Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 28
FRÉTTASKÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta verkefni er bara byrjunin.
Social Progress Imperative (SPI)
hefur talað fyrir vísitölu félagslegra
framfara (VFF) um allan heim.
Ástæðan fyrir því er einföld – við
erum þeirrar skoðunar að dugmikið
fólk geti með góðu gagnasafni skipt
sköpum fyrir samfélagið,“ sagði
Michael Green, forstjóri stofnunar-
innar SPI, á fundi sem haldinn var
nýverið í Kópavogi.
Tilefni fundarins var að kynna nið-
urstöður greiningar sem SPI á Ís-
landi vann fyrir Kópavogsbæ með að-
stoð frá SPI í Lundúnum. Þar er
félagsleg framþróun í Kópavogi kort-
lögð samkvæmt aðferðum sem þróað-
ar hafa verið hjá Social Progress Im-
perative, en þær segja til um hæfni
samfélaga til að mæta grunnþörfum
borgaranna, stuðla að og viðhalda
lífsgæðum þeirra og veita ein-
staklingum tækifæri til betra lífs.
VFF endurspeglar um leið þá þætti
sem skipta máli og eru samanburð-
arhæfir á milli landa, svæða og borga.
Það er hins vegar vandasamt verk
að mæla félagslegar framfarir, en um
er að ræða margþætt verkefni sem
krefst þess að þau viðmið sem notuð
eru séu bæði skýr og þekkt.
„Hér áður fyrr þurftum við að
reiða okkur á ónákvæmar efnahags-
legar mælingar á vellíðan okkar. En
það sem vísitala félagslegra framfara
gerir er að veita okkur færi á að sjá
hin raunverulegu gæði lífs og greina
þannig veikleika og styrki samfélags-
ins,“ sagði Green.
„Kortlagning félagslegra framfara
(Social Progress Portrait, SPP)
endurspeglar stöðuna í Kópavogi og
lífsgæði fólks. Þessi leið sýnir okkur
hvernig hægt er að skoða önnur
minni svæði um heim allan með þess-
ari aðferðafræði,“ sagði Green.
Fjölmargir vísar og víddir
Skorkort fyrir Kópavog í grein-
ingu SPI (SPP) á Íslandi byggist á 56
breytum sem skiptast niður á þá
þætti og víddir sem mælikvarðinn
byggist á. Eru víddirnar þrjár tals-
ins, þ.e. grunnþarfir einstaklingsins,
grunnstoðir velferðar og tækifæri
einstaklingsins til að bæta líf sitt.
Samkvæmt niðurstöðu greiningar
virðast grunnstoðir velferðar
„traustar í Kópavogi og gildir það um
flest atriði.“ Þegar litið er til tæki-
færa íbúa í Kópavogi „koma flestir
mælikvarðar mjög vel út, með örfá-
um undantekningum.“ Þegar kemur
að grunnþörfum virðist hins vegar
hægt að bæta ýmislegt. „Hafa verður
í huga að kröfur sem gerðar eru til
grunnþarfa eru miklar, en engu að
síður er ljóst að hvað varðar almennt
heilbrigði og húsnæðismál þá er
tækifæri til að gera betur,“ segir í
niðurstöðum úttektarinnar.
Ármann Kr. Ólafsson er bæjar-
stjóri í Kópavogi. Hann segir niður-
stöðurnar geta nýst þeim vel sem
stjórntæki. „Við erum, með því að
mæla sveitarfélag með þessum hætti,
algerir frumkvöðlar á heimsvísu.
Þessi mæling er í raun ekki einkunn
heldur segir hvar við stöndum miðað
við mælikvarðana og hvar finna megi
sóknarfæri. Að því leytinu til mun
þetta nýtast okkur sem stjórntæki,“
segir Ármann Kr. í samtali við Morg-
unblaðið.
