Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 43
Allir þurfa þak yfir höfuðið og fjárfesting í húsnæði er gjarnan stærsta og mikilvæg- asta fjárfesting hverr- ar fjölskyldu. Myndast hefur gjá milli fram- boðs og eftirspurnar sem hefur m.a. leitt til þess að Íslendingar eyða nú mun hærra hlutfalli ráðstöf- unartekna en áður í húsnæði og verulega er vegið að húsnæðisöryggi ungs fólks. Þetta eru áskoranirnar sem Ís- land stendur frammi fyrir og þarf að bæta úr. Ríkið þarf að sýna forræði í þessum málum. Fyrsta skrefið í þeirri vinnu hlýtur að vera stofnun innviðaráðuneytis, ráðuneytis hús- næðis-, samgöngu- og sveitarstjórn- armála. Óstöðugt og óskil- virkt starfsumhverfi Sveiflur í mann- virkjagerð eru miklar hvort heldur sem litið er til veltu í greininni eða fjölda starfa. Mannvirkjagerð sveifl- ast meira en gengur og gerist í hagkerfinu hér á landi. Í alþjóðlegu samhengi eru sveifl- urnar einnig meiri hér en annars staðar. Þessi óstöðugleiki er óhagkvæmur fyrir samfélagið í heild sinni. Yfirsýn skortir í þessum mik- ilvæga málaflokki. Húsnæðismál og mannvirkjagerð eru nú á forræði fjögurra ráðuneyta þar sem umgjörð markaðarins er sett. Ráðuneytin fjögur gegna því mikilvæga hlutverki að tryggja húsnæðisöryggi enda seg- ir réttilega á vef stjórnarráðsins að öruggt húsnæði sé mikilvæg for- senda fyrir velferð hverrar fjöl- skyldu. Íbúðalánasjóður annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála fyrir hönd ráðherra og stofnanir á borð við Mannvirkjastofnun og Skipulags- stofnun koma einnig að málaflokkn- um. Sveitarstjórnir landsins bera ábyrgð á að leysa húsnæðisþörf fólks í viðkomandi sveitarfélagi, fara með skipulagsvald, leyfisveitingar og síð- ast en ekki síst gera húsnæðisáætl- anir. Núverandi fyrirkomulag er óskil- virkt, lengir boðleiðir og tefur ákvarðanatöku. Það leiðir til auka- kostnaðar við byggingu húsnæðis. Rétt húsnæði á réttum stað Sveitarfélögum er þá ekki skylt að gera húsnæðisáætlanir og engin samræmd sýn eða staðlar eru um gerð þeirra. Sýnin er fögur en flækjustigið mikið og málaflokkurinn einkennist af ómarkvissri áætl- anagerð. Án heildarsýnar og sam- ræmdra vinnubragða er ómögulegt að gera áreiðanlegar áætlanir um þörfina. Sveitarfélög geta hægt á húsnæðisuppbyggingu og þannig velt byrðinni yfir á önnur sveit- arfélög. Að sama skapi geta sveit- arfélög ákveðið að ráðast í stórfellda uppbyggingu húsnæðis, langt um- fram þörf. Þetta fyrirkomulag eykur sveiflur og þar með samfélagslegan kostnað. Tekið á málum Í ýmsum ríkjum heims er skortur á íbúðarhúsnæði. Stjórnvöld í Bret- landi og í Kanada hafa tekið á málum á markvissan hátt þar sem rík- isvaldið hefur tekið forræði í málinu. Í hvítbók breskra stjórnvalda, sem kom út í byrjun árs 2017, voru áform stjórnvalda kynnt. Sveitarfélögum er gert skylt að gera staðlaðar skipu- lagsáætlanir og velt er fram ýmsum leiðum til að tryggja að framleiðni í byggingariðnaði aukist, að heimili séu byggð hratt og hvatt er til ný- sköpunar. Haft er víðtækt samráð við sveitarfélögin um leiðir til lausna. Í Danmörku eru húsnæðis- og byggingamál innan sama ráðuneytis til þess að auka skilvirkni. Hér á landi þarf ríkið að taka for- ræði í málinu og stofna innviðaráðu- neyti með því að koma húsnæðis- og skipulagsmálum inn í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Með auk- inni samvinnu, einfaldara og skilvirk- ara kerfi og auknu