Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 30

Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Það er dálítil karlaslagsíða áÖðlingamótinu sem nústendur yfir í húsakynnumTaflfélags Reykjavíkur og eru samankomnir 37 karlkyns kepp- endur og ein kona. Lenka Ptacni- kova, stórmeistari kvenna, vann þrjár fyrstu skákir sínar og nýtti sér yfirseturétt í tveimur næstu umferð- um því að hún er meðal þátttakenda á Evrópumóti kvenna í Slóvakíu og stendur sig þar vel. Margir á kepp- endalistanum settu svip á Reykja- víkurskákmótið á dögunum. Nokkrir þurfa að aka dágóðan spöl til að komast á skákstað og má þar nefna Flóamennina Þórð Guðmundsson lækni og Úlfhéðin Sigurmundsson bónda. Þarna eru líka Lárus H. Bjarnason, rektor MH, en stiga- hæsti keppandinn er Kristján Guð- mundsson, kennari við Kvennaskól- ann og liðsstjóri íslenska ólympíu- liðsins á árunum 1984-’92. Upphafsmaður öðlingamótanna er hinn kunni skákdómari Ólafur Ás- grímsson sem ekki alls fyrir löngu fagnaði 70 ára afmæli sínu og 40 ára skákdómaraafmæli en ferill hans sem slíkur hófst á Skákþingi Reykjavíkur árið 1976 með frægu deilu-, kæru- og áfrýjunarmáli sem varðaði gallaða sovéska skákklukku. Síðan þá hefur verið fremur kyrrt í kringum Ólaf enda annálað prúð- menni. Teflt er einu sinni í viku og eftir fjórar umferðir er staða efstu manna þessi: 1.-3. Lenka Ptacnikova, Sig- urbjörn Björnsson og Þorvarður Ólafsson 3½ v. (af 4) 4.-7. Jóhann H. Sigurðsson, Halldór Pálsson, Jó- hann Ragnarsson og Haraldur Bald- ursson 3 v. Það er alltaf vel þegið þegar skák- ir slíkra móta eru slegnar inn en nokkur bið hefur orðið á því verklagi hjá SÍ hvað varðar seinni hluta Ís- landsmóts skákfélaga. Á því móti og á Reykjavíkurskákmótinu voru margir að tefla athyglisverðar skák- ir, t.d. vann Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir hinn öfluga alþjóðlega meistara Björgvin Jónsson og at- hygli vakti Atli Freyr Kristjánsson sem sneri aftur eftir nokkurra ára hlé og á Reykjavíkurskákmótinu hækkaði hann mest íslenskra skák- manna sem voru yfir 2.000 elo- stigum. Skákir hans urðu oft langar og strangar og sennilega gat hann þakkað útsjónarsemi í erfiðum stöð- um gott gengi sbr. eftirfarandi dæmi: Reykjavíkurskákmótið 2018; 6. umferð: Opasiak – Atli Freyr Krist- jánsson Staðan er tvísýn og hvítur lék læ- vísum leik. … 38. Dh4! Með hugmyndinni 38. … Dxe6 39. Dh6+ og 40. Hf8+. 38. … Hc1?! Öruggara var 38. … Kh8! 39. Hxc1 Dxe6 Þvingað þar sem 39. … Bxc1 er svarað með 40. Dd4+! og mát í næsta leik. 40. Hc7+ Kg8 41. Dxh7+ Kf8 Svartur hefur varla látið sig dreyma um að vinna þessa stöðu því kóngurinn er ansi berskjaldaður. 42. Dh4 Dd5+ 43. Kg1 Bd4+ 44. Kf1 Df3+ 45. Ke1 Bc3+ 46. Hxc3 Dxc3+ 47. Kd1 Dd3+ 48. Ke1 Ke7 Drottningarendataflið er líklega jafntefli með bestu taflmennsku en betri kóngsstaða svarts gefur þó vinningsmöguleika. 49. Df4 Dd6 50. Dh4 De5+ 51. Kd1 Ke6 52. Dg4+ Kd5 53. Dd7+ Dd6 54. Df7+ Ke4+ 55. Ke1 Dc6 56. De7+ Kf5 57. Kf2 Dc2+ 58. Kf3 Dd3+ 59. Kf2 Dd4+ 60. Kf3 Df4+ 61. Ke2 De4+?! Slakur leikur sem vinnur strax! Betra var 61. … Dxh2+. 