Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
14. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 98.34 98.8 98.57
Sterlingspund 140.53 141.21 140.87
Kanadadalur 78.27 78.73 78.5
Dönsk króna 16.282 16.378 16.33
Norsk króna 12.661 12.735 12.698
Sænsk króna 11.671 11.739 11.705
Svissn. franki 102.23 102.81 102.52
Japanskt jen 0.9133 0.9187 0.916
SDR 143.0 143.86 143.43
Evra 121.26 121.94 121.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.8431
Hrávöruverð
Gull 1345.9 ($/únsa)
Ál 2219.5 ($/tonn) LME
Hráolía 72.09 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Meðalfjárfest-
ing ferðaþjónustu-
fyrirtækja á ár-
unum 2015 til
2017 var 72 millj-
arðar króna á ári
sem er 3,5-falt
meira en meðal-
fjárfesting áranna
1990 til 2014 á
föstu verðlagi.
Þetta kemur fram
í Hagsjá Landsbankans. Fjárfesting í
flugvöllum, flugsamgöngum, hótel-
og veitingarekstri, flutningaþjónustu,
starfsemi ferðaskrifstofa og flutn-
ingamiðlun nam 74 milljörðum á síð-
asta ári, sem er eilítið minna en árið
2016 þegar fjárfestingin nam 80
milljörðum en nokkuð meira en árið
2015 þegar hún nam 63 milljörðum
króna.
Miklar fjárfestingar endurspegla
þann mikla vöxt sem verið hefur í ís-
lenskri ferðaþjónustu á síðustu árum
en útflutningur ferðaþjónustunnar
nam 19,6% af heildarútflutningi
landsins árið 2009 en var kominn
upp í 42% árið 2017.
Fjárfesting í ferðaþjón-
ustu langt yfir meðaltali
Flug Mikið fjárfest
í ferðaþjónustunni.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Páll Harðarson, forstjóri Kauphall-
ar Íslands, segir að fyrirtæki á ís-
lenskum hlutabréfamarkaði hafi lík-
lega búið við minna aðhald að
stjórnarháttum en fyrirtæki á ná-
lægum mörkuðum vegna einsleits
hóps fjárfesta og takmarkaðrar
þátttöku erlendra fjárfesta. Þetta
hafi einnig að líkindum seinkað því
að straumar og stefnur á alþjóða-
vettvangi hafi náð fótfestu meðal
fyrirtækja og fjárfesta hérlendis.
Hann segir að eftir því sem eign-
arhaldið verði margbreytilegra
verði, að öðru óbreyttu, ákallið
sterkara eftir formlegri umgjörð um
stjórnarhætti til að tryggja jafnræði
hluthafa. Sérstaklega megi vænta
þess að utanaðkomandi aðilar sem
njóti ekki sambærilegs tengslanets
á viðkomandi markaði og áhrifa-
mestu innlendu fjárfestarnir, kalli
eftir slíkri umgjörð.
Eaton Vance vill nefndir
Páll bendir á að bandaríska sjóða-
stýringafyrirtækið Eaton Vance,
sem hefur fjárfest nokkuð í íslensk-
um fyrirtækjum, hafi í vor lagt fram
tillögu um svokallaða tilnefningar-
nefnd á aðalfundum fjögurra
skráðra fyrirtækja þar sem sjóðir í
stýringu fyrirtækisins eiga hags-
muna að gæta. Þetta var gert, að
sögn Páls, með vísan í að tilnefning-
arnefndir væru meðal mikilvægustu
stoða góðra stjórnarhátta. Tillagan
hafi verið samþykkt í öllum tilvik-
um.
Tilnefndingarnefnd er að sögn
Páls, oftast skipuð af hluthafafundi,
og á að koma með tillögu að stjórn-
armönnum fyrir aðalfund. Öðrum er
þó eftir sem áður frjálst að bjóða sig
fram til stjórnarsetu.
„Þessi nefnd tekur við tillögum
frá hluthöfum, og á að stuðla að
auknu gagnsæi við skipan stjórnar.
Einnig á hún að tryggja að heild-
stætt mat fari fram á þörfum fyr-
irtækisins hvað varðar þekkingu og
fjölbreytni í stjórnarháttum. Þetta
hefur náð góðri fótfestu á sænska
markaðnum, og ég á von á því að um
helmingur fyrirtækja á íslenska að-
almarkaðnum verði kominn með
slíka nefnd fyrir aðalfund 2019,“
segir Páll í samtali við Morgunblað-
ið, en hann á von á að nefndirnar
gætu aukið traust meðal fjárfesta á
markaði.
Aðhald að stjórnar-
háttum minna hér
Morgunblaðið/Þórður
Upplýsingar Lífeyrissjóðirnir mættu, að sögn Páls, stórauka upplýs-
ingagjöf um samskipti við þau fyrirtæki sem þeir fjárfesta í.
Stjórnarhættir
» Sýn, Skeljungur og Origo
eru með tilnefningarnefndir.
