Morgunblaðið - 16.04.2018, Qupperneq 13
mánuðum ellegar
fá sekt,“ segir
Sigríður sem skar
út andlitið auk fleiri
hluta.
Annað stórt verk-
efni sem þau hafa nýlokið
við er risastór ljósakróna fyrir
Orleans House-galleríið í
Twickenham. „Ljósakrónan
var í rými sem var upprunalega
hannað af James Gibbs árið 1720
en týndist fyrir mörg hundruð
árum. Nýlega var ákveðið að end-
urskapa rýmið í upprunalegri mynd,
gamalt málverk var endurgert eftir
myndum, innbúið var lagað, veggir
málaðir og hlutir gylltir. Við teikn-
uðum ljósakrónuna upp eftir einni
svarthvítri mynd og settum hana
saman úr svampi til að átta okkur á
hlutföllum. Miðjan var svo rennd í 10
pörtum og allir 20 armarnir voru
aður í þrívídd
sem þau not-
uðu svo til hlið-
sjónar við út-
skurðinn. „Kín-
verski turninn (The
Great Pagoda) í Kew
Gardens var hannaður
1762 af William Chambers
en talið er að einhver kon-
ungurinn hafi selt drekana
til að eiga fyrir spilaskuldum,
þótt það sé ekki staðfest.
Drekarnir voru því endur-
skapaðir eftir ætimynd eftir
hönnuðinn og málverki frá 1830.“
Slíkur útskurður er mann- og
tímafrekur en í heildina verða drek-
arnir 80; þeir átta stærstu skornir út
en hinir minni prentaðir í þrívídd.
„Við gerðum einn dreka af þess-
um átta, vorum fjögur að gera hann
en vegna tímaramma í samningnum
urðum við að klára hann á þremur
fyrst í tveimur helmingum til
að fræsa raufar fyrir raf-
magnið. Í heildina tók
þetta okkur fjögur um
fjóra til fimm mánuði;
það þurfti að setja marg-
ar umferðir af gifsi og
pússa mjög vel áður
en gyllingin hófst en
ljósakrónan var
vatnsgyllt, sem er
mjög tímafrekt
ferli.“
En skyldi Sigríð-
ur eiga sér einhverja
uppáhaldsmuni?
„Verkefnin hafa
verið ótrúlega mis-
jöfn og þetta getur
verið mjög erfitt
ferli, svo manni líður
voða vel þegar maður
kemst á stað þar sem maður
er sáttur. Apar sem við gerðum árið
2015 eru samt ofarlega á lista yfir
uppáhaldsmuni. Þeir voru fyrir
einkabókasafn viðskiptavinar í
Bandaríkjunum, við hönnuðum þá
eftir hans hugsjón og útkoman varð
skondin en skemmtileg. Svo á líka
útskriftarverkefnið mitt, ljósa-
krónan mín, sinn sess. Hún var
þrekvirki.“
Sigríður segir að til séu nokkrir
munir eftir sig á heimilum fjölskyldu
og vina á Íslandi og einnig hafi hún
skorið út kross á leiði móður sinnar,
sem er jarðsett í Selfosskirkjugarði.
Hún sé alltaf opin fyrir spennandi
verkefnum svo Íslendingum sé
frjálst að hafa samband við hana
með hugmyndir.
eftirspurn eftir viðhaldi á munum.
„London er sögufræg borg
og í Bretlandi eru
margar gamlar fal-
legar byggingar,
klúbbahús fé-
lagasamtaka og
kirkjur sem þurfa
viðhald reglulega,“
útskýrir Sigríður
sem starfar oft með
listafólki og hönn-
uðum en svo tekur
hún líka þátt í
stærri verkefnum
sem þarfnast
margra handa.
Eins og að gylla
heilt loft með
hveitiknippum á
St. James Market-
svæðinu sem fékk alls-
herjar yfirhalningu sem
kostaði 450 milljónir punda. „Ég tók
líka þátt í að búa til hásæti sem sótti
fyrirmynd í Bayeux-refilinn í tilefni
af 950 ára afmæli orrustunnar við
Hastings, sem og húsgögn eins og
kirkjubekki og reikningsborð.“
Aðalnýjungin felst
í þrívíddarprentun
Handverk stendur alltaf fyrir
sínu og tréskurður er gömul iðn sem
lítið hefur breyst í gegnum tíðina.
„Þetta er frekar gamaldags, já.