62. Dxe4+ Kxe4 63. h4?? Hann gat haldi jöfnu með 63. Kd2! þó langsótt sé: 63. … a5 64. Kc3 Kf5 65. Kd4 Kxg5 66. Kc5 b4 67. axb4 axb4 68. Kxb4 Kh4 69. Kc5 Kh3 70. Kd4 o.s.frv. 63. … Kf5 – og hvítur gafst upp, 64. Kf3 er svarað með 64. … a5 o.s.frv. Vinsælt öðlingamót – Atli Freyr hækkaði mest Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/TR Lenka Ptacnikova og Hrafn Lofts- son áttust við í 3. umferð. S i g n · Fo r n u b ú ð i r 1 2 · H a f n a r f i r ð i · s i g n @ s i g n . i s · S : 5 5 5 0 8 0 0 W W W. S I G N . I S Hinn 3. apríl birtist pistill frá félags- og jafnréttismálaráð- herra, Ásmundi Ein- ari Daðasyni, í Morg- unblaðinu og á Pressunni undir heit- inu Börnin þarfnast breytinga! Þar segir hann að snemmtæk íhlutun sé aðstoð fyrir börn snemma á lífs- leið þeirra og að aðstoð sé veitt áð- ur en vandi leiði af sér óaftur- kræfar og skaðlegar afleiðingar. Segir ráðherra enn fremur að end- urskoða þurfi velferðarkerfið okkar svo unnt sé að bregðast við vanda barna með skilvirkum og viðeigandi hætti. Það er svo að nýgengi örorku hefur aukist hér á landi og vekur sú þróun ugg um það sem koma skal. Hópur ungra einstaklinga sem ekki komast út á vinnumarkaðinn vegna andlegra veikinda fer stækkandi. Það er mikilvægt að staldra við og skoða hvað veldur og hvað til bragðs skal taka. Breiðholtsmódelið Árið 2007 tók Þjónustumiðstöð Breiðholts upp nýtt vinnulag sem miðaði að því að gripið yrði fyrr inn í mál barna með fjölþættan vanda en áður hafði verið gert. Fimm ár- um síðar hafði fjölda barna úr Breiðholti sem koma á göngudeild BUGL minnkað um 56%. Við upp- haf verkefnisins, sem sprottið er upp af hugsjón starfsfólks Þjón- ustumiðstöðvarinnar, enduðu um 41% tilfella sem komu inn á borð þeirra í greiningarferli. Fimm árum síðar var sú tala orðin 7%. Breið- holtsmódelið hefur eitthvað breiðst út og verið í stöðugri þróun síðan árið 2007. Boðið er upp á margvís- lega þjónustu og úrræði fyrir for- eldra og börn sem og aðstoð inn í skólana. Meirihluti mála kallar frekar á fræðslu, ráðgjöf og þjón- ustu þótt vissulega séu tilfelli sem kalla á umfangsmeiri aðstoð og þörf til að beita lyfjameðferðum eða öðru slíku í samstarfi við viðeigandi aðila. Markmið Breiðholtsmódelsins var og er að auka þjónustustig og bæta lýðheilsu íbúanna ásamt því að draga úr þörf á að senda börn í greiningarferli sem getur verið tímafrekt og kostnaðarsamt. Þá má ná sambærilegum eða jafnvel betri árangri með því að beina fjármagni og tíma í önnur úrræði en sjálft greiningarferlið. Breiðholtsmódelið fékk takmarkað fjármagn frá borg- aryfirvöldum og á meðan á þeirri vinnu stóð að beita markvisst snemmtækri íhlutun í hverfinu þá lengdist biðlistinn eftir greiningu hjá Þjónustumiðstöðinni margfalt á við önnur hverfi borgarinnar. Lítill skilningur var á því hjá borgaryfir- völdum og aukinni þörf ekki mætt með auknu fjármagni né mannskap. Mikilvægt er að staldra við þann árangur sem náðist í Breiðholtinu og styrkja enn frekar það starf með hvaða leiðum sem yfirvöldum eru færar. Viðurkenna þarf það