Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 52
LAUGARDAGUR 14. APRÍL 104. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gapir eins og fiskur á myndum
2. Eiður Smári er ekki spilafíkill
3. Játaði á sig morð í Flórída
4. Ellý passar vel inn í líf mitt
Tónleikar í Tíbrár-röðinni fara fram
á morgun kl. 16 í Salnum í Kópavogi.
Á þeim verður flutt Sónata fyrir selló
og píanó op. 6 í F-dúr eftir Richard
Strauss og Strengjatríó op. 9 nr. 3 í
c-moll eftir Ludwig van Beethoven.
Flytjendur eru Ólöf Sigursveinsdóttir
sellóleikari, Páll Palomares fiðluleik-
ari og Bjarni Frímann Bjarnason, pí-
anó- og víóluleikari. Gestum verður
boðið upp á kaffi og spjall við tónlist-
armennina að loknum tónleikunum í
forsal Salarins.
Strauss og Beethoven
á Tíbrártónleikum
Gísli Pálsson,
prófessor í mann-
fræði við Háskóla
Íslands, hlaut á
þriðjudaginn var
Sutlive-verðlaun-
in frá William &
Mary-háskóla í
Williamsburg í
Virginíu í Banda-
ríkjunum fyrir bestu bókina á sviði
sögulegrar mannfræði 2017, The Man
Who Stole Himself, sem Anna Yates
þýddi á ensku.
Hlaut Sutlive-verð-
launin fyrir bók sína
Tríóið Bergljót og Spilapúkarnir
mun halda tónleika í Skyrgerðinni í
Hveragerði í kvöld kl. 20.30. Tríóið
skipa Leifur Gunnarsson kontra-
bassaleikari, Guðmundur
Eiríksson píanóleikari og
söngkonan Bergljót
Arnalds. Bergljót gaf
nýverið út disk með
eigin lögum, Heart
Beat, og mun tríóið
flytja lög af honum í
bland við önnur.
Bergljót og Spilapúk-
arnir í Skyrgerðinni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allvíða rigning en styttir upp norðaustantil þegar líður á daginn.
Hiti 5 til 13 stig að deginum, hlýjast inn til landsins.
Á sunnudag Austlæg átt, 3-8 og víða bjartviðri en skýjað og dálítil rigning SA-til. Hvessir
við suðurströndina þegar líður á daginn. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á mánudag Austan 10-18 m/s en hvassara með suðurströndinni. Talsverð rigning sunn-
an og suðaustanlands, annars bjart með köflum. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast vestanlands.
Deilda- og bikarmeistararnir í ÍBV eru
komnir í 1:0-forystu í undanúrslita-
einvígi sínu gegn ÍR á Íslandsmóti
karla í handknattleik eftir 22:18-sigur
í Vestmannaeyjum í gær. Næsti leikur
fer fram í Breiðholtinu á morgun en
vinna þarf tvo leiki til að komast í
undanúrslitin. ÍR þarf því að vinna
þann leik til að knýja fram oddaleik í
Vestmannaeyjum. »3
Eyjamenn byrjuðu betur
gegn Breiðhyltingum
Tindastóll leikur til úrslita
um Íslandsmeistaratitil
karla í körfuknattleik á
þessu keppnistímabili. Liðið
sló ÍR út úr undanúrslit-
unum, 3:1, með sigri í fjórða
leik liðanna á Sauðárkróki í
gær, 90:87, eftir mikla
spennu. Skagfirðingar eiga
möguleika á því að vinna
tvöfalt í vetur því liðið er nú
þegar orðið bikarmeistari
eftir sigur á KR í janúar. »3
Skagfirðingar
leika til úrslita
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í
körfuknattleik hefst í dag eftir langa
og stranga deildakeppni þar sem
gæfa og gengi kom og fór – oft vegna
meiðsla lykilmanna. Í ár var óvenju-
mikið um meiðsl bestu leikmanna lið-
anna, sem enn á ný gefur til kynna að
leikirnir í
deilda-
keppninni
séu of margir. Sú
staða mun
hinsvegar ekki
breytast þar.
Gunnar Val-
geirsson,
NBA-
sérfræð-
ingur
blaðsins,
fer yfir stöðu mála.
»4
Of margir leikir í
NBA-deildinni
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir að hafa verið á togurum hér-
lendis í meira en áratug söðlaði Aríel
Pétursson um í lok júlí í fyrra og hóf
nám í skóla danska sjóhersins fyrir
verðandi sjóliðsforingja, tæplega þrí-
tugur að aldri. Hrefna Marín Sigurð-
ardóttir, kona hans, stundar meist-
aranám fyrir dönskukennara og
börnin, Esja Marín og Jökull Orri,
eru í leikskóla í Kaupmannahöfn.
Aríel lauk á sínum tíma prófi frá
Stýrimannaskólanum og nýtist það
nám og reynslan af togurunum vel í
danska skólanum þó svo að viðfangs-
efnið sé ólíkt. Hann segir að tvennt
hafi meðal annars hjálpað sér í skól-
anum með foringjaefnunum:
„Það er ákveðin áskorun að vera
annars staðar frá, tala ekki tungu-
málið jafn vel og innfæddir og þekkja
ekki öll blæbrigði tungumáls og
menningar sem hinir gera. Þá er gott
að geta gert betur á öðrum sviðum
eins og að vera góð skytta eins og ég
er, sem er fyndið því ég hef engan
áhuga á að skjóta. Svo get ég spilað á
fiðlu og hef gert það við morgunsöng.
Þetta tvennt hefur brúað bil á milli
mín og annarra nemenda.“
Vanvirða við kónginn
Hann segist hafa gaman af að leika
á fiðlu og harmonikku og yfirmenn-
irnir hafi tekið því vel þegar hann
bauðst til að leika á fiðluna.
„Mér fannst hópurinn ekki standa
sig vel þegar við stilltum okkur upp í
raðir við morgunsöng í grunnnáminu
í herþjálfuninni síðasta haust til að
syngja annan þjóðsöng Dana [,,Kong
Christian stod ved højen Mast“].
Kórinn hljómaði illa svo þetta var eig-
inlega vanvirða við kóng Christian.
Ég tók upp á því að taka fiðluna með
mér til að athuga hvort hægt væri að
leiða hópinn í aðeins betri söng með
undirleik. Það hefur virkað og verið
skemmtilegt,“ segir Aríel.
Margt hefur drifið á daga Aríels
frá því í fyrrasumar, en á fyrsta nám-
skeiðinu var farið í gegnum undir-
stöðuatriði eins og að ganga í takt og
heilsa að hermannasið, hvernig menn
lifa af í óbyggðum, skjóta úr byssu og
helstu viðbrögð í skyndihjálp.
Með vélbyssu við öxl
Síðan leiddi eitt af öðru. Sigling á
skólaskipum þar sem m.a. var ein-
göngu siglt eftir radar með dregið
fyrir brúarglugga, þó svo að siglt
væri um þröngar rennur í nokkurri
umferð. Þá tóku skip strandgæsl-
unnar við og þar fékk Aríel að reyna
sig sem æðsti yfirmaður um borð.
Nýlega lauk hann síðan námskeiði
á freigátunni Niels Juel, sem er eitt af
þremur stærstu herskipum Dana.
Hvert þeirra kostar heldur meira en
ein Harpa, að sögn Aríels. Þar fékk
hann að sigla sem vakthafandi foringi
og stjórna skipinu og samhæfingu við
önnur NATO-skip í flotaæfingum
undan ströndum Noregs. Fleiri
NATO-námskeið, bókleg og verkleg,
hafa verið á námskránni. Í heildina
hefur námið verið fjölbreytt.
„Eina vikuna var klassísk heræf-
ing, eins og maður sér í bíómyndum,
þar sem menn hlaupa um í skóginum
með vélbyssu hangandi við öxlina.
Þar var meðal annars æft hvort menn
geta varist skotárás á sama tíma og
þeir sinna særðum félaga, en þeir
„særðu“ voru sjálfboðaliðar úr heima-
varnarliðinu,“ segir Aríel.
Lífeyrissjóðir og búningar
Hann er ekki lengur við æfingar í
skóginum heldur orðinn lautinant í
bóklegu stjórnunarnámi í akademíu
sjóhersins í Kaupmannahöfn. Þar er
áhersla meðal annars lögð á að nýta
fyrri reynslu og þekkingu nemenda
til að móta góða leiðtoga sem geta
tekist á við hvaða verkefni sem er í
starfsumhverfi sjóhersins.
Aríel fór sem skiptinemi til Rúss-
lands að loknu námi í grunnskóla, fór
fyrst á togara 2006 milli vetra í
Menntaskólanum í Reykjavík og
skipti yfir í Stýrimannaskólann
haustið 2007. Næstu ár var hann á
togurum, fór í nokkra túra á varð-
skipum, starfaði í rúm tvö ár hjá Ice-
land Seafood áður en leiðin lá um
borð í frystitogarann Vigra þar sem
Aríel var 2. stýrimaður í þrjú ár.
En hver er munurinn á umræðu-
efnum um borð í íslenskum togara og
meðal foringjaefna í Danmörku?
„Meðalaldurinn er miklu hærri á
togurum á Íslandi sem leiðir af sér að
menn tala helst um lífeyrissjóði og
sjúkdóma. Í foringjaskólanum er
talsvert yngra fólk, bæði karlar og
konur. Oft er rætt um hvenær menn
fari í frí og hvaða öltegund verður
fyrir valinu í næstu höfn. Svo er vin-
sælt að ræða hvernig einkennisbún-
ingurinn muni breytast á næsta ári.“
Fiðluleikur fyrir foringjaefni
Spurður hvort hann ætli að
finna sér starf í framtíðinni sem
tengist sjóðlisforingjanáminu
segir hann að það sé alveg klárt
mál. „Það eru ýmsir möguleikar
á þessu sviði og þetta er spenn-
andi vettvangur,“ segir Aríel.
Þess má geta að Pétur
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
Landhelgisgæslunnar, og Guð-
jón Ármann Eyjólfsson, fyrrver-
andi skólastjóri Stýrimannaskól-
ans, stunduðu báðir sjóliðs-
foringjanám í Danmörku.
FRAMHALD Á ÞESSU SVIÐI
Spennandi
vettvangur
Í fullum skrúða Sjóðliðsforingjaefnið Aríel Pétursson í Kaupmannahöfn.
Af íslenskum tog-
ara í sjóliðsforingja-
nám í Danmörku