Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 42
Fornleifafræðingurinn Unnið á
Bessastöðum á Álftanesi árið 1987.
G
uðmundur Ólafsson
fæddist á Akureyri
14.4. 1948: „Ég ólst þar
upp í góðu yfirlæti, hjá
ömmu og afa, sem ör-
verpið i hópi móðursystra minna,
fram að stúdentsprófi frá MA, 1969.
Móðir mín fór snemma til Vancou-
ver í Kanada, þar sem hún settist að,
en faðir minn fórst í flugslysi í
Skerjafirði, með Glitfaxa 1951.“
Guðmundur lauk fil.kand-prófi frá
Háskólanum í Uppsölum árið 1974, í
fornleifafræði, listasögu, þjóðfræði
og safnfræði. Hann vann þar svo
m.a. við fornleifarannsóknir,
kennslu og sýningargerð, þar til
hann fékk stöðu safnvarðar við Þjóð-
minjasafn Íslands árið 1979. Þar hef-
ur hann starfað æ síðan sem forn-
leifafræðingur, deildastjóri forn-
leifadeildar, fagstjóri fornleifa og
síðast fræðimaður.
„Á menntaskólaárunum vann ég á
sumrin m.a. við að leggja símalínur
heim á bæi í Eyjafirði. Þegar ég gróf
þar skurði, í gegnum gamla bæjar-
hóla, vaknaði áhugi á forvitnilegum
jarð- og mannvistarlögunum. Þá
varð ekki aftur snúið. Ég þurfti að
verða fornleifafræðingur til þess að
fá skýringu á þessum fyrirbærum.“
Guðmundur lauk MA prófi í forn-
leifafræði frá HÍ 2010. Hann hefur
stjórnað fjölmörgum fornleifarann-
sóknum á vegum Þjóðminjasafnsins.
Þar má m.a. nefna rannsóknir á
Bessastöðum á Álftanesi, Eiríks-
stöðum í Haukadal, Grelutóftum á
Hrafnseyri, Þingnesi við Elliðavatn,
Esjubergi á Kjalarnesi, í Surtshelli
og Víðgelmi. Einnig tók hann á ár-
unum 1992-96 þátt í samnorrænni
rannsókn á stórmerkum miðaldabæ
á Grænlandi (Gården under sandet)
og leit að minjum um búsetu víkinga
á Baffin-eyju í Kanada. Hann vinnur
nú m.a. að útgáfu bóka um rann-
sóknir sínar á Bessastöðum og Går-
den under sandet. Hann var fyrstur
til að vekja athygli á nauðsyn skipu-
legrar skráningu fornleifa á Íslandi
og stóð fyrir og tók þátt í fyrstu
skráningarverkefnunum í Mos-
fellsbæ og víðar á árunum 1980-85.
Guðmundur hefur skrifað rúm-
lega 300 skýrslur, greinar og rit um
Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur – 70 ára
Kennslustund Guðmundur kennir Nils Kjartani, Freyju og Flóka að skera út laufabrauð að Akureyrskum sið.
Hóf skipulega skrán-
ingu íslenskra fornminja
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Laugvetningar kunna að skemmta sér og því verður ekki undanþví komist að gera eitthvað á þessum tímamótum. Ég fæ aðláni skemmu á sveitabæ hér rétt utan við þorpið og þangað
eigum við von á um 100 manns víða að,“ segir Smári Stefánsson sem
er fertugur í dag.
Smári er Akureyringur að uppruna en festi rætur á Laugarvatni
þegar hann kom til náms við íþróttaskor Kennaraháskóla Íslands fyr-
ir tuttugu árum. „Ég kenndi lengi ýmsar útivistargreinar við íþrótta-
skólann hér. Þegar sú starfsemi sem síðast var á vegum Háskóla Ís-
lands lagðist af var ekki annað í stöðunni en að skapa sér ný verkefni,
sem hefur gengið vonum framar,“ segir Smári sem stendur að rekstri
ferðaþjónustunnar Laugarvatn Adventure. Hann býður á þess vegum
upp á ýmsar ævintýraferðir um hraun og upp á fjöll og njóta þær vin-
sælda. Þá hefur hann gert Laugarvatnshella aðgengilega eins og þeir
voru fyrir um öld þegar fólk bjó þar. Eru hellarnir nú orðnir vinsæll
ferðamannastaður enda í þjóðbraut milli Laugarvatns og Þingvalla.
„Útivera og alls konar sport því tengt er rauður þráður í tilveru
fjölskyldunnar. Við erum mikið í ferðalögum og gerum margt
skemmtilegt,“ segir Smári sem er kvæntur Hallberu Gunnarsdóttur
frá Blönduósi. Þau eiga tvíburasynina Friðrik og Loga sem eru tæp-
lega tíu ára og fyrir á Smári Valdísi Maríu sem er tvítug og er að ljúka
námi frá Menntaskólanum á Akureyri. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útivera Smári segir hafa gengið vonum framar að skapa verkefni.
Hellismaðurinn
á Laugarvatni
Smári Stefánsson er fertugur í dag
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.