Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 12

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 12
Tvöfaldir vettlingar Heiðrún hannaði þessa sem heita Lísa í Undralandi. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Þumalína, Lísa í Undralandi, Óli Prik,Stígvélaði kötturinn og aðrir góð-kunningjar barnanna eru í lykil-hlutverkum í Leikskólafötum 2, uppskriftabók sem fjórar ungar konur í Prjónafjelaginu prjónuðu af fingrum fram og Forlagið gaf nýverið út. Í bókinni eru líka skotthúfurnar Snúður og Snælda, sem að sögn einnar fjelagskonunnar, Dagbjartar Guðmundsdóttur, eru einstaklega auðveldar viðfangs. „Frábært byrjendaverkefni,“ segir hún og hampar uppskriftum stöllu sinnar, Evu Mjallar Einarsdóttur, að tveimur skott- húfum, annarri þunnri, hinni þykkri. Þrjár til fjórar uppskriftir eftir hverja fé- lagskonu eru í bókinni, flestar að vísu svolítið flóknari en Snúður og Snælda. Uppskriftirnar eru samt allar auðskilj- anlegar og því ættu byrj- endur hæglega að geta fitjað upp á öðru, svo sem sokkum, vettlingum, peysum eða samfest- ingum – og spreytt sig í alls konar mynsturprjóni samkvæmt bókinni. Auk Dagbjartar, sem er textílkennari að mennt og eigandi Litlu prjónabúðarinnar, og Evu Mjallar flugumferðarstjóra eru í Prjóna- fjelaginu Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir sem einnig er flugumferðarstjóri og Sigurlaug El- ín Þórhallsdóttir, menntaður kvikmyndafræð- ingur, sem þessa dagana er á síðustu metr- unum að krækja sér í kennsluréttindi í framhaldsskólum. Félagsmiðstöð prjónara „Við erum allar ástríðuprjónarar. Þótt bakgrunnur okkar og starfsvettvangur séu ólíkir leiddi prjónaáhuginn okkur saman hérna í búðinni fyrir nokkrum árum. Við þekktumst í rauninni ekki mikið áður en Heiðrún og Eva fóru að tala um að gefa út prjónabók og við Sigurlaug stungum upp á að vera með. Ég kom síðust inn í hópinn þegar við undurbjuggum fyrri prjónabókina okkar, Leikskólaföt, sem kom út 2016 og síðan höf- um við verið í stöðugu sambandi, ef ekki aug- liti til auglitis þá á netinu að ráða ráðum varð- andi uppskriftagerð,“ segir Dagbjört. Litla prjónabúðin er hálfgerð félagsmið- stöð fyrir prjónara og þar er um fátt annað rætt en prjónaskap. „Flestir kúnnarnir eru konur, og þeim finnst óskaplega gaman að spjalla um litasamsetningar, garn, upp- skriftir, hönnuði og allt sem lýtur að prjóna- skap. Fyrr en varir eru þær sestar niður og farnar að bera saman bækur sínar, enda eru prjónakonur yfirleitt mjög opnar,“ segir Dag- björt. Sjálf hefur hún prjónað frá því hún var smástelpa. Eins og hinar prjónafjelagskon- urnar gera núna prjónaði hún í eina tíð mikið á börnin sín. „Undanfarið hef ég verið eig- ingjarnari og eiginlega bara prjónað peysur og fylgihluti á sjálfa mig,“ viðurkennir hún og heldur áfram: „Hinar stelpurnar eiga allar leikskólabörn, en mín eru orðin 18 og 12 ára svo ég er farin að prjóna minna á þau en áð- ur. Hins vegar var ég lengi leikskólakennari og veit því vel hvaða snið eru þægilegust fyrir krakkana og hvers konar föt þeir ráða best við að klæða sig í.“ Hinar sterku hliðarnar Þær stöllur búa allar til uppskriftir og prjóna flíkur, en skiptu með sér ýmsum verkum í tengslum við útgáfu bókar- innar. „Við erum allar mjög upp- teknar í okkar störfum, en reyndum þó að hafa putt- ana í sem flestu. Í stórum dráttum þá er uppskriftagerð mín sterkasta hlið, Eva Mjöll sá um samskipti við ljósmyndara og stílista af því hún er svo skipulögð, Sigur- laug er með bókhald fjelagsins á sinni könnu og sá um samninga og Heiðrún las prófarkir og samræmdi orð og orðanotk- un, sem er gríðarlega mikil- vægt.“ Spurð hvort prjónaæði sé yfir og allt um kring hér á landi, svarar Dagbjört að svo hafi verið í um áratug, eða allt frá hruni. „Það er svo erfitt að hætta þegar maður hefur náð tökum á þessu og þótt maður prjóni í hundrað ár er alltaf hægt að uppgötva eitthvað nýtt. Okkur í Prjónafjelaginu finnst prjónaskapur vera eins og að stunda jóga og hugleiðslu, óskaplega gefandi.“ Fjórir ástríðuprjónarar Hvað eiga tveir flugumferðarstjórar sameiginlegt með textílkennara, sem líka er búðareigandi, og kvikmyndafræðingi sem ætlar að verða fram- haldsskólakennari? Svarið er: Þær eru í Prjónafjelaginu og allar ástríðuprjónarar sem sent hafa frá sér uppskriftabækurnar Leikskólaföt 1 og 2. Snúður Þessi þykka skotthúfa heitir Snúður, hönnuð af Evu Mjöll. Snælda Þessi er þynnri en Snúður og heitir Snælda. Eva Mjöll hannaði. Prjónafjelagið F.v. Eva Mjöll, Sigurlaug Elín, Dagbjört og Heiðrún Erla. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.