Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 ✝ Ingibjörg Sig-urðardóttir fæddist á Geir- mundarstöðum í Sæmundarhlíð 16. febrúar 1934. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands á Sauðárkróki 5. apríl 2018. For- eldrar hennar voru Anna Sveinsdóttir, f. 23.12. 1904, d. 8.3. 1977, og Sigurður Kon- ráðsson, f. 2.2. 1902, d. 25.9. 1986, búendur á Varmalandi í Sæmundarhlíð frá 1935. Systk- ini Ingibjargar eru: Sveinn, f. 13.3. 1938, d. 12.4. 1991, maki Margrét Björk Andrésdóttir, f. 19.4. 1943; Sigurbjörg, f. 19.9. 1942, maki Magnús Jónasson, f. 20.1. 1944. Melén, f. 27.12. 1955, og Ólöf, f. 8.4. 1959, sambýlismaður Ágúst Kvaran, f. 19.8. 1952. Synir Ásgríms eru: Steinar Mar, f. 28.12. 1983, móðir Sig- ríður Steinbjörnsdóttir, f. 25.12. 1960, og Þorsteinn Kristófer, f. 24.10. 1985, móðir Anne. Ingibjörg var bóndi á Varmalandi megnið af sinni starfsævi, en fyrstu tíu árin meðfram búskap stundaði hún kennslu, fyrst í Vatnsdal, síðar Lýtingsstaðahreppi og að lok- um í Skefilsstaðahreppi. Hún helgaði sig svo að fullu bústörfum eftir það. Ingibjörg var virk í Kvenfélagi Staðar- hrepps og sóknarnefnd Reyni- staðarkirkju. Eftir að hafa brugðið búi 1998 starfaði Ingi- björg í fimm ár á Dvalar- heimili aldraðra á Sauðár- króki. Útför Ingibjargar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 14. apríl 2018, og hefst athöfn- in klukkan 14. Jarðsett verður á Reynistað. Hinn 3. nóv- ember 1959 gift- ist Ingibjörg Þor- steini E. Ásgríms- syni, f. 23.9. 1936 á Ási í Vatnsdal, d. 8.5. 1999. For- eldrar Þorsteins voru Ólöf Krist- björg Sigur- björnsdóttir, f. 13.1. 1910, d. 31.3. 1946, og Ás- grímur Kristinsson, f. 29.12. 1911, d. 20.8. 1988, búendur á Ásbrekku í Vatnsdal. Ingibjörg og Þorsteinn hófu búskap í félagi við foreldra hennar árið 1958 og bjuggu á Varmalandi til vorsins 1998, er þau fluttust á Sauðárkrók. Börn þeirra eru: Ásgrímur Guðni, f. 8.3. 1958, maki Anne Elsku Ebba amma er nú bú- in að kveðja þetta jarðneska líf og var það okkur bræðrum mikill harmur að fá þær sorg- arfréttir. Óneitanlega er erfitt að sjá á eftir manneskju sem hefur haft jafn mikil og mót- andi áhrif á okkur og hún hafði. Aftur á móti rifjast upp allar góðu stundirnar, sérstak- lega frá þeim tíma þegar við vorum að alast upp í sveit hjá henni og afa á sumrin þegar við vorum yngri. Það voru sannkölluð forrétt- indi að fá nasaþef af gamla tímanum í sveitinni, þótt auð- vitað væri nútíminn einnig bú- inn að banka þar á dyr. Þar lærðum við réttu handtökin, öðluðumst verksvit og var okk- ur falin ábyrgð langt umfram það sem flest fullorðið fólk er tilbúið að fela unglingum. Við lærðum að umgangast vélar og bera virðingu fyrir bæði dýrum og náttúru. Hún innrætti okk- ur frá upphafi góða framkomu við öll dýr og skipti velferð þeirra hana miklu máli sem bónda. Amma var einnig hafsjór af fróðleik um landafræði og var óþreytandi við að segja manni til um bæjarnöfn og örnefni þegar keyrt var um sveitir landsins. Einnig var henni ís- lensk tunga mjög hugleikin og lærðum við að meta málið og meðhöndla, til að mynda í mjaltatímum þar sem hún þreyttist seint að hlýða okkur yfir ljóð. Þótt amma hafi alltaf horft með hlýhug til gamla tímans og þótt hrífan betri en vél- arnar, þá sjáum við eftir á að hyggja að hún var framar á mörgum sviðum en sín kyn- slóð. Þannig var henni mjög annt um náttúruna og var alla tíð á móti óþarfa og bruðli. Passaði hún meðal annars að henda sem minnstu af plasti, enda talaði hún snemma um að allt það sem ekki brotnar niður myndi fylla höfin. Í dag er sú vá jú orðin eitt af stærstu mál- um samtímans. Minnisstætt er okkur bræðrum þegar við vor- um ítrekað sendir upp í fjall eða meðfram girðingum til að hreinsa rúlluplast af girðingum eða tína upp annað rusl. Nú þegar komið er að þess- um tímamótum er manni sökn- uður efst í huga, en ekki síður þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta alls þessa tíma með þér. Takk fyrir alla