Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018
ALICANTE
Netverð á mann frá kr. 19.900 báðar leiðir
m/sköttum. Taska og handfarangur innifalið.Flugsæti
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
19.900
fram og tilbaka
í apríl
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Persónuverndarfulltrúi hefur verið
óþekkt starfsheiti hérlendis, en það
mun breytast á næstunni vegna inn-
leiðingar á nýrri reglugerð Evrópu-
sambandsins um persónuvernd. Ný
persónuverndarlöggjöf kemur til
framkvæmda í Evrópu 25. maí og þá
verður öllum stofnunum og sveitar-
félögum skylt að tilnefna slíkan full-
trúa, auk fyrirtækja sem hafa um-
fangsmikla, viðkvæma eða
viðvarandi vinnslu á persónuupplýs-
ingum eða eftirlit með einstaklingum
að meginstarfsemi.
Helga Þórisdóttir, forstjóri Per-
sónuverndar, segir í samtali við
Morgunblaðið að mögulegt verði fyr-
ir stofnanir og sveitarfélög að sam-
nýta persónuverndarfulltrúa. Þó
þurfi að tryggja að starfsmaðurinn
komist yfir öll þau verkefni sem hon-
um er ætlað að sinna. Hafnar-
fjarðarbær auglýsti um helgina eftir
starfsmanni í 100% stöðu persónu-
verndarfulltrúa.
„Allt stjórnarráðið ætlar að byrja
á að samnýta einn persónuverndar-
fulltrúa. Það verður umfangsmikið
verkefni að sinna öllum ráðuneytum
landsins sem persónuverndarfulltrúi
og það má gefa sér að væntanlega
þurfi að bæta við, ef það er ákveðið
að samnýta of mikið, af því að við-
komandi þarf að geta valdið verkefn-
inu,“ segir Helga.
Sjálfstæðir í störfum sínum
Að sögn Helgu eiga persónu-
verndarfulltrúar að vera undir efsta
lagi í skipuriti
hvers vinnustað-
ar og algjörlega
sjálfstæðir í sín-
um störfum. Þeir
eiga að vera sér-
fróðir á sínu sviði
og tengiliðir
vinnustaða við
Persónuvernd,
auk þess sem þeir
eiga að sjá um að
uppfræða starfsfólk um þær reglur
sem gilda um persónuvernd. Helga
telur líklegt að lögfræðingar sæki í
störf persónuverndarfulltrúa, þar
sem krafan er sú að persónu-
verndarfulltrúar hafi sérþekkingu á
persónuverndarlöggjöfinni.
Lögfræðigráða verði hins vegar ekki
skilyrði, heldur geti stofnanir og
fyrirtæki ákveðið hvaða menntun
henti þeirra starfsemi best.
Helga segist ekki geta sagt til um
hversu mörg stöðugildi persónu-
verndarfulltrúa verði til hérlendis
vegna hinnar nýju löggjafar, þar
sem Persónuvernd hafi ekki haft
mannskap til að skoða það og að ekki
liggi fyrir hversu mörg einkafyrir-
tæki hérlendis hafi vinnslu á per-
sónuupplýsingum að meginstarf-
semi. Það hefur hins vegar verið
metið í ríkjum Evrópusambandsins.
„Bara þessi þáttur í nýju löggjöfinni
kallar á um 77.000 ný störf í Evr-
ópu,“ segir Helga og þá eru EES-
ríkin Ísland, Noregur og Liechten-
stein ekki talin með, en þeim er skylt
að taka reglugerðina upp þar sem
vernd persónuupplýsinga er hluti af
EES-samningnum.
Óljóst hve mörg stöðugildi þarf
Stofnunum, sveitarfélögum og vissum fyrirtækjum gert skylt að tilnefna persónuverndarfulltrúa
vegna nýrrar löggjafar 77.000 stöðugildi verða til innan ESB Stjórnarráðið ætlar að samnýta einn
Helga
Þórisdóttir
Evrópska persónuverndar-
löggjöfin var samþykkt 27. apríl
2016 af forseta Evrópuþingsins
og -ráðsins og kemur til fram-
kvæmda 25. maí næstkomandi.
Nýja löggjöfin felur í sér fleiri
og strangari skuldbindingar en
áður og munu brot á henni geta
haft miklar efnahagslegar af-
leiðingar fyrir þá sem vinna
með persónuupplýsingar.
Breytingar
fram undan
PERSÓNUVERND
Alexander Gunnar Kristjánsson
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
„Þetta er það sem gera þarf,“ segir
Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins, um kosningalof-
orðin sjö sem flokkurinn kynnti á
fundi í Iðnó um helgina.
Hann kveður flokkinn óhræddan
við að kalla þetta loforð, en meðal lof-
orðanna er að fasteignaskattar á eldri
borgara, 70 ára og eldri, verði lagðir
niður komist flokkurinn til valda í
borginni.
Á fundinum sagði Eyþór gjöld
eldri borgara hafa hækkað upp úr
öllu valdi og að breytinga væri þörf.
Eldri borgarar, auk öryrkja, geta
þegar fengið tekjutengdan afslátt af
fasteignasköttum en ef af breyting-
unum yrði, sem kynntar voru á fund-
inum, væru 70 ára og eldri undan-
skildir fasteignaskatti óháð tekjum.
„Við viljum minnka þessa neikvæðu
hvata gagnvart eldri borgurum og
gefa þeim meiri möguleika á að búa
heima hjá sér,“ segir Eyþór, en að
nánari útfærsla bíði framkvæmdar.
