Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 1

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 1
M Á N U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  88. tölublað  106. árgangur  TRÉSKURÐAR- MEISTARI Í LUNDÚNUM KÓRSÖNGUR 300 BARNA BOÐINN NÁMS- STYRKUR Í BESTU HÁSKÓLUM VESTRA BARNAMENNINGARHÁTÍÐ 26 EFTIRSÓTT GRUNNNÁM 2SÍGILD IÐN 12  Nýsköp- unarfyrirtækið Kara Connect lauk nýlega 180 milljóna króna fjármögnunar- lotu leiddri af Crowberry Capi- tal. Þorbjörg Helga Vigfús- dóttir, fram- kvæmdastjóri og meðstofnandi Köru, segir fyrirtækið hafa vaxið hratt á undanförnum misserum. Kara var stofnað 2015 og stefnir á að nýta féð til að sækja inn á erlenda markaði. »14 Kara Connect fær 180 milljónir króna til að hefja útrás Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir  „Þessi framkoma er vægast sagt dapurleg. Eru Hrafnistumenn bún- ir að gleyma einkunnarorðum sín- um, búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld?“ spyr Inga Sæland, for- maður Flokks fólksins, í pistli sín- um í Morgunblaðinu í dag, þar sem hún rekur mál íbúa í þjónustu- íbúðum aldraðra í Boðaþingi 22-24. Íbúum sem ekki undirrituðu sér- stakan viðauka við leigusamning var sagt upp leigunni og gert að yfirgefa heimili sín í haust, m.a. ní- ræðri konu, sjónlausri. »16 Segir framkomu Hrafnistu dapurlega Arnar Þór Ingólfsson Jóhann Ólafsson Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman í gærkvöldi til að ræða loft- árásir Bandaríkjamanna, Breta og Frakka í Sýrlandi aðfaranótt laugar- dags og yfirlýstan stuðning Íslands og annarra aðildarþjóða Atlantshafs- bandalagsins við þær. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra segir að málið hafi ver- ið rætt nokkuð vítt á fundinum, en fundurinn fór fram að beiðni bæði Guðlaugs sjálfs og Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanns VG og varaformanns nefndarinnar, sem vildi fá upplýsingar um fund Norður- Atlantshafsráðsins, ákvörðunarvett- vangs bandalagsins, á laugardag og þá afstöðu sem fastafulltrúi Íslands, Anna Jóhannsdóttir lýsti þar. Rósa Björk sagði við mbl.is að fundi loknum að hún myndi vilja að utanríkismálanefnd Alþingis yrði kölluð saman ef svipaðar aðstæður kæmu upp aftur. „Ég hefði viljað að það hefði verið haldinn hér upplýsingafundur. Að því sögðu þá veit ég að hlutirnir gerast hratt og það er erfitt um vik, sérstak- lega um helgi. En ég hefði viljað það, já,“ sagði Rósa Björk, sem hefur lýst því yfir að hún styðji ekki árásirnar, eins og raunar fleiri þingmenn Vinstri grænna, sem er eini stjórn- málaflokkur landsins sem hefur það sem yfirlýsta stefnu að ganga úr NATO. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, er á sömu skoðun og Rósa Björk og vill meira samráð við utanríkismálanefnd. Í samtali við mbl.is kallaði hann loftárásir vestur- veldanna ótímabærar og sagði að þær hefðu í það minnsta mátt bíða þar til upplýsingar fengjust frá þeim óháðu aðilum sem rannsaka nú hverjir báru ábyrgð á efnavopnaárásunum í Douma 7. apríl síðastliðinn. Skiptar skoðanir „Það voru skiptar skoðanir um ein- staka þætti en mér fannst fundurinn vera prýðilegur og gott að halda hann,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við Morgunblaðið. Hann segir yfirlýs- ingu NATO hafa verið málamiðlun á milli aðildarþjóða bandalagsins, sum- ir hafi viljað ganga lengra og aðrir viljað ganga styttra í því að lýsa yfir stuðningi við aðgerðir þjóðanna þriggja, sem beindust gegn skot- mörkum tengdum ætlaðri efnavopna- framleiðslu stjórnvalda í Sýrlandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, seg- ir í samtali við Morgunblaðið að sátt sé innan nefndarinnar með þá afstöðu sem Ísland lýsti innan Norður-Atl- antshafsráðsins, en fastafulltrúinn lagði áherslu á þá afstöðu Íslands að reynt yrði að finna pólitíska lausn á átökunum í Sýrlandi, áður en sam- þykkt væri að leggja nafn Íslands við yfirlýsingu Atlantshafsbandalagsins. Kalla eftir meira samráði  Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman í gærkvöldi til að ræða stuðning við flugskeytaárásir vesturveldanna í Sýrlandi  Yfirlýsing NATO málamiðlun MLoftárásir í Sýrlandi »15-16 Morgunblaðið/Árni Sæberg Sýrland Utanríkismálanefnd kom saman til fundar í Alþingishúsinu í gær- kvöldi, til að ræða loftárásir í Sýrlandi og stuðning NATO við þær. Nýrri Boeing-vél Icelandair, af gerðinni 737 MAX, var flogið yfir Eyjafjörð og Akureyri á laugardag. Það var vel við hæfi því forveri flugfélagsins var Flugfélag Akureyrar, stofnað árið 1937. Með stuttu hringflugi yfir landið með gesti og fjöl- miðlafólk tók Icelandair þessa nýju vél í notkun, sem fengið hefur heitið Jökulsárlón. Hún er ein 16 véla sömu gerðar sem Icelandair hefur fest kaup á. Nýju MAX-vélarnar verða not- aðar í almennu áætlunarflugi til áfangastaða bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Þær taka 160-178 farþega í sæti. Flogið vængjum þöndum yfir höfuðstað Norðurlands Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.