sem vel er gert og halda því hátt á lofti. Þjónustumiðstöð Breiðholts stendur sig vel á fleiri sviðum er varðar lýðheilsu. Frá árinu 2009 hefur, í samráði og samstarfi við hverfisskólana, og nú Heilsugæsl- una, verið skimað fyrir kvíða og þunglyndi meðal allra 9. bekkinga í hverfinu. Í kjölfarið er veitt ráðgjöf og boðið upp á nám- skeið í Hugrænni at- ferlismeðferð (HAM) fyrir unglinga sem greinast á áhættusviði í prófuninni. Þá er Þjón- ustumiðstöðin einnig í samstarfi við Fjöl- brautaskólann í Breið- holti og nemendum þar boðið upp á HAM- námskeið þeim að kostnaðarlausu. Geta nemendur jafnframt fengið einingar fyrir setu á slíku námskeiði. HAM, eða hugræn atferlismeðferð er gagnreynd aðferð og ber fag- aðilum að beita henni sem fyrsta úrræði í meðferð við kvíða og fyrstu eða vægari stigum þunglyndis. Það er því vissulega til mikils að vinna að það vinnulag sem Breiðholts- módelið er fái að lifa og nái festu sem víðast. Aukinn stuðningur við foreldra Mikilvægt er að sveit og ríki setj- ist niður og geri með sér sáttmála um hvernig vinna á að málum barna í leik- og grunnskólum með fjölþættan vanda og um leið sam- ræma vinnulag og ferla á hverjum stað. Breiðholtsmódelið í bland við nýjar hugmyndir í málaflokknum er góður staður til að byrja á. Aukin skilvirkni og betri þjónusta er markmiðið og viljum við til dæmis færa fulltrúa Barnaverndar Reykja- víkur inn á hverja þjónustumiðstöð svo gagnsæi, samfella og þverfag- legt samstarf eigi sér stað í kring- um hvert barn og fjölskyldu. Leggj- um við til að það verði reynt t.d. í Breiðholti til að byrja með. Ríkari áherslu þarf að leggja á að ná betur til foreldra þeirra barna sem þurfa aðstoð og efla þá í hlut- verkum sínum. Vandi barna er vandi foreldra og fjölskyldna og því mikilvægt að ná góðu samstarfi milli heimilis og allra þeirra fag- aðila sem að hverju barni koma. Aukin foreldrafræðsla og sértæk námskeið sniðin að þörfum foreldra til að efla og læra svo þau geti mætt þörfum barna sinna er ein leiðin. Til að hvetja foreldra enn frekar til að þiggja aðstoð og stuðn- ing sérfræðinga þjónustumiðstöðv- anna og þannig sinna sínu ábyrgð- arhlutverki sem best má til dæmis skoða það að bjóða þeim foreldrum sem það gera afslátt af leikskóla- gjöldum eða frístund yfir ákveðið tímabil. Slíkt væri útfærsluatriði. Foreldrum er skylt að sinna börn- um sínum og bera þeir ábyrgð á velferð þeirra. Er það svo yfirvalda á hverjum stað að gera foreldrum kleift að sinna sínu hlutverki vel og veita þann stuðning og þá aðstoð sem þarf hverju sinni. Snemmtæk íhlutun er velferðar- og jafnréttismál Eftir Hjördísi Guðnýju Guð- mundsdóttur Hjördís Guðný Guðmundsdóttir » Fulltrúar Barna- verndar Reykjavík- ur verði staðsettir á þjónustumiðstöðvum til að efla þverfaglegt sam- starf, samfellu og gagnsæi í málaflokkn- um. Höfundur er grunnskólakennari og að ljúka meistaranámi í mannauðs- stjórnun við HÍ. Hún skipar 4. sæti á lista Framsóknarflokksins til borgar- stjórnarkosninganna í vor. hjordisgudny@mannaudur.org Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.