hlýjuna og ástina sem þú veittir okkur. Steinar Mar og Þorsteinn. Ingibjörg Sigurðardóttir, Ebba, var gift móðurbróður mínum Þorsteini Erlings Ás- grímssyni sem lést langt fyrir aldur fram, aðeins 62ja ára gamall. Ég var hjá þeim hjón- um í fimm sumur á Varmalandi í Sæmundarhlíð og tel mig búa enn þann dag í dag að þeirri ómetanlegu reynslu. Það er ævintýri fyrir sjö ára stelpu frá litlu heimili í Reykjavík að upplifa svona stórt sveitaheim- ili með þremur kynslóðum. Börnin á Varmalandi, Lóa og Grímsi, voru eins og systkinin sem ég hafði alltaf óskað mér. Lóa var eins og mín besta vin- kona og Grímsi svo skemmti- legur að það var erfitt að vera alvarlegur í návist hans. Síðan kom Þröstur, litli frændi, og við vorum óaðskiljanleg og brölluðum ýmislegt saman. Doddi frændi var sá sem heillaði alla með orðheppni sinni og hlýju og börnin þyrpt- ust að honum en Ebba virkaði sú alvarlega. Hún var samt heilmikill húmoristi inn við beinið og átti hún það til að koma manni á óvart með skemmtilegum tilsvörum. Ebba var mjög heimakær, traust eins og klettur og raun- betri manneskju var erfitt að finna. Bæði voru þau samstiga með að börnin á þeirra vegum lærðu til verka og yrðu ágætis manneskjur. Mikill gestagangur var á Varmalandi og sérstaklega man ég eftir Sigurbjörgu, syst- ur Ebbu, og Magnúsi sem voru yfirleitt öll sín sumarfrí á Varmalandi. Allt var þetta mikið sómafólk sem hafði mikil og góð áhrif á mig. Elsta kyn- slóðin, Sigurður og Anna, bjó yfir reynslu og sögum af horfn- um heimi sem heillaði mig og örvaði ímyndunaraflið. Auk þess voru systkini í Sæmund- arhlíðinni, Pálína Konráðsdótt- ir á Skarðsá og Karl bróðir hennar á Auðnum, sem bæði voru einbúar sem bjuggu í torfbæjum og það var eins og að ganga inn í fyrri aldir að koma í heimsókn til þeirra. Pálína bauð okkur börnunum upp á kaffi og þótt drykkurinn væri beiskur fann maður svo- lítið til sín að vera settur í sama flokk og þeir fullorðnu. Það var mikið að gera á stóru heimili og Ebba stóð þar vaktina af mikilli röggsemi og dugnaði ásamt Önnu móður sinni, sem ég kallaði ömmu. Mínar bestu stundir með Ebbu voru í fjósinu kvölds og morgna, þar sem Ebba kenndi okkur ljóð og vísur sem við átt- um að læra yfir daginn og þylja upp á kvöldin. Á þessum stundum var mikil kyrrð og greinilegt að fjósið var griða- staður Ebbu í erli hversdags- ins. Við ræddum margt á þess- um stundum og sérstaklega um ljóð og kveðskap. Ebba hafði verið barnakennari og var hafsjór af fróðleik, enda bæði vel lesin og eldklár. Það var ekki ónýtt að koma úr sveitinni á haustin og í Mela- skólann og kunna alla ljóða- bókina utanbókar. Þegar ég hugsa til baka fyllist ég þakk- læti fyrir að hafa fengið tæki- færi til að upplifa þessa tíma í Skagafirðinum, þar sem sólin skein alla daga, í það minnsta í minningunni. Ég votta Lóu og Grímsa og aðstandendum innilegustu samúðarkveðjur frá mér og mömmu. Blessuð sé minning Ingibjargar Sigurðardóttur. Dóra Ósk Halldórsdóttir. Ingibjörg Sigurðardóttir ✝ Bjarni fæddistf. 16. júní 1926 á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði en flutti á sjöunda ári að Bræðrabrekku í Bitrufirði. Hann lést 7. apríl 2018. Bjarni var næst- elsta barn hjón- anna Eysteins Ein- arssonar, f. 12.4. 1904, d. 25.2. 1991, og Kristínar Lilju Jó- hannesdóttur, f. 26.8. 1900, d. 21.5. 1988. Systkini hans eru Jóhanna Margrét, f. 1925, látin. Jón Bragi, f. 1928, látinn. Krist- jana, f. 1929, látin. Sveinn Björgvin, f. 1931. Steinunn, f. 1933. Laufey, f. 1935. Einar Lilja, f. 2004. Jón Eysteinn, f. 6.3. 1975, maki Andrea Marta Vigfúsdóttir, f. 1.10. 