Kosningaloforð sem einnig voru
kynnt á fundinum voru bygging 2.000
nýrra íbúða að jafnaði á ári á kjör-
tímabilinu, stytting ferðatíma til og
frá vinnu um 20% og að öll börn
fengju leikskólapláss við 18 mánaða
aldur með auknu sjálfstæði leikskól-
anna og hækkun lægstu launa til að
draga úr manneklu.
Þá var svifryksmengun í borginni
gerð að umræðuefni og sagði Eyþór
að þrífa þyrfti borgina oftar, og að
með þeim aðgerðum og fleirum, svo
sem stuðningi við rafbílavæðingu og
aukinni endurvinnslu, gæti Reykja-
vík orðið með grænustu borgum
Evrópu. Þá er því lofað að stjórnkerfi
borgarinnar verði einfaldað og að af-
greiðslutími í kerfinu verði styttur
um helming.
Aðspurður segir Eyþór flokkinn
vera búinn að reikna dæmið og raun-
ar telji þau þetta vera kosningaloforð
sem borgi sig sjálf. „Bygging 2.000
íbúða á ári mun auka tekjur borgar-
innar til langs tíma með því að fjölga
útsvarsgreiðendum,“ nefnir Eyþór
m.a., og að fjárfestingar í samgöngu-
kerfinu séu ein arðbærasta fjárfest-
ing sem hægt sé að fara í. Þá segir
hann kostnað við dvalarheimili háan
og að því sé það ekki bara réttlætis-
mál að létta byrði eldri borgara, held-
ur hagkvæmt fyrir kerfið í heild.
„Kosningaloforð
sem borga sig sjálf“
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Hildur Björnsdóttir og Eyþór Arnalds, efstu frambjóðendur listans, ræða við fundargesti í Iðnó.
Sjálfstæðisflokkurinn í borginni vill leggja niður fasteigna-
skatta eldri borgara Verði grænasta borg Evrópu
2018
2.000 íbúðir verði byggðar í
Reykjavík að jafnaði á ári á kjör-
tímabilinu 2018-2022.
Ferðatími til og frá vinnu
styttist um 20%.
Fella niður fasteignaskatt á
70 ára og eldri.
Öll börn fái leikskólapláss við
18 mánaða aldur.
Svifryksmengun fari ekki yfir
heilsuverndarmörk.
Reykjavík verði grænasta
borg í Evrópu.
Afgreiðslutími í kerfinu verði
styttur um helming.
Loforðin sjö
í borginni
ÁHERSLUR KYNNTAR
Morgunblaðið/Eggert
Heilræði Línurnar lagðar.
Áætlað er að
lagafrumvarp um
stofnun þjóðar-
sjóðs verði lagt
fram á næsta
þingi og gert er
ráð fyrir því að
sjóðurinn taki til
starfa árið 2020.
Bjarni Benedikts-
son fjármála-
ráðherra kynnti
hugmyndina um sjóðinn á ársfundi
Landsvirkjunar fyrir tveimur árum
og sagði þá að í sjóðinn færu meðal
annars arðgreiðslur frá fyrirtækinu.
Talaði Bjarni um að innan 2-3 ára
kæmu árlega á bilinu 10-20 millj-
arðar í arðgreiðslur frá Lands-
virkjun. Orkusala Landsvirkjunar
var árið 2017 sú mesta frá upphafi
og var hagnaður félagsins 11,2 millj-
arðar. Hlutverk þjóðarsjóðsins er
tvíþætt, bæði sem vörn við þjóðhags-
legum áföllum og að fjármagna
verkefni ríkisins. „Samkvæmt fyrir-
liggjandi tillögum er gert ráð fyrir
að sjóðurinn varðveiti og ávaxti
tekjur af auknum arðgreiðslum frá
orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkis-
ins og gegni því meginhlutverki að
verða eins konar áfallavörn þegar
ríkissjóður verður fyrir fjárhags-
legri ágjöf í tengslum við meiri hátt-
ar ófyrirséð áföll á þjóðarhag,“ segir
í svari fjármálaráðuneytisins við
fyrirspurn mbl.is. um þjóðarsjóðinn.
thorsteinn@mbl.is
Frumvarp um þjóðarsjóð á næsta þingi
Bjarni
Beneditksson
Ágúst Sigurðs-
son, sveitarstjóri
Rangárþings
ytra, hreppti
fyrsta sætið í
prófkjöri sjálf-
stæðismanna í
Rangárþingi
ytra með 82,2%
atkvæða. Ágúst
hlaut 208 at-
kvæði í 1. sætið
en kjörsókn í prófkjörinu var 57%.
Prófkjörið var opið öllum flokks-
bundnum sjálfstæðismönnum, 16
ára og eldri. Björk Grétarsdóttir
fyrirtækjaráðgjafi er í öðru sæti
listans en hún hlaut 66,4% atkvæða,
eða 168 atkvæði í 1 til 2. sæti.
Í þriðja sæti hafnaði Haraldur
Eiríksson, fjármálastjóri og for-
maður byggðarráðs, með 41,5% at-
kvæða. Hjalti Tómasson, starfs-
maður þjónustumiðstöðvar, endaði
í fjórða sæti með 49,4% atkvæða.
Prófkjörið fór fram á laugardag-
inn í Miðjunni á Hellu en utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla fór fram á
skrifstofum Sjálfstæðisflokksins í
Valhöll. Sjálfstæðismenn hafa
meirihluta í Rangárþingi ytra,
fjóra fulltrúa af sjö. Alls buðu 11
manns sig fram í prófkjörinu.
mhj@mbl.is
Ágúst efstur í prófkjöri í Rangárþingi ytra
Ágúst
Sigurðsson