Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Vestur-Íslendingurinn John How- ard Johnson frá Görðum í Norður- Dakóta var nýverið í heimsókn á Ís- landi ásamt dóttur sinni, Janelle, og fjölskyldu hennar. John er talinn einn merkasti núlifandi afkomandi íslenskra landnema. Í heimsókn sinni til Íslands heim- sóttu þau ættingja og vini fyrir norðan og áttu þau svo fund með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Ís- lands. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðræknisfélagi Íslands fór afar vel á með John og Guðna, sem setti sögu fyrstu íslensku landnemanna í Norður-Dakóta um 1880 í samhengi við samtíma atburði á Íslandi. Áður en John og fjölskylda sneru aftur vestur bauð Þjóðræknisfélagið til móttöku þeim til heiðurs. Afkomandi Stephans G. Langafi Johns var Jón Jónsson frá Mjóadal inni af Bárðardal og langamma hans var Sigurbjörg Stefánsdóttir frá Kroppi í Eyjafirði. Hún var systir Guðmundar, föður Klettafjallaskáldsins Stephans G. Stephansson. Þau fluttu vestur um haf árið 1873 í 10 manna hópi skyld- menna úr Bárðardal og víðar. Þau settust fyrst að í Wisconsin en fluttu 1880 til Garða í Norður- Dakóta. Þar bjuggu langafi Johns og síðar afi hans, Jón „yngri“ Jóns- son, og þá faðir hans sem hét John Helgi Johnson, en hann lést 1960. Síðan hefur John Howard sem fjórði ættliður haldið uppi merki fjölskyldunnar á jörðinni við Garða. Stephan G. Stephansson flutti ár- ið 1889 til Markerville í Alberta í Kanada með fjölskyldu sinni en fað- ir hans, Guðmundur, lést í Görðum árið 1881 og er grafinn í kirkjugarð- inum þar. „John H. Johnson hefur snert hjörtu margra með hlýju sinni, gleði og einlægu stolti af uppruna sínum. Hann á mjög marga aðdáendur á Íslandi og hefur tekið á móti hópum Íslendinga við minningarstein Stephans G. og við gömlu kirkjuna,“ segir í fréttatilkynningu frá Þjóð- ræknisfélaginu. John og fjölskylda höfðu for- göngu um og kostuðu, í samvinnu við barnabörn Stephans G., þau Stephan Benediktson og Iris Bourne, minningarreitinn um Stephan G. þar sem bær skáldsins stóð. Steinninn og fánaborgin voru vígð árið 2003. Síðan þá hefur John tekið þarna á móti hópum og heiðursgestum frá Íslandi, vel á annað þúsund manns. Bessastaðir John H. Johnson, við hlið Guðna Th. Jóhannessonar forseta, ásamt fjölskyldu sinni; dótturinni Janelle, tengdasyninum Rustin Rekness og börnum þeirra, Lillian og Noah. Með þeim eru þrír síðustu formenn Þjóðræknisfélags Íslands, Hjálmar W. Hannesson, Almar Grímsson og Halldór Árnason. Góðir gestir úr Vesturheimi  John H. Johnson frá Gardar í N-Dakóta heimsótti Ísland ásamt fjölskyldu sinni Formenn John H. Johnson, annar frá hægri ásamt þremur formönnum Þjóðræknisfélagsins, Almari Grímssyni (2003 - 2011), Hjálmari W. Hann- essyni (formaður frá 2017) og Halldóri Árnasyni (2011-2017) í móttöku. Málþingið Danskar og íslenskar bókmenntir – Gagnvegir í eina öld verður haldið í Veröld – húsi Vigdís- ar Finnbogadóttur í dag, sumardag- inn fyrsta, frá kl. 14 til 16.30. Erik Skyum-Nielsen, lektor í dönskum bókmenntum við Kaup- mannahafnarháskóla og einn helsti þýðandi íslenskra bókmennta á danska tungu, er kominn til landsins og mun fjalla um aðdráttarafl ís- lenskra bókmennta. Þá mun dr. Sveinn Einarsson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri, fjalla um dönsk verk á íslensku leiksviði og Una Margrét Jónsdóttir, fræði- maður og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, mun fjalla um revíur. Ragnheiður Steindórsdóttir leik- kona mun að lokum flytja nokkur revíulög við undirleik Helgu Bryn- dísar Magnúsdóttur píanóleikara. Málþingið er það fyrsta af sjö undir yfirskriftinni Á mótum danskrar og íslenskrar menningar, en viðburðirnir eru haldnir í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Fjallað verður um efni sem borið hefur hátt í samskiptasögu landanna á síðustu öld í fyrirlestraröðinni. Það eru dönskudeildin við Háskóla Ís- lands og Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur í erlendum tungumálum sem standa fyrir fyrirlestraröðinni, en hún er meðal þeirra 100 verkefna sem hlutu styrk og valin voru á dag- skrá fullveldisafmælisins. Gagnvegir bóka í hundrað ár  Fundað í Veröld Vigdísar í dag Una Margrét Jónsdóttir Erik Skyum-Nielsen Sveinn Einarsson Ragnheiður Steindórsdóttir Hvalfjarðargöng verða lokuð fimm nætur í næstu viku vegna við- halds og þrifa. Lokað verður frá miðnætti til kl. 6 að morgni aðfaranótt mánu- dags 23. apríl til og með aðfaranætur föstudags 27. apríl. Þetta eru árleg verkefni að vori, viðhald tækja og búnaðar og þrif, segir í frétt á heimasíðu Spalar. Þetta verður jafnframt í síðasta sinn sem Spölur stendur fyrir þessu verki, sem fyrirtækið hefur annast allt frá opnun ganganna árið 1998. Eins og fram hefur komið í fréttum mun ríkið taka göngin yfir í haust þegar kostnaður við þau verður að fullu greiddur. Það kemur því í hlut Vegagerðarinnar að sjá um við- haldið í framtíðinni, en Vegagerðin mun sjá um rekstur þeirra fyrir hönd ríkisins. sisi@mbl.is Göngunum lokað að næturlagi Sumri verður fagnað í dag í Garð- yrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Ís- lands á Reykjum í Ölfusi og verður skólinn opinn frá kl. 10 til 17. Gest- um og gangandi er boðið að kynna sér nám og störf í gróðurhúsum skólans. Sumarið er komið í garðskál- anum og hægt verður að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og potta- plöntusafninu, segir í tilkynningu. Verkefni nemenda í skrúðgarð- yrkju verða til sýnis í verknámshús- inu og við inngang skólans. Kaffi- veitingar og markaðstorg með garðyrkjuafurðir verður sett upp. Ýmiss konar afþreying verður í boði fyrir börnin, s.s. andlitsmálun. Hátíðardagskrá með tónlistar- atriðum verður kl. 14-15 þar sem afhent verða garðyrkjuverðlaun LbhÍ, umhverfisverðlaun Hvera- gerðis og umhverfisverðlaun Ölfuss. Ráðherrarnir Kristján Þór Júlíusson og Sigurður Ingi Jó- hannsson afhenda verðlaunin. Sumrinu fagnað á Reykjum í Ölfusi Meira til skiptanna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.