Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 10

Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 10
citroen.is Verðlaunabíllinn Citroën C3 er hlaðinn þægindum, lofi og búnaði. Með 300 lítra skotti, nýjustu kynslóð sparneytinna véla, undurþýðri sjálfskiptingu sem gerir hann silkimjúkan í akstri ert þú klár í þitt ævintýri. C3 er fáanlegur með Apple Car Play og Mirror Link sem gerir þér kleift að spegla helstu forrit snjallsímans eins og t.d. Google Maps á 7“ snertiskjáinn. Punkturinn yfir i-ið er svo vegmyndavélin ConnectedCam sem þú getur notað til fanga dýrmæt augnablik. KOMDU OGMÁTAÐU CITROËN C3 C3 LIVE BEINSKIPTUR FRÁ 2.090.000KR. C3 FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ 2.520.000 KR. Yfir 25 alþjóðleg verðlaun • Vegmyndavél • Nálægðarskynjarar • Blindpunktsviðvörunarkerfi • Brekkuaðstoð • Hliðarvörn •Breið og þægileg sæti • Isofix festingar • Rúmgott skott • Sparneytinn Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 CITROËN ÞÆGINDI CITROËN C3 Hlaðinn lofi og búnaði Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að fallist verði á þá ósk Knattspyrnufélagsins Vík- ings að gervigras verði lagt á að- alvöll félagins í Fossvogi í stað endurnýjunar á eldri grasvöllum. Íþrótta- og tómstundaráði og skrifstofu eigna og atvinnuþróun- ar borgarinnar var jafnframt fal- ið að undirbúa tillögu um breyt- ingu á fjárfestingaáætlun til samræmis við þessi áform. Samkvæmt samkomulagi Vík- ings og Reykjavíkurborgar átti að endurgera og lagfæra grasæf- ingasvæði félagsins fyrir tæpar 70 milljónir nú í vor. Fram kem- ur í bréfi Björns Einarssonar, formanns Víkings, til borgar- stjóra að það sé skýr ósk félags- ins að þessi fjárveiting verði not- uð upp í kostnað við að setja fullkomið gervigras á aðalvöll fé- lagsins haustið 2018 með tilheyr- andi lýsingu, hitalögnum, vökv- unarbúnaði og girðingum kringum völlinn. Þetta sé niður- staða félagsins eftir ítarlega skoðun og samtal undanfarnar vikur. „Við teljum að Víkingur sé að taka skref inn í framtíðina með þessari ákvörðun,“ segir Har- aldur V. Haraldsson, fram- kvæmdastjóri félagsins. Grasvöll- urinn nýtist takmarkað til æfinga en með gervigrasvelli og góðri flóðlýsingu muni völlurinn nýtast allt árið. Einnig sé litið til þess að keppnistímabilið sé að lengjast frá vori fram á haust og það skipti einnig máli. Kostnaður við allar framkvæmdir á svæðinu er áætlaður á þriðja hundrað millj- ónir króna. „Við Víkingar erum mjög þakk- látir Degi B. Eggertssyni borg- arstjóra og borgaryfirvöldum fyr- ir að taka svona vel í erindi okkar,“ segir Haraldur. Af úrvalsdeildarliðum Reykja- víkur er Valur nú þegar kominn með gervigrasvöll. Gervigras verður lagt á Fylkisvöllinn á þessu ári en KR og Fjölnir leika kappleiki á náttúrulegu grasi. Gervigras á Víkingsvöll  Hægt verður að nota völlinn til æf- inga allt árið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fossvogur Víkingar hafa leikið kappleiki í Víkinni á náttúrulegu grasi. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Samþykkt var á vel sóttum stofn- fundi nýs bæjarmálafélags í Vest- mannaeyjum í fyrrakvöld að bjóða fram lista í sveitarstjórnarkosningun- um 26. maí næstkomandi. Félagið heitir Fyrir Heimaey. Leó Snær Sveinsson var kjörinn formaður félagsins og önnur í stjórn voru kosin Kristín Hartmannsdóttir, Kristín Ósk Óskarsdóttir, Rannveig Ísfjörð og Leifur Gunnarsson. Heimaey mun nú setja saman fram- boðslista og stefnt er að því að hann verði kynntur sunnudaginn 22. apríl nk. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum ákvað á fundi sín- um á miðvikudagskvöld, að tillögu El- liða Vignissonar, bæjarstjóra og odd- vita flokksins í Eyjum, að Elliði mundi ekki skipa fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi bæj- arstjórnarkosningum, líkt og hann hefur gert í síðustu þrennum kosn- ingum. Elliði verður nú í fimmta sæti listans. Hildur Sólveig Sigurðardótt- ir, forseti bæjarstjórnar, skipar fyrsta sætið á lista flokksins og Helga Kristín Kolbeins og Eyþór Harðarson koma ný inn í efstu sæti listans, en Páll Marvin Jónsson, for- maður bæjarráðs skipar nú áttunda sætið. Elliði sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að hann hefði gert þessa tillögu á fundi fulltrúaráðsins, vegna þess að hann teldi að þau sjónarmið sjálfstæðismanna í Eyjum, utan bæj- arfulltrúahópsins, um að hætta væri á lýðræðishalla, þegar sami maðurinn væri í fyrsta sæti listans, væri með langmestu reynsluna og bæjarstjóri að auki, ættu við ákveðin rök að styðjast og hann hefði því viljað bregðast við slíkri gagnrýni með því að færa sjálfan sig niður í 5. sæti á listanum og á þetta hefði verið fallist, bæði af félögum hans í bæjarstjórn, í nefndum bæjarins og loks í fulltrúa- ráðinu, þótt hann hefði verið hvattur eindregið til þess að skipa áfram fyrsta sæti listans. Aðspurður hvort hann liti þannig á að 5. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Eyjum væri baráttusæti sagði Elliði: „Nei, þvert á móti. Við lítum svo á, að 5. sætið sé sæti fyrsta varabæjarfull- trúa, þannig að það sem við erum að tryggja með þessu, er að bæjarstjór- inn, í þessu tilviki ég, á þá afl mitt undir umboði annarra.“ Hátt í 200 manns hafa skorað á Ír- isi Róbertsdóttur að leiða framboðs- lista hins nýja félags. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hún væri afskaplega þakklát fyrir það traust og þá hvatningu sem henni hefði verið sýnd. Hún ætlaði sér einn til tvo daga til að hugsa málið. „Þetta var mjög skemmtilegur stofnfundur og hann vel sóttur. Ég held að á milli 110 og 120 manns hafi sótt fundinn,“ sagði Íris. Fram hefur komið að Íris á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Í 4. gr. skipulagsreglna flokksins segir: „Flokksbundnum sjálfstæðismönnum er með öllu óheimilt að sitja á fram- boðslistum annarra framboða sem bjóða fram gegn framboðslista Sjálf- stæðisflokksins. Sitji flokksbundinn einstaklingur á öðrum framboðslista skal hann fjarlægður úr flokksskrá.“ Fyrr í vikunni spurði Morgunblað- ið Írisi hvað hún hygðist gera varð- andi miðstjórnarsetu sína, ef hún tæki sæti á nýja framboðslistanum, og svaraði hún því til að ef það yrði, myndi hún ekki brjóta skipulagsregl- ur flokksins. eyjar.net/TMS Heimaey Stofnfundur bæjarmálafélagsins Heimaeyjar í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld var vel sóttur. Íris íhugar áskoranir í einn til tvo daga  Elliði lagði til að hann skipaði 5. sæti listans í Eyjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.