Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 8

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is STURTUKLEFAR Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandipírati, var meðal gesta Bjartar Ólafsdóttur í þættinum Þingvellir á K100 í gærmorgun. Birgitta lýsti áhyggjum af reynsluleysi þing- manna og hún benti á að hún hefði, eftir átta ára þingsetu, verið orðin með reyndustu þingmönnum.    Það kemur dálítið áóvart að heyra slíkar áhyggjur frá fyrrverandi pírata, en áhyggjurnar eru rétt- mætar.    Þingreynsla á síð-ustu áratugum hefur gjarnan verið frá rúmum sex árum upp í rúm sjö ár við upphaf kjörtímabils. Frá 2009 hafa verið hröð skipti á þingi með þeim afleið- ingum að meðalreynsla þingmanna er nú rúm fjögur ár.    Þróunin síðustu ár hefur orðið tilþess að þingmenn höfðu áður um 50%-75% meiri reynslu en í seinni tíð.    Reynsluleysið er því augljóst enþó þarf að hafa í huga að það er ekki bara reynslan sem máli skiptir. Þeir sem nú sitja á þingi eru uppteknari af ásökunum um röng vinnubrögð en um ranga stefnu.    Umræður snúast mikið um um-búðir en lítið um innihald. Ef til vill spilar reynsluleysið inn í þetta, en getur ekki líka verið að suma þingmenn skorti pólitískt er- indi?    Þeir tala að minnsta kosti stund-um eins og þeir telji að Alþingi eigi aðallega að vera þægilegur og skilvirkur vinnustaður en ekki stefnumarkandi löggjafarsamkoma. Birgitta Jónsdóttir Reynsluleysi eða stefnuleysi? STAKSTEINAR Björt Ólafsdóttir Veður víða um heim 15.4., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 9 skýjað Nuuk -4 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 15 léttskýjað Kaupmannahöfn 9 skúrir Stokkhólmur 8 skýjað Helsinki 10 skýjað Lúxemborg 16 heiðskírt Brussel 16 léttskýjað Dublin 11 rigning Glasgow 13 skúrir London 11 rigning París 16 heiðskírt Amsterdam 15 þoka Hamborg 11 skýjað Berlín 21 heiðskírt Vín 21 heiðskírt Moskva 15 heiðskírt Algarve 16 skýjað Madríd 15 súld Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað Róm 20 heiðskírt Aþena 20 heiðskírt Winnipeg -1 skýjað Montreal -2 alskýjað New York 5 þoka Chicago 1 rigning Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:52 21:04 ÍSAFJÖRÐUR 5:48 21:18 SIGLUFJÖRÐUR 5:30 21:02 DJÚPIVOGUR 5:19 20:36 Hafrannsóknastofnun ráðleggur að árlegar veiðar hrefnu árin 2018–2025 verði ekki meiri en 217 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu. Hrefnuveiðar hafa undanfarin ár verið langt undir ráðlögðum hámarksfjölda og flestar hrefnur verið veiddar í Faxaflóa. Ár- ið 2017 veiddust einungis 17 hrefnur, þar af fjórar í utanverðum Skaga- firði. Síðasta ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar varðandi hrefnuveiðar var veitt vorið 2016 og tók hún til áranna 2016-2018. Þar var mælt með árleg- um veiðum á allt að 224 hrefnum. Í skýrslu vísindanefndar NAMMCO frá haustinu 2017, sem byggist á út- tekt alþjóða hvalveiðiráðsins, er lagt til að árlegar veiðar á hrefnu nemi að hámarki 217 dýrum á tímabilinu 2018-2025. Byggist ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar á þeirri vinnu, segir í frétt á heimasíðu stofnunarinnar. Óvissa með sumarið Í frétt í Morgunblaðinu í síðasta mánuði kom fram að óvissa ríkti um hvort hrefnuveiðar yrðu stundaðar í sumar af hálfu IP-útgerðar. Með því að draga línu þvert yfir Faxaflóa hefði svæði þar sem 82,3% af veidd- um hrefnum fengust á síðustu 10 ár- um verið lokað. Í fyrra voru tveir bátar með leyfi til hrefnuveiða, Hrafnreyður KÓ og Rokkarinn KE. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sýning Ferðafólk fylgist með líf- legri hrefnu í Faxaflóa. Lítil breyt- ing á hrefnu- kvótanum  Veiðar verið langt undir ráðgjöfinni Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Samráðsvettvangur trú- og lífsskoð- unarfélaga heldur ráðstefnu um um- skurð drengja í Norræna húsinu á morgun kl. 13. Í fréttatilkynningu kemur fram að markmiðið með sam- ráðsvettvanginum sé að stuðla að já- kvæðum samskiptum, skilningi, um- burðarlyndi og virðingu milli trúfélaga, lífsskoðunarfélaga og fólks með mismunandi trúarviðhorf hér á landi og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi. Aðildarfélög samráðsvettvangsins eru alls 18 og er tilefnið lagafrumvarp um bann við umskurði drengja. „Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga tekur hvorki af- stöðu með frumvarpinu né á móti því, enda eru skiptar skoðanir um það innan hans, en hann vill engu að síður veita þeim trúfélögum, sem frum- varpið snertir mest, tækifæri til að kynna sjónarmið sín um það, hlusta á röksemdir þeirra sem standa að því og ræða þær.“ Fjölmargir erlendir aðilar úr al- þjóðlegum samtökum múslima og gyðinga eru meðal frummælenda ásamt fjölmörgum læknum. Þá munu Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og meðflutningsmaður frumvarpsins á Alþingi, og Salvör Nordal, umboðs- maður barna, einnig taka til máls. Fundað um umskurð drengja  Átján trúfélög standa að fundi  Rætt um frumvarpið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.