Morgunblaðið - 16.04.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.04.2018, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl 9, leikfimi í KR kl 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leikfi- mina. Rútan sækir fyrir leikfimina á Vesturgötu kl 10.10 og á Afla- granda kl 10.15. Útskurður og myndlist kl. 13. í hreyfisalnum og félagsvist kl. 13. í matsalnum. Jóga kl. 18. Hlökkum til að sjá ykkur. Árskógar Smíðastofan er lokuð. Ganga um nágrennið kl. 11. Hand- avinna með leiðb. kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.20. Opin handverk- stofa kl.13. Boccia kl.13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun 8.30-12.30, Bókabíllinn á svæðinu 10-10.30, Handaband vinnustofa í handverki með textílhönnuðum – ókeypis þátttaka og öllum opin frá 10-12.30, Hand- avinna 13-15, Bókband 13-17, Söngstund við píanóið 13.30-14:15, Kaf- fiveitingar 14.30-15.30, Handavinnuhópur hittist í handverksstofu 15- 19. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg síminn er 411-9450 Furugerði 1 Vinnustofa opin frá 12-16. Sitjandi leikfimi og öndunaræfingar kl. 11. Klukkan 13. er farið í göngu. Helgistund hefst kl. 14. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 7:.40/8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjál. kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjál. kl. 9.50. Kvennaleikfimi Ásg. kl. 10.40. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl. 14.30- 16.30. Leikfimi Helgu Ben 11.15-11.45. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl.9.10 Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gullsmári Mánudagur Postuslínshópur kl 9. Jóga kl 9.30 Ganga kl 10. Handavinna / Brigde kl 13. Jóga kl 18. Felagsvist kl 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 – 14. Bænastund kl. 9.30 – 10. Jóga kl. 10.10 – 11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30 Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, frjál spilamennska kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga kl. 16 hjá Ragnheiði. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-12, línudansnámskeið kl.10, ganga kl.10, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl.12.30, handavinnuhornið kl.13, félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14:30 allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Korpúlfar ´Hugleiðsla og létt yoga kl.9, gönguhópar kl. 10 gengið frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Félagsvist í Borgum kl. 13:00 í dag. Prjónað til góðs kl. 13. í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13:00 og kóræfing Korpusystkina kl. 16:30 í dag. Gleðilega afmælisviku Korpúlfar og gestir. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10. er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl.9.og13. Leir Skólabraut kl.9. Billjard Selinu kl.10. Krossgátur og kaffi í króknum kl.10.30. Jóga Skólabraut kl.10. Handavinna Skólabraut kl.10. Vatns- leikfimi í sundlauginni kl.18.30. Á morgun þriðjudag 17. apríl býður Varðan í félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 19.30. Að venju sjá konur- nar um vinninga og glæsilegar veitingar. Allir hjartanlega velkomnir. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba kl. 10.30- undir stjórn Ta- nyu. FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og GRÁI HE- RINN boða til opins fundar með stjórnmálaflokkum, laugardaginn 5. maí 2018, kl. 10.30. Fundarstaður; Ráðhúsið, Tjarnarsalur. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Vantar þig rafvirkja? Þú finnur allt á FINNA.IS ✝ Haraldur I.Óskarsson fæddist á Sauðár- króki 5. október 1954. Hann lést á heimili sínu 30. mars 2018. For- eldrar hans voru Ester Gígja Guð- mundsdóttir f. 19. mars 1932, d. 1996, og Óskar Vigfús Markússon, f. 3. maí 1925. Systkini Haraldar sammæðra eru: Kolbjörg M. Jóhannsdóttir, Rögnvaldur Rúnar Dalmann Ár- mannsson (látinn), Kristín Inga 1984, og Ólína Rebekka Eiríks- dóttir, f. 12. september 1918, d. 2006. Guðbjörg á einn son, Hjalta Jónsson f. 10. júlí 1973, og gekk Haraldur honum í föður- stað. Hjalti er í sambúð með Maríu Helenu Svavarsdóttur, f. 24. júní 1982. Dætur Hjalta eru a) Halldóra Hlíf Hjaltadóttir, f. 12. apríl 1995, móðir Sigríður Stefanía Stefánsdóttir, og b) Guðbjörg Inga Hjaltadóttir, f. 27. júní 1999, c) Júlí Hjaltadótt- ir, f. 6. apríl 2005, móðir Freydís Heiðarsdóttir. Börn Maríu eru Halla Björg, f. 21. ágúst 2000, og Viktor Svavar, f. 10. ágúst 2003. Haraldur og Guðbjörg hófu bú- skap árið 1979 og fluttust þá til Akureyrar þar sem þau bjuggu alla tíð, þau gengu í hjónaband 7. ágúst 1998. Útför Haraldar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 16. apríl 2018, klukkan 13.30. Heiðdal Ármanns- dóttir og Ingólfur Ómar Ármannsson. Systkini Haraldar samfeðra eru Gísli Óskarsson, Ólafur Ingi Óskarsson og Ásdís Óskarsdóttir. Haraldur ólst upp í Skagafirði hjá móðurömmu sinni, Jóhönnu Ingi- björgu Björns- dóttur. Eiginkona Haraldar er Guð- björg Hjaltadóttir, f. 5. maí 1952, foreldrar hennar voru Hjalti Jónsson, f. 29. júlí 1909, d. Elsku Halli afi. Orð fá því ekki lýst hvað ég sakna þín mikið. Það er svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Það er svo margt sem mig langar til að segja við þig. Ég á ófáar minningar um þig, sem allar eru mér mjög kærar. Enda var ég mikil afastelpa og þótti fátt skemmtilegra en að fá að fara í heimsókn til ömmu og afa í Hafnarstræti. Við baukuð- um mikið saman, ég og þú. Það er ótrúlegt hvað þú nenntir að fíflast með mér tímunum sam- an. Þú kenndir mér líka margt. Eitt af því sem þú kenndir mér var að veiða. Þær voru ófáar ferðirnar niður á bryggju. Þú gafst þér alltaf góðan tíma í að sína mér hvernig átti að gera hlutina og ég var ekki gömul þegar ég kunni sjálf að setja öngulinn á, kasta út og blóðga fiskinn. Þegar við vorum ekki að veiða vorum við niðri í kjall- ara að smíða. Þú varst alltaf jafn hreykinn af því sem ég smíðaði og hrósaðir mér hástöf- um, jafnvel þó að verkið væri aðeins spýtukubbur sem búið var að negla nokkra nagla í. Þegar ég varð svo aðeins eldri fórum við að fara saman upp á skotsvæði, þar sem ég fékk að prófa byssurnar þínar. Ég man hvað þú varst stoltur af þeim og hafðir virkilega gaman af því að sýna mér þær og leyfa mér að prófa þær. Þessar ferðir voru þó allt of fáar og aldrei varð neitt úr því að fara saman á gæsaveiðar eins og við höfðum talað um. Það fyrsta sem ég sé fyrir mér þegar ég hugsa um þig er góðlega brosið þitt sem spratt alltaf fram þegar ég kom í heim- sókn til þín. Þó að ég væri orðin fullorðin fannst mér alltaf jafn gaman að kíkja í heimsókn til þín og ömmu. Þessar heimsóknir urðu alltaf lengri en ég ætlaði mér. Það var bara svo yndislega gott að koma til ykkar. Þú hafðir virkilega gaman af því að segja sögur og sagðir þær margar af mér og því sem ég tók upp á sem barn. Þú sagðir mér líka margar sögur af sjálfum þér og þeim prakkarastrikum sem þú tókst upp á þegar þú varst ungur. Ég þreyttist aldrei á því að heyra þessar sögur og hafði alltaf jafn gaman af þeim, jafnvel þó að ég hefði heyrt þær allar margoft áður. Þú varst alltaf svo elsku- legur við mig og okkur öll barna- börnin. Alltaf var ég kvödd með þéttu faðmlagi og fallegu brosi og var beðin um að koma sem oftast í heimsókn. Það var svo gott að finna fyrir væntumþykju þinni og hvað þú kunnir mikið að meta heimsóknirnar mínar. Mér þykir óendanlega vænt um þig, elsku afi. Þín er sárt saknað og þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Takk fyrir allt. Mikið vildi ég af þér læra að aldrei megi nokkurn særa. Því þú ert algjört gæðaskinn elsku besti afi minn. Halldóra Hlíf Hjaltadóttir. Nú kveð ég kæran vin og góð- an afa, mann sem var alltaf ákaf- lega gaman að heimsækja. Blessuð Stefanía mín, komdu inn, áttu kaffi?, jáhá ég á sko kaffi og samtímis gekkstu glaður inn í eldhús. Svona byrjuðu oft heimsóknir mínar til ykkar hjóna, síðan var setið, spjallað og áður en maður vissi af voru liðnir jafnvel einhverjir klukkutímar. Þú hafðir þann einstaka hæfi- leika að þú fannst oft á þér hvernig fólkinu þínu leið og tókst nærri þér ef einhverjum leið illa, suma hluti þurfti ekki að segja þér því þú vissir það og jafnvel áður en maður vissi það sjálfur. Nærvera þín var einstök og oft var gott að tala við þig um ýmsa hluti sem margur annar hafði ekki skilning á, húmorinn og gleðin var svo skammt undan. Þú hafðir einstaklega gaman af að segja sögur af skondnum atrið- um og atburðum sem gerðust og mikið var hlegið um leið. Barnabörnum þínum unnir þú vel og sinntir af mikilli ástúð. Hafðir þau með í verkefnum þín- um, fórst með þau í veiðiferðir og ferðalög og gafst þér góðan tíma með þeim. Síðan voru sagðar sögur af þeim og augljóst að þú hafðir skemmt þér vel og notið þessara stunda. Greiðvikinn og góður afi sem hafði hlýja nær- veru. Þetta eru góðar minningar sem ylja manni um hjartarætur á kveðjustundu en á sama tíma finnur maður fyrir þakklæti að hafa upplifað og notið þessara stunda með þér. Nú kveðjum við þig að sinni því kallið þitt er komið. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Guð blessi þig og minningu þína með þökk fyrir samveruna, kæri vinur. Stefanía og fjölskylda. Virðing og traust er það sem einkennir góða vináttu, milli mín og Halla ríkti alltaf þessi sanna vinátta sem innihélt gagnkvæma virðingu og traust. Halli var einstaklega barngóð- ur og sýndi börnum virðingu, hann gaf sig að börnum og sýndi því áhuga sem þau höfðu að segja. Ég minnist þess frá því að ég var sjálf barn hvað mér fannst gaman hversu mikinn tíma Halli gaf sér til að spjalla við okkur krakkana og fannst allt svo skemmtilegt og merkilegt sem við höfðum að segja. Ósjaldan þegar við hittumst rifjaði hann upp sögur frá því að ég var lítil stelpa í sveitinni og hvað hann hafði gaman af því sem ég var að segja og gera þá. Halli var ekki mikið fyrir að fara á mannamót en var traustur og sannur vinur vina sinna og leið best í fámennum hópi góðra vina eða fjölskyldu. Halli var góður afi og naut sín vel í því hlutverki, í hvert skipti sem við hittumst tal- aði hann um afastelpurnar sínar með glampa í augum og stolt í hjarta. Halli hafði sinn skugga að bera en þrátt fyrir það náði hans hlýja hjartalag, virðing og vænt- umþykja alltaf í gegn. Hann var ófeiminn við að segja mér og láta mig finna það hversu mikið hann kunni að meta vináttu okkar og hversu vænt honum þótti um mig og fjölskyldu mína. Hann lagði upp með að hafa gaman af lífinu og taka því létt sem að höndum bar. Vísur, ljóð og fallegur söngur voru á meðal áhugamála hans, ósjaldan fór hann með vísur fyrir mig og reyndi mikið að fá mig til að æfa mig í að syngja og yrkja, en eitthvað hefur nú farið lítið fyrir því hjá mér þó að ég hafi vissulega gaman af hvoru tveggja. Ein af fyrstu minning- um mínum af vináttu okkar Halla var þegar ég var lítil stelpa í sveitinni og Halli kom í heim- sókn, þá höfðum við það fyrir sið að sækja Skólaljóðin og syngja saman kvæði sem ég læt fylgja með hér í lokin. Erla, góða Erla, ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er. Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð. Bjarma slær á bæinn hið bleika tunglskinsflóð. Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð. Æskan geymir elda og ævintýraþrótt. Tekur mig með töfrum hin tunglskinsbjarta nótt. Ertu sofnuð, Erla? Þú andar létt og rótt. Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig. Kvöldið er svo koldimmt ég kenni’ í brjósti’ um mig. Dýrlega þig dreymi og Drottinn blessi þig. (Stefán frá Hvítadal) Kæri vinur, takk fyrir trausta og góða vináttu alla tíð. Þyrey Hlífarsdóttir. Haraldur I. Óskarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.