Morgunblaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Í vel heppnaðri ferð til Fær-eyja á dögunum, þar sem égfylgdist m.a. með afhendingu
færeysku tónlistarverðlaunanna,
náði ég og að hitta mann og annan
og glæða þann áhuga og þá innsýn
sem ég hef sankað að mér í gegn-
um tíðina hvað færeyskt tónlistar-
líf varðar. Einn af þeim sem ég
hef haldið stöðugu sambandi við
undanfarin fimmtán ár heitir Sól-
arn Sólmunde, borinn og barn-
fæddur í 1.000 manna þorpinu
Götu, hvar G! tónlistarhátíðin fer
fram og bærinn er aukinheldur
heimabær Eivarar Pálsdóttur.
Það var um og upp úr alda-
mótunum síðustu að Færeyjar
gengu í gegnum minniháttar tón-
listarbyltingu og var Gata í
brennidepli þeirra breytinga. Ekki
hvað síst fyrir tilstilli hljómsveit-
arinnar Clickhaze sem hafði á að
skipa áðurnefndri Eivöru m.a. en
sú sveit var boðberi nýrra hug-
mynda hvað þróun og þroska fær-
eyskrar tónlistar áhrærði. Í Götu
var og að finna tónlistarsamtökin
Grjót eða „Tónleikasamtakið
Grót“ en til þeirra hafði verið
stofnað árið 1998 í þeim tilgangi
að ýta undir og styðja við fær-
eyskt tónlistarlíf. Gata var eins og
Keflavík sjöunda áratugarins, mik-
il virkni og mikið af sveitum sem
þar störfuðu og tónleikar voru
haldnir reglulega í Losjunni, sam-
komuhúsi í þorpinu.
Grót er enn starfandi og er
Sólarn þar formaður, sá eini af
upprunalegu stofnendunum. Á
Fésbókarsíðu samtakanna segir að
Algjör Götustrákur
Eldhugi Sólarn Sólmunde, ásamt syni sínum, í húsnæði Töting. Sólarn er borinn og barnfæddur í Götu.
tilgangurinn með þeim sé þríþætt-
ur, að 1) styðja við tónlistarlegt
nærumhverfi, 2) að hvetja fólk til
að sinna tónlist með einhverjum
hætti og 3) að búa til vettvang þar
sem þetta fólk getur hist og iðkað
sína list.
Losjan er ekki nýtt undir
þetta lengur en hins vegar er búið
að opna nýjan stað, Töting, og tók
Sólarn mig í kynnisferð um stað-
inn og sagði mér frá starfseminni.
Sólarn sinnir Grót einvörðungu
sem áhugamáli í dag og segist
ekki hafa minnsta áhuga á að fjár-
magnstengja sína aðkomu að
starfinu, það myndi spilla tilgang-
inum. Sólarn er niðri á jörðinni
með þetta allt saman, á heilnæman
hátt. Hann er nú fjölskyldumaður
og segir að viðburðir séu kannski
einu sinni til tvisvar í mánuði,
enda hafi hann hreinlega ekki
tíma í meira. Með honum í þessu
eru kátir kappar og meyjar og
Töting hinn vænlegasti staður. Bú-
ið er að innrétta þessa gömlu ull-
arverksmiðju með huggulegum
sófasettum og stólum, fyrirtaks
hljóðkerfi og sviði auk þess sem
hægt er að hafa þar veitingasölu.
Staðurinn er furðu stór reyndar
og hæglega hægt að koma þar
300-400 manns fyrir. Hljómsveitir
hafa þá líka aðgang að staðnum
og geta æft þar. Sólarn var sæll
og sáttur þegar hann sagði mér
frá þessu öllu, hann og vinir hans
voru á þeim buxunum að sigra
heiminn fyrir fimmtán árum, eins
og maður gerir á yngri árum, en í
dag er það reynslan sem talar í
bland við praktíkina. Eldurinn
brennur hins vegar jafn glatt og
fyrr, tónlistin á hjarta Sólarns nú
sem áður og Götubúar og Fær-
eyjar allar græða á slíkum hug-
sjónamönnum.
» Sólarn sinnir Gróteinvörðungu sem
áhugamáli í dag og seg-
ist ekki hafa minnsta
áhuga á að fjármagns-
tengja aðkomu sína að
starfinu.
Sólarn Sólmunde hefur
lengi verið ein helsta
eldsál Færeyja hvað
viðkemur viðhaldi og
framþróun tónlistar-
menningar í eyjunum.
Borghildur Ósk-
arsdóttir mun á
morgun, 15. apr-
íl, ræða við gesti
um innsetningu
sína í Listasafni
Árnesinga sem
ber heitið
„Þjórsá“. Í
henni má sjá
Þjórsá í öllu
sínu veldi, frá
hálendi til árósa, bæði sem eins
konar innrammaða mynd á gólfi
en líka sem vídeó þar sem flogið
er yfir ána frá upptökunum við
Hofsjökul og niður að sjó, skv. til-
kynningu. „Á sýningunni er einnig
þula um Þjórsá eftir Borghildi
sem skoða má bæði sem sjónrænt
myndverk og hlýða á í flutningi
höfundar. Þá er þar líka tvöfalt
vídeóverk þar sem Borghildur
gerir gjörning í húsatótt við
bakka Þjórsár, sem áður var
æskuheimili ömmu hennar,“ segir
þar.
Borghildur veitir
leiðsögn í L.Á.
Borghildur
Óskarsdóttir
Aldís
Arnardóttir,
sýningarstjóri
sýningarinnar
Líðandin – la
durée á Kjar-
valsstöðum,
veitir leiðsögn
um sýninguna á
morgun kl. 14.
Á sýningunni
má sjá mörg
sjaldséð verk, einkum frá fyrri
hluta starfsævi Jóhannesar Kjar-
val. Titill sýningarinnar vísar í
kenningar franska heimspekings-
ins Henris Bergson og á sýning-
unni er skoðað hvernig áhrif hug-
mynda Bergsons birtast í
myndmáli Kjarvals.
Aldís segir frá Líð-
andinni – la durée
Aldís
Arnardóttir
Myndlistarmennirnir og vinirnir
Örn Þorsteinsson, Ófeigur Björns-
son og Magnús Tómasson opna
samsýningu í Listhúsi Ófeigs,
Skólavörðustíg 5, í dag kl. 15. Þeir
félagar hafa sýnt saman áður og
oftar en einu sinni. Magnús og
Ófeigur voru fyrst saman á sýn-
ingu á áttunda áratugnum og allir
þrír voru í hópnum sem rak Gall-
erí Grjót við Skólavörðustíg 1983-
89 en þar var öflugt sýningarstarf
og galleríið áberandi í miðbæjarlíf-
inu, eins og segir í tilkynningu.
Þeir hafa „einbeitt sér að listinni
og tekið virkan
þátt í sýningar-
haldi og mynd-
listarlífinu í
landinu“, segir í
tilkynningunni
og að þeir hafi
haldið upp merki
höggmynda-
listarinnar og
sýnt í verki að
hún eigi ekki síð-
ur erindi til okkar núna en þegar
þeir hófu störf fyrir nokkrum ára-
tugum.
Þrír vinir sýna saman í Listhúsi Ófeigs
Ófeigur
Björnsson
Ungdeild Söngskólans í Reykja-
vík setur upp Skilaboðaskjóðuna í
konsertuppfærslu og sýnir í Iðnó
á morgun, sunnudag, kl. 13 og
21. apríl kl. 16. Skilaboðaskjóðan
er ævintýrasöngleikur byggður á
samnefndri barnabók Þorvaldar
Þorsteinssonar sem kom út 1986
og naut mikilla vinsælda en söng-
leikurinn var frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu árið 1993 og samdi Jó-
hann G. Jóhannsson tónlistina í
honum við texta Þorvalds.
Í Skilaboðaskjóðunni segir af
Putta og Möddumömmu sem eiga
heima í Ævintýraskógi. Nátttröll
rænir Putta og ætlar að breyta
honum í tröllabrúðu en íbúar
skógarins, dvergarnir, Mjallhvít
og Rauðhetta, vilja bjarga hon-
um.
Skilaboðaskjóðan í konsertuppfærslu
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundurinn Þorvaldur Þorsteins-
son, höfundur Skilaboðaskjóðunnar.
Rauðage
rði 25 · 108 Rey
kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Verslunarkælar í miklu úrvali
• Hillukælar
• Tunnukælar
• Kæli- & frystikistur
• Afgreiðslukælar
• Kæli- & frystiskápar
• Hitaskápar ofl.
ICQC 2018-20