Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 26

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 26
Sýning Breytingar á starfsemi Safnahússins í Borgarnesi leiða m.a. til þess að fastasýningin „Börn í 100 ár“ verður tekin niður. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hugmyndir eru uppi um miklar breyt- ingar á fyrirkomulagi safnamála í Borgarbyggð. Til stendur að brjóta upp þá starfsemi sem nú er rekin und- ir einum hatti í Safnahúsinu í Borg- arnesi, en þar eru Byggðasafn Borg- arfjarðar, Héraðsbókasafn Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar, Listasafn Borgarness og Náttúrugripasafn Borgarfjarðar til húsa undir einni stjórn. Rætt er um að flytja hluta bókasafnið í menningar- húsið Hjálmaklett, þar sem Mennta- skóli Borgarfjarðar er einnig til húsa, og sýningarhald á nokkra staði, m.a. í svonefnt Grímshús í Brákarey og í skólahús á Hvanneyri. Núverandi fastasýning byggðasafnsins „Börn í 100 ár“ og sýning náttúrugripasafns- ins „Ævintýri fuglanna“ verða teknar niður ef þetta gengur eftir. Rætt er um að munir byggðasafnsins og skjöl héraðsskjalasafnsins fái samastað í varðveislusetri sem enn er ekki fyrir hendi. Áformin voru kynnt á opnum fundi í bænum í síðustu viku og um þau hefur verið birt skýrsla sem er aðgengileg á netinu. Guðrún Jónsdóttir, forstöðu- maður Safnahússins, lýsti efasemdum um þessi áform í ræðu á fundinum. Hún kvaðst ekki geta hugsað sér að horfa upp á safnahúsið tæmt og selt. Þá hefur starfsfólkið sent frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum af framtíð safnastarfsins í bænum. „Söfn- in eru héraðseign og margir hafa kom- ið að uppbyggingu þeirra og velferð, bæði félagasamtök og einstaklingar. Þau eiga sér því djúpar rætur í héraðs- sálinni,“ segir þar. Fleiri hafa tekið í sama streng og varað sveitarstjórnina við að taka skjótar ákvarðanir í mál- inu. Hagræðing í rekstri og vilji til að koma til móts við þarfir ferðaþjónust- unnar virðast einkum stýra áform- unum í Borgarnesi eins og víðar um land þar sem breytingar á safn- astarfsemi hafa verið innleiddar eða eru til skoðunar. Umtalsverður kostnaður Í skýrslunni kemur fram að rekstr- arkostnaður Safnahússins í Borg- arnesi nemur rúmlega 50 milljónum króna árlega og er að uppistöðu greiddur af sveitarfélaginu. Rekstur safna, að bókasöfnum undanskildum, er ekki lögboðin skylda sveitarfélaga. Gestir á sýningar í húsinu voru 4 þús- und árið 2016 og er um helmingur þeirra erlendir ferðamenn. Um 6 þús- und til viðbótar komu í bókasafnið á sama tíma. Það er víðar en í Borgarnesi sem sveitarstjórnarmenn velta fyrir sér hentugu skipulagi safnamála. Eins og fram hefur komið í fréttum er Byggðasafn Skagfirðinga að missa húsnæði sitt í Minjahúsinu á Sauð- árkróki, en þar hefur verið safn- geymsla, rannsóknaraðstaða, skrif- stofur og sýningar. Óbreytt starfsemi verður þó í höfuðstöðvum byggða- safnsins í Glaumbæ. Sveitarstjórn hef- ur samið við hóp fjárfesta um afnot af húsnæðinu á Króknum undir sýnd- arveruleikasýningu sem á að laða ferðamenn til bæjarins. Byggðasafnið verður í bráðabirgðahúsnæði á nokkr- um stöðum í bænum, þar til nýtt fram- tíðarfyrirkomulag verður ákveðið. Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri, einn reyndasti safnamaður landsins, er mjög ósátt við þetta og hefur sagt upp störfum í mótmælaskyni. Ekki eru mörg ár síðan sýning byggðasafnsins á Höfn í Hornafirði var tekin niður og er nú í geymslu- húsnæði. Það tengdist því að söfnin á staðnum voru sett undir nýjan hatt Menningarmiðstöðvar og aðsetri byggðasafnsins í Gömlubúð var breytt í upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk. „Það er kurr í mörgum safnamönn- um,“ segir Helga Maureen Gylfadótt- ir, formaður Félags íslenskra safna- manna, í samtali við Morgunblaðið. „Sumir hafa það á tilfinningunni að það sé verið að ýta þeim út.