Morgunblaðið - 16.04.2018, Side 23

Morgunblaðið - 16.04.2018, Side 23
blaðið, Helgapóstinn og dagskrár- gerðarmaður við RÚV. Helstu verk Elísabetar eru Galdrabók Ellu Stínu; Vængjahurð- in; Heilræði lásasmiðsins (fékk Fjöruverðlaunin 2008) Enginn dans við Ufsaklett (fékk Fjöruverðlaunin 2015 og var tilnefnd til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs 2016). Þá má geta leikritanna Eldhestur og ís (vann í samkeppni Þjóðleikhússins 1987) og Íslands þúsund tár (sem vann í samkeppni LHÍ 2000). Elísabet hefur lengi haft áhuga á dansi, hefur samið fimm dansa og dansað opinberlega. Hún hefur áhuga á tísku, eyðibýlum, sportbíl- um, Vesturbæjarsundlaug, styrj- öldum, Melabúðinni og ættfræði. Elísabet hefur verið leiðandi í bar- áttu fyrir verndun öræfanna og stór- iðjulausu Íslandi. Hún hefur skrifað mikið um málefni geðsjúkra, verið málsvari þeirra og verið óbangin við að deilda eigin reynslu í því skyni. Hún bauð sig fram til forseta lýðveld- isins 2016, en náði ekki kjöri og býr því enn í Vesturbænum. Fjölskylda Elísabet er makalaus en íhugar nú alvarlega að giftast sjálfri sér í Strandakirkju í tilefni sextugsafmæl- isins. Synir Elísabetar eru Kristjón Kor- mákur Guðjónsson, f. 4.2. 1976, rit- stjóri DV, búsettur í Reykjavík en kona hans er Auður Ösp, blaðamaður við DV, og á hann þrjár dætur og einn son frá fyrrv. hjónabandi; Garpur Ingason Elísabetarson, f. 26.4. 1984, kvikmyndagerðarmaður í Kópavogi, og á hann tvær dætur; Jökull Ingason Elísabetarson, f. 26.4. 1984, stærðfræðingur í Kópavogi en kona hans er Kristín Arna Sigurðar- dóttir leikskólakennari og eiga þau tvær dætur. Bræður Elísabetar eru Illugi Jök- ulsson, f. 13.4. 1960, rithöfundur, og Hrafn Jökulsson, f. 1.11. 1965, rithöf- undur og Grænlandsvinur. Hálfsystkini Elísabetar, samfeðra: Unnur Jökulsdóttir, f. 7.6. 1955, rit- höfundur, og Magnús Haukur Jökulsson, f. 20.6. 1971, kaffihúsa- eigandi í Stokkhólmi. Hálfsystir Elísabetar, sammæðra, er Kolbrá Höskuldsdóttir, f. 20.10. 1971, kennari og bókmenntafræð- ingur. Foreldrar Elísabetar: Jökull Jak- obsson, f. 14.9. 1933, d. 25.4. 1978, leikritaskáld, og Jóhanna Kristjóns- dóttir, f. 14.2. 1940, d. 11.5. 2017, rit- höfundur, blaðamaður og ferðakona. Elísabet Jökulsdóttir Valgerður Engilráð Jónasdóttir saumakona á Sauðárkróki Ísleifur Gíslason kaupm. og gamanvísnaskáld á Sauðárkróki, af Presta-Högnaætt Elísabet Engilráð Ísleifsdóttir húsfr. í Rvík Kristjón Kristjónsson framkv.stj. í Rvík Kristjón Ásmundsson b. í Útey í Laugardal, bróðursonarsonur Jóns, langafa Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrv. forseta, af Nesjavalla-, Reykjakots- og af Fremri-Hálsætt ysteinn Jónsson alþm., ráðherra og form. Framsóknarflokksins EJón Eysteinsson fyrrv. sýslum. í Reykjanesbæ Guðjón Einarsson skrifst.m. í Rvík Jónína Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Bogi Ágústsson fréttastjóri á RÚV Illugi Jökulsson rithöfundur Hrafn Jökulsson rithöfundur Þorkell Bjarnason hrossaræktar- ráðunautur Hulda Björk Þorkelsdóttir forstöðum.Bókasafns Reykjanesbæjar Guðmundur Birkir Þorkelsson fyrrv. skólam. Fjölbrauta- skólans á Húsavík Hreinn Þorkelsson fyrrv. skólastj. í Villingaholti Bjarni Bjarnason skólastj. og alþm. á Laugarvatni Vigdís Bergsteins- dóttir ljósm. á Búðarhóls- hjáleigu í Landeyjum Ari Gísli Bragason bóksali í Rvík Bragi Kristjónsson bóksali Valgerður Kristjónsdóttir kennari og útg. í Rvík Jóhanna Kristjónsdóttir rithöfundur Kolbrá Höskulds- dóttir kennari og bókmenntafr. á Hóli í Lundar- reykjadal Guðrún Jónasdóttir húsfr. í Hafnarfirði, á Bíldudal og í Rvík Einar Ólafsson verkam. og steinsm. í Hafnarfirði, á Bíldudal og í Rvík Þóra Einarsdóttir form.Kvenf. Hallgrímskirkju Dr. Jakob Jónsson sóknarpr. í Hallgrímskirkju Sigríður Hansdóttir Beck húsfr. á Djúpavogi, af Beck- og Longætt Jón Finnsson pr. á Djúpavogi, af Hellisfjarðarætt, bróðursonur Jóhönnu,móður Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagnasafnara Úr frændgarði Elísabetar Jökulsdóttur Magnús Haukur Jökulsson kaffihúsaeigandi í Stokkhólmi UnnurJökulsdóttir rithöfundur Jökull Jakobsson leikritaskáld Þór Jakobsson eðurfræðingurv Dr. Þóra Þórsdóttir stjórnunarfr. á Englandi ón Einar Jakobsson hrl. í Garðabæ JBryndís EvaJónsdóttir innanhússarkitekt Guðrún S. Jakobsdóttir júkrunarfr. og írönskufr. í Kaupmannahöfn h Jórunn Rothenborg leiðsögumaður vava Jakobsdóttir rithöf. í Rvík SJakob S. Jónssonleikstj. og leiðsögumaður Sigríður Bergsteinsdóttir ljósm. í Útey, af Víkingslækjarætt ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Jón Þorkelsson fæddist í Ásum íSkaftártungu 16.4. 1859. For-eldrar hans voru Þorkell Eyj- ólfsson, síðast prófastur á Staðastað á Snæfellsnesi, og k.h., Ragnheiður Pálsdóttir húsfreyja. Móðir Þorkels var Guðrún, dóttir Jóns Þorlákssonar, prests og skálds á Bægisá. Ragnheiður var dóttir Páls Pálssonar þjóðfundarmanns. Bróðir Jóns Þorkelssonar var Jón eldri, oddviti í Arnartungu, afi Jóns Sólnes, bankastjóra og alþing- ismanns, föður Júlíusar Sólnes, fyrrv. alþingismanns og ráðherra. Systir Jóns var Guðrún Clausen, amma Arnar hrl. og Hauks tann- læknis Clausen. Fyrri kona Jóns var Karólína Jónsdóttir en þau skildu. Seinni kona hans var Sigríður Finn- bogadóttir. Börn Jóns og Karólínu voru Logi og Kristín, sem dóu á barnsaldri, og Guðbrandur, faðir Loga forstjóra. Dóttir Jóns og Sig- ríðar var Matthildur. Jón lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavík 1882, lauk cand.mag.-prófum í norrænum fræðum frá Hafnarháskóla 1886, og Dr.phil.-prófi þaðan 1888. Hann dvaldi við fræðistörf í Kaupmanna- höfn til 1898 er hann flutti til Reykjavíkur. Jón var skipaður landsskjalavörð- ur 1899 og þjóðskjalavörður 1915 og gegndi því embætti til æviloka. Jón var forseti Sögufélagsins frá stofnun þess 1902 og til æviloka, for- seti Þjóðvinafélagsins 1912-13 og forseti Bókmenntafélagsins frá 1918 og til æviloka. Hann sat í verðlauna- nefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar frá 1909, var ritstjóri Huldar, Sunnan- fara og Blöndu, alþingismaður Snæ- fellsnesinga 1892-93, Reykvíkinga 1908-1911 og konungskjörinn þing- maður 1915. Jón samdi rit og greinar um sögu Íslendinga og bókmenntir, sendi frá sér vísnakver Fornólfs og annaðist útgáfu á nokkrum ljóðabókum og margs konar fornum fróðleik. Jón lést 10.2. 1924. Merkir Íslendingar Jón Þorkelsson 95 ára Hrefna Ólafsdóttir 90 ára María Matthíasdóttir 85 ára Alma Erna Ólafsson Áslaug Bernhöft Marteinn N. Rúriksson Sigfús Thorarensen Sigrún Gunnlaugsdóttir 80 ára Ellert Pálmason Hörður Bjarnason Þórarinn Friðjónsson 75 ára Ásdís Jónsdóttir Edda Kolbrún Klemenzdóttir Edda Sigrún Gunnarsdóttir Guðmundur Haraldsson Magnús Rafn Guðmannsson Ragnhildur Jónasdóttir Ragnhildur Þorleifsdóttir Vilhjálmur Már Jónsson Þórir Ólafsson 70 ára Dagbjört Pálmey Pálmadóttir Elísabet Zophoníasdóttir Jóhann Steingrímsson Kristján Beekman Sesselja Henningsdóttir 60 ára Arnþrúður Einarsdóttir Björn Ragnar Björnsson Ellen Sverrisdóttir Mendes Grzegorz Marek Piekarski Gunnar Örn Sigurðsson Jón Salómon Bjarnason Ólöf Halldóra Bjarnadóttir Óskar Ingi Thorarensen Ragnheiður Jónsdóttir Sigríður H. Guttormsdóttir 50 ára Arnar Þorri Arnljótsson Axel Lichte Erla Bryndís Kristjánsdóttir Guðjón Bjarni Sigurjónsson Guðmundur Bjarni Gíslason Gunngeir Friðriksson Hafþór Smári Guðmundss. Hlynur Sigursveinsson Hólmfríður Hilmarsdóttir Jacek Józef Brzezinski Jón Ragnar Blöndal Kristín Inga Brynjarsdóttir Sigríður S. Guðþórsdóttir Sigurjón Einarsson Svana Lára Hauksdóttir Vilhjálmur Árnason Þorsteinn Ragnarsson 40 ára Agnes Rós Jónsdóttir Auður Nanna Baldvinsdóttir Árni Helgason Berglind Wiium Árnadóttir Brimar Aðalsteinsson Elfa Björk Kristjánsdóttir Elías Kristinn Vignisson Hörður Flóki Ólafsson Hörður Sigurgeir Friðriksson Martha Cerelia Garises 30 ára Andrea Líf Ægisdóttir Arnar Már Ármannsson Gísli M. G. Gunnarsson Hjörtur Eyþórsson Michal Andrzej Boruch Michalina Czernicka Sarah Reim Uni Hrafn Karlsson Til hamingju með daginn 30 ára Telma ólst upp í Mosfellsbæ, býr við Meðalfellsvatn í Kjós og starfar í Arion banka. Maki: Andri Eiríksson, f. 1986, viðskiptafræðingur. Dóttir: Áróra Heiður, f. 2016. Foreldrar: Svava Guð- mundsdóttir, f. 1960, starfsmaður við vinnu- heimili, búsett á Akranesi, og Jóhannes Óskarsson, f. 1963, kokkur á Fells- enda í Dalasýslu. Telma Valey Jóhannesdóttir 30 ára Díana ólst upp á Akureyri, býr á Selfossi, lauk prófi sem förðunar- fræðingur, starfar hjá N1 og sinnir förðun. Maki: Baldvin O. Sigurðs- son, f. 1982, sjómaður. Synir: Sigurður Þór Lín- dal, f. 2014, og Pétur Jök- ull Líndal, f. 2016. Foreldrar: Sigurlaug Kristín Pétursdóttir, f. 1967, bóndi í Eyjafjarðar- sveit, og Stefán Þór Jóns- son, f. 1946, d. 2014. Díana María L. Stefánsdóttir 30 ára Berglind ólst upp í Reykjavík, er þar búsett, lauk BA í sagnfræði frá HÍ og MA-prófi frá Sussex University og er í fæð- ingarorlofi. Maki: Kristinn Már Ingv- arsson, f. 1975, smiður. Sonur: Sæmundur Jaki, f. 2017. Stjúpdóttir: Hel- ena Inga, f. 2014. Foreldrar: Rósa Jóns- dóttir, f. 1964, og Birgir Snæbjörn Birgisson, f. 1966. Berglind Rósa Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.