Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 2

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr náttúrulegum efnivið, tré og silki York að heimsækja Columbia- háskólann. Kemur hann þaðan heim á miðvikudag en stoppið verður stutt því daginn eftir liggur leiðin aftur til Bandaríkjanna til að skoða tækniháskólann MIT í Cambridge og síðan Harvard í sömu borg. Spurður hvaða námsgrein verður fyrir valinu segir Bjarni líklegast að það verði taugalíffræði eða líffræði- leg verkfræði. „Ég hef haft mestan áhuga á raungreinum og þá helst líffræðinni. Draumastarfið hefur ekki verið ákveðið, ég mun finna út úr því í náminu en á fyrsta ári í þessum há- skólum er hægt að prófa mismun- andi leiðir.“ þegar ég kláraði fyrsta árið í Versló. Mér hefur gengið mjög vel í námi og stefnan var bara sett á að reyna við þessa háskóla. Ég gerði mér samt vel grein fyrir að þetta gæti aldrei gengið upp. Sem betur fer varð það ekki raunin,“ segir Bjarni sem hefur dúxað á nánast hverri önn í Versló, með meðaleinkunn frá 9,6 til 9,8. Hann útskrifast sem stúdent í vor frá eðlisfræðibraut en skyldi markmiðið vera að ná 10 í meðaleinkunn? „Þegar meðaleinkunn er orðin þetta há getur verið erfitt að fara hærra, en við sjáum til,“ svarar Bjarni. einbeittur. Hann fór um helgina til New Bjarni Ármann segist vera Vesturbæingur í húð og hár. Útskrifaðist úr Hagaskóla og var þar áður í Grandaskóla. Foreldrar hans eru Atli Vagns- son, fasteignasali atvinnuhúsnæðis, og Guðrún Árnadóttir iðjuþjálfi. Tví- burasystir Bjarna er Laufey Halla, sem er að klára stúdentinn í Mennta- skólanum í Reykjavík. Bjarni segir að sér hafi alltaf gengið vel í skóla og jafnframt verið á fullu í íþróttum og félagsstarfi. Lengst af stundaði hann körfubolta en á seinni árum hefur hann mest verið í frjálsum íþróttum, náð þar mjög góðum árangri í hlaupum og hlotið nokkra Íslandsmeistaratitla. „Ef maður ætlar sér að ná langt í námi er nauðsynlegt að gera eitthvað annað líka. Ég hef einnig reynt að leggja eitthvað af mörkum til félags- lífsins, líkt og hérna í Versló. Þetta kallar allt á skipulagningu og aga en það er líka lykillinn að því að ganga vel í námi.“ Á fullu í íþróttum og félagsstarfi VESTURBÆINGUR Í HÚÐ OG HÁR Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.si „Harvard hefur verið draumaskóli minn en þegar ég skoðaði náms- framboðið í MIT og Columbia heill- uðu þeir skólar mig líka,“ segir Bjarni Ármann Atlason, tvítugur nemandi á síðasta ári sínu í Versl- unarskóla Íslands. Hann er í þeirri öfundsverðu stöðu að geta valið á milli þriggja af sex bestu háskólum Bandaríkjanna fyrir næsta haust. Bjarni komst inn í grunnnám og fékk jákvætt svar um styrki frá Harvard, MIT og Columbia og er þessa dagana að gera upp hug sinn með því að heimsækja skólana vestanhafs. Þarf hann að svara þeim fyrir 1. maí. „Ég hallast mest að Harvard en ég fer í allar þessar heimsóknir með opnum huga.“ Bjarni segir aldrei hafa verið erf- iðara en nú að komast inn í grunn- nám í þessum skólum. Þannig hafi aðeins 4,6% af um 40 þúsund um- sækjendum komist inn í grunn- námið við Harvard. Einnig er orðið torsóttara að komast í MIT og Col- umbia og hlutfallið svipað yfir þá umsækjendur sem ná inn. Hefur dúxað á hverri önn Bjarni fékk ekki aðeins vilyrði um inngöngu í Columbia heldur er hann meðal 30 einstaklinga úr hópi ríf- lega 40 þúsund umsækjenda sem býðst staða sem „John Jay Scholar“ við skólann. „Ég fór að hugsa um þetta strax Morgunblaðið/Valli Námsmaður Bjarni Ármann Atlason er í óskastöðu, getur valið á milli þriggja mjög virtra háskóla vestanhafs. Getur valið á milli bestu háskólanna  Bjarni Ármann fékk boð frá Harvard, MIT og Columbia Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, býst ekki við því að átökin sem settu svip sinn á kennaraþingið í síðustu viku muni halda áfram í störfum félagsins. „Það eru auðvitað átök í verkalýðs- hreyfingu og kjör mitt kemur dálítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í félagið okkar