Morgunblaðið - 14.04.2018, Page 34

Morgunblaðið - 14.04.2018, Page 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 ✝ Gróa StefaníaGunnþórsdóttir fæddist 21. sept- ember 1934 á Hreimstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Hún lést 3. apríl 2018 á hjúkrunar- heimilinu Dyngju. Foreldrar hennar voru Gunnþór Þór- arinsson, f. 16.7. 1896, d. 20.7. 1983, og Vilborg Jósefína Kristjáns- dóttir, f. 11.8. 1896, d. 13.4. 1969. Þau eignuðust átta börn. Gróa ólst upp á Hreimstöðum og var yngst systkina. Hún gekk í skóla í Hjaltastaða- skólahverfi og tók fullnaðarpróf vorið 1948. 1952-1953 réð hún sig sem kaupakonu í Sigtún, Borgar- firði eystra, hjá Þórði Jónssyni og Sigrúnu Pálsdóttur. Þar kynntist borg. Hún starfaði á Sauma- stofunni Nálinni til nokkurra ára. Einnig tók hún að sér daggæslu barna heima í Sæbóli. Hún var í Kvenfélaginu Einingu til margra ára. Hún hafði mjög gaman af músík, spilaði á gítar og söng. Þau voru mjög samhent hjónin og eitt af sameiginlegum áhuga- málum þeirra var að ganga á fjöll. Hún var mikil hannyrða- kona, málaði myndir á dúka og steina sér til gamans. Í október 2004 fluttu þau hjónin til Egils- staða en voru öll sumur í Sæbóli þar til Gróa veiktist. Árið 2011 greindist hún með alzheimer og annaðist Hannes hana fyrstu tvö árin ásamt börn- um og heimahjúkrun. Sumarið 2013 fór hún inn á alzheimer- deildina á Seyðisfirði og var þar í umönnun til ársins 2015 og flutt- ist þá á hjúkrunarheimilið Dyngju á Egilsstöðum þar sem hún lést. Útförin fer fram frá Egils- staðakirkju í dag, 14. apríl 2018, kl. 14. Jarðsett verður í Bakkagerðis- kirkjugarði. hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Hannesi Eyjólfssyni frá Bjargi, f. 15. des- ember 1927. Hún var í Hús- mæðraskólanum á Laugum frá 1953- 1954. Haustið 1954 flytur hún á Borgar- fjörð til Hannesar sem þá bjó hjá foreldrum sínum á Bjargi. Þau giftu sig 2. apríl 1956. Þau eignuðust fjögur börn: Ey- þór, f. 28. júní 1955, Vilborgu, f. 16.8. 1958, Sigurð, f. 22.9. 1963, og Önnu Sigurlaugu, f. 12.1. 1964. Barnabörnin eru átta og barnabarnabörnin tíu. Gróa annaðist börn og bú þar til börnin uxu úr grasi. Á þessum árum tóku þau hjónin að sér hús- vörslu í Félagsheimilinu Fjarðar- Elsku yndislega mamma okk- ar. Það er sárt að þurfa að kveðja þig en við vitum að hvíldin er þér kærkomin eftir þessi erfiðu veik- indi. Þú varst alveg einstök mamma og vinur, alltaf í góðu skapi og alltaf svo blíð og góð. Al- veg sama hvað við vorum óþæg, sem var nokkuð oft, gastu alltaf róað okkur niður á rólegu nót- unum. Það var yndislegt að fá að njóta þess að koma heim úr skóla eða vinnu og fá heitar lummur, nýbak- aðar kleinur eða eitthvert annað góðgæti sem þú varst búin að búa til. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Margar yndislegar minningar streyma um hugann þegar við horfum aftur. Fjallgöngur, gönguferðar og ferðalög með litla hvíta tjaldið, prímusinn og nest- isboxið með alls konar kræsingum sem þú varst búin að útbúa af mik- illi natni. Oftar en ekki komum við heim hlaðin af fallegum steinum sem þú naust að hafa í kringum þig. Þetta var yndislegur tími sem við áttum saman. Eftir að við fluttum að heiman og eignuðumst okkar börn varstu alltaf til staðar fyrir okkur og ávallt tilbúin að koma til okkar með litlum fyrirvara að passa barnabörnin þegar á þurfti að halda. Barnabörnin nutu þess að að vera hjá þér. Yndislegt var að koma til ykkar með barnabörnin á sumrin og þau fengu að njóta umhyggju þinnar og ástúðar. Þú stjanaðir endalaust við þau. Barnabörnin fengu að njóta þess sama og við nutum. Alltaf var farið með þau í smá ferðalag í sveitinni með nýbakað- ar kleinur og annað góðgæti í nesti og sest á teppi í einhvern fal- legan hvamminn. Alzheimer-sjúkdómurinn tók þig frá okkur fyrir mörgum árum en alltaf hélstu þinni léttu lund og gafst okkur alltaf svo fallegt bros sem yljaði okkur um hjartaræt- urnar. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við þökkum þér fyrir allar yndislegu stundirnar og um- hyggjuna sem þú sýndir okkur. Við minnumst þín með ást og virð- ingu. Guð geymi þig, elsku mamma. Þín Eyþór, Vilborg, Sigurður og Anna. Elsku amma. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért búin að kveðja. Þú varst alltaf svo létt í lund, svo hress og kát. Það var alltaf svo gaman að vera hjá ykkur afa í Sæbóli. Þaðan á ég margar yndislegar minning- ar. Við fórum svo oft út á sand að tína steina og leika okkur í fjör- unni, fórum á Lödunni í lautarferð inn að Þverá með nesti, oftast ný- steiktar kleinur sem við höfðum steikt saman og kleinukalla sem þú leyfðir mér að búa til sem mér fannst svo gaman að gera. Ég mun sakna þess ótrúlega mikið að vera hjá ykkur í rólegheitunum í Sæbóli, með stillt á rás 1 eða hlusta á harmonikkuspilið hjá afa, það var eins og að tíminn stoppaði. Sverrir Arnar og Ísabella voru svo lánsöm að fá að kynnast þér þó að við hefðum viljað hafa þig lengur. Þeim þótti svo vænt um þig, langömmu sína. Elsku amma mín, takk fyrir all- ar þessar yndislegu minningar, fyrir þig er ég óendanlega þakk- lát. Minning þín er ljós í lífi okkar Kveðja til ömmu Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þín, Sandra. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Í dag er til moldar borin heima á Borgarfirði eystra Gróa á Sæ- bóli, kona Hanna móðurbróður míns, Hanna frænda eins og æv- inlega er sagt. Gróa var einstök perla sem ljúft er að minnast og minningarnar vafðar hlýju, léttum hlátri, lífsgleði og ljúfmennsku. Hér á árum áður, þegar ég bjó á Borgarfirði, átti ég mörg sporin heim á Sæból í slagtogi við Boggu frænku mína og vinkonu. Fram á unglingsár var ég þar heimagang- ur og margar voru næturnar fékk ég að gista hjá frænkunni. Ekki er því að neita að stundum þurfti að sussa á pískrandi og flissandi stelpurnar sem vildu gaspra fram á nætur. Þó að oft væri glatt á hjalla hjá okkur krökkunum og mikið um að vera, man ég ekki til þess að Gróa hafi hækkað róminn eða skammað okkur, öllu tók hún með einstakri þolinmæði og æðru- leysi og blíðlegt var sussið sem lét frænkurnar tvær hætta öllu flissi og pískri á síðkvöldum og fara að sofa í hausinn á sér. Það var gott að koma í Sæból, brölta upp stigann, sem mér í æsku þótti ógnar langur en virtist styttast eftir því sem árin liðu, heyra Hanna spila á nikkuna, ljúfa tóna líða um loftið og í eldhúsinu var hægt að ganga að Gróu dill- andi sér við tónlistina brosandi út að eyrum. Gott var að skríða þar í hlýjuna, fá heitt kakó og eitthvað gott í gogginn eftir útiveru með sleða í Eyrarbrattanum, skauta- ferð á svelli eða ærsl og eltinga- leiki á túninu á Bjargi. Ljúft var viðmótið og gott var atlætið á Sæ- bóli. Eftir að fjölskyldan mín flutti frá Borgarfirði, þegar ég var ung- lingur, fækkaði samverustundun- um m.a. vegna þess að enginn bíll var á mínu heimili. Bílleysið varð til þess að ferðum heim á Borg- arfjörð fækkaði og þar með heim- sóknum til frændfólksins. Hanni og Gróa fluttu í Egilsstaði árið 2004 og nokkrum árum síðar greindist Gróa með hinn illvíga sjúkdóm Alzheimer. Það hallaði smám saman undan fæti og sjúk- dómurinn setti mark sitt á líf hennar og fjölskyldunnar. En þó að hún væri farin að gleyma og týnast í tilverunni á köflum, faldi hún það vel framan af með sínu ljómandi brosi og ljúfu lund. En augun, sem áður leiftruðu af lífi, voru þó farin að tjá að ekki væri allt sem skyldi, því að það var tóm- leiki þeirra sem ljóstraði upp um sjúkdóminn og sagði meira en mörg orð. Ljúfu lundinni sinni hélt hún, þó að sjúkdómurinn rændi ýmsu og skildi eftir myrkur og tóm. Ég veit að þið, elsku frændfólk- ið mitt, Hanni frændi, Eyþór, Bogga, Anna og Siggi og fjöl- skyldur, hafið farið í gegnum mörg tímabil sorgar í veikindum Gróu. Fyrst þegar hún greindist með sjúkdóminn, síðan þegar hann tók að ágerast og ræna hana krafti og lífi og loks núna er hún hefur fengið hvíldina. En ég veit líka að þið búið að því ríkidæmi að eiga í huga og hjarta fjársjóð dýr- mætra minningar um líf einstakr- ar konu, fjársjóð sem þið getið ylj- að ykkur við um ókomin ár og enginn mun geta rænt ykkur. „Því enginn getur mokað mold minn- ingarnar yfir.