„Markmiðið með þessu er að vera
ekki feimin við að draga fram tölur
og gera sér grein fyrir stöðunni svo
hægt sé að bæta árangur,“ segir Ár-
mann og bætir við að mikilvægt sé að
önnur sveitarfélög geri einnig sam-
bærilega úttekt. „Ég myndi vilja sjá
Samband íslenskra sveitarfélaga fara
í saumana á þessu verkefni, sjá
hvernig það var unnið og hvetja önn-
ur sveitarfélög til þátttöku. Þannig
geta sveitarfélög landsins borið sig
saman,“ segir hann.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir, for-
maður bæjarráðs, segir mikla
áherslu vera lagða á góð vinnubrögð í
Kópavogi og að módel VFF eigi eftir
að nýtast vel til framtíðar.
„Helst viljum við auðvitað getað
borið okkur saman við önnur sveitar-
félög frá ári til árs. En það væri einn-
ig mjög gagnlegt að bera sig saman
við sveitarfélög í öðrum löndum. Við
bindum því miklar vonir við að önnur
sveitarfélög taki þetta upp,“ segir
hún. „Þetta eru raunverulegir mæli-
kvarðar og niðurstaðan er lögð á
borð fyrir íbúa svo þeir geti fylgst
með verkum kjörinna fulltrúa og
sveitarfélagsins alls. VFF er mjög
góður grunnur til að hefja umræðu
um þá hluti sem þörf er á að bæta,“
segir hún enn fremur.
Samstarfið afar ánægjulegt
Rósbjörg Jónsdóttir er fulltrúi
Social Progress Imperative á Íslandi.
Hún segist afar ánægð með þá miklu
vinnu sem liggur að baki úttektar-
innar og að samstarfið við sérfræð-
inga Kópavogsbæjar hafi verið
einkar ánægjulegt, en frumkvæðið
að þessari úttekt og drifkrafturinn
kemur frá verkefnastjóra stefnumót-
unar bæjarfélagsins.
Aðspurð segir hún það sífellt verða
mikilvægara að sveitarfélög geti bor-
ið sig saman við önnur sveitarfélög
og um leið fylgst með eigin árangri á
milli ára. „Við munum nú á næstu
vikum og mánuðum kynna þetta fyrir
öðrum og vona ég að sem flestir taki
þátt,“ segir hún. Frekari upplýsingar
um aðferðafræðina og SPI á Íslandi
má finna á www.socialprogress.is.
Leiðandi í mælingum framfara
Niðurstöður umfangsmikillar greiningar SPI á Íslandi á félagslegum framförum í Kópavogi voru
kynntar nýverið Mun nýtast sem stjórntæki, segir bæjarstjóri Aðrir eru hvattir til þátttöku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samvinna Fulltrúar Social Progress Imperative (SPI) og Kópavogsbæjar stilltu sér upp fyrir myndatöku eftir kynningu á úttekt SPI á Kópavogsbæ.
Hugsuður Michael Green, forstjóri SPI, var meðal þeirra sem fluttu erindi,
en hann sér mikil tækifæri í notkun vísitölu félagslegra framfara (VFF).
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), alls 17 talsins, voru
samþykkt árið 2015. Er þeim ætlað
að miða að því að efla sjálfbæra
þróun í heiminum til 2030, með
því að útrýma fátækt og mis-
munun, auka velmegun og bæta
heiminn.
VFF getur nýst til að leggja mat
á það hvort og hvernig til tekst við
að ná heimsmarkmiðunum. Þrjár
víddir vísitölu félagslegra framfara
falla vel að heimsmarkmiðum SÞ
og ná þær yfir 16 af 17 markmið-
anna. Einungis áttunda markmið
SÞ er undanskilið, það er snýr að
atvinnu og hagvexti, en það er
hagræn viðmiðun og rúmast því
ekki innan VFF. „VFF/SPI er þann-
ig mjög góður kostur við mat á ár-
angri á þessum markmiðum,“ seg-
ir í úttektinni.
Tenging við markmið SÞ
HEIMSMARKMIÐIN SAUTJÁN
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Skráðu bílinn
FRÍTT
hjá okkur