Þetta snýst um járn og við og vegna
þess hve viður er fjölbreytilegur
gengur lítið að nútímavæða verkfær-
in. Aðalnýjungin felst í þrívídd-
arprentun, við höfum notast við hana
í nokkrum verkefnum.“
Þá tækni nýtti tréskurðarfólkið
hjá Sands & Randall nýlega þegar
það tók að sér stórt verkefni fyrir
Kew Gardens en þá var dreki prent-
Dreki Sigríður og samstarfsmenn nýttu sér þrívíddartæknina … … þegar þau endursköpuðu dreka eftir málverki frá 1830.
ridursig@hotmail.com
www.sandsandrandall.com
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018
Mikið úrval af snögum
og snagabrettum
Snagabretti frá kr. 930
Snagar frá kr. 265
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Ný
vefvers
lun
brynja.i
s
„Óhætt er að segja að um þessar
mundir sé plokkæði á Íslandi,“
sagði á forsíðu Morgunblaðsins á
föstudaginn. Plokkæðið snýst um að
fólk tíni upp rusl sem á vegi þess
verður þegar það gengur eða skokk-
ar um allar koppagrundir. Eins og
við er að búast eru heimtur jafnan
miklar í plasti, enda hefur notkun
þess aukist jafnt og þétt. Trúlega
eru margir þó farnir að hugsa sig
um tvisvar og afþakka t.d. plast-
poka í búðum.
En víða leynist plastið og oft uggir
fólk ekki að sér. Ef flaska er úr
plasti blasir það við, þótt öðru máli
gegni um margt annað eins og bent
er á í bókinni Betra líf án plasts,
sem kom út hjá Bókafélaginu í
fyrra:
Tyggigúmmí
Viltu tyggja
plast? Nær allt
tyggigúmmí er
eingöngu gert
úr plasti segir í
bókinni, en
jafnframt er
bent á að stutt
sé síðan farið
var að framleiða tyggigúmmi sem í
grunninn er náttúruleg trjákvoða án
gerviefna.
Kassastrimlar Kassakvittanir eru
samkvæmt bókinni oft húðaðar með
BPA-efnum. Þeir sem ekki þurfa á
kvittun að halda ættu að afþakka
þær ellegar geyma þar sem börn ná
ekki til og flokka að lokum með
öðrum pappír.
Barnabækur Pappír í smábarna-
bókum er oft blandaður plasti og
oft eru litríkar glansfilmur límdar á
bækurnar og önnur varasöm efni
notuð.
Húðaðar pönnur Sterk, hitaþolin
efni eru í auknum mæli notuð í
potta og pönnur. Mörg þeirra inni-
halda plast sem eyðist á skömmum
tíma og blandast þá út í matinn.
Pottar og pönnur með varnarlagi úr
ekta keramiki eru betri kostur.
Niðursuðudósir Niðursuðudósir eru
oft húðaðar að innan með plasti því
snerting við málm getur haft áhrif á
bragðið. Þótt plastið breyti ekki
bragðinu þá seytla úr því mýkiefni
sem eru mun hættulegri en keimur
af málmi.
Umhverfið
Plastið og
plokkæðið
Barnamenningarhátíðin á Akureyri
hófst í dag og stendur til 22. apríl.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum
til að hátíðin þar í bæ verði sú fyrsta
af mörgum eru hvattir til að mæta á
opinn fund um barnamenningu í
Hömrum, Hofi kl. 17.-19. í dag, mánu-
daginn 16. apríl. Þar verður rætt um
mikilvægi barnamenningar og leiðir
til að efla hana – eins og er mark-
miðið með hátíðinni. Börnin fá tæki-
færi til að njóta lista og menningar
og um leið að fegra bæjarlífið.
Barnamenning snýst um börn sem
skapa, njóta, sýna og túlka og því er
hátíð hlaðin spennandi viðburðum
þar sem gleði og innlifun eru í fyrir-
rúmi. Sumir vilja mæta á dansæfingu
með akureyrskum íþróttahetjum,
aðrir vilja búa til myndasögur eða
skrímslagrímur á Minjasafninu. Enn
aðrir vilja yrkja klippiljóð á Amts-
bókasafninu og mæta á ljóðasnapp í
Davíðshúsi, setja upp sýndarveru-
leikagleraugu, glíma við skákþrautir,
mæta á djammsession í Rósenborg
eða hlusta á strengjasveit Tónlistar-
skólans. Af mörgu er að taka og allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Nánar er fjallað um hátíðina á
Facebook: Barnamenningarhátíð á
Akureyri.
Barnamenningarhátíð á Akureyri 16.-22. apríl
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hátíð í bæ Á barnamenningarhátíðinni á Akureyri eru fjölbreyttir viðburðir í
boði fyrir börn og unglinga og alla sem vilja gleðjast með unga fólkinu.
Börnin skapa, njóta, sýna og
túlka og fegra um leið bæjarlífið
Ljósakróna
Útskriftarverkefni Sig-
ríðar úr listaháskól-
anum í London.