“ Blessuð sé minning Gróu á Sæ- bóli. Sigríður (Sigga) á Skriðubóli. Ég kynntist Gróu sem barn að aldri þegar hún var vinnukona heima í Sigtúni. Ég minnist þessi ekki að hún hafi skammað okkur krakkana, þó að það hafi örugg- lega verið tilefni til þess. Hún var einstaklega ljúf og góð. Þegar ég var unglingur og hafði allt á hornum mér heima sagði mamma „æ, góða farðu og heimsæktu Gróu“. Það brást ekki að ég kom til baka í góðu skapi. Við Gróa rifjuðum þetta upp á fullorðinsárum og höfðum gaman af. Hún kenndi okkur vinkonun- um, Systu og Siggu í Odda, að spila á gítar. Það var oft mjög gaman hjá okkur og ég kann grip- in sem hún kenndi okkur en erfitt hefur verið að bæta fleirum við. Gróa var yndisleg vinkona og var gott að heimsækja hana heima á Borgarfirði og síðar á Seyðis- fjörð og í Egilsstaði. Innilegar samúðarkveður til fjölskyldunnar, ættingja og vina. Minning hennar mun lifa. Gættu þess vin yfir moldunum mínum, að maðurinn ræður ei næturstað sínum. Og þegar þú hryggur úr garðinum gengur, Ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei lengur. En þegar þú strýkur burt tregafull tárin, þá teldu í huganum yndisleg árin sem kallinu gegndi ég kátur og glaður, það kæti þig líka, minn samferðamaður. (James McNulty) Sigurlaug Þórðardóttir. Gróa Stefanía Gunnþórsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Matthildur Bjarnadóttir, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA JÓSEFSDÓTTIR, Hólabraut 3, Blönduósi, lést sunnudaginn 1. apríl á Heilbrigðis- stofnun Norðurlands á Blönduósi. Hjartans þakklæti færum við starfsfólki heilbrigðisstofnunarinnar fyrir góða aðhlynningu. Arís Njálsdóttir Sigurður Friðrik Davíðsson Þórður Daði Njálsson Jane Christensen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN INGI RAGNARSSON málarameistari, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 13. Alda Sveinsdóttir Ragnar Jónsson Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir Per-Arne Svensson Linda Dröfn Jónsdóttir Örn Steinar Arnarson Stefanía Sunna, Sigrún Alda, Kristján Ingi, Brynjar Freyr, Samúel Freyr, Tinna Björk og Eybjörg Lára Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR OLIVER KARVELSSON frá Ísafirði/Þingeyri, lést þriðjudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 23. apríl klukkan 13. Kritsana Jaitieng Kristján Sigurður Sverrisson Nutcharee Pairueang Jakob Arnar Sverrisson Sólveig A. Hilmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku yndislegi sonur okkar, barnabarn, bróðir og frændi, STEFÁN JÖRGEN ÁGÚSTSSON, lést á heimili sínu sunnudaginn 8. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Þorgerður Nielsen Ágúst Böðvarsson Ólafur Werner Nielsen Ragnheiður Stefánsdóttir Ragna Hjördís Ágústsdóttir Guðjón Þór Sæmundsson Ólafur Böðvar Ágústsson Ingibjörg Ólafsdóttir Óskar Logi Ágústsson Isabelle Bailey og systkinabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA PÁLSDÓTTIR, Heiðargerði 42, lést á Landspítalanum að kvöldi þriðjudagsins 10. apríl. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 13. Pálmar Kristinsson Hallfríður Frímannsdóttir Halldór Kristinsson Gunnar S. Kristinsson Gréta Vigfúsdóttir Sævar Kristinsson Ólöf Kristín Sívertsen barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, SNORRI DAN HALLGRÍMSSON verkfræðingur, 10808 Bryant Place, Oakton, Virginia, lést föstudaginn 6. apríl. Útför hans hefur farið fram. Monique Monseu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.