1976. Sonur Andreu er Illugi Þór, f. 1991, og fósturdóttir Jóns og Andreu er Nína Guðlaug, f. 2006. Bjarni útskrifaðist sem bú- fræðingur frá Hvanneyri og lagði síðan stund á ýmis störf, s.s. vegavinnu og akstur vöruflutningabíla. Bjarni tók svo við búi á Bræðrabrekku árið 1962 og bjó þar til ársins 2010. Samhliða bústörfunum sat hann í hreppsnefnd Óspakseyrarhrepps og var um tíma hreppstjóri. Bjarni og Agla fluttu til Reykjavíkur 2010 og bjuggu þar til hausts 2017. Eftir það dvöldu þau á heilbrigðisstofnun Vestur- lands, Hólmavík. Úför Bjarna fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 14. apríl 2018, klukkan 14. Magnús, f. 1936. Fanney, f. 1939. Trausti, f. 1943, látinn. Hálfsystkini: Jens Ólafur, f. 1945. Dofri, f. 1947. Gísli, f. 1949. Hrafnhildur, f. 1949, látin. Hilm- ar, f. 1951. Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Agla Ögmundsdóttir, f. 23.6. 1937. Bjarni og Agla gengu í hjónaband 1960 og eignuðust tvo syni. Þeir eru Kristinn Þór, f. 23.2. 1969, maki Linda Björk Ólafsdóttir, f. 23.2. 1970. Börn Kristins og Lindu eru Bjarni Þór, f. 1999, Þórdís Agla, f. 2001, og Arndís Það er margt sem fer í gegn- um hugann þegar litið er yfir farinn veg. Þrautseigja og elja fólks eins og Bjarna skilaði okk- ur yngri kynslóðunum bættum lífskjörum og munaði sem við tökum of oft sem sjálfsögðum hlut. Með virðingu og þakklæti kveðjum við ástkæran föður og tengdaföður. Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu, sem festu rætur í íslenskri jörð, veggi og vörður hlóðu og vegi ruddu um hraun og skörð, börðust til þrautar með hnefa og hnúum og höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt. Það lýsti þeim sama leiðarstjarnan, en lítið er um þeirra ferðir spurt. allir kusu þeir kjarnann, en köstuðu hýðinu burt. Þeir fræddu hver annan á förnum vegi um forna reynslu og liðna stund og döfnuðu á hverjum degi af drengskap og hetjulund. Þeim fækkar óðum, sem fremstir stóðu, sem fögnuðu vori í grænni hlíð, stríðustu straumvötnin óðu og storkuðu regni og hríð, lyftu þegjandi þyngstu tökum, þorðu að berjast við lífskjör hörð. – Þeir hnigu bognir í bökum að brjósti þér, ættarjörð. (Davíð Stefánsson) Jón Eysteinn og Andrea. Bjarni Eysteinsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LÁRA VALSTEINSDÓTTIR, Lautasmára 3, Kópavogi, lést laugardaginn 7. apríl á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 18. apríl klukkan 15. Ólöf Stefánsdóttir Jón Aðalsteinn Jóhannsson Jóhannes Stefán Stefánsson Sigurlaug J. Stefánsdóttir Karl Gauti Hjaltason ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN EINARSSON til heimilis að Hraunbraut 8, Kópavogi, lést á heimili sínu föstudaginn 6. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju, þriðjudaginn 17. apríl klukkan 13. Anna Magnea Valdimarsdóttir Ásgerður Theodóra Björnsdóttir Brynhildur Björnsdóttir Valdimar Jón Björnsson Ingibjörg Ebba Björnsdóttir Sverrir Björnsson tengdabörn, barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍNA JÓDÍS HANNESDÓTTIR, sem lést 8. apríl, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 17. apríl klukkan 13. Aðalbjörg Úlfarsdóttir Arnór Hannesson Jóhanna Úlfarsdóttir Gísli Hafþór Jónsson Jón Smári Úlfarsson Hjördís Hendriksdóttir Þórdís Úlfarsdóttir Guðni Ingvar Guðnason barnabörn og barnabarnabörn Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, MAREL ANDRÉSSON, Sandgerði, lést í faðmi fjölskyldunnar 10. apríl. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði miðvikudaginn 18. apríl klukkan 14. Þórður Ingi Marelsson Fríður María Halldórsdóttir Kolbrún Marelsdóttir Ragnar Kristjánsson Ólafía Marelsdóttir Magnús þórisson og afabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON útgerðarmaður, Suðurhlíð 38c, sem lést fimmtudaginn 5. apríl, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitir eða minningarsjóð líknardeildar Landspítala. Auðbjörg Ingimundardóttir Anna Guðmundsdóttir Jörundur Gauksson Ingi Jóhann Guðmundsson Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir og barnabörn Hjartans þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra MAGNÚSAR E. ÁRSÆLSSONAR, Maríubaugi 41. Linda Guðbjartsdóttir Ársæll Magnússon Andrea B. Pétursdóttir Björk Inga Magnúsdóttir barnabörn og langafabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.