjaldið.“    Þessi ábending Óla Björns á mik-inn rétt á sér. Afar óheppilegt er þegar munurinn á ráðstöfunar- tekjum launþega og kostnaði fyrir- tækis af launþeganum, skattafleyg- urinn svokallaði, er mikill.    Þegar þannig háttar til dregur úreftirspurn eftir starfsfólki, sem þýðir með öðrum orðum að atvinnu- tækifærum fækkar.    Þetta felur líka í sér að hækkunráðstöfunartekna verður minni en ella, sem veldur almenningi erfið- leikum og gerir kjaraviðræður að auki erfiðari.    Óskandi væri að fleiri þingmennlegðust á sveif með skattgreið- endum í störfum sínum á Alþingi. Óli Björn Kárason Skattafleygurinn er að aukast STAKSTEINAR Veður víða um heim 13.4., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 7 léttskýjað Akureyri 10 skýjað Nuuk -2 skýjað Þórshöfn 8 léttskýjað Ósló 14 heiðskírt Kaupmannahöfn 14 heiðskírt Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 9 heiðskírt Lúxemborg 14 léttskýjað Brussel 15 skýjað Dublin 9 súld Glasgow 7 þoka London 10 alskýjað París 17 léttskýjað Amsterdam 9 þoka Hamborg 12 heiðskírt Berlín 20 skúrir Vín 21 heiðskírt Moskva 8 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 13 skýjað Barcelona 14 skýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 21 heiðskírt Winnipeg -5 léttskýjað Montreal 6 alskýjað New York 23 heiðskírt Chicago 10 léttskýjað Orlando 25 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:59 20:58 ÍSAFJÖRÐUR 5:55 21:12 SIGLUFJÖRÐUR 5:38 20:55 DJÚPIVOGUR 5:26 20:30 Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur og Öryrkjabandalag Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkir eru veittir til: • Öryrkja vegna hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. • Einstaklinga sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu fólks með þroskahömlun. Sótt er um rafrænt á heimasíðu ÖBÍ, obi.is. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð á skrifstofu Öryrkjabandalags Íslands, Sigtúni 42, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk. Upplýsingar um styrkúthlutun liggja fyrir eigi síðar en 28. maí. Allar nánari upplýsingar gefa Kristín Margrét Bjarnadóttir, kristin@obi.is, eða starfsmenn móttöku hjá ÖBÍ, mottaka@obi.is, og í síma 530 6700. E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 4 9 Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur Styrkumsóknir 2018 „Ég er búinn að fá mest allt úrgeymslunni. Það var búið að setja þaðí gám, plastað og á brettum. Ég á eft- ir að skoða þetta betur, en það er sót og raki í þessu. Ég á svo enn eftir að fá eitthvert dót í viðbót,“ segir Björg- vin Halldórsson tónlistarmaður í samtali við Morgunblaðið en hann var meðal þeirra fjölmörgu sem áttu muni í geymsluhúsnæðinu að Mið- hrauni 4 í Garðabæ, sem brann til kaldra kola í síðustu viku. Það sem starfsmönnum Geymslna ehf. tókst að bjarga úr hluta 1. hæðar hússins hefur verið afhent eigendum, að sögn Ómars Jóhannssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Sigríður Beinteinsdóttir tónlistar- maður segir að hún hafi líka fengið það sem heillegast var í sinni geymslu, en err vondauf þar sem það virðist vera ónýtt. „Þetta er allt renn- andi blautt og sótugt, ég held að það sé bara ónýtt, en á eftir að gramsa eitthvað betur í því.“ Á vefsíðu Geymslna segir að hús- næðið sé nú lokað og verði þannig áfram þar til búið er að koma því í öruggt ástand. Til stendur að rífa hluta af annarri og þriðju hæð. „Reynt verður að haga niðurrifi með þeim hætti að lágmarka mögu- legt tjón á munum þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Nánara fyrirkomulag vegna jarðhæðarinnar verður ákveð- ið þegar húsið er öruggt og þá metið samkvæmt ástandi þess,“ segir á vef Geymslna. ernayr@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Miðhraun Brunarústunum hefur verið lokað til að tryggja öryggi. Munir af- hentir úr Miðhrauni  „Allt rennandi blautt og sótugt“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.