“ Þetta sé þó misjafnt eftir söfnum og sveit- arfélögum. Í stórum söfnum eins og Borgarsögusafni Reykjavíkur, þar sem Árbæjarsafn er innan veggja, séu menn sáttir, en áhyggjufullir og hugsi í ýmsum minni söfnum á landsbyggð- inni. „Söfn hafa orðið fyrir ruðn- ingsáhrifum frá uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu. Þau koma í ljós í ýms- um myndum,“ segja safnstjórarnir Guðrún Jónsdóttir og Sigríður Sigurð- ardóttir í grein í Fréttablaðinu í síð- ustu viku. „Margir sveitarstjórn- armenn virðast telja að ferðamenn vilji fremur sjá glæstar tilbúnar sýn- ingar heldur en upprunalega muni, sem eru látnir víkja. Þess eru jafnvel dæmi að grunnsýningar hafi verið teknar niður og safnkosti pakkað nið- ur í kassa og hann lent í húsnæð- ishraki. Slíkum aðgerðum fylgir hætta á þekkingarrofi og skemmdum. Við þær aðstæður er menningararfinum hætta búin,“ segja þær. Safnamenn vilja vita hvort tilfinning þeirra um að meiri breytingar séu í vændum eigi við rök að styðjast. Fé- lagið hefur óskað eftir því að frambjóð- endur stjórnmálaflokkanna í sveit- arstjórnarkosningunum í vor útskýri fyrir safnamönnum hvaða afstöðu þeir hafa til safna landsins og hver framtíð- arsýn þeirra sé á rekstur þeirra. Fund um þetta á að halda í Borgartúni 6 á miðvikudaginn í næstu viku, 25. apríl. Merk starfsemi byggðasafna Byggðasöfn komu til sögu á árunum eftir stríð. Líta má á þau sem hluta af þjóðernisvakningu sem fylgdi lýðveld- isstofnuninni og viðbrögð við miklum samfélagsbreytingum um þær mund- ir. Mikill áhugi skapaðist á því í byggð- um landsins að safna, varðveita og sýna muni og minjar um gamla sveita- þjóðfélagið, menningu þess og búskap- arhætti. Byggðasafn Vestfjarða er elst safnanna, stofnað fyrir frumkvæði áhugamanna 1941. Söfnunum fjölgaði smám saman næstu árin, Byggðasafn Austurlands var stofnað 1943, Byggðasafn Skagfirðinga 1948 og Byggðasafnið á Skógum 1949. Á sjötta áratugnum komu sjö ný byggðasöfn til sögu, þrjú á sjöunda áratugnum og fimm á þeim áttunda og síðan hafa fleiri bæst við, nokkur með sérhæfða starfsemi. Óhætt er að fullyrða að byggða- safnshreyfingin hafi bjargað sögu- legum menningarverðmætum í öllum landshlutum frá glötun. Hreyfingin var rekin áfram af hugsjónafólki og sjálfboðaliðum, en naut liðsinnis og leiðsagnar Þjóðminjasafnsins. Sveita- stjórnarfólk studdi söfnin og sveit- arstjórnir og landshlutasamtök sam- einuðust að standa undir daglegum rekstri þeirra. Fé kom einnig frá rík- inu og gerir enn. Úr safnasjóði koma styrkveitingar til skilgreindra verk- efna á vegum byggðasafna og annarra viðurkenndra safna. Þeir styrkir duga þó ekki til að standa straum af dag- legum rekstri safnanna, enda ekki hugsaðir til þess. Ekki bara sýningar Hlutverk byggðasafna er ekki að- eins að standa fyrir sýningarhaldi. Varðveisla og söfnun gripa og rann- sóknir á þeim og menningarsögunni er ekki síður stór þáttur í starfsemi þeirra og raunar undirstöðuatriði. Þetta er sá hluti sem er einna kostn- aðarsamastur en minnst sýnilegur al- menningi. „Fólk vill geta kynnt sér söguna og sjá upprunalega gripi sem tengjast henni; upplifa hið raunverulega,“ segja þær Guðrún og Sigríður í fyrrnefndri grein. „Brottfluttir íbúar vilja heim- sækja gamlar slóðir og rifja upp gaml- ar minningar, fræðimenn vilja rann- saka, skólanemar eiga að fá fræðslu.“ Þær segja að aðgerða sé þörf eigi að vera hægt að stunda öflugt safnastarf í landinu. Margra áratuga menningar- starf sé í hættu. „Land sem missir tengsl við sögu sína verður fátækt land, jafnvel þótt þar séu mörg hótel,“ segja þær. Í ályktun sem stjórnir Félags ís- lenskra safnamanna, Félags íslenskra safnafræðinga og fagdeild safnamanna innan Fræðagarðs sendu frá sér á dögunum segir að kröfur um hagræð- ingu í rekstri valdi því oft að söfn séu undirmönnuð og skerði það getu þeirra til að sinna lögboðnu hlutverki. Ákvarðanir sveitarstjórna um framtíð safna án fullnægjandi samráðs við starfsmenn þeirra komi niður á starf- seminni. Stjórnirnar minna á að söfn gegni mikilvægu hlutverki í varðveislu menningararfsins, fræðslu til skóla og sívaxandi hlutverki í ferðaþjónustu um land allt. Þau séu bæði uppspretta þekkingar og sköpunar, en einnig mik- ilvægur starfsvettvangur, ekki síst fyr- ir háskólamenntað fólk með sér- fræðiþekkingu. Söfn á landsvísu miðli menningararfinum og varðveiti hann til framtíðar. Með djúpar rætur í héraðssálinni  Brjóta á upp starfsemina í Safnahúsi Borgarness  Starfsfólk áhyggjufullt  Fleiri sveitarfélög hagræða í rekstri með þarfir ferðaþjónustu í huga  Safnamenn segja menningararfi hættu búna Sauðárkrókur Fjárfestar hafa fengið Minjahúsið að láni. 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.