gagnsæi á hús- næðismarkaðnum eykst stöðugleiki og skilvirkni sem skilar sér í hag- kvæmara húsnæði, öllum til heilla. Eftir Sigurð Hannesson »Hér á landi þarf ríkið að taka forræði í málinu og stofna innviðaráðuneyti. Sigurður Hannesson Höfundur er framkvæmdastjóri SI. Innviðaráðuneytið 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Hvammstangi Örn Gíslason (t.v.) var í gær að aðstoða Þröst Óskarsson, skipstjóra á Mars HU-41, við að gera klárt fyrir grásleppuveiðarnar. Eggert Stjórnendur Land- spítalans sem og marg- ir aðrir hafa í hartnær tíu ár haldið því fram að uppbygging spítalans við Hringbraut hafi allt- af haft vinninginn í staðarvalsgreiningum. Þessu hefur verið hald- ið að þingmönnum, ráð- herrum og almenningi. Staðreyndin er sú að þetta er ekki rétt. Á þessum röngu fullyrðingum virð- ast stjórnmálamenn hafa byggt af- stöðu sína. Strax eftir aldamót, fyrir 18 árum, var sérfræðingum falið það afmark- aða verkefni, að meta við hvaða af þrem núverandi sjúkrahúsum væri heppilegast að byggja nýjan Land- spítala til mjög langrar framtíðar. Niðurstaða sérfræðinganna var ekki einróma eins og haldið hefur verið fram. Sumir vildu byggja við Hring- braut og aðrir við Fossvog. Á sama tíma komu sterk rök frá sérfræð- ingum um að heppilegast væri að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni. Undir það tók meðal annarra Lækna- ráð Landspítalans sem í greinargerð á árinu 2004 óskaði eftir því að stað- arvalið yrði endurskoðað og taldi best að byggja nýtt sjúkra- hús frá grunni. Hjúkr- unarráð Landspítalans var á sömu skoðun og vildi einnig að nýtt sjúkrahús yrði byggt frá grunni. Erlendu ráðgjaf- arnir EMENTOR töldu árið 2001 að best væri að byggja við í Fossvogi ef ekki væri vilji til að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni sem væri besti kosturinn. Sá kostur að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni, hefur aldrei verið skoðaður og greindur af heil- brigðisyfirvöldum. Á haustdögum 2009 komu fram vel rökstuddar óskir um að staðarvals- greining yrði gerð þar sem uppbygg- ing við Hringbraut og Fossvog yrði borin saman við byggingu nýs sjúkra- húss frá grunni. Því var hafnað á þeirri forsendu að það væri orðið of seint. Þegar nýtt aðalskipulag Reykjavík- ur 2010-2030 var samþykkt árið 2013, jukust kröfurnar um endurmat á stað- setningu þjóðarsjúkrahússins. Þessar kröfur komu fram m.a. vegna þess að skipulagslegt umhverfi gjörbreyttist og aðgengi að spítalanum við Hring- braut fullnægði ekki lengur for- sendum staðarvalsins. Grundvall- arforsendur höfðu breyst. En þeim óskum var hafnað með þeim rökum að engar umferðarlegar forsendur hefðu breyst frá gamla að- alskipulaginu AR2001-2024. En ef kortin eru skoðuð þá blasir við að fern bifreiðagöng hafa verið felld úr skipulaginu innan borgarmarkanna sem öll stefndu í átt að spítalanum við Hringbraut. Það eru Holtsgöng, Öskjuhlíðargöng, göng undir Kópa- vog úr Mjódd auk Miklubrautar í stokk. Alls um 6,4 km á lengd. Þar fyrir utan voru felld úr skipulagi 8 mislæg gatnamót og Reykjavík- urflugvöllur þurrkaður út. Þrátt fyrir þetta halda menn því fram að ekkert hafi breyst varðandi aðgengi að sjúkrahúsinu. Það stenst ekki. Það er skylda stjórnvalda áður en lengra er haldið að axla ábyrgð og láta fara fram greiningu á hvort betra og hagkvæmara sé að halda uppbyggingu við Hringbraut áfram eða byggja nýj- an spítala á