Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Þrátt fyrir mörg börn á biðlista
eftir leikskólaplássi nú þá er ekki
óvissa um hvenær þau komast að,“
segir Skúli
Helgason, borg-
arfulltrúi Sam-
fylkingarinnar í
skóla- og frí-
stundaráði
Reykjavíkur, í
samtali við
Morgunblaðið.
Hann segir að
1.310 börn sem
nú séu á leikskól-
unum muni hætta í ágúst og fara í
grunnskóla. Þá muni 1.155 börn af
biðlistanum fædd á árunum 2013-
2016, ásamt öllum börnum fæddum
í janúar og febrúar 2017, komast
inn á leikskólana.
„Það er búið að ákveða og
tryggja fjármagn fyrir ný leik-
skólarými handa um 125 börnum
hjá borginni í haust og líkur eru á
rúmlega 90 nýjum rýmum að auki í
sjálfstætt starfandi leikskólum
borgarinnar,“ segir Skúli og að þá
megi reikna með að einungis 150-
160 börn verði ekki komin með
leikskólarými. Hann segir að sum
börn á listanum gætu verið tvítalin
því ýmsir hafi sótt um bæði hjá
borginni og hjá sjálfstætt starfandi
leikskólum í von um pláss.
Grunnskólinn
tekur við í haust
Biðlisti leikskóla borgarinnar ýktur
Morgunblaðið/Hari
Leikskóli Vegasalt á Mánagarði.
Skúli Helgason
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Njóttu bakstursins,
við hreinsum fötin
Við erum sérfræðingar í erfiðum blettum
VINSÆLU PRISTU BUXURNAR FRÁ
MATINIQUE ERU KOMNAR AFTUR!
12.995,-VERÐ
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fis létt i r
dúnjakkar
frá 19.900,-
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
MID SEASON
S A L E
40% afsláttur af völdum vörum!
Opið í dag kl. 11-16
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
30% afsláttur
af völdum vörum
30%
Stjórn Faxaflóahafnar sf. tók í gær
fyrir erindi Nýs Landspítala þar sem
óskað er eftir mati Faxaflóahafna á
möguleikanum á að taka á móti efni til
landfyllinga vegna framkvæmda við
nýjan spítala á árunum 2018 til 2020.
Um 200.000 m3 af efni er að ræða og
reiknað með að um 80% efnisins verði
nýtanleg til landfyllinga.
Í niðurstöðu Faxaflóahafna kemur
fram að hægt væri að nýta hluta land-
fyllingarinnar sem aðkomu að ylströnd
og móta mun stærri ylströnd með
meiri útivistarmöguleika en hægt er á
svæði við Skarfaklett.
„Samþykki Reykjavíkurborgar og
ákvörðun um málsmeðferð er forsenda
þess að unnt sé að fara í nauðsynlegar
skipulagsaðgerðir í þessu efni og sú
vinna þyrfti að ganga snurðulaust fyrir
sig til þess að framkvæmdin komi að
gagni í tengslum við verkefni NLSH,“
segir m.a. í niðurstöðu Faxaflóahafna.
Nýr Landspítali Faxaflóahafnir
íhuga að nota efni til landfyllingar.
Jarðefnið
gæti nýst til
landfyllingar
Mesta samkeppnin er á milli þeirra
frambjóðenda sem bjóða sig fram í
2. og 3. sætið í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Rangárþingi ytra í dag.
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri býð-
ur sig einn fram í forystusætið.
Prófkjörið fer fram í dag, kl. 10
til 18, í Miðjunni á Hellu.
Sjálfstæðismenn hafa meirihluta
í sveitarstjórn Rangárþings ytra,
fjóra fulltrúa af sjö. Tveir þeirra
gefa ekki kost á sér áfram.
Sjö sækjast eftir að komast í
efstu sætin, á eftir sveitarstjór-
anum. Meðal þeirra er Haraldur Ei-
ríksson, formaður byggðaráðs.
Björk Grétarsdóttir og Heimir
Hafsteinsson sækjast eftir stuðn-
ingi í 2. sætið og Hrafnhildur Val-
garðsdóttir og Sævar Jónsson sækj-
ast eftir því sæti eða næstu fyrir
neðan. Hugrún Pétursdóttir og
Hjalti Tómasson nefna 3. sætið og
næstu sæti. Sindri Snær Bjarnason
sækist eftir stuðningi í 4.-5. sæti og
Ína Karen Markúsdóttir og Helga
Fjóla Guðnadóttir nefna 5. sætið.
helgi@mbl.is
Keppt um 2.-4. sætið í prófkjöri
Skólarútan í Fjalla-
byggð fer kl. 7.40
Ríkey Sigurbjörnsdsdóttir, deildar-
stjóri fræðslu-, frístunda- og menn-
ingarmála hjá Fjallabyggð, hefur
óskað eftir því að eftirfarandi verði
birt vegna fréttar í blaðinu í fyrra-
dag um íbúakosningu um skóla-
akstur: „Haft var eftir íbúa í frétt-
inni að foreldrar séu farnir að mæta
of seint í vinnu þar sem skólarúta
fari af stað kl. 8.30. Þetta er ekki
rétt. Skólarúta fer með eldri nem-
endur frá Siglufirði kl. 7.40 til Ólafs-
fjarðar þar sem skólastarf hefst kl.
8.10 og skólarúta fer frá Ólafsfirði
með yngri nemendur kl. 8.05.
Þar að auki er boðið upp á gæslu í
skólahúsinu á Siglufirði frá kl. 8.00
þar til skólastarf yngri barna hefst
kl. 8.30.
Það er því rangt sem haft er eftir
Sigríði Vigdísi [Vigfúsdóttur] hvað
þetta varðar.“
ATHUGASEMD