» Hvetja þarf almenning til að
fjárfesta í félögum í Kauphöll.
» Miðað við nágrannalöndin
væri hægt að þre- eða fjórfalda
beina þátttöku almennings á
hlutabréfamarkaði.
»L ífeyrissjóðir birti upplýs-
ingar um tengsl framkvæmda-
stjórnar og stjórnar við þau
félög sem fjárfest er í.
Forstjóri Kauphallar segir ástæðuna einsleitni fjárfesta
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Mikið úrval af flottum
HUNDARÚMUM
– fyrir dýrin þín
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Bú Karls Wernerssonar, sem var einn
umsvifamesti fjárfestir landsins fyrir
hrun, verður tekið til gjaldþrota-
skipta á mánudaginn. Ástæða þess
eru tvær kröfur á hendur honum,
önnur frá
þrotabúi Mile-
stone og hin frá
Tollstjóra, að því
er Karl upplýsir
Morgunblaðið um
í tölvupósti. Stein-
grímur bróðir
hans var úrskurð-
aður gjaldþrota á
liðnu ári.
Fram hefur
komið í fjölmiðl-
um að Lyf og heilsa sé ekki lengur í
eigu Karls heldur á sonur hans nú
fyrirtækið.
„Þetta mál hefur hangið yfir mér
síðastliðin 10 ár en um er að ræða við-
skipti sem áttu sér stað fyrir 10 til 13
árum síðan og ágreiningur er aðal-
lega um tæknileg formsatriði. Á
næstu mánuðum kemur í ljós hver
endanleg fjárhæð krafna í þrotabú
mitt verður en væntingar mínar
standa til þess að ég fái bú mitt afhent
á ný til frjálsra umráða. Tíminn einn
mun þó leiða það í ljós en þá verður
þessu máli allavega lokið,“ segir Karl.
Krafan frá þrotabúi Milestone, sem
Karl fór fyrir í aðdraganda fjármála-
hrunsins, er frá árinu 2005. Þrotabúið
fékk dóm fyrir þeirri kröfu á Karl
sem hefur verið áfrýjað og fer mál-
flutningur í Hæstarétti fram nú í maí,
að því er hann upplýsir.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
Karl og Steingrímur ásamt Guð-
mundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra
Milestone, hafi verið dæmdir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur til að greiða
þrotabúi Milestone 5,2 milljarða auk
vaxta og verðbóta fyrir að hafa látið
fjárfestingafélagið fjármagna kaup
bræðranna á hlutafé Ingunnar, syst-
ur sinnar, í Milestone. Síðastliðið vor
sögðu fjölmiðlar að skuldin næmi orð-
ið tíu milljörðum króna. Áður höfðu
þremenningarnir hlotið fangelsisdóm
í tengslum við sömu viðskipti. Karl
var dæmdur í fangelsi í þrjú ár og sex
mánuði, Steingrímur í tveggja ára
fangelsi og Guðmundur í þriggja ára
fangelsi.
Að sögn Karls er krafa Tollstjóra
byggð á úrskurði yfirskattanefndar
sem snýr aðallega að vöxtum og því
hvort arðgreiðslur sem greiddar voru
tekjuárin 2006 til 2008 eigi að flokka
sem slíkar eða sem aðrar ótilgreindar
tekjur. Hann segist hafa gefið um-
ræddar tekjur upp og greitt af þeim
fjármagnstekjuskatt á réttum tíma.
Eins og fyrr segir var Karl um-
svifamikill í viðskiptalífinu á árunum
fyrir hrun. Eigið fé Milestone, sem
var í eigu Karls og Steingríms, var
69,5 milljarðar króna í árslok 2007. Á
meðal dótturfélaga Milestone voru
tryggingafélögin Sjóvá og Moderna,
bankarnir Askar Capital og Banque
Invik auk eignastýringafélagsins In-
vik Funds. Milestone átti þá 10% hlut
í sænska fjárfestingabankanum
Carnegie.
Karl Wernesson
verður gjaldþrota
Kröfur frá Milestone og Tollstjóra
Karl
Wernersson
Sonurinn á Lyf og heilsu
» Karl seldi syni sínum Lyf og
heilsu á síðasta ári.
» Eigið fé Milestone, fjárfest-
ingafélags Karls, var 69,5 millj-
arðar króna í árslok 2007.
● Ríkissjóður hef-
ur keypt til baka
eigin skuldabréf
fyrir 27 milljarða
króna af Seðla-
bankanum. Upp-
gjör viðskiptanna
fór fram í gær.
Keypt voru bréf í
tveimur skulda-
bréfaflokkum með
gjalddaga á þessu
og næsta ári. Eftir viðskiptin nema
heildarskuldir ríkissjóðs um 866 millj-
örðum króna, sem svarar til 32% af
landsframleiðslu, að teknu tilliti til út-
boðs á ríkisbréfum sem fram fór í gær.
Ríkissjóður kaupir til
baka eigin skuldabréf
Kaup Ríkið dregur
úr skuldum.