nýjum stað. Öðruvísi næst ekki nauðsynleg sátt og sannfæring með þjóðinni um þetta mikilvæga mál. Ég er sannfærður um að nýr spítali á nýjum stað sé skynsamlegur kostur. Hann mun verða betri, ódýrari og öruggari en bútasaumurinn við Hring- braut. Hann mun losa sjúklinga undan miklum óþægindum á byggingartím- anum og þeim tíma sem tekur að end- urnýja gömlu húsin. Hann mun verða aðgengilegri fyrir sjúklinga og að- standendur og verða eftirsóttari vinnustaður fyrir lækna og hjúkr- unarfólk en gamli staðurinn við Hring- braut getur nokkurntíma orðið. Eftir Hilmar Þór Björnsson » Sá kostur að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni hefur aldrei verið skoðaður og greindur af heil- brigðisyfirvöldum. Hilmar Þór Björnsson Höfundur er arkitekt. Nýtt sjúkrahús frá grunni? Svæðið við Keldur er ekki aðeins landfræðilega nálægt miðju höfuðborg- arsvæðisins heldur liggja einnig allar helstu stofnbrautir þarna um. Að væta skóinn sinn Hátt húsnæðisverð er engin tilviljun. Reykjavík missti af lestinni á síðustu átta árum og skipulagði allt of fáar byggingarlóðir. Húsnæðisverð hefur snarhækkað og margir flytja annað. Reykja- vík selur bygging- arrétt á mjög háu verði og innleysir þannig skammtímahagnað. En þess- ar tekjur eru skammgóður vermir því þær koma bara einu sinni. Rétt eins og ylurinn á fætinum þegar reynt er að hita sér með því að „væta“ skóinn sinn. Hann dugar skammt. Margir útsvarsgreiðendur kjósa að flytja burt og til lengri tíma tapar borgin traustum tekjustofnum með því að búa til húsnæðisskort. Skammsýni í húsnæðismálum borg- arinnar hefur sundrað fjölskyldum, hækkað leiguverð og hækkað verð- tryggð lán. Það er ábyrgðarhluti fyrir langstærsta sveitarfélagið að sinna ekki því að skipuleggja lóðir fyrir þarfir markaðarins. Niðurstaðan er sú að talsvert framboð er af dýrum og stórum íbúð- um en lítið sem ekkert til af smærri einingum og hagstæðu húsnæði sem fólk vill helst. Breytum þessu núna Þessu viljum við breyta og skipuleggja strax í sumar hagstæða og spenn- andi búsetukosti eins og við Keldur og Örfirisey. Ekki síður mikilvægt er að klára hverfin eins og Úlfars- árdal og Norðlingaholt. Jafnframt að endurnýja Árbæ, Breiðholt og Grafarvog sem þurfa meira sjálf- stæði. Gera Mjóddina öflugan þjón- ustukjarna enda er hún á pari við Kringlusvæðið og Smárann að stærð. Nýta Keldnalandið fyrir þjónustu og sem mögulegt kjörlendi fyrir uppbyggingu sjúkrahúss. Hættum að okra á íbúum og bjóðum eðlilegt framboð á lóðum fyrir allar tegundir búsetu. Okkar markmið er Eftir Eyþór Arnalds » Skammsýni í húsnæðismálum borgarinnar hefur sundrað fjölskyldum, hækkað leiguverð og hækkað verðtryggð lán. Eyþór Arnalds Höfundur er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Rjúfum kyrrstöðuna að 2.000 íbúðir rísi á ári. Skipu- leggja atvinnulóðir í austurhluta borgarinnar og styrkja spennandi borgarbyggð í vesturhluta hennar. Taka þannig um leið á skipulags- vandanum og samgöngumálum. Nú- verandi stefna hefur getið af sér dýrt húsnæði og þyngri samgöngur. Gefum þeim frí sem ekki hafa valdið verkefninu í borginni. Breytum um stefnu og skiptum um áhöfn. Við höfum lagt fram skýrar lausnir á augljósum vanda borgarinnar. Í stað þess að afneita vandanum leggjum við fram leiðir til að leysa vandann. Stöndum saman í því að leiða Reykjavík inn í nýtt framfara- skeið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.