Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Reynir Sveinsson
Sandgerði
Nú fer að styttast í að íbúar
fái að kjósa um nafn á sameinuðu
sveitarfélagi Sandgerðisbæjar og
sveitarfélagsins Garðs. Ekki hefur
verið birt hvaða nöfn koma til greina
en á fjórða hundrað tillögur komu
fram er auglýst var eftir hugmyndum
að nafni. Menn hafa verið að gantast
með alls konar nöfn. Sú kvöð er á
nafni hins nyja sveitarfélags að í
nafninu má ekki vera Sand- eða
Garður. Það er þó sama hvaða nafn
verður valið, áfram verður notast við
nöfnin Sandgerði og Garður. Þetta
mun allt skýrast á næstu vikum.
Nú er svo komið að mikill
skortur er á íbúðarhúsnæði í Sand-
gerði fyrir ungt fólk og erlent verka-
fólk sem starfar í fiskvinnslu og við
þjónustu á flugstöðvarsvæðinu. Til að
reyna að anna eftirspurn er nú víða
verið að standsetja íbúðir. Má þar
nefna fyrrverandi verslun og veit-
ingastað. Og fyrir nokkrum mán-
uðum var fyrrverandi banka og póst-
húsi breytt í gistiheimili. Nú eru í
byggingu 24 íbúðir og úthlutað hefur
verið 25 lóðum, ýmist fyrir raðhús
eða einbýlishús. Hafin er hönnun á
nýju hverfi ofan og sunnan við
íþróttasvæðið. Þar verða lóðir fyrir
400 íbúðir og er áætlað að fyrsti hluti
þessa hverfis verði tilbúinn í haust.
Til að leysa brýnasta vandann
fyrir einstaklinga og fjölskyldur
ákvað bæjarstjórn að kaupa sex
gámahúseiningar sem settar hafa
verið upp. Flutt hefur verið inn í öll
húsin sem eru vönduð og hlýleg. Hús-
in eru í umsjá félagsþjónustu bæj-
arins og er áætlað að viðkomandi íbúi
búi þarna í þrjú ár eða þar til viðkom-
andi kemst í stærra húsnæði.
Hún hefur ekki farið framhjá
Suðurnesjamönnum hin geysilega
bílaumferð sérstaklega í og við Flug-
stöðina á Miðnesheiði. Þar eru öll
bílastæði full og hefur verið gripið til
þess ráðs að leggja bílum á ólíkleg-
ustu stöðum. Sumstaðar eru bílar í
hektaravís víða um bæjarfélögin á
Suðurnesjum. Er orðið mjög aðkall-
andi að fjölga stæðum, enda ferða-
mönnum alltaf að fjölga.
Á næstu vikum hefjast fram-
kvæmdir við að reka niður nýtt stál-
þil við suðurgarð. Þar er fyrsta stál-
þilið sem var rekið niður fyrir um 45
árum og er orðið mjög illa farið, stálið
í nýja þilið kom til Sandgerðis á síð-
asta ári. Fjórir buðu í þessa fram-
kvæmd. Eitt af því sem þarf að gera
er að steypa nýja þekju. Kostnaðar-
áætlun er um 122 milljónir en lægsta
tilboð í verkið er 105 milljónir. Áætl-
að er að verkið klárist á hausti kom-
anda.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sameinuð Það eru aðeins fimm kílómetrar milli Sandgerðis og Garðs en þessi tvö bæjarfélög hafa nú sameinast.
Nýtt bæjarfélag verður til
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hann var notaður hér í þrjú ár. Ég
hefði viljað notað hann meira en þeg-
ar eitthvað gott verður til vilja fleiri
komast með puttana í það. Við vorum
heldur treg til að láta hann en það
varð úr,“ segir Axel Jóhannesson,
bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði,
um hrútinn Vála sem Ráðgjafarmið-
stöð landbúnaðarins (RML) valdi sem
mesta kynbótahrút ársins.
Félagsbúið á Gunnarsstöðum er
ræktandi Vála en að búinu standa
systkinin Axel og Sigríður Jóhannes-
börn og makar þeirra, Valgerður
Friðriksdóttir og Júlíus Þröstur Sig-
urbjartsson. Faðir þeirra, Jóhannes
Sigfússon, er heldur ekki langt undan
með sínar ær og hesta.
Tilkynnt var um val á besta kyn-
bótahrútnum á aðalfundi Landssam-
taka sauðfjárbænda og einnig um val
á besta lambaföðurnum. Síðarnefndu
viðurkenninguna fengu ræktendur
Barkar frá Efri-Fitjum í Fitjárdal,
hjónin Gunnar Þorgeirsson og Gréta
Brimrún Karlsdóttir. Börkur er tal-
inn einn af mestu kostagripum stöðv-
anna til framræktunar á helstu úr-
valseiginleikum.
Hafði augastað á Vála
Váli var fæddur árið 2010. Hann
var fyrst notaður í þrjú ár á Gunn-
arsstöðum en kom til notkunar á sæð-
ingastöð sumarið 2013 eftir að hafa
sýnt góðan árangur sem lambafaðir.
Hann er undan kynbótahrútnum
Stála. Axel segir að Eyjólfur Bjarna-
son ráðunautur hafi verið að leita að
hrút undan Stála fyrir sæðingastöðv-
arnar og haft augastað á Vála vegna
ætternis hans að öðru leyti.
RML rökstyður valið á Vála sem
mesta alhliða kynbótahrútnum með
því að segja afkvæmi hans hafi komið
vel út í kjötmati, auk góðs þroska
þeirra og hóflegrar fitusöfnunar.
Kostir hans sem ærföður eru taldir
ótvíræðir.
Hefði viljað nota
hrútinn meira
Hrútarnir Váli frá Gunnarsstöðum og
Börkur frá Efri-Fitjum verðlaunaðir
Börkur Hann er einn af mestu
kostagripum sæðingastöðvanna.
Ljósmynd/RML
Váli Hróður hans sem ærföður hef-
ur vaxið stöðugt síðustu árin.
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
L-listi óháðra í Rangárþingi eystra
hefur verið kynntur og verður
Christiane L. Bahner, lögmaður og
sveitarstjórnarfulltrúi, í efsta sæti
hans. Þetta er í annað sinn sem
framboðið býður fram í sveitarfé-
laginu, en það náði inn einum full-
trúa í síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum.
Í 2. sæti listans er Arnar Gauti
Markússon, leiðsögumaður. Anna
Runólfsdóttir, bóndi og verkfræð-
ingur er í 3. sæti og Guðmundur
Ólafsson, lífrænn bóndi, í því 4.
L-listi kynntur í
Rangárþingi eystra
Miðflokkurinn og
óháðir í Mosfellsbæ
bjóða fram í sveit-
arstjórnarkosning-
unum þann 26. maí
næstkomandi.
Sveinn Óskar Sig-
urðsson, MSc í fjár-
málum fyrirtækja,
mun leiða listann.
Í tilkynningu frá framboðinu seg-
ir að markmið þess sé að ná fram
hagræðingu í rekstri sveitarfé-
lagsins og efla þar þjónustu.
Sveinn Óskar leiðir
X-M í Mosfellsbæ
Alþýðufylkingin hefur kynnt efstu
fimm sætin á lista sínum fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor.
Flokkurinn býður fram undir lista-
bókstafnum R.
Þorvaldur Þorvaldsson trésmið-
ur mun leiða listann. Í öðru sæti er
Tamila Gámez Garcell kennari og
þriðja sætið skipar Vésteinn Val-
garðsson stuðningsfulltrúi.
Í fjórða sæti er Claudia Overesch
skrifstofumaður og það fimmta
skipar Gunnar Freyr Rúnarsson
sjúkraliði.
Efstu fimm sæti R-
listans í Reykjavík
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Þrátt fyrir að sauðfjárbúið á Gunn-
arsstöðum sé tiltölulega stórt og
féð gott og afurðasamt þurfa allir
bændurnir sem að því standa að
vinna utan heimilis, eins og staðan
er í sauðfjárræktinni nú. „Það er
borin von að geta framfleytt fjöl-
skyldunni með þessu og borgað
niður lánin,“ segir Axel Jóhannes-
son.
Tvær fjölskyldur standa að búinu
en þar eru 1.270 fjár á fóðrum í vet-
ur. Þau keyptu sig inn í búið fyrir
rúmum fimm árum og eru enn að
kljást við lánin.
Lækkun á afurðaverði til bænda
síðasta haust kom illa við bændur.
Axel segir að stuðningur ríkisins
um áramót hafi hjálpað en hann
bendir á að vandinn sé ekki leystur
til frambúðar. Verslunin sé enn að
keyra verðið niður og orðrómur sé á
sveimi um að sláturleyfishafar muni
lækka verðið enn frekar til bænda á
hausti komanda.
Bændurnir á Gunnarsstöðum búa
svo vel að stutt er í næsta þéttbýli,
Þórshöfn, þar sem mikla vinnu er
að hafa. Sum vinna þar fulla vinnu
en önnur stunda íhlaupavinnu. Því
fylgir mikið álag, til viðbótar bú-
rekstrinum. „Við höldum sjó en
munum ekki gera það endalaust.
Það er tilgangslaust að slíta sér út
fyrir þetta ef maður sér ekki fyrir
horn með reksturinn,“ segir Axel.
Hann segist verða var við að
margir bændur séu að hinkra við og
meta stöðuna. „Það er í fyrsta
skipti núna sem maður heyrir
bændur tala í alvöru um að hætta
búskap og það ansi víða. Það mun
hafa slæm áhrif á sveitirnar ef
margir láta verða af því,“ segir Axel.
Margir tala um að hætta
VANDAMÁL Í SAUÐFJÁRRÆKT