Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 28

Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 28
FRÉTTASKÝRING Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta verkefni er bara byrjunin. Social Progress Imperative (SPI) hefur talað fyrir vísitölu félagslegra framfara (VFF) um allan heim. Ástæðan fyrir því er einföld – við erum þeirrar skoðunar að dugmikið fólk geti með góðu gagnasafni skipt sköpum fyrir samfélagið,“ sagði Michael Green, forstjóri stofnunar- innar SPI, á fundi sem haldinn var nýverið í Kópavogi. Tilefni fundarins var að kynna nið- urstöður greiningar sem SPI á Ís- landi vann fyrir Kópavogsbæ með að- stoð frá SPI í Lundúnum. Þar er félagsleg framþróun í Kópavogi kort- lögð samkvæmt aðferðum sem þróað- ar hafa verið hjá Social Progress Im- perative, en þær segja til um hæfni samfélaga til að mæta grunnþörfum borgaranna, stuðla að og viðhalda lífsgæðum þeirra og veita ein- staklingum tækifæri til betra lífs. VFF endurspeglar um leið þá þætti sem skipta máli og eru samanburð- arhæfir á milli landa, svæða og borga. Það er hins vegar vandasamt verk að mæla félagslegar framfarir, en um er að ræða margþætt verkefni sem krefst þess að þau viðmið sem notuð eru séu bæði skýr og þekkt. „Hér áður fyrr þurftum við að reiða okkur á ónákvæmar efnahags- legar mælingar á vellíðan okkar. En það sem vísitala félagslegra framfara gerir er að veita okkur færi á að sjá hin raunverulegu gæði lífs og greina þannig veikleika og styrki samfélags- ins,“ sagði Green. „Kortlagning félagslegra framfara (Social Progress Portrait, SPP) endurspeglar stöðuna í Kópavogi og lífsgæði fólks. Þessi leið sýnir okkur hvernig hægt er að skoða önnur minni svæði um heim allan með þess- ari aðferðafræði,“ sagði Green. Fjölmargir vísar og víddir Skorkort fyrir Kópavog í grein- ingu SPI (SPP) á Íslandi byggist á 56 breytum sem skiptast niður á þá þætti og víddir sem mælikvarðinn byggist á. Eru víddirnar þrjár tals- ins, þ.e. grunnþarfir einstaklingsins, grunnstoðir velferðar og tækifæri einstaklingsins til að bæta líf sitt. Samkvæmt niðurstöðu greiningar virðast grunnstoðir velferðar „traustar í Kópavogi og gildir það um flest atriði.“ Þegar litið er til tæki- færa íbúa í Kópavogi „koma flestir mælikvarðar mjög vel út, með örfá- um undantekningum.“ Þegar kemur að grunnþörfum virðist hins vegar hægt að bæta ýmislegt. „Hafa verður í huga að kröfur sem gerðar eru til grunnþarfa eru miklar, en engu að síður er ljóst að hvað varðar almennt heilbrigði og húsnæðismál þá er tækifæri til að gera betur,“ segir í niðurstöðum úttektarinnar. Ármann Kr. Ólafsson er bæjar- stjóri í Kópavogi. Hann segir niður- stöðurnar geta nýst þeim vel sem stjórntæki. „Við erum, með því að mæla sveitarfélag með þessum hætti, algerir frumkvöðlar á heimsvísu. Þessi mæling er í raun ekki einkunn heldur segir hvar við stöndum miðað við mælikvarðana og hvar finna megi sóknarfæri. Að því leytinu til mun þetta nýtast okkur sem stjórntæki,“ segir Ármann Kr. í samtali við Morg- unblaðið. „Markmiðið með þessu er að vera ekki feimin við að draga fram tölur og gera sér grein fyrir stöðunni svo hægt sé að bæta árangur,“ segir Ár- mann og bætir við að mikilvægt sé að önnur sveitarfélög geri einnig sam- bærilega úttekt. „Ég myndi vilja sjá Samband íslenskra sveitarfélaga fara í saumana á þessu verkefni, sjá hvernig það var unnið og hvetja önn- ur sveitarfélög til þátttöku. Þannig geta sveitarfélög landsins borið sig saman,“ segir hann. Theódóra S. Þorsteinsdóttir, for- maður bæjarráðs, segir mikla áherslu vera lagða á góð vinnubrögð í Kópavogi og að módel VFF eigi eftir að nýtast vel til framtíðar. „Helst viljum við auðvitað getað borið okkur saman við önnur sveitar- félög frá ári til árs. En það væri einn- ig mjög gagnlegt að bera sig saman við sveitarfélög í öðrum löndum. Við bindum því miklar vonir við að önnur sveitarfélög taki þetta upp,“ segir hún. „Þetta eru raunverulegir mæli- kvarðar og niðurstaðan er lögð á borð fyrir íbúa svo þeir geti fylgst með verkum kjörinna fulltrúa og sveitarfélagsins alls. VFF er mjög góður grunnur til að hefja umræðu um þá hluti sem þörf er á að bæta,“ segir hún enn fremur. Samstarfið afar ánægjulegt Rósbjörg Jónsdóttir er fulltrúi Social Progress Imperative á Íslandi. Hún segist afar ánægð með þá miklu vinnu sem liggur að baki úttektar- innar og að samstarfið við sérfræð- inga Kópavogsbæjar hafi verið einkar ánægjulegt, en frumkvæðið að þessari úttekt og drifkrafturinn kemur frá verkefnastjóra stefnumót- unar bæjarfélagsins. Aðspurð segir hún það sífellt verða mikilvægara að sveitarfélög geti bor- ið sig saman við önnur sveitarfélög og um leið fylgst með eigin árangri á milli ára. „Við munum nú á næstu vikum og mánuðum kynna þetta fyrir öðrum og vona ég að sem flestir taki þátt,“ segir hún. Frekari upplýsingar um aðferðafræðina og SPI á Íslandi má finna á www.socialprogress.is. Leiðandi í mælingum framfara  Niðurstöður umfangsmikillar greiningar SPI á Íslandi á félagslegum framförum í Kópavogi voru kynntar nýverið  Mun nýtast sem stjórntæki, segir bæjarstjóri  Aðrir eru hvattir til þátttöku Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samvinna Fulltrúar Social Progress Imperative (SPI) og Kópavogsbæjar stilltu sér upp fyrir myndatöku eftir kynningu á úttekt SPI á Kópavogsbæ. Hugsuður Michael Green, forstjóri SPI, var meðal þeirra sem fluttu erindi, en hann sér mikil tækifæri í notkun vísitölu félagslegra framfara (VFF). 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð- anna (SÞ), alls 17 talsins, voru samþykkt árið 2015. Er þeim ætlað að miða að því að efla sjálfbæra þróun í heiminum til 2030, með því að útrýma fátækt og mis- munun, auka velmegun og bæta heiminn. VFF getur nýst til að leggja mat á það hvort og hvernig til tekst við að ná heimsmarkmiðunum. Þrjár víddir vísitölu félagslegra framfara falla vel að heimsmarkmiðum SÞ og ná þær yfir 16 af 17 markmið- anna. Einungis áttunda markmið SÞ er undanskilið, það er snýr að atvinnu og hagvexti, en það er hagræn viðmiðun og rúmast því ekki innan VFF. „VFF/SPI er þann- ig mjög góður kostur við mat á ár- angri á þessum markmiðum,“ seg- ir í úttektinni. Tenging við markmið SÞ HEIMSMARKMIÐIN SAUTJÁN 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Skráðu bílinn FRÍTT hjá okkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.