Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 26

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Gul viðvörun Hrafnhildar Ingu Sigurðardót Hreyfilist Listaverkin hreyfðu við gestum. Gleði Sólveig, listakonan Hrafnhildur Inga, Hjördís og Gunnar Már voru sæl í sinni. VÖNDUÐ JEPPADEKK Á FRÁBÆRU VERÐI STÆRÐ 315/70R17 49.600,- kr. STÆRÐ 285/70R17 46.900,- kr. ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900 WWW.ARCTICTRUCKS.IS ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR! og minjasöfnin sem leggja hönd á plóg með sýningum fyrir börn, og með því að efna til listviðburða þar sem börnin sjálf koma fram og ráða ferðinni.“ Áhugasamir geta skoðað dag- skrána á heimasíðunni Barna- menningarhatid.is, eða lagt leið sína í Ráðhús Reykjavíkur og í Hörpu þar sem verða viðburðir og sýningar sumardaginn fyrsta og alla næstu helgi. En af hverju að efna til menn- ingarhátíðar sem stílar sérstaklega inn á börn? Björg segir hátíðinni meðal annars ætla að kynna börn- unum menningu og listir. Hátíðin á líka að stuðla að því að skapa vettvang fyrir listafólk til að vinna með og fyrir börn. Einnig er hún tækifæri fyrir börnin til að koma fram eða sýna verk sín við bestu aðstæður: „Það er alveg öruggt að fyrir þau börn sem taka t.d. þátt í kórsöng á Eldborgarsviðinu með 300 öðrum börnum og við undirspil hljómsveitar frá Tónskóla Sigur- sveins verður upplifunin ógleym- anleg og tilfinningin sem fylgir því að koma fram í svona glæsilegu rými gæti orðið kveikjan að fleiri afrekum á menningasviðinu seinna meir,“ segir Björg. „Sama má segja um börnin sem hafa gert teikningar eða málverk sem hengd verða upp á listasöfnum borgar- innar. Að koma t.d. á Kjarvalsstaði með bekkjarfélögunum og leita uppi eigin mynd inni í sýningarsal kann að vera fyrsta skrefið fyrir suma á listræna sviðinu.“ Barnamenning í boði allt árið Það er ágætt að barnamenning sé í sviðsljósinu eina viku á ári hverju, en Björg bendir á að menningarviðburðir fyrir börn séu VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Eftir opnunarviðburðinn, sem öll- um nemendur í 4. bekk í Reykja- vík er boðið á, höfum við lagt könnun fyrir börnin. Hefur ekki bara komið í ljós að um 95% þeirra eru ánægð með viðburðinn, heldur eru mörg þeirra að koma í Hörpu, eða í Eldborgarsalinn, í fyrsta sinn,“ segir Björg Jóns- dóttir, verkefnastjóri viðburða hjá skrifstofu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík. Björg fer, ásamt Hörpu Rut Hilmarsdóttur, með yfirumsjón með skipulagi hátíðar- innar sem í ár verður haldin frá 17. til 22. apríl. Barnamenningarhátíð í Reykja- vík var fyrst haldin árið 2010, og svo aftur árið 2012 en hefur verið árlegur viðburður síðan þá. Dag- skráin er mjög metnaðarfull, dreif- ir hún úr sér um alla borg, og má reikna með að tugir þúsunda barna upplifi þennan stóra list- viðburð. Björg bendir á að á Barnamenn- ingarhátíð í Reykjavík sé lögð áhersla á að börnin séu ekki bara áhorfendur, heldur líka þátttak- endur í listinni. „Við höfum frá upphafi fylgt þessu þrískipta markmiði: að bjóða upp á menn- ingu fyrir börn, og menningu sem er flutt af börnum eða með börn- um þar sem börnin starfa með at- vinnulistafólki,“ útskýrir hún og reiknast til að samtals séu vel á annað hundrað viðburðir á dagskrá í ár. „Leikskólar, grunnskólar, fé- lagsmiðstöðvar og frístundaheimili borgarinnar taka þátt, sem og bókasöfnin, listasöfnin, leikhúsin Börnin bæði njóta og taka þátt  Barnamenningarhátíð leggur undir sig menningarstofnanir Reykjavíkur í þessari viku  Meðal hápunkta verður kórsöngur 300 barna við undirspil barnahljómsveitar í Eldborgarsalnum Morgunblaðið/RAX Veganesti Harpa Rut og Björg hafa yfirumsjón með hátíðinni. „Ég hef alveg fengið að heyra það sjálf hjá eigin börnum að þau nenni ekki fyrir nokkra muni að fara með móður sinni á enn eitt safnið,“ segir Björg og ráðleggur foreldrum að leyfa börnunum stundum að ráða ferðinni. Menningarlegt uppeldi getur verið línudans. Morgunblaðið/Eggert Tilhlökkun Krakkaskarinn syngur af innlifun á einum af stærstu viðburðum síðustu barnamenningarhátíðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.