og það er alveg eðlilegt að svoleiðis átök birtist á þingunum. Svona virkar bara lýðræð- ið, það er tekist á og svo þegar búið er að takast á taka menn höndum saman og fást við þau verkefni sem bíða þeirra. Það mun ekki standa á mér að vinna með fólk- inu sem við höfum verið kosin til að vinna með og ég reikna ekki með að það verði öðru- vísi með aðra,“ segir Ragnar, sem tók formlega við embættinu á föstu- daginn en hefur störf í dag. Ragnar sagði starfi sínu lausu sem kennari í Norðlingaskóla eftir kjörið. „Ég hlakka bara til og ég reikna ekki með öðru en að eiga gott sam- starf við starfsfólk Kennarasam- bandsins. Ég er búinn að vera þar í starfsþjálfun í margar vikur og búið er að setja mig inn í verkefni svið- anna. Við Þórður [Hjaltested] eigum mjög gott samstarf og ég reikna með að það muni gilda líka um aðra starfs- menn. Við munum bara nálgast þetta af fagmennsku og virðingu fyrir emb- ættunum sem við höfum verið kosin í.“ Spurður hvort einhverjir þeirra sem vildu að hann endurnýjaði kjör sitt á þinginu hafi haft samband við hann um helgina segir hann svo ekki vera. „Það var margt fólk sem kom til mín eftir þingið sem hafði verið með alls konar afstöðu í málinu en það hef- ur ekki verið farið í neitt uppgjör. Við bara tölum saman og ég reikna með að við náum farsælli lendingu.“ mhj@mbl.is Tilbúinn að vinna með öllum  Nýr formaður KÍ til starfa í dag  „Það eru auðvitað átök í verkalýðshreyfingu“ Ragnar Þór Pétursson Íris Róberts- dóttir mun leiða framboðslista í Vestmanna- eyjum fyrir komandi sveitarstjórnar- kosningar undir merkjum nýs bæjarmála- félags, Fyrir Heimaey. Þetta staðfestir Íris á Fa- cebook-síðu sinni í gærkvöldi en eins og kom fram í Morgunblaðinu sl. laugardag hafði fjöldi fólks skor- að á Írisi að gefa kost á sér í efsta sætið. Íris tekur efsta sæt- ið hjá Fyrir Heimaey Íris Róbertsdóttir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Þetta var mikill hamingjudagur að öllu leyti,“ segir María Jónsdóttir, sem fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær, sunnudaginn 15. apríl. María er búsett á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli og þar var haldin mikil veisla henni til heiðurs. „Veislan var gríðarlega stór, það komu um hundrað manns. Ég kalla það bara heilmikinn fjölda svona úti á landi,“ segir María. Hún var húsfreyja á Kirkjulæk í Fljótshlíð frá 1947 til 1984. Börn hennar og Ólafs Steinssonar, sem dó haustið 1993, voru sjö og eru sex þeirra á lífi. Eru þau á aldrinum 55 til 69 ára. Sungu og kváðu stemmur María var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu af Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi for- seta Íslands, árið 2009 fyrir framlag til varðveislu þjóðlegrar kvæða- menningar, en sem barn ferðaðist hún um landið og kvað stemmur með föður sínum. Hún hefur kennt af- komendum sínum stemmurnar og fæst enn til að kveða annað slagið. „Þetta var ógleymanlegt. Við fór- um að kveða og syngja stemmur. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður gerir það en ég er búin að kenna krökkunum mínum það.“ Aðspurð segist María ekki hafa átt von á að ná svo háum aldri. – En ertu með lykil að langlífi? „Afi minn varð 102 ára og frænka mín 101 árs svo það er kannski hægt að segja að þetta sé ættgengt,“ segir María, en þrjú af systkinum hennar náðu 90 ára aldri. Er eitt þeirra á lífi, 92 ára að aldri. Lárus Erlendsson, afi Maríu í föðurætt, varð 102 ára og barnabarn hans, Ingibjörg Hjálmarsdóttir, varð 101 árs. Axel Jóhannesson, sem orðinn er 102 ára, og María eru fjór- menningar. Þess má jafnframt geta að langafi hennar var skáldið Bólu- Hjálmar. Maríu er margt til lista lagt, en fyrir nokkrum árum var sett upp sýning í Sögusetrinu á Hvolsvelli með handverki hennar í gegnum tíðina. Hægt að segja langlífið ættgengt  María Jónsdóttir fagnaði 100 ára af- mæli sínu í gær  100 gestir í veislunni Afmæli María Jónsdóttir hélt upp á